Morgunblaðið - 17.07.1998, Qupperneq 36
36 FÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
HESTAR
Erlendi
markaður-
inn hrópar
á lífsreynd
fjölskyldu-
hross
MARKAÐURINN fyrir ís-
lensk hross í Evrópu og
Bandaríkjunum hrópar á vel
tamin og lífsreynd fjölskyldu-
hross. Mest er ásókn í hross
sem eru 7-8 vetra eða eldri
og hafa helst reynslu af
óreyndum reiðmönnum, til
dæmis í hestaleigum eða
hestaferðum.
Yeltamdir
eðlistöltarar
Þetta kom fram á alþjóð-
legri ráðstefnu um markaðs-
mál íslenskra hesta sem hald-
in var í Hrafnagili í Eyjafirði
daginn eftir að landsmóti
hestamanna lauk á Melgerð-
ismelum. Var samdóma álit
erlendu fyrirlesaranna að vel
tamdir eðlistöltarar, rólegir
og öruggir væri sú hestgerð
sem langflestir kaupendur
vildu fá. Hestar sem bæði
börnin og afi og amma gætu
riðið. Hins vegar væru oft
sendir út hestar sem ekki
hentuðu nógu vel og væru
ekki nógu vel tamdir. Því
væri spurning hvort íslend-
ingar ætluðu að rækta hross
sem henta markaðinum eða
ekki. Einnig kom fram sú
spurning hvort dómskerfið í
rætkunarstarfinu passaði
markaðinum eða hvort það
þyrfti að vera tvískipt.
Nánar verður fjallað um
ráðstefnuna síðar.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
HITASÓTTIN gerði það að verkum að Sonja Líndal Þórisdóttir varð að hætta keppni en hreppti eigi að síður tvenn verðlaun.
Davíð með
sinn annan
landsmótssigur
HESTAR
Meigerðismelar
YNGRIFLOKKAR
A LANDSMÓTI
Á landsmóti hestamanna keppa ungir
hestamenn í þremur aldursflokkum
með mismunandi keppnisformi eftir
getu knapanna. Eins og Vijá fullorðn-
um var um að ræða forkeppni þar
sem tuttugu hæstu fóru í milliriðla
og þaðan tíu efstu í úrslit þar sem
raðað var í verðlaunasæti.
ÞRÁTT fyrir að keppni yngri
knapanna sé ekki efst á vinsælda-
lista landsmótanna býður keppni
_'þeirra ekki síður upp á spennu.
Krakkamir eru afar vel ríðandi og
flest þeirra hafa yfir að ráða góðri
tækni þannig að eðliskostir hross-
anna njóta sín til hins ýtrasta.
I ungmennaflokki sigraði Davíð
Matthíasson, Fáki, á Prata frá
Stóra-Hofi og óumdeilanlega hinn
öruggi sigurvegari. Voru þeir Da-
víð og Prati efstir eftir forkeppni
með 8,69, endurtóku leikinn í milli-
riðli með 8,64 og fengu síðan fyrsta
sæti hjá öllum dómurum í úrslitum.
Prati er afar góður hestur en að
sama skapi mjög erfiður en Davíð
var með hann í toppformi á réttum
tíma og þeir þekkja hvor annan vel.
Þetta mun vera annar sigur Davíðs
landsmóti, en hann sigraði í ung-
lingaflokki fyrir fjórum árum.
Leiðin hjá Guðmari Þór Péturs-
syni, Herði, varð torsóttari í annað
sætið á Háfeta frá Þingnesi. Hann
var fjórði eftir forkeppni með 8,47
en náði öðru sæti eftir milliriðilinn
með 8,59 og hélt því sæti í úrslitum
eftir harða keppni við Mörtu Jóns-
dóttir, Mána, á Krumma frá Geld-
ingalæk, sem var í fimmta sæti eft-
ir forkeppnina og fórða sæti eftir
milliriðil. Þær stöllur úr Fáki,
Gunnhildur Sveinbjarnardóttir á
-<,Náttfara frá Kópareykjum og
Ragnheiður Kristjánsdóttir á Dára
frá Keldudal, röðuðu sér í næstu
sætin.
Enn einn sigurinn
hjá Karen og Manna
í unglingaflokki var það Karen
Líndal Marteinsdóttir, Dreyra,
sem sigraði á Manna frá Vestri-
Leirárgörðum eftir að hafa verið
önnur í forkeppni með 8,57 en lag-
aði stöðuna í milliriðli og fór í 8,69,
enda Manni með mjög gott fet og
stökk. Allt frá því Karen fór að
keppa á Manna hefur ferillinn ver-
ið að heita má ein óslitin sigur-
ganga.
Daníel Ingi Smárason, Sörla, á
Seiði frá Sigmundarstöðum var í
sjöunda sæti eftir forkeppni með
8,47 en í öðru sæti eftir milliriðil
með 8,60. Félagi hans, Hinrik Þór
Sigurðsson, kom fast á hæla hans
en Ingunn Birna Ingólfsdóttir,
Andvara, á Sprengju frá Kálfholti,
sem var efst eftir forkeppni með
8,58, hafnaði í sjöunda sæti í milli-
riðli með 8,53 og hækkaði sig í
fimmta sæti í úrslitum.
Tvísýnt
hjá börnunum
Sigurvegari í bamaflokki, Elva
Björk Margeirsdóttir, Mána, sem
keppti á Svarti frá Sólheimatungu,
var í áttunda sæti eftir forkeppnina
með 8,25 en leiðrétti stöðu sína
heldur betur í milliriðli og fór þá í
fyrsta sætið með 8,66. Linda Rún
Pétursdóttir, Herði, kom næst á
Fasa frá Nýjabæ, var efst eftir for-
keppnina með 8,40 en féll í fimmta
sætið í milliriðli með 8,45 og hefði
vel getað sómt sér í fyrsta sætinu
svo vel sem hún og Fasi kynntu sig
í úrslitunum, sérstaklega var sýn-
ing þeirra á stökkinu í úrslitum af-
gerandi best.
Keppni unga fólksins á lands-
móti hefur mikla þýðingu fyrir þró-
un þess í reiðmennsku. Háværar
raddir eru á lofti um að keppni hafi
ekki góð áhrif á þau sem yngri eru
en á móti má spyrja hvort keppni
sé ekki sjálfsagður undirbúningur
fyrir lífið, sem gengur meira og
minna út á samanburð og sam-
keppni. Þá er það viðurkennd stað-
reynd að fátt stuðlar eins afgerandi
að framfórum í reiðmennsku og
þátttaka í keppni. Síðast en ekki
síst er stórskemmtilegt að fylgjast
með þessum bráðflinku reiðmönn-
um í spennandi keppni eins og boð-
ið var upp á landsmótinu. Margir
undrast hversu góðum hrossum
bömin ríða.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
KAPPREIÐARNAR voru spennandi og fylgdist mikill fjöldi áhorfenda með þeim.
Gífurlegur áhugi á
kappreiðum á landsmóti
KAPPREIÐAR voru með nýju
sniði á landsmótinu og var veð-
banki í fyrsta sinn starfræktur.
Áhugi landsmótsgesta var gífur-
legur og er talið að aldrei hafi
jafnmargir áhorfendur fylgst
með kappreiðum á Isiandi.
Hestamannafélagið Fákur var
fengið til að halda kappreiðarnar
á landsmótinu. Þar sem félagið
hefur leyfi til að halda veðreiðar
var ákveðið að starfrækja veð-
banka á mótinu. Fákur flutti því
bæði starfsfólk veðbankans og
rásbása á mótssvæðið og gengu
kappreiðarnar fijótt og vel fyrir
sig.
Að sögn Hjartar Bergstað,
vallarstjóra kappreiða, fóru veð-
málin hægt af stað, en eftir því
sem á leið lifnaði yfir þeim. Hann
sagði að keppnin hefði gengið
ótrúlega vel og tókst að ljúka 21
riðli á rúmlega einni og hálfri
klukkustund.
Hjörtur segir að eftir að byij-
að var að sjónvarpa kappreiðum
og starfsemi veðbanka var end-
urvakin hafi áhugi almennings á
kappreiðum aukist til muna,
enda kom það í ljós á landsmót-
inu. Hann sagði jafnframt að
nokkur hestamannafélög hefðu
haft samband við Fák og vildu að
félagið héldi kappreiðar fyrir
sig. Ekki er ákveðið hvort af því
verði, enda öll vinnan unnin í
sjálfboðavinnu og spurning hvað
fólk vill leggja mikið á sig.
ANNAR landsmótssigurinn í höfn hjá Davíð Matthíassyni sem heldur
hér í hest sinn, Prata frá Stóra-Hofi, síðast í unglingaflokki en nú í
flokki ungmenna.