Morgunblaðið - 17.07.1998, Síða 50
50 FÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
[ kvöld, nokkur sæti laus • laugardaginn 18. júlí, nokkur sæti laus
• föstudaginn 24. júlí • laugardaginn 25. júlí. Sýningar hefjast kl. 20.
Miðasala simi 551 1475.
Opin alla daga kl. 15-19. Símapantanir frá kl. 10 virka daga og frá kl. 13 um helgar.
Tilkynning frá fógetanum í Nottingham
125.000 gullpeningar í boði fyrir þann sem
handsamar útlagann Hróa hött
jHrói höttur er í sirkustjaldinu í Mt'isdýragarðinum
Miðapantanir • Nótt«&Dagur • 562 2570
Sýnt miðv. - fóstud. kl. 14:30
Lau. - sun. kl. 14:00 og
Miðaverð: 790,- (640,- fyrir hópa)
Innifalið í verði er aðgöngumiði á Hróa hött.
aðgöngumiði í Fjölskyldu- og Húsdýragarðinn
og frítt í öll tæki í garðinum
■ feUlSDjltJ.l:
* ■mwnvawn
m
Gamanleikrit í leikstjórn
Sigurðar Sigurjónssonar
lau. 18/7 kl. 23
fim. 23/7 kl. 21
Miöaverö Kr. 1100 fyrir karla
kr. 1300 fyrir konur
Vörðufélagar LÍ fá 30% afslátt
Sýnt í íslensku óperunni
Miðasölusími 551 1475
í KVÖLD !!!
„Megasukk
í Kaffileikhúsinu"
Hinn eini sanni Megas
á tónleikum með Súkkat
f kvöld kl. 22 til 2, laus sæti.
s------------------------—*
Tónleikamatseðill
Indverskur grænmetisréttur að hætti
Lindu, borinn fram með fersku salati
og ristuðum sesamfræjum.
í eftirrétt „Óvænt endalok".
_________Aðeins kr. 1000._______
Miðas. opin alla virka daga kl. 15—18.
Miðap. allan sólarhringinn í s.551 9055.
Netfang: kaffileik@isholf.is
Leikfélagið Regina
„Northern Lights“
eftir Frederick Harrison
í Möguleikhúsinu v/Hlemm
Frumsýn. lau. 18.7. kl. 20.30.
2. sýn. sun. 19.7. kl. 20.30.
3. sýn. fim. 23.7. kl. 20.30.
4. sýn. fös. 24.7. kl. 20.30.
5. sýn. lau. 25.7. kl. 20.30.
6. sýn. sun. 26.7. kl. 20.30.
Flutt á ensku/Performed in english
Miðasala í síma 562 5060
ÞJONN
í S ú p u n n i
lau 18/7 UPPSELT
sun 19/7 UPPSELT
fim 23/7 UPPSELT
fös 24/7 UPPSELT
lau 25/7 UPPSELT
sun 26/7 UPPSELT
fim 6/8 örfá sæti laus
fös 7/8 örfá sæti laus
Sýningamar hefjast kl. 20.00
Miðasalaopinkl. 12-18
Ósóttar pantanir seidar dagiega
Miðasölusími: 5 30 30 30
Æ NONAME
, W ■ —..COSMETICS ■■■■■ -
jtynninq
|Jki ' ^
Helga Sæunn förðunarfræðingur gefur
ráðleggingar í dag frá kl. 14-18
Primadonna, Grensásvegi 50
9^æturgaíbm
Smiðjuvegi 14, %ppavojji, sími 587 6080
Danshús
í kvöld og laugardagskvöld leika
Hilmar Sverris og Þorsteinn Magnússon
Gestasöngkona Anna Vilhjálms
Sjáumst hress
FÓLK í FRÉTTUM
KRÓNPRINSESSAN
tekur við blómum frá
lítilli stúlku á afmæl-
isdaginn.
Viktoría þakklát
fjölmiðlum
KARL Gústav óskar dóttur
sinni til hamingju með afmælið.
SÆNSKA krónprinsessan Vikt-
oría varð 21 árs á þriðjudag. Hún
hefur háð erfiða baráttu gegn
lystarstoli í átján mánuði. Fram-
tíðardrottning Svía er orðin vin-
sælasti meðlimur konungsfjöl-
skyldunnar í landi þar sem 93%
íbúa telja að konungsíjölskyldan
standi sig vel, samkvæmt nýlegri
könnun
Sænskir fjölmiðlar hafa tekið á
máli Viktoríu með samúð og er
það ólíkt framkomu breski-a fjöl-
miðla við Díönu prinsessu, sem
lést í bílslysi fyrir tæpu ári eftir
að blaðamenn höfðu elt hana um
götur Parísar.
Allir ganga ígegnum
erfíðleika
„Mér líður mjög vel, en ég
er viss um að allir þurfa að
ganga í gegnum erfið tímabil.
Hjá mér var það hér inni,“
sagði hún við blaðamenn og
benti á hjartastað. „Ég er mjög
þakklát íjölmiðluni fyrir að
hafa tekið tillit til veikinda
minna,“ sagði hún. „Ég kann
sannarlega að meta að borin
var virðing fyrir mér og mér
leyft að vera í friði.“
Viktoría er elst þriggja barna
Karls XVI Svíakonungs og Silvíu
drottningar. Henni var haldið fyr-
ir utan sviðsljósið að mestu í æsku
en byijaði að koma fram opinber-
lega 18 ára. Síðan hefur hún verið
stöðugt í sviðsljósinu. Álagið
reyndist hins vegar of mikið fyrir
Viktoríu og konungshöllin til-
kynnti í nóvember árið 1997 að
hún ætti við lystarstol að stríða.
Sjúkleiki hennar var augljós.
Myndir af henni við opinber
tækifæri sýndu á dramatískan
hátt hvað hún hafði lést mikið á
liðnu ári.
„Þetta snýst ekki alltaf um ytri
vandamál. Þau geta líka komið
að innan og það getur hent alla,
ekki aðeins ungar stúlkur heldur
einnig stráka,“ sagði Viktoría.
„Það tekur tíma og getur verið
mjög sárt.“
Vinsælasti meðlimur
konungsijölskyldunnar
Foreldrar Viktoríu hafa alltaf
reynt að gera líf barna sinna eins
eðlilegt og kostur er og í janúar
á þessu ári fór hún í Yale-háskól-
ann í Bandaríkjunum til að
stunda nám og flýja sviðsljósið
eftir að komið hafði í ljós að hún
væri með lystarstol.
„Faðir minn hefur lagt áherslu
á mikilvægi þess að ég móti mitt
eigið líf, sinni eigin áhugamálum,
byggi upp sjálfstraust og nái
innri friði,“ sagði hún.
„Það hefur verið mér mikii-
vægt að fá tækifæri til að kynn-
ast öðru þjóðfélagi. Bandarískt
samféiag hefur verið ótrúlega
spennandi með öllum þeim ólíku
menningarstraumum sem þar
koma saman."
Engar opinberar uppákomur
eru á dagskrá hjá Viktoríu á
þessu ári fyrir utan árlegan af-
mælisfögnuð á sænsku eyjunni
Oland, þar sem fjölskyldan á
sumarhús. I könnun sem sænska
sjónvarpsstöðin TV3 gerði í mars
á þessu ári kom í Jjós að Viktoría
hafði tekið sæti móður sinnar,
Silvíu drottningar, sem vinsæl-
asti meðlimur sænsku konungs-
íjölskyldunnar.
FOSTUDAGSMYNDIR SJONVARPSSTÖÐVANNA
Sjónvarpið ► 20.35 Ráðgáta dags-
ins, l:f foreldraleit (Reasons of the
Heart, ‘96), er sögð fjalla um unga
konu í leit að uppruna sínum. Leik-
stjóri Rick Jacobson, með Terry
Farrell og Mimi Kennedy.
Stöð 2 ►21.00 Sjónvarpsmyndin
Silfurnáman (The Legend of Ruby
Silver, ‘95), gæti veríð forvitnileg, ef
menn halda vel á spöðunum. Ung
ekkja ræður sig sem matsvein hjá
vafasömum náungum sem halda á
fjöll til að opna gamla silfumámu.
Græðgin tekur yfírhöndina. IMDb
gefur 8.1. Með Rebeccu Jenkins.
Leikstjóri Charles Wilkinson.
Sýn ► 21.00 Á mannaveiðum -
Manhunter, (‘86), Sjá umfjöllun í
ramma.
Sjónvarpið ► 22.00 Ást í fangelsi
(Captives, ‘95), náði aldrei inná tjald
í íslensku kvikmyndahúsi. Segir af
tannlækni (Julia Ormond) sem tekur
að sér störf í fangelsi um svipað leyti
Sígrún Eva og
Stefán Jökulsson
halda uppi fjörinu
með léttri sveiflu
á Mímisbar.
<
'n saga!
og hjónaband hennar fer í vaskinn.
Þetta er umtöluð mynd sem hóf leik-
stjórann, Angelu Pope, til nokkurrar
virðingar. Tímartið Boxoffice gefur
★ ★ og segir myndina fara vel af
stað, erótísk spenna náist á milli
fangans Tim Roth og tanna, en
myndin missi síðan dampinn.
Stöð 2 ► 22.35 í skugga hins illa
(In the Shadow of Evil,’95). Frum-
sýning á forvitnilegri sjónvarps-
mynd um tuggið efni, lögreglumann
á hælum fjöldamorðingja. En mynd-
in tekur óhefðbundna stefnu; löggan
missir minnið og allt í uppnámi. Með
Treat Williams og gæðaleikaranum
William H. Macy, (Fargo, Boogie
Nights). IMDb gefur I. einkunn, 8.7
Sýn ► 22.55 Gamanmyndin Bófa-
hasar (Johnny Dangerously, ‘84), er
lítt eftirminnilegt grín um átök bófa
á kreppuárunum , þegar vínbannið
kom illa við þorstláta menn. Með
Michale Keaton í slæmu formi og
nokkrum kunnum andlitum í auka-
hlutverkum ★
Stöð 2 ► 0.10 Spennumyndin
grimma og snjalla með De Niro og
Nolte, Víghöfði (CapeFear, ‘91),
hefur fengið rækilega umfjöllun á
þessum vettvangi, ég hvet fólk enn
og aftur að missa ekki af henni.
★ ★★Vz
Sýn ► 0.45 Fjandvinir (Enemy
Mine, ‘85), er einnig gamall og góður
kunningi, sem ég hef bent fólki á að
sjá - ef það hefur ánægju af góðum
SF-myndum, ★★★
Stöð 2 ►2.15 Enn ein frumsýning
á sjónvarpsmynd sem lofar góðu.
Götudrós (Daughter of the Streets,
‘90), er um mæðgur, einstæða móður
(Jane Alexander), sem hefur ekki
gefið sér tíma til að sinna dóttur
sinni (Roxanne Zal), sem hefur
leiðst útí vændi. Þær eru báðar
ágætar leikkonur og leikstjórinn, Ed
Sherin, er reyndur maður á þessu
sviði. IMDb gefur 7.1
Sæbjörn Valdimarsson
Löggan sem handtók
Hannibal Lechter
Sýn ► 21.00 Hann kom fram á
sjónarsviðið, spennuhrollurinn Á
mannaveiðum Manhunter, ‘86),
nokkrum árum á undan Lömbin
þagna, sem er skrifuð af sama
manni (Thomas Harris), um
sama lögreglumanninn og Seott
Glenn lék í þeirri ágætu mynd.
Við A.I. segjum um Á manna-
veiðum í Myndbandahandbókinn:
„Rannsóknarlögreglumaður
(William L. Petersen), sérfræð-
ingur í að hafa uppá fjöldamorð-
ingjum, er fenginn til að leita enn
eins brjálæðingsins. Hann hefur
sérstakt lag á að setja sig í spor
þessara morðingja og fer að ótt-
ast um eigin geðheilsu. Full-
stíliseraður þriller (leikstjórinn,
Michael Mann, er höfundur Mi-
ami Vice-þáttanna), á köflum
dúndurgóður, spennandi og ógn-
vekjandi. Ætti sannarlega að
halda áhuga manna vakandi með
hraðri og áhi-ifamikilli lýsingu á
leit morðingjans - og hverning
löggan fær smám saman mynd af
honum. Petersen er fantagóður.
★★★„. Svo mörg voru þau orð.
Sæbjörn Valdimarsson