Morgunblaðið - 17.07.1998, Page 60

Morgunblaðið - 17.07.1998, Page 60
 Jimláí -setur brag á sérhvern dag! MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 FÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ 1998 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Yfirmaður varnarliðsins Flugstjóri hjá TWA að aðal- starfi NYR yfirmaður varnarliðsins í Keflavík, Daniel L. Kloeppel að nafni, er kominn til starfa. Hann er flotaforingi í varaliði bandaríska hersins. Aðalstarfi Kloeppels, þegar hann gegnh- ekki virkri herþjónustu, er flugstjórn hjá Trans World Air- lines. Ráðgert er að Kloeppel gegni yfirmannsstarfinu fram á haustið uns skipaður hefur ver- ið yfinmaður til frambúðar. Að sögn Friðþórs Eydals, upplýs- ingafulltrúa varnarliðsins, er ástæðan fyrir því að Kloeppel kemur hingað einungis tíma- bundið sú að forveri hans, John E. Boyington yngri, var kaliað- ur til annarra starfa fyrr en gert var ráð fyrir. „í stað þess að iáta varnarliðið vera á með- an undir stjórn næstráðandans greip flotinn til þess ráðs að kalla Kloeppel inn til virkrar herþjónustu. Hann verður hér þangað til settur verður nýr yf- irmaður til frambúðar." Stöð lyfta ÞRJU börn lokuðust inni í lyftu um stund í átta hæða fjölbýlishúsi við Asparfell í Reykjavík um kaffileytið í gærdag. Var slökkviliðið kallað á vettvang og aðstoðaði það við að ná lyftunni niður og börnunum út. Talið er að einhverjar rafmagns- truflanir hafi verið í húsinu sem rugluðu stýrikerfi lyftunnar þannig að hún stöðvaðist milli hæða. Reyndu börnin þrjú að opna innri 'dyr lyftunnar en tókst ekki. Varð þá að bregða á það ráð að slaka lyftunni niður með sveif úr lyftuhúsinu sem er ofan við efstu hæðina. Losnuðu börnin því úr prísundinni eftir nokkra stund. Morgunblaðið/Sigurgeir ÞEGAR björgunarsveit var komin á staðinn var Sigurvin slakað niður bjargið í sjúkrakörfu. Á minni myndinni sést Sigurvin fluttur í land. Sköflungsbrotn- aði í Suðurey KNATTSPYRNUKAPPINN Sigurvin Ólafsspn, sonur Ólafs Sigurvinssonar og bróðursonur As- geirs, leikmaður með IBV, sköflungsbrotnaði í gær í Suðurey í Vestmannaeyjum. Ohappið vildi til er hann ásamt félaga sínum, Gunnari Berg Viktorssyni, var við lundaveiðar í eynni. Að sögn Gunnars stóðu þeir við bjargbrún og voru að slaka lunda niður í bát fyrir neðan þegar reipið skrapp upp af kopp sem því var brugðið utan um, næstum þrjá metra frá bjargbrúninni, með þeim afleiðingum að það rann fram af brún- inni á miklum hraða, enda héngu 200 lundar í reipinu. A leiðinni slæmdist reipið utan í Sigur- vin. „Við getum þakkað fyrir að ekki fór verr, við færðum okkur hvor í sína áttina þegar við sáum þetta gerast, en reipið fór utan í Sigurvin. Það er hálfótrúlegt eftir á að hyggja að reipi skuli geta fótbrotið mann, en við erum heppnir að ekki fór verr. Við værum ekki til frásagnar ef við hefðum dottið þarna fram af, en það eru 60 metrar niður að sjó,“ sagði Gunnar í samtali við Morgunblaðið í gær. Kölluðu á björgunarsveit Gunnar og þriðji félagi þeirra, Ólafur Stefáns- son, sem var í kofanum á eynni þegar óhappið átti sér stað, kölluðu til aðstoðar björgunarsveit sem mætti á staðinn og flutti Sigurvin í land. Þaðan var hann fluttur með flugvél til Reykjavík- ur og á bráðamóttöku Landspítalans þar sem gert var að sárum hans. Þetta er annað árið sem Sigurvin leikur með IBV, en hann lék áður með Stuttgart. Hann hóf keppnistímabilið af krafti í ár en meiddist fyrir fjórum vikum á hné. Það lítur ekki út iyrir að Sigurvin geti leikið meira á keppnistímabilinu og segir Jóhannes Ólafsson, formaður knattspyrnu- deildar ÍBV, þetta áfall fyrir liðið, „en við erum með breiðan hóp leikmanna sem hefur unnið síð- ustu tvo leiki. Það getur auðvitað alltaf komið fyrir að leikmenn meiðist, þetta er fyrst og fremst leiðinlegt fyrir hann“. Skemmdir unnar á útilistaverkum SKEMMDIR hafa verið unnar á ysrkum á sýningu Myndhöggv- arafélagsins í Reykjavík, Strand- lengjunni, sem staðið hefur frá 7. júní meðfram sunnanverðri strandlengju borgarinnar. „Fólk hefur almennt tekið sýningunni vel og sett skemmtilegt mark á hana með nærveru sinni. En Arekstur á einbreiðri brú ENGAN sakaði í árekstri I ► tveggja bifreiða á einbreiðri brú yfir Laxá í Refasveit um hálfníuleytið í gærkvöldi. Nokkrar skemmdir urðu á stýrisbúnaði annars bílsins, svo hann varð óökufær, en hin- um var hægt að aka á Blöndu- ós. Að sögn lögreglu virtist sem annar ökumaðurinn hefði ekið heldur greitt. nokkrir hafa ekki staðizt prófið, því miður, heldur skemmt nokk- ur verkanna og þó eitt sýnu mest,“ segir Kristinn E. Hrafns- son, formaður sýningarnefndar Myndhöggvarafélagsins. Kristinn sagði að fyrst hefðu tvö nöfn verið máð í burtu, en úr því hefði strax verið bætt. Síðan hefur gler verið brotið í einu verki og annað verk brotið og málningu sprautað á tvö verk til viðbótar. En mestar skemmdir hafa verið unnar á GeimSteini Brynhildar Þorgeirsdóttur og sagði Kristinn að búið væri að rústa verkið og ljóst, að hamast hefði verið á því með grjóti eða öðru barefli. „Það er auðvitað þolraun fyrir samfélagið að hafa svona sýningu uppi við,“ sagði Kristinn. „Sem betur fer standast hana flestir og hafa gaman af að skoða sýninguna. En því miður eru alltaf einhverjir á valdi skemmdarfýsnarinnar." Morgunblaðið/Ásdís KRISTINN E. Hrafnsson við GeimStein Brynhildar Þorgeirsdóttur, sem mestar skemmdir hafa verið unnar á. Vill leyfa 80 km í Ár- túnsbrekku BRÝNT er að endurskoða hraða- mörk í Reykjavík bæði til hækkun- ar og lækkunar, að mati Georgs Kr. Lárussonar lögreglustjóra. Hefur hann lagt til að leyfður verði 80 km hraði á Miklubraut á kaflan- um frá gatnamótum Skeiðaivogs og Réttarholtsvegar, um Ártúns- höfða og upp í Mosfellsbæ. Þolir meiri umferðarhraða Georg Kr. Lárusson segist hafa sent borgaryfirvöldum, Umferðar- ráði og Vegagerðinni umrætt er- indi. Segir hann Vegagerðina telja að þessi kafli þoli meiri umferðar- hraða og telur lögreglustjóri skyn- samlegt að leyfa aukinn hámarks- hraða. Þá segir hann einnig koma til greina að hækka í 80 km hraða- mörkin á Suðurlandsvegi, frá vega- mótunum við Vesturlandsveg og upp fyrir Rauðavatn. ■ Meta verður/30

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.