Morgunblaðið - 15.08.1998, Page 1
STOFNAÐ 1913
182. TBL. 86. ÁRG.
LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Uppreisn-
armenn
sækja að
Kinshasa
Muanda, Goma, Genf, Brusscl. Reuters.
UPPREISNARHERMENN í Lýð-
veldinu Kongó söfnuðust saman í
hafnarborginni Muanda í gær til
þess að leggja á ráðin um lokaatlög-
una að höfuðborginni Kinshasa.
Uppreisnarmenn sækja fram um
allt land og segja þess stutt að bíða
að þeir steypi forsetanum af stóli.
Orðrómur var á kreiki snemma í
gær um að Laurent Kabila forseti
hefði flúið Kinshasa en talsmenn
forsetans báru þetta hins vegar til
baka og sögðu Kabila í höfuðborg-
inni sem fyrr. Hann hefur ekki sést
opinberlega síðan snemma í vik-
unni.
Rafmagn komst aftur á í flestum
hverfum Kinshasa í gær eftir að
borgin hafði verið rafmagnslaus í
um sólarhring, að sögn ríkisút-
vai-psins þar. Héldu uppreisnar-
menn því fram að þeir, en ekki
stjómvöld, hefðu komið rafmagninu
á og viðurkenndu embættismenn
stjómarinnar að uppreisnarmenn
hefðu virkjunina við Inga á sínu
valdi. Sögðu þeir rafmagnsleysið
hins vegar ótengt því.
Ríkisstjórnir Bretlands, Frakk-
lands, Japans og Þýskalands hafa
allar hvatt þegna sína til þess að yf-
irgefa landið vegna stríðsástands-
ins. Stjóm Frakklands sendi flugvél
til landsins í gær til þess að ná í
Frakka sem vilja komast á brott, en
belgíska flugfélagið Sabena aflýsti
flugi til Kinshasa í gær.
Reuters
UPPREISNARHERMENN í Kongó segja of seint að semja um lausn
deilunnar og að Kabila verði að fara frá.
Clinton sagður
íhuga breytt-
an framburð
Washington. Reuters, The Daily Telegraph.
BANDARÍSKA forsetaembættið
mun ekki gefa út neina yfirlýsingu
vegna fréttar í blaðinu The New
York Times í gær
um að Bill Clint-
on forseti ihugaði
að viðurkenna, er
hann ber vitni
fyrir rannsóknar-
kviðdómi á mánu-
dag, að hafa átt
munnmök við
Monicu Lewin-
sky. Gert er ráð
fyrir því að Clinton hefji vitnisburð
sinn um fimmleytið að ísl. tíma og
sagði Mike McCurry, talsmaður for-
setans, í gær ómögulegt að segja til
um hversu langan tíma vitnisburður
hans tæki.
The New York Times greindi frá
því í forsíðufrétt í gær að forsetinn
hefði átt langa fundi með nánustu
ráðgjöfum sínum um hvernig hann
gæti farið að því að viðurkenna fyrir
Kenneth Starr, sérstökum saksókn-
ara er rannsakar meint misferli for-
setans, að hafa haft náin kynferðis-
leg samskipti við Lewinsky, fyrrver-
andi starfsstúlku í Hvíta húsinu.
Segja heimildarmenn að Clinton
ráðfæri sig í þessu máli einungis við
fjórar manneskjur, Hillary eigin-
konu sína, lögmenn sína David
Kendall og Nicole Seligman, auk
Mickeys Kantor, sem áður var við-
skiptaráðherra. Munu þau Kendall
og Seligman, auk Charles Ruff ráð-
gjafa Clintons, verða viðstödd yfir-
heyrsluna á mánudag en undir
venjulegum kringumstæðum fá
menn ekki að hafa lögmenn sína við-
stadda er þeir gefa vitnisburð fyrir
rannsóknarkviðdómnum.
Öruggtim tækjabúnaði
komið fyrir
I janúar neitaði forsetinn þvi í eið-
svarinni yfii-lýsingu að hafa átt í ást-
arsambandi við Lewinsky. The New
York Times sagði að þótt forsetinn
hefði ekki tekið ákvörðun snerust
fundirnir með ráðgjöfunum um leið-
ir til að viðurkenna munnmök en
neita um leið „kynferðislegu sam-
bandi“ við Lewinsky. McCurry vildi
hins vegar í gær lítið gefa fyrir spá-
dóma blaða- og stjórnmálaskýrenda
og líkti áhuganum á vitnisburði
Clintons við það sem best þekktist í
kringum „superbowl", úrslitaleik
bandaríska fótboltans.
Tæknimenn í Hvíta húsinu eru nú
að koma upp öruggum tækjabúnaði
til sjónvarpssendingar frá vitnis-
burði forsetans í Hvíta húsinu til
bækistöðvar rannsóknarkviðdóms-
ins í umdæmisdómshúsinu í Was-
hington. Ganga á úr skugga um að
enginn geti séð eða heyrt framburð-
inn, en ráðgjafar Clintons óttast að
óviðkomandi aðilar geti með full-
komnum tækjabúnaði náð sending-
unni og selt fjölmiðlum upptöku.
Fjármálamarkaðir hjarna við í Rússlandi
Jeltsín heitir að
fella ekki gengið
Nasistar í Danmörku
Hunsa
göngubann
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
DÖNSKUM nasistum hefur verið
bannað að safnast saman í miðborg-
um Kaupmannahafnar, Koge og
Hróarskeldu, eins og þeir höfðu farið
fram á. Bannið er rökstutt með því
að hætta sé á að gangan leiði til
óeirða, þar sem andstæðingar nas-
ista hugðust efna til andófs um leið.
Þá ætla danskir gyðingar að koma
saman til að minna á ógnarstjórn
nasista. Nasistarnir segjast þó ætla
að koma saman en óljóst er hvar og
hvernig fundur þeirra fer fram.
Jonni Hansen, leiðtogi danskra nas-
ista, segist ánægður með mikla um-
fjöllun danskra fjölmiðla, sem hafi
komið boðskap þeirra á framfæri.
Nasistar hafa þann háttinn á að
gefa ekki upp hvar þeir komi saman.
Hansen segir að búist sé við um 500
manns og segir þýsku og dönsku lög-
regluna hafa vísað 150 manns frá við
landamærin, en samkvæmt lögreglu
er um að ræða innan við 20 manns. I
Þýskalandi er nasistum bannað að
koma saman.
Samkoman í dag er í minningu
Rudolf Hess, hægri handar Adolf
Hitlers, þýska nasistans Fritz
Clausen og norska nasistans Vidkun
Quisling, eða til minningar um „fóm-
arlömb lýðræðisins", svo notuð séu
orð nasistanna. Samkoman hefur
verið fastur liður undanfarin ár og
dregið að sér vaxandi athygli.
Fatastærðir
á smartkort
FULLYRÐINGIN um klæðskera-
sniðinn fatnað mun að öllum lík-
indum öðlast nýja merkingu á
næstu árum þegar svokallaðir lík-
amsskannar verða teknir í notkun
í verslunum. Skannarnir eru nú
þegar notaðir hjá ýmsum fata-
framleiðendum í Bandaríkjunum,
en þeir taka þrívíða mynd af fólki
og reikna út hvaða stærð af fötum
það notar. Er vonast til að almenn
notkun skannanna muni leiða til
þess að fatastærðir verði lagaðar
betur að vaxtarlagi neytenda.
I The New York Times er haft
eftir verslunareigendum að þess
sé skammt að bíða að skannarnir
verði teknir í notkun í stórum
verslunarsamstæðum. Upplýsing-
ar um stærð fólks verða skráðar
inn á svokölluð smartkort, sem
eru á stærð við greiðslukort og
rúma alls kyns upplýsingar, og
verður hægt að lesa af þeim í
verslunum.
Skannarnir eru þegar notaðir
við fataframleiðslu, enda er mæl-
ing með málbandi ekki talin full-
nægjandi. Þykja skannarnir koma
sér vel t.d. þegar skyrtur eru
hannaðar þar sem erfitt sé að
mæla efri hluta líkamans ná-
kvæmlega. Framleiðendur segja
stærðir vera að breytast í sam-
ræmi við breytingar á líkamlegu
atgervi, sem þeir segja m.a. af-
leiðingu heilsuræktaræðisins sem
nú gangi yfir Vesturlönd.
Novgorod, Washington. Reuters.
BORIS Jeltsín, forseti Rússlands,
reyndi í gær að róa fjármálamenn
með því að heita því að gengi rúss-
nesku rúblunnar yrði ekki fellt.
Hann hvatti ennfremur þingið til að
koma saman til aukafundar til að af-
greiða frumvörp ríkisstjórnarinnar
um efnahagsumbætur. Fjármála-
markaðir í Moskvu hjörnuðu nokk-
uð við í gær, eftir hrun á fimmtu-
dag.
Jeltsín og Bill Clinton Banda-
ríkjaforseti ræddu saman í síma í
gær um aðgerðir til að rétta efna-
hag Rússlands við. Talsmaður
Hvíta hússins skýrði frá því að
Clinton hefði hvatt Jeltsín til að
bregðast skjótt við vandanum og
gera ráðstafanir til að efla tiltrú
fjárfesta á rússeska fjármálamark-
aðinn. Hann tók þó sérstaklega
fram að þeir hefðu ekki rætt um
frekari peningaaðstoð til Rússa.
Jeltsín sagðist í gær ekki hafa
nein áform um að stytta sumarfrí
sitt og snúa aftur til Moskvu vegna
óróa á mörkuðum. Stjómmála-
Reuters
BORIS Jeltsín Rússlandsforseti
sýndi leikræn tilþrif er hann
ræddi við verkamenn í borginni
Novgorod í gær.
skýrendur hafa í kjölfar fjármála-
hrunsins velt því fyrir sér hvort for-
sætisráðherrann Seirgei Kíríjenkó
standi nógu styrkum fótum til að
þola þessa eldraun. Aðspurður
hvort hann styddi ennþá forsætis-
ráðherrann svaraði Jeltsín: „Já, ég
mun hafa hann áfram.“
Vísitala hækkar
um 14%
Útlit þykir nú fyrir að rússneskir
fjármálamarkaðir séu að ná sér á
strik eftir hrunið á fimmtudag.
Hlutabréf hækkuðu svo ört í verði í
gær að stöðva þurfti söluna um
tírna. Interfax-hlutabréfavísitalan
hafði við lokun markaða í gær
hækkað um nær 14%, og var í 115
stigum eftir að hafa fallið um sam-
tals 24% síðustu fjóra dagana á und-
an. Gengi rúblunnar gagnvart
bandaríkjadollar fór þó áfram lækk-
andi í gær, en Irina Jasina, talsmað-
ur rússneska seðlabankans, sagði að
lækkunin væri „eðlileg" og innan
viðmiðunarmarka.