Morgunblaðið - 15.08.1998, Qupperneq 10
10 LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Niðurstöður nefndar um forgangsröðun í heilbrigðiskerfínu
Yilja áherslu á ákveðna
þætti grunnþj ónustu
Nefnd um forgangsröðun í heilbrigðiskerf-
inu hefur starfað frá 1996 og hafa tillögur
nefndarinnar nú verið gefnar út af heil-
brigðisráðuneytinu ásamt greinargerð
nefndarinnar. Tillögurnar snúa að sið-
fræðilegum þáttum, áherslum í heilbrigðis-
þjónustu, skipulagi og stefnumótun.
NAUÐSYNLEGT er að forgangs-
raða og beita skipulegri vinnu-
brögðura í heilbrigðisþjónustu í rík-
ara mæli en gert hefur verið til
þessa í ljósi þess að útgjöldum hins
opinbera eru ákveðin takmörk sett.
Þessi niðurstaða kemur fram í rit-
inu Forgangsröðun í heilbrigðismál-
um, en í því er að finna niðurstöður
nefndar sem starfað hefui' frá 1996
og var skipuð af Ingibjörgu Pálma-
dóttm-, heilbrigðis- og trygginga-
málaráðherra. Nefndinni var sér-
stakleg falið að athuga hvort setja
eigi foi-mlegai- reglur um hvaða
sjúkdómstilvik skuli hafa forgang
og hvort æskilegt sé að setja i-eglur
um hámarksbið eftir þjónustu.
Reglur um biðlista og
tilfærslu sjúklinga
I tillögugerð sinni segist nefndin
leggja megináherslu á aðgerðir
sem nauðsynlegar séu til að tryggja
réttláta dreifingu á gögnum og
gæðum heilbrigðisþjónustu svo
landsmenn geti notið sambærilegra
lífskosta óháð búsetu. Nefndin tel-
ur að leggja eigi áherslu á ákveðna
grunnþjónustu sem víðast og sér-
hæfðari þjónustu þar sem því verði
komið við. Ákveðnar tæknilegar,
rekstrarlegar og faglegar forsend-
ur verði að vera til staðar þar sem
sérhæfð þjónusta sé staðsett.
Nefndin telur forgangsröðun
nauðsynlega og eru settar fram til-
lögur um ákveðna þjónustuþætti
sem skulu ganga fyrir.
Nefndin leggur til að settar skuli
reglur um biðlista, biðtíma og til-
færslu sjúklinga innan heilbrigðis-
kerfisins. En nefndin telur til-
færslu sjúklinga meðal brýnustu
úrlausnarefna vegna þess að eitt
helsta vandamál stóru sjúkrahús-
anna í Reykjavík sé að hjúkrunar-
sjúklingar vistist oft of lengi á dýr-
ustu og sérhæfðustu deildunum
vegna þess að ekki séu til viðeig-
andi úiTæði. í lok mars 1998 hafi
67 hjúkrunarsjúklingar verið í
rýmum sem ekki voru talin í sam-
ræmi við þjónustuþörf.
í tillögum nefndarinnar kemur
fram að stuðla beri að auknum
gæðum og hagkvæmni með betri
nýtingu lækningatækja, mannafla
og eflingu rannsókna. Bent er á að
í þeim löndum sem við berum okk-
ur helst saman við sé 3% til 5% af
árlegum fjárveitingum til háskóla-
tæknisjúki’ahúsa varið til tækja-
kaupa en hér sé hlutfallið í flestum
tilvikum innan við 1%. Jafnframt
er bent á að vegna aukins vinnuá-
lags á sjúkrahúsum síðustu ár hafi
skammtímafjarvistir frá vinnu
aukist. Þvi sé brýnt að draga úr
vinnuálagi og bæta aðbúnað
starfsfólks.
Öflug grunn- og sérfræði-
þjónusta
f niðurstöðu nefndarinnar er
lögð áhersla á öfluga grunn- og
sérfræðiþjónustu og mikilvægi
samvinnu og samhæfingar. Sam-
ræma þurfi upplýsingakerfi og
skilgreina verksvið og hlutverk
heilbrigðisstofnana. Bent er á
aukna möguleika sem framfarir í
íjarskiptatækni bjóði upp á t.d.,
íjarlækningar. Nefndin segir í til-
lögum sínum að móta verði stefnu
og heildarskipulag, m.a. þurfí
verkaskipting ríkis og sveitarfé-
laga að vera skýr og markviss.
Jafnframt segir í niðurstöðunni að
fjárframlög til heilbrigðismála
verði að taka mið af verkefnum til
heilbrigðisþjónustunnar.
Til að stuðla að hagkvæmni og
betri árangri telur nefndin nauð-
synlegt að fjárhagsáætlanir heil-
brigðisstofnana miðist við skemmst
þriggja ára tímabii. Einnig þurfi að
byggja hvata inn í kerfið með þvi
að hafa hluta fjárveitinga breyti-
legan og jafnvel að framlög ráðist
að einhverju leyti af árangri starf-
seminnar.
Nefndin segir möguleika á
skjótri framkvæmd tillagna um
forgangsröðun hljóta að verulegu
leyti að ráðast af því hve mikil áhrif
ákvarðanir um nýja starfsemi, ný-
byggingar og tæknivæðingu komi
til með að hafa á útgjöld til heil-
brigðismála á næstu árum. Ef gert
sé ráð fyrir að hlutfall útgjalda eða
fjárhagsrammi heilbrigðisþjónust-
unnar verði svipaður og undanfarin
ár verði annaðhvort að auka gjald-
töku eða nýta fjármunina betur
með breyttu skipulagi og aukinni
hagræðingu. Þriðji kosturinn sé að
leggja niður eða hætta að greiða
fyrir ákveðna starfsemi.
Áframhaldandi starf í .
ljósi samstöðu
Samkvæmt upplýsingum frá heil-
brigðisráðuneyti eni tillögurnar
gninnhugmyndir og almenn viðmið,
fyrsti áfangi til að ná samstöðu um
stefnumörkun í heilbrigðismálum
en ekki heilbrigðisáætlun. Hins veg-
ar er sumt af því sem fram kemur í
niðurstöðum nefndarinnar þegar
komið á verkefnalista, að sögn Ingi-
mars Einarssonar skrifstofustjóra í
heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neytinu. „Meðal þess er skipun
nefnda um gæðamál í heilbrigðis-
kerfinu og nefndar sem fjallar um
uppbyggingu upplýsingakei’fis.
Endurskoðun á langtíma heilbrigð-
isáætlun er langt komin og þegar
hafa verið gerðir þjónustusamning-
ar við nokkrar stofnanii- og reynslu-
sveitarfélög til þriggja ára,“ sagði
Ingimar í samtali við Morgunblaðið.
I nefndinni sátu fulltrúar allra
stjórnmálaflokka, neytenda,
stjórnenda og fagfólks í heilbrigð-
isþjónustunni. í fréttatilkynningu
frá heilbrigðis- og tryggingarmála-
ráðuneytinu segir að í ljósi sam-
stöðunnar sem hafi náðst hafi heil-
brigðisráðheiTa ákveðið að for-
gangsröðunamefnd eða fulltrúar
þeirra aðila sem sátu í nefndinni
komi saman ái’lega á næstu áram
til að meta árangur og þróun á
sviði heilbrigðismála.
Aherslur
heilbrigð-
isþjónust-
unnar
NEFND um forgangsröðun í
heilbrigðiskerfinu kemst að
þeirri niðurstöðu í nýútkominni
skýrslu að þörf sé á að forgangs-
raða verkefnum í heilbrigðis-
kerfinu í ríkara inæli en nú sé
gert. Þegar forgangsraða þurfí
sjúklingum skuli sú ákvörðun
fyrst og fremst byggð á sið-
fræðilegum og læknisfræðileg-
um sjónarmiðum. Nefndin telur
að setja eigi reglur um biðlista
og setur fram hugmyndir um
hagræðingu með aukinni sam-
vinnu og samnýtingu.
•Ákveðnir þjónustuþættir
skulu ganga fyrir
Markmið: Eftirtaldir þjónustu-
þættir og tegundir þjónustu
skulu hafa forgang (þessi for-
gangur miðast við þörf fyrir
heilbrigðisþjónustu):
1. Meðhöndlun alvarlegra bráða-
tilfella, lífshættulegra sjúk-
dóma, jafnt líkamlegra sem
geðrænna, og slysa sem geta
leitt til örorku eða dauða án
meðferðar.
2. Heilsuvernd sem sannað hefur
gildi sitt. Meðferð vegna alvar-
Morgunblaðið/Árni Sæberg
STARFSFÓLK á skurðstofu Rikisspítala að störfum.
Forystumenn Búnaðarbanka gengu á fund viðskiptaráðherra
Telja kauptilboð
Islandsbanka of Iágt
Formaður Sambands íslenskra spari-
sjóða um áhuga Búnaðarbanka á FBA
Efast um að al-
vara fylgi máli
PÁLMI Jónsson, formaður banka-
ráðs Búnaðarbankans, og Stefán
Pálsson, aðalbankastjóri bankans,
telja að átta milljarða króna tilboð Is-
landsbanka í hlutafé Búnaðarbank-
ans sé of lágt. Pálmi og Stefán áttu
fund með Finni Ingólfssyni við-
skiptaráðherra í gærmorgun þar sem
fjallað var um tilboð íslandsbanka og
stöðu þessara mála en Búnaðarbank-
inn hefur óskað eftir viðræðum um
kaup á eignarhlut ríkisins í Fjárfest-
ingarbanka atvinnulífsins. Pálmi
sagði að sameinmg Búnaðarbanka og
íslandsbanka væri ekki efst á óska-
lista Búnaðarbankans.
Verðmat Islandsbanka
kom á óvart
Fundurinn með ráðherra var hald-
inn að ósk stjórnenda Búnaðarbank-
ans. Stefán segir að tilboð Islands-
banka sé lægra heldur en eigið mat
Búnaðarbankans á verðmæti bank-
ans. Hann vill ekki greina frá hvert
það sé. „Við greindum ráðherra frá
því að við teldum þetta ekki vera við-
unandi tilboð,“ sagði hann.
Stefán segir að tilboð íslands-
banka komi þeim Pálma ekki á óvart
þar sem lengi hafi legið ljós fyrir
áhugi íslandsbanka á kaupum á
Búnaðarbankanum. Hins vegar komi
verðmat Islandsbanka á Búnaðar-
bankanum á óvart.
Pálmi Jónsson sagði að það væri
aðeins á markaðnum sem hægt væri
að leiða í Ijós hvert raunverðið á
eignarhlut ríkisins væri. „Við gefum
ekki út neitt mat á bankanum í til-
efni af þessu tilboði," sagði hann.
Aðspurður kvaðst Stefán telja
ágætt að tilboðsfrestur Islandsbanka
væri stuttur eða til 15. september.
„Það er ekki gott að vera með þetta
hangandi lengi yfir höfði sér,“ sagði
hann.
Mikill titringur meðal
starfsfólks
„Við heyrum að það er mikill titr-
ingui’ meðal starfsfólks bankans og
það liggur alveg Ijóst fyrir að ef á að
ná fram 15% hagræðingu á skömmum
tíma þá hlýtur að koma til þess að æði
margir missi störf sín,“ sagði Stefán
aðspurður um hugsanlega sameiningu
íslandsbanka og Búnaðarbankans.
Stefán og Pálmi telja að sameining
Búnaðarbankans og Fjárfestingar-
bankans yrði mjög hagstæður kostur
fyrir ríkissjóð sem eiganda þessara
stofnana. Með því móti gæti ríkis-
sjóður aukið verðmæti sín en þeir
taka fram að það sé ríkisins en ekki
stjórnenda bankans að taka ákvarð-
anir um slíkt.
Pálmi bendir á að við kaup Búnað-
arbankans á FBA yrði til mjög
sterkur banki sem myndi væntan-
lega auka verðmæti þessara eigna
ríkisins. „Við lítum svo á að í því
felist miklir kostir fyrir ríkið sem
eiganda þessara tveggja banka.
Meðal þess sem skiptir máli er að
verðmæti þessara eigna sé sem mest
þegar til sölu kemur,“ sagði hann.
Pálmi benti einnig á að það skipti
miklu máli hver niðurstaðan yrði í
þessum málum öllum og hvernig
banka- og fjármagnsmarkaðurinn
liti út hér á landi. „Menn eru að
velta þeim málum fyrir sér,“ sagði
hann.
Finnur Ingólfsson sagði í samtali
við blaðið að stjórnendur Búnaðar-
bankans he
ÞÓR Gunnarsson, formaður
Sambands fslenskra sparisjóða,
segist telja mjög eðlilegt af
hálfu íslandsbanka að gera
kauptilboð í Búnaðarbankann
og hann er þeirrar skoðunar að
þetta útspil Islandsbanka geti
vel fallið að markmiðum ríkis-
stjórnarinnar.
Viðræður hefjast í næstu viku
á milli sparisjóðanna og við-
ræðunefndar af hálfu ríkisins
vegna áhuga sparisjóðanna á að
kaupa hlutafé ríkisins í Fjárfest-
ingarbanka atvinnulífsins. Fram
hefur komið að Búnaðarbankinn
hefur einnig óskað eftir viðræð-
um við viðskiptaráðuneytið um
kaup á FBA.
„Þegar maður horfir á Búnað-
arbankann gera tilboð í Fjár-
festingarbanka atvinnulífsins
gæti maður látið sér detta í hug
að það væri frekar gert til að
dreifa athyglinni en að það væri
alvara í því máli, þótt ég vilji
ekki gera Búnaðarbankanum
neitt óeðlilegt upp,“ segir Þór.
Hann bendir á að bæði Búnað-
arbankinn og Fjárfestingarbank-
inn séu í eigu ríkissjóðs og því
vakni sú spurning hvaða ástæður
hafi verið fyrir því að setja Fjár-
festingarbankann á stofn ef til
stóð að sameina hann annarri
ríkisstofnun.
Sparisjóðirnir falast af fullri al-
vöru eftir FBA
Þór segir alveg ljóst að spari-
sjóðirnir séu af fullri alvöru að
falast eftir að kaupa Fjárfest-
ingarbankann. „Það mál hefur
verið skoðað af okkar sérfræð-
ingum. Við höfum unnið þetta á
vettvangi Kaupþings, með að-
stoð endurskoðanda og lög-
manna, og það er engin spurn-
ing að það er mjög auðvelt fyrir
sparisjóðina að gera þetta.
Ferlið er alveg ljóst fyrir okkur.
Spurningin er bara sú hvort rík-
isvaldið lítur svo á að þetta sam-
ræmist þeirra markmiðum,"
segir Þór.