Morgunblaðið - 15.08.1998, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 1998 17
VIÐSKIPTI
✓
Hagnaður Lyfjaverslunar Islands 22,5
milljónir á fyrri árshelmingi
Hyggst afskrifa hluta-
fé sitt í Ilsanta UAB
Rekstrartekjur samstæð-
unnar jukust um 12%
HAGNAÐUR Lyfjaverslunar ís-
lands hf. nam 22,5 milljónum
króna á fyrstu sex mánuðum árs-
ins en var 24,4 milljónir í fyrra.
Hagnaðurinn minnkar því lítillega
á milli ára. Rekstrartekjur sam-
stæðunnar jukust hins vegar um
12%, námu nú 792 milljónum
króna á fyrri árshelmingi en 706
milljónum á sama tímabili í fyrra.
Vegna erfiðleika í rekstri Ilsanta
UAB í Lithaugalandi hefur Lyfja-
verslunin ákveðið að undirbúa af-
skrift á hlutafjáreign sinni í félag-
inu á þessu ári.
Eigið fé félagsins var 550 millj-
ónir í lok tímabilsins og eiginfjár-
hlutfall 45%. Veltufjárhlutfallið
var 2,8 og nam handbært fé frá
rekstri 80 milljónum króna. Arð-
semi eigin fjár var 4,1% á tímabil-
inu.
Sturla Geirsson, fjármálastjóri
fyrirtækisins, segir að niðurstaðan
sé í samræmi við áætlanir um af-
komu ársins. Meginástæða þess að
hagnaður minnki lítillega þrátt fyr-
ir vaxandi tekjur sé aukinn launa-
kostnaður samstæðunnar. Hann
hafi hækkað um 29 milljónir frá
sama tíma í fyrra vegna fjölgunar
starfsmanna, auk samningsbund-
inna launahækkana. Pá hafi annar
kostnaður samstæðunnar aukist
um tíu milljónir vegna aukinna um-
svifa en rekstrarþættir verið í jafn-
vægi á tímabilinu. Útlit sé fyrir að
afkoman í ár verði heldur betri en í
fyrra.
Minnkandi tap hjá Ilsanta
Lyfjaverslunin á um 26% hlut í
lyfjafyrirtækinu Ilsanta UAB í
Lithaugalandi en rekstur þess
hefur ekki gengið sem skyldi. Á
fyrri árshelmingi nam tap af
rekstri Ilsanta 35 milljónum
króna. Það er þó nokkur bati frá
sama tímabili í fyrra en þá nam
tapið 70 milljónum króna. Rekstur
lyfjaheildsölufyrirtækis Ilsanta,
Ilsanta Pharma UAB, hefur hins
vegar farið vel af stað að sögn
Sturlu.
Vegna rekstrarerfiðleika Ilsanta
hefur stjórn Lyfjaverslunarinnar
nú ákveðið að hefja afskrift á
hlutafjáreign sinni í félaginu á
þessu ári, verði ekki horfur á því í
árslok að rekstur þess verði arð-
Lyfjaverslun íslands hf. Úr milliuppgjöri 30. júní 1998 _ tS^^Hr Jan.-júní Jan.-júní f|P
Rekstrarreikningur Míiijónir króna 1998 1997 Breyling
Rekstrartekjur Rekstrargjöld 791,7 751,6 706.2 673.2 +12,1% +11,6%
Hagnaður fyrir fjármagnsliði Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) 40,0 (6,6) 33,0 (6,6) +21,4% ■1,2%
Hagnaður fyrir skatta Tekju- og eignarskattur Hlutdeild minnihl. í hagn. dótturfél. 33,5 (5,6) (5,4) 26,3 (0,9) (1,0) +27,1% +507% +454%
Hagnaður tímabílsins 22.4 24.4 ■8,2%
Efnahagsreikningur Miiijónir króna 30/6 '98 30/6 '97 Breyting
I Elgnlr: \
Fastafjármunir 541,2 526,8 +2,7%
Veltufjármunir 680,1 682,9 -0,4%
Eignlr samtals 1.221,3 1.209,7 +1,0%
| Skuldlr og oigið 16: \
Eigiðfé 550,5 538,6 +2,2%
Hlutdeild minnihluta í dótturfél. 10,5 5,1 +107,5%
Langtímaskuldir 419,0 323,2 +29,6%
Skammtímaskuldir 241,3 342,8 -29,6%
Skuldir og eigið fé samtals 1.221.3 1.209.7 +1,0%
Sjóðstreymi 1/1 - 30/6 1998 1997 Breyting
Veltufé frá rekstri Milljónir króna 60,3 54,2 +11,3%
bær í framtíðinni. Bókfært verð
eignarhlutar Lyfjaverslunarinnar
í Ilsanta er nú 136 milljónir króna.
Að undanförnu hafa staðið yfir
viðræður lithaugska heilbrigðis-
ráðuneytisins fyrir hönd ríkis-
stjórnar landsins og fulltrúa
stjórnar Ilsanta, með stuðningi ís-
lenskra stjórnvalda, um nýjan
samstarfssamning. Kæmi sá
samningur í stað þess, sem gerður
var árið 1993, og ekki var staðið
við af hálfu stjórnvalda í Lit-
haugalandi að sögn Sturlu. Standi
vonir til að jákvæðar niðurstöður
af þessum viðræðum leiði til bætts
rekstrarumhverfis félagsins í ljósi
umbóta á stjórnarfari sem orðið
hafi að undanförnu í Lithauga-
landi.
Lyfjaverslunin vinnur nú að
kostnaðarsömum þróunarverkefn-
um varðandi skráningu og fram-
leiðslu lyfja fyrir erlendan markað,
bæði á eigin vegum og í samvinnu
við Delta hf. Fyrirtækið er því á
undirbúnings- og fjárfestingar-
tímabili að sögn Sturlu. „Við reikn-
um með að framleiðsla og útflutn-
ingur í tengslum við þessi verkefni
hefjist á síðari hluta árs 1999 og
fyrr skila þau ekki tekjum. Árið
2000 og síðar er á hinn bóginn
reiknað með verulegum tekjum
vegna þessara verkefna. Batnandi
framtíðararðsemi félagsins verður
m.a. háð árangri af þessum verk-
efnum.“
Rekstri félagsins
skipt í þrennt
Á síðastliðnum þremur mánuð-
um hafa starfsmenn og stjórnend-
ur félagsins unnið að umfangsmik-
ilh stefnumótun. Hefur nú verið
ákveðið að hefja undirbúning að
aðskilnaði þriggja rekstrarþátta fé-
lagsins, þ.e. heildsöludreifingar,
þróunar og framleiðslu lyfja og
umboðsþjónustu.
— skemmtilegi bilinn
Armúla 13 • Sími 575 1220 - 575 1200
verð frá aðeins 1.445.000
Hyundai Coupe er kraftmikill sportbill, með 116 ha. eða 138 ha. vél
Á Hyundai Coupe er eftir þér tekið i umferðinni. Rennitegar og ávalar tínur
ásamt aftinu undir vétarhiífinni gefa þér réttu tilfinninguna.
Komdu og skoóaðu mest selda sportbíl á íslandi.
ORTBILL
sem horft er á eftir!