Morgunblaðið - 15.08.1998, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 1998 19
Ahern
þakkar
Gingrich
BERTIE Ahern, forsætisráð-
herra írlands, þakkaði í gær
Newt Gingrich, forseta full-
trúadeildar Bandaríkjaþings,
fyrir stuðning Bandaríkjanna
við friðarumleitanir á N-írlandi
en þeir áttu fund saman í gær í
Limerick á Irlandi. Mitchel
McLaughlin, formaður Sinn
Féin sem er stjórnmálaarmur
IRA, bað í gær IRA og hver
þau samtök önnur sem staðið
hafa fyrir ódæðisverkum á N-
írlandi að veita upplýsingar um
greftrunarstað „týndra" fórn-
arlamba þannig að ættingjar
geti kvatt ástvini sína hinsta
sinni.
58 deyja í
skriðuföllum
AÐ minnsta kosti fímmtíu og
átta fórust í skriðuföllum í Utt-
ar Pradesh-héraði á Himalaya-
svæðinu í norðurhluta Ind-
lands. Mjög hefur rignt á þessu
svæði að undanförnu og er það
talið hafa valdið því að heilu
þorpin urðu skriðum að bráð.
Talebanar
gagnrýndir
RAFSANJANI, fyrrverandi
forseti Irans, kallaði leiðtoga
Talebana í Afganistan í gær óá-
byrga og krafðist þess að þeir
slepptu úr haldi ellefu
diplómötum sem íranar segja
að Talebanar haldi föngnum.
Rafsanjani er enn áhrifamikill á
bak við tjöldin í íran og sagði
alveg ljóst að íranar myndu
ekki una því að samlöndum
þeirra værri haldið í gíslingu á
þennan hátt.
Rottur fleiri
en menn
FLEIRI rottur búa nú í Bret-
landi en menn, ef marka má
rannsókn sem birt var í gær.
Kemur þar fram að sextíu millj-
ónir rottna sé að finna á Bret-
landi og að þær flytji nú í aukn-
um mæli upp á yfirborð jarðar í
stað þess að halda sig í holræs-
unum.
Ferðatölvur
rannsakaðar
BRESKIR tollverðir reyna nú
að hindra útbreiðslu bama-
kláms á tölvutæku formi með
því að rannsaka ferðatölvur
sem ferðamenn flytja með sér
inn í landið. Nota þeir sérstakt
forrit til að leita í vélunum og
segja að leitin hafi oft borið ár-
angur.
Erlendir
andófsmenn
látnir lausir
Rangoon. Reuters.
DÓMSTÓLL í Burma lét í gær 18
erlenda andófsmenn lausa, sem fyrr
um daginn höfðu verið dæmdir til
fimm ára þrælkunar fyrir að hafa
dreift áróðri fyrir lýðræðislegum
stjórnarháttum í landinu.
Haft var eftir vitnum að dóm-
stólnum hefði borist tilskipun frá
innanríkisráðuneytinu, þess efnis að
refsing skyldi látin niður falla til að
koma í veg fyrir deilur við þjóðlönd
andófsmannanna. Útlendingarnir
voru látnir lausir með því skilyrði að
þeir héldu ekki uppteknum hætti, og
þeim tilmælum var beint til sendi-
ráða viðkomandi ríkja að þau gerðu
ráðstafanir til að koma fólkinu tafar-
laust úr landi.
Átjánmenningarnir eru frá
Bandaríkjunum, Taílandi, Malasíu,
Indónesíu, Filippseyjum og Ástral-
íu. Þeir voru ákærðir fyrir að dreifa
bæklingum þar sem Burmabúar
voru hvattir til að minnast uppreisn-
arinnar gegn herstjórninni árið
1988. Herinn bældi uppreisnina nið-
ur með hai'ðri hendi og stjórnarand-
stæðingar segja að þúsundir manna
hafi látið lífið.
Handtaka átjánmenninganna var
fordæmd víða um heim og Banda-
ríkjastjórn, meðal annarra, hafði
krafist lausnar þeirra.
Suu Kyi situr enn í bfl sínum
Aung San Suu Kyi, leiðtogi
stjórnarandstöðunnar í Burma og
friðarverðlaunahafi Nóbels, hélt
ennþá til í bíl sínum í gær skammt
utan við höfuðborgina, en hermenn
stöðvuðu för hennar á miðvikudag
er hún var á leið til fundar við stuðn-
ingsmenn sína í vesturhluta lands-
ins. Yfirvöld sögðust í gær hafa séð
henni fyrir sólhlíf, stólum og dag-
blöðum „til þess að hjálpa henni að
drepa tímann“.
Hermenn þvinguðu Suu Kyi til að
yfirgefa bifreið sína eftir sex daga
dvöl í síðasta mánuði. Þá, eins og nú,
bera yfirvöld því við að þau geti ekki
heimilað henni að ferðast til vestur-
hluta landsins, þar sem öryggi henn-
ar kunni að vera ógnað.
Reuters
KONUR söfnuðust saman við sendiráð Bandaríkjanna í Nairóbí í gær og minntust fórnarlamba sprengjutil-
ræðisins. 235 Kenýabúar og 12 Bandaríkjamenn fórust. Fyrir miðri mynd má sjá Charity Kaluki Ngilu, þing-
konu og leiðtoga Jafnaðarmannaflokks Kenýa.
Reuters
Kónguló-
armaður-
inn klifrar
FRANSKI ofurhuginn Alain Ro-
bert klifraði í gær upp vegg eins
háhýsisins í Defense-fjármála-
hverfinu í París, án nokkurra
hjálpartækja eða öryggisbúnað-
ar. Hann var aðeins hálfa
klukkustund að snara sér upp
183 metra háa bygginguna og
hafði ekki einu sinni fyrir því að
fá tilskilin leyfí frá yfírvöldum.
Hann hefur af augljósum ástæð-
um fengið viðurnefnið Kónguló-
armaðurinn, en hann hefur áður
klifrað upp háar byggingar víða
um heim, m.a. Eiffelturninn og
Golden Gate-brúna í San
Francisco.
^inningarathöfn vegna fórnarlamba sprengingarinnar í Nairóbí
Ottast fleiri sprengiutilræði
Zurich, Nairóbí, Washington. Reuters.
RÝMA þurfti sendiráð Bandaríkj-
anna í Bern í Sviss í gær í um tvær
klukkustundir eftir að sprengjuhót-
un barst. Var starfsfólki leyft að
snúa aftur til starfa sinna eftir að
lögregla hafði leitað af sér allan
grun í byggingunni.
Á sama tíma tilkynnti Banda-
ríkjastjórn að loka ætti tímabundið
sendiráðinu í Albaníu vegna ótta
um að öfgasinnaðir íslamstrúar-
menn reyndu að feta í fótspor
þeirra sem stóðu fyrir sprengjutil-
ræðunum við sendiráð Bandaríkj-
anna í Kenýa og Tansaníu í síðustu
viku. Hafa Bandaríkjamenn átt
hlutdeild í handtökum nokkurra
múslima á svæðinu að undanförnu
og telja þeir þvi vissara að hafa all-
an vara á.
Madeleine Albright, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, tilkynnti í
gær að hún myndi ferðast til Kenýa
og Tansaníu nú um helgina. Sheila
Horan, stjórnandi rannsóknar
bandarísku alríkislögreglunnar í
Kenýa, segir mikilvægar vísbend-
ingar hafa fundist á vettvangi, m.a.
hluta bifreiðarinnar sem notuð var
við tilræðið.
Fórnarlamba minnst í Nairóbí
Við höfum grátið svo mikið að
tárin eru upp urin,“ sagði kenýsk
kona við minningarathöfn, sem
fram fór í Nairóbí í gær, um fórnar-
lömb sprengjutilræðisins við banda-
ríska sendiráðið í Kenýa. Tugir
kvenna, hindúar, múslimar, og
ki-istnar konur, söfnuðust saman og
báðu fyrir fórnarlömbum spreng-
ingarinnar. Þingkonan Charity
Kaluki Ngilu stýrði samkomunni.
Hún sagði Kenýabúa bera þyngri
byrðar en Bandaríkjamenn vegna
tilræðisins, þótt því hafi ekki verið
beint gegn þeim. 235 Kenýubúar
fórust í sprengingunni í Nairóbí.
Seljum í nokkra daga lítið útlitsgölluð
húsgögn með allt að 50% afslætti.
Opið:
12:00-18:00 virka daga
9:00-16:00 lau. 15. ágúst
Mörkinni 3
Sími 588 0640
Fax 588 0641
casa@islandia.is