Morgunblaðið - 15.08.1998, Síða 46
46 LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
M
M/y/A V?** SÆKJAsr
1 / J
w
7 ;V./'
m/t/ >
W-rl'
EFTIJZ f*
&JL
Grettir
Tommi og Jenni
Smáfólk
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Sammála
Hilmari
Frá Theodóri Gunnarssyni
og Jens Ormlsev:
ÉG fínn hjá mér illviðráðanlega
hvöt til að taka þátt í þessari Bing
Dao umræðu og segja frá minni
reynslu, sérstaklega eftir að hafa
lesið svargreinina frá aðstandend-
um staðarins. Það er augljóst að
þetta fólk hlustar ekki á viðskipta-
vinina og reynir ekki hið minnsta
að taka tillit til kvartana þeirra.
Þannig var að ég og félagi minn,
sem báðir erum að sunnan, vorum
að vinna verkefni á Akureyri tölu-
vert fram á kvöld fimmtudaginn
16. júlí sl. Við urðum svangir og
ákváðum að reyna að finna ein-
hvem opinn veitingastað og þá
helst austurlenskan. Okkur var
bent á það á hótelinu að það væri
kínverskur veitingastaður, sem
héti Bing Dao, á hæðinni fyrir ofan
veitingahúsið Pollinn.
Við fórum á staðinn og vorum
komnir þangað, að mig minnir,
klukkan rúmlega 10. Það var enn
opið og þegar tekið var á móti okk-
ur, spurði ég hvort það væri hægt
að fá mat svona seint að kvöldi.
Þjóninn sagði að það væri ekkert
vandamál, vísaði okkur til sætis og
fékk okkur matseðlana. Móttök-
urnar, húsnæðið og allt umhverfið
lofaði góðu, huggulegt og notalegt.
Eftir nokkrar vangaveltur
ákváðum við að skella okkur á
þessa margumræddu „Himna-
sælu“. Ef ég man rétt, sem ekki er
alveg víst, þá var það sett sem skil-
yrði á matseðlinum að það væri
pantað að lágmarki fyrir 2. Auk
þess pöntuðum við flösku af rauð-
víni.
Nú sá ég fyrir mér að allt færi af
stað í eldhúsinu og kokkurinn færi
að elda ofan í okkur þessa engla-
fæðu með brauki og brölti. Við
fengum vínið, sem ekkert var út á
að setja, og settum okkur í stelling-
ar til að bíða eftir matnum í mak-
indum og sötra dálítið vín á meðan.
Við vorum varla búnir að halla
okkur aftur í stólana þegar matn-
um var bara snarað á borðið eins
og hamborgurum á McDonald’s
veitingastað! Fyrst kom fat með
einhverjum kjötrétti í sósu, svo
annað fat með öðrum kjötrétti sem
leit nokkurn veginn eins út, svo
það þriðja, sem líka leit alveg eins
út, þá það fjórða og að síðustu fat
með djúpsteiktum rækjum, sem
var útlitslega skemmtileg tilbreyt-
ing. Að auki kom lítil skál af hrís-
grjónum, en við pöntuðum strax
meira, sem ekki reyndist vanda-
mál.
Við fórum nú að borða og áttuð-
um okkur strax á því að við værum
að borða ómerkilega pottrétti. Það
var sem sagt augljóst hvers vegna
það var ekkert vandamál að elda
ofan í okkur mat svona seint að
kvöldi. Það þurfti einungis að
moka þessu upp úr pottunum og
sletta þessu á diskana! Þetta var
ósköp svipað að gæðum og ef við
hefðum farið út í búð og náð okkur
í nokkrar mismunandi dósir af
ódýrum tilbúnum austurlenskum
sósum og brytjað út í þær ýmsar
kjöttegundir. Við hefðum örugg-
lega fengið betri mat ef við hefðum
labbað inn á einhvern austurlensk-
an skyndibitastað í Reykjavík.
Munurinn er sá að í Reykjavík
hefði maturinn kostað u.þ.b. 500
krónur, en á Bing Dao kostaði
hann 2.200 krónur eða eitthvað ná-
lægt því.
Við fórum ekki fram á neina af-
slætti eða nokkuð slíkt og borguð-
um bara reikninginn. Við gátum
samt ekki stillt okkur um að lýsa
yfir óánægju okkar að því loknu.
Þjónustustúlkan brást leiðinlega
við og reyndi að réttlæta þessa vit-
leysu og fullyrti að maturinn hefði
verið eldaður sérstaklega ofan í
okkur. Þó að horft sé fram hjá því
hve ómerkilegur maturinn var er
alveg öruggt að á þeim tíma sem
leið frá því að við settumst við
borðið og þar til maturinn var
kominn á það, hefði varla verið
hægt að steikja handa okkur egg,
hvað þá að elda 5 mismunandi
austurlenskar „Himnasælur" ofan í
okkur.
Við tökum undir með Hilmari
ljósmyndara. Við hefðum alveg
eins getað hent peningunum í sjó-
inn og komum aldrei aftur á Bing
Dao.
THEODÓR GUNNARSSON,
Laugarnesvegi 51, Rvík.
JENS ORMSLEV,
Engjaseli 55, Rvík.
Allt efni sem birtist I Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fyigir fyrirvari hér að lútandi.
Mér er illt í Af hverju læturðu mig Kastarar hafa ekki Ég skal veðja að Ty Cobb var
handleggnum ... ekki kasta? Ég er með snotra handleggi! með snotran handlegg, var
snotran handlegg! hún það ekki?
Leitin að réttu eigninni
hefst hjá okkur
www.mbl.is/fasteignir