Morgunblaðið - 15.08.1998, Síða 50
MORGUNBLAÐIÐ
50 LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 1998
Sýningar hefjast kl. 20.
Miðasala sími 551 1475.
Opin alla daga kl. 15-19. Símapantanir frá kl. 10 virka daga og frá kl. 13 um helgar.
i eulSi
Gamanleikrit í leikstjórn
Sigurðar Sigurjónssonar
lau. 15/8 kl. 23, uppselt
fim. 20/8 kl. 21, örfá sæti laus
fös. 21/8 kl. 21
Miöaverö kr. 1100 fyrir karla
kr. 1300 fyrir konur
Vðröufélagar LÍ fá 30% afslátt
Sýnt í íslensku óperunni
Miðasölusími 551 1475
í s ú p u n n i
í kvöld kl. 20 UPPSELT
í kvöld kl.23.30aukas./UPPSELT
sun. 16/8 kl. 20 UPPSELT
fim. 20/8 kl. 20 örfá sæti laus
fös. 21/8 kl. 20 UPPSELT
fös. 21/8 kl.23.30 aukas./örfá sæti
sun. 23/8 kl. 20 örfá sæti laus
Mlðasala opti kl. 12-18
Ósóttar pantanlr selúar ttaglega
Mlðasölusiml: 5 30 30 30
Fjölskyldu -og Húsdýragarðinum
—Lau;t5.ágústKt.l4.00og 16
Sun. 16. ágúst kl. 14.00
Síðasta syningarhelgi
Mið. 19. agúst kl. 14.30
Miöaverð aöeins kr. 790,-
Innifaliö í veröi er: Miði á Hróa hött
Miöi í Fjölskyldu -og Húsdýragaröinn
Fritt í öll taeki í garðinum
Hestur, geitur og kanínur eru í sýningunni
Sýningin fer fram í sirkustjaldi
Miðasala: 562 2570 • Nótt&Dagur
MYNDBÖND
Börn berja fullorðna
Ninjastrákarnir á Ofurfjallinu
(3 Ninjas: High Noon at
Mega Mountain)__________________
l> il III il IIIII V II ll
★
Framleiðendur: Yoram Ben-Ami
og James Kang. Leikstjóri: Sean
McNamara. Handritshöfundar: Se-
an McNamara og Jeff Philips.
- Kvikmyndataka: Blake T. Evans.
Tónlist: John Coda. Aðalhlutverk:
Mathew Botuchis, Michael O’La-
skey II, James Paul Roeske II,
Hulk Hogan og Loni Anderson. (94
mín.) Bandarísk. Sktfan, ágúst
1998. Myndin er öllum leyfð.
NINJABRÆÐURNIR þrír
mæta hér sterkir til leiks eftir
stranga þjálfun hjá afa sínum.
Karaoke
stangast á
við búddisma
KAMBÓDÍSKUR munkur var
gerður burtrækur eftir að upp
komst að hann strauk úr hofínu
að næturlagi til að iðka dulda
ástríðu sína - að syngja karaoke.
Á daginn var Kung Bunchhoeun,
sem er 22 ára, í látlausum appel-
sínugulum munkakufli en að
næturlagi" smeygði hann sér í
venjuleg föt og strauk úr hofínu í
Phnom Penh til að syngja kara-
oke á börum í grenndinni, að því
er dagblaðið Koh Santipheap
greinir frá. Hann vogaði sér
einnig öðru hverju út á dans-
gólfíð. „Við viljum ekkert hafa
lengur með þennan munk að
gera vegna þess að hann hefur
of mikið frelsi, hegðun hans
brýtur gegn reglum búddism-
ans,“ sagði forstöðumaður
munkahofsins í viðtali við dag-
j, biaðið.
Drengirnir komast í hann krappan
er þeir heimsækja skemmtigarðinn
Ofurfjallið til að sjá bardagasýningu
með sjónvarpsstjörnunni Dave Dra-
gon. Hópur glæpamanna tekur þá
óvænt yfir tæknistjórn skemmti-
garðsins, hótar að vinna gestunum
mein og krefst tíu milljóna dala í
lausnargjald. Bræðurnir sitja ekki
aðgerðalausir og ráðast gegn
glæpahyskinu með aðstoð Dave
Dragon.
Velflestar barna- og unglinga-
myndir sem koma frá Hollywood
eru dulbúnar hasar- og spennu-
myndir. Munur-
inn er aðeins sá
að í barnamynd-
unum eru aðal-
hetjurnar börn
og menp/ eru
barðir illilega í
stað þess að vera
drepnir. „Ninja-
strákarnir" er
engin undan-
tekning hvað
þetta varðar og höfðar til áhorf-
enda sinna með slagsmálum, stór-
um byssum, sprengingum og Ijósku
í þröngum leðurfatnaði. Þá geta
böm fengið útrás fyrir biturð sína
gagnvart fullorðnum með því að
fylgjst með 7-12 ára strákum
greiða fullvöxnum mótherjum sín-
um hvert höggið á eftir öðru. Það
sem þó forðar þessari mynd frá al-
gerum ömurleika er að hún tekur
sig ekki of alvarlega og verður
skemmtilega fáránleg á köflum.
Þannig teflir hún fram hjákátlegum
ímyndum, þ.e. fimmtugri ofurhetju
í lendaskýlu með hártopp og síli-
konbætta megabeibinu Medusu
(Loni Anderson) sem er 20 árum of
gömul fyrir ímynd sína. Þá má
finna vísanir í kvikmynda- og
teiknimyndasöguhefðina sem leikið
er með á nokkuð skemmtilegan
hátt og gerir það myndina örlítið
innihaldsríkari en við mátti búast.
Heiða Jóhannsdóttir
FÓLK í FRÉTTUM
Stórir menn
í pilsum
Islensku Hálandaleikarnir verða haldnir
um þessa helgi og næstu. Heimsmeistar-
inn Ryan Vierra er mættur til leiks, og
--------------7-----------------------
ætlar að fá Islendinga til að taka á
honum stóra sínum.
HANN er viðkunnanlegur stóri
sterki maðurinn sem er þrefald-
ur heimsmeistari í Hálandaleik-
um. íþróttin er ættuð frá
Skotlandi eins og nafnið bendir
til, og er einskonar tugþraut iðk-
uð þar til forna. En sá besti í
heimi heitir Ryan Vierra. Ekki
er það nafn af skoskum uppruna,
eða hvað?
Fjölbreyttari íþrótt
Vierra: „Nei, ég er portú-
galskur Ameríkani, og mörgum
finnst skrítið að ég skuli vera að
sérhæfa mig í þessari íþrótt sem
byggist á skoskri menningararf-
leifð. En mamma á ættir að rekja
til Skotlands. Hún er af Snelson
ættinni frá Glasgow."
- Hvernig fékkstu áhuga á
þessari íþrótt?
„Kúluvarpsþjálfarinn minn
hafði mikinn áhuga á þessari
íþrótt og lét mig æfa hana í og
með, því margt er líkt með
henni og kúluvarpinu. Svo fór að
mér fannst þetta skemmtilegra,
því í kúluvarpinu á ég mín sex
köst, svo er ég búinn. Hálanda-
leikarnir eru tugþraut, sem tek-
ur lengri tíma, er fjölbreyttari
auk þess sem íþróttinni fylgir
skemmtilegt fólk og einstök
stemmning."
- Hefurðu alltaf verið svona
stór?
„Nei, það tók mig heil fimm ár
að byggja mig upp í það sem ég
er núna með því að borða rétt
fæði og þjálfa á réttan hátt. Það
hjálpar við margar þrautimar að
vera svona stór og sterkur, en
það em samt sumir hverjir mun
grennri sem ná líka góðum ár-
angri.“
Prótín í fæðingu
- Ég frétti að þú vaknaðir upp
á nóttunni til að æfa þig. Getur
það virkilega verið?
„Já, þetta er satt. Finnst þér
það fyndið? Stundum á nóttunni
man ég einhver tækniatriði sem
ég verð að þjálfa. Þá stekk ég
fram á gólf eða út í garð eftir
Erfiðir
andstæðingar
- Finnst þér skemmtanagildi
íþróttarinnar mikilvægt?
„Það er mjög gaman að sýna
fyrir framan marga því fólk
hefur almennt gaman af þessu.
Best er að sýna í Skotlandi eða
Nova Scotia í Kanada þar sem
áhorfendur eru almennilega
k með á nótunum. Heima í
Hk Kaliforníu erum við bara
a stórir menn í pilsum fyrir
■ áhorfendur.“
■ - Hvað ætlarðu að gera
m u íslandi?
„Núna um helgina eru
Hálandaleikar í Keflavík og
um næstu helgi í Hafnarfirði.
Eg ætla að keppa á móti Is-
lendingunum og þarf að taka á
mínum stóra. Andrés Guð-
mundsson er í góðu formi
núna, Pétur Guðmundsson,
Sæmundur Sæmundsson
og Hjalti „Úrsus“ Árnason.
Þetta eru allt verðugir og
erflðir andstæðingar."
nú verð ég á íslandi í tvær vik-
ur. Svo á ég sex mánaða gamla
dóttur sem ég sakna mjög mik-
ið.“
- Pú hefur vonandi verið heima
þegar hún kom í heiminn ?
„Jú, ég var að æfa mjög erfitt
prógramm þegar ég fékk hring-
ingu um það að konan væri kom-
in af stað. Eg þaut upp á sjúkra-
hús og var þar alla nóttina með
henni í óhreinum æfmgafötun-
um. Til að fá næringu var ég
með prótínið mitt með mér
og fór að háma það í mig.
Konan varð ekki mjög
hress með það að ég ein-
beitti mér meira af því
að borða en að kvölun-
um sem hún var að
ganga í gegnum!“
hversu mikið pláss ég þarf, og æfi
mig svo ég gleymi þessum atrið-
um ekki.“
- Hvað fumst konunni um
þetta?
„Þetta er vinnan mín, og hún
skilur það mjög vel. Það eru
hinsvegar löngu ferðalögin mín
sem hún á erfitt
með að þola. Ég
var að koma úr
mánaðar
ferðalagi, var
heima í tvo
daga og
Morgunblaðið/Jim Smart
RYAN í góðri sveiflu.
MYNDBÖND
Vantar púðrið
Vökudraumar
(Dream for an Insomniac)
Rúmantísk gainanmynd
★★
Framleiðandi: Rita J. Rokisky.
Leikstjóri og handritshöfundur:
Tiffanie DeBartolo. Kvikmynda-
taka: Guillermo Navarro. Tónlist:
John Laraio. Aðalhlutverk: Ione
Skye, Jennifer Aniston og
MacKenzie Astin. (91 mín.) Banda-
rísk. Skífan, ágúst 1998. Myndin er
öllum leyfð.
í ÞESSARI mynd segir frá
draumórastúlkunni Frankie sem
vinnur á kaffihúsi í San Francisco.
Frankie er gáfuð
en bölsýn og á við
langvarandi
svefnleysi að
stríða. Brösug-
lega gengur í
karlamálunum
enda sættir hún
sig aðeins við það
besta. Þegar Da-
vid er ráðinn á
kaffihúsið tekur tilvera Frankie á
sig lit. Frankie er sannfærð um að
hér hafi hún fundið draumprins
sinn, jafningja og sálufélaga, allt
þar til í Ijós kemur að David á kær-
ustu, sem þar að auki er að læra
lögfræði. En Frankie gefst ekki upp
fyrr en í fulla hnefana.
Vökudraumar er dæmigerð mynd
úr „sjálfstæða geiranum“ um ungt
hugsandi fólk í stórborginni, sem
viðhefur vitrænar samræður á
kaffihúsum með framsækna
rokktónlist í bakgrunni. Allt er á
sínum stað: Athyglisvert fólk sem
fylgir hugsjónum sínum í stað þess
að láta glepjast af efnislegum gæð-
um, afslappað andrúmsloft meðal
vina, rómantík, hnyttin tilsvör og
fjölþjóðlegur bakgrunnur. En púðr-
ið vantar alveg í þessa frumraun
leikstýrunnar Tiffanie DeBartolo.
Frumsamið handrit hennar er fínt á
köflum, en almennt of ófrumlegt og
víða tilgerðarlegt. Leikstjórnina
höndlar hún illa, því samræður og
atburðarás hafa yfir sér viðvarandi
stirðleikakeim. Þetta slyppi ef til
vill fyrir horn ef aðalleikkonan, Ione
Skye, væri ekki svo óörugg og til-
þrifalaus sem raun ber vitni. Með-
leikararnir halda myndinni hins
vegar gangandi og standa sig vel.
Niðurstaðan er sæmileg afþreying
sem gott er að móka yfir.
Heiða Jóhannsdóttir