Morgunblaðið - 15.08.1998, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ
Ástfangnir aular
KVIKMYNDIN „Why Do hjartans. Aðalleikararnir voru
Fools Fall In Love“ var for- að sjálfsögðu mættir og fóru
sýnd í New York fyrr í vikunni þar fremst í flokki Miguel Nu-
og fjallar eins og nafnið gefur nez, Lela Rochon og Larenz
til kynna um hin mikilvægu mál Tate.
intra
Fæst í bvggingavöruversiunum um landallt.
Stálvaskar
Intra stálvaskamir fást í mörgum
stærðum og gerðum. Þessi vaskur
ber nafnið Eurora og hefur hlotið
matgvíslegar viðurkenningar íyrir
frábæra hönnun.
Heildsöludreifing:
Sraiðjuvegi H.Kópavogi
T^llGlehf. Sími 564 1088.fax5B410B9
Björk vill
vinna með
Lars von
Trier
„DANINN Lars von Trier
vill fá íslendinginn
Björk [Guðmundsdótt-
ur] í aðalhlutverk í
nýjum söngleik. Það
gæti verið grund-
völlur fyrir nor-
rænu drauma-
bandalagi,“ segir <
í grein í Bergens
Tidende. „Lars er
stirðlyndur og ég
er enn verri,“ segir hún
sjálf í samtali við blaðið.
„Ég legg ríka áhersiu á að
vinna með Lars. Fram til þessa
hef ég gert þrjár plötur sem all-
ar hafa fjallað uni mig, mínar
tilfinningar og mína texta. Ég er
tilbúin til að búa til ténlist fyrir
einhvem annan,“ heldur hún
áfram.
Eins og Morgunblaðið hefur
greint frá vill Lars von Trier fá
Björk til að leika aðalhlutverk
og búa til ténlistina í nýrri kvik-
mynd, „Dansar í myrkrinu“.
Þungamiðjan í söngleiknum
verður steppdans og verður hún
tekin upp í Washington.
„Ég hef mestan áhuga á að
búa til ténlistina, en ég veit að
Lars hefur mikinn áhuga á að
ég taki einnig að mér að leika í
myndinni,“ segir Björk.
Leikstjérinn Lars von Trier
vakti heimsathygli með
Brimbroti eða „Breaking the
Waves“ fyrir nokkrum ámm og
var Emily Watson tilnefnd til
Óskarsverðlauna fyrir framúr-
skarandi leik sinn í myndinni.
Nýlega var svo mynd hans Fá-
vitarnir eða „Idioterne“ fram-
sýnd á Kvikmyndahátíðinni í
Cannes og vakti bersögli mynd-
arinnar éskipta athygli.
Lars von Trier er sjúklega
feiminn, ferðast helst aldrei út
fyrir Danmörku og blandar lítið
geði við félk. Hann kynntist
Björk þegar hún samdi ténlist
við barnamynd sem framleidd
var af kvikmyndafyrirtæki Tri-
ers, Zentropa.
Vibeke Windelor hjá Zentropa
segir í samtali við Bergens
Tidende: „Björk og Lars hafa
lengi verið kunnug og virðast
eiga mjög vel saman. En það
hafa engir samningar verið
gerðir."
LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 1998 53
FÓLK í FRÉTTUM
Hjónabandssæla og
ekkert framhjáhald
LEIKKONAN Melanie Griffith er
ástfangin af eiginmanni sínum,
spænska leikaranum Antonio
Banderas, og vill að allir viti af
því. I viðtali við bandarískt
kvennablað segir Griffith frá því
að hjónabandið verði betra með
hverjum deginum. Hún þvertekur
fyrir að nokkurt sannleikskorn sé
að finna í slúðursögu um að hún
hafi komið að Banderas í rúminu
með nuddkonu sinni. „Ef hann
ákvæði að leika þann leik þá veit
hann að ég yrði farin áður en hann
lyki honum. Við vitum nákvæm-
lega hvar mörkin í sambandi okk-
ar liggja og við fylgjum þeim,“
sagði Griffith.
Leikkonan, sem nýlega hélt upp
á 41 árs afmælið sitt, segist svo
ástfangin af hjartaknúsaranum
Banderas að hún vonist til að verða
þunguð af öðru barni þeirra í
haust. Fyrir eiga þau hin tveggja
ára gömlu Stellu. „Mig dreymdi
um svona ást þegar ég var lítil. Svo
kom „millikaflinn" í lífi mínu þar
sem ég var sorgmædd og útjöskuð.
Svo kom Antonio fram á sjónar-
sviðið."
„Millikaflinn“ í lífi Griffith var
skrautlegur þar sem hún átti í
áfengis- og vímuefnavanda og gift-
ist tvisvar. „Ég drekk hvorki né
nota kókaín lengur. Ég mun hins
vegar aldrei verða svo hrokafull að
lýsa því yfir að ég muni aldrei nota
vímuefni. Ég er algjör fíkill í eðli
mínu.“
Melanie Griffith bíður þessa
HJÓNABANDSSÆLA Melanie Griffith og Antonio Banderas er mikil
ef marka má orð leikkonunnar.
dagana spennt eftir viðbrögðum
við nýrri sjónvarpsþáttaröð, „Me &
Henry", sem hún leikur í og óvíst
er hvort sýnd verður í sjónvarpi.
Antonio Banderas reyndi hins veg-
ar nýlega fyrir sér sem leikstjóri
og stýrði eiginkonunni í myndinni
„Crazy in Alabama". Hinn lukku-
legi eiginmaður er talsvert hóg-
værari í lofsöng sínum um Griffith.
„Melanie er mjög örlát. Hún er
ekki flókinn persónuleiki... Hún er
mjög einföld og ástrík manneskja,1*'
sagði Banderas.
i'
i
i
!
í
i
i
i
i
í
\
eða heimilið
i
wk)ý