Morgunblaðið - 18.08.1998, Side 9

Morgunblaðið - 18.08.1998, Side 9
10 ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1998 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Er rétt að forseti Islands fjalli um mál í brennidepli? MARGRÉT Frímannsdóttir, for- maður Alþýðubandalagsins, sagð- ist aðeins hafa heyrt og séð brot úr ræðu forsetans í fjölmiðlum og erfitt væri að meta hlutina út frá ákveðnum hlutum sem væru teknir út úr stærri heild. „En, miðað við það sem ég hef heyrt, finnst mér alls ekki að for- setinn hafi farið út fyrir verksvið sitt og þarna sé eingöngu um að ræða beiðni til stjórnmálamanna og þjóðarinnai’ að íhuga vel hvað það er sem við erum að fara út í og á hvaða hátt við ætlum að gera þetta.“ Margrét sagði að umræðan um miðlægan gagnagrunn og málefni íslenskrar erfðagreiningar hefði óneitanlega einskorðast ansi mikið við viðskiptahlið málsins. „Mér finnst að í orðum forsetans felist einfaldlega beiðni til okkar um að stíga varlega niður og taka ekki ákvarðanir í fljótræði út frá við- skiptahagsmunum, heldur gefa okkur tíma til að skoða alla þætti málsins. Mér fannst þetta vera það sem forsetinn var að segja og út af fyrir sig er það mjög gott.“ Aðspurð um þá gagnrýni að for- seti eigi ekki að tjá sig um laga- frumvörp sagði Margrét: „Mér finnst hún fráleit þegar þetta er gert á þann hátt að það er íyrst og fremst verið að biðja okkur að íhuga vel það sem við erum að gera og varðar almannaheill eins og þetta frumvarp gerir, sem varðar miklu fyrir þessa þjóð og er kannski miklu stærra en fólk hefur almennt gert sér grein íyrir. For- setinn á fyrst og fremst að vinna með hag þjóðarinnar í huga og mér finnst eðhlegt og ekkert að því að hann beini tilmælum til stjórn- málamanna og þjóðarinnar um að íhuga málið vel.“ Efni málsins en ekki frumvarpsins Sighvatur Björgvinsson, formað- ur Alþýðuflokksins, sagðist alls ekki telja að forseti íslands hefði farið út fyrir verksvið sitt með um- mælum sinum í ræðunni á Hólum. „Hann tekur ekki afstöðu til frumvarpsins og þeirra tillagna um útfærslu, sem þar eru gerðar, held- ur er hann að minna menn á, að í þessu mikilvæga máli, sem ég er sammála honum um að er eitthvert stærsta mál sem við höfum fengið á okkar borð lengi, megi menn hvorki horfa á gróðamöguleikana eina út af fyrir sig né láta afdalamennsku og þröngsýni eyjarskeggjans ráða eina,“ sagði Sighvatur. „Menn verða að reyna að meta bæði kosti og galla og taka tillit til þess að það er ekkert gefið í þessum málum. Mér finnst þessi áminningarorð hans um að menn reyni að hafa víð- ari sýn til þessa umfjöllunarefnis bara vera af hinu góða. Hann var hins vegar ekkert að taka afstöðu til frumvarpsins eða leggja til breytingar á því eða hvemig ætti að standa að afgreiðslu þess. Hann var að tala um efni málsins en ekki efni frumvarpsins." tít fyrir sín mörk „Mér þótti hann fara út fyrir sín mörk,“ sagði Valgerður Sverris- dóttir, formaður þingflokks Fram- sóknarflokksins, þegar hún var spurð álits á ummælum forsetans. „Mér fannst að hann væri að hafa afskipti af stjómmálum í landinu, sem jnér finnst ekki í hans verka- hring að hafa afskipti af.“ Valgerð- ur sagðist ekki hafa séð ræðu for- seta í heild sinni en þetta mat byggði hún á því sem hún hefði heyrt í fjölmiðlum. Getur forseti þá ekki tjáð sig um mál, sem era almennt til umræðu í þjóðfélaginu, ef fram er komið frumvarp til laga um sama efni? „Hann á ekki að hafa afskipti af stjórnmálum, það er enginn vafi á því. Þetta tilvik snýst um stjóm- mál, umdeilt mál, og þar á forseti Islands ekki að hafa afskipti.“ Telur Valgerður að afstaða til deilumálsins og andstaða við fmm- varpið hafi falist í orðum forseta? „Já, það var meira í þá áttina, þótt hann hefði ekki algjörlega tekið af skarið las maður milli línanna að afstaðan væri neikvæð," sagði Val- gerður Svemisdóttir, formaður þingflokks Framsóknarflokksins. Góð leið til að vekja til umhugsunar Guðný Guðbjömsdóttir, formað- ur þingflokks Samtaka um kvenna- lista, kvaðst ekki telja að forseti Is- lands hefði farið út fyrir sín mörk með ummælum sínum. „Mér finnst þetta vera mjög mikið stórmál fyrir þjóðina og það skiptir miklu máli hvernig að þessu máli verður staðið. Reyndar sagði forsetinn ekkert nýtt í stöðunni. Hann benti á þessi tvö meginsjón- armið; annars vegar er þetta spuming um mikið framlag til vís- indanna á heimsmælikvarða og um leið koma viðskiptahagsmunir inn í myndina. Mér fannst þetta góð leið til að vekja þjóðina til umhugsunar um þetta er mál sem við verðum öll að hugsa um. Mér fannst hann ekki fara út fyrir sitt verksvið. Vissu- lega tíðkast ekki að forsetinn sé að ræða um einstök frumvörp en þetta mál er sérstakt og hann var meira að fjalla um málið almennt og í hvaða ljósi við viljum að þjóðin verði séð út á við,“ sagði Guðný. Hún sagðist ekki telja að í máli forsetans hefði falist afstaða til frumvarpsins. „Mér fannst hann draga fram að við gætum sem þjóð lagt fram mjög mikilvægt framlag til vísindanna með því að þessi grunnur yrði til en jafnframt komu kannski fram ákveðnar efasemdir um viðskiptahagsmuni og einka- leyfi. Þetta er kannski í hnotskurn vandinn sem við stöndum frammi fyrir í þessu máli öllu. Mér finnst mikilvægt að við festumst ekki í öðru farinu heldur ræðum þetta af yfirvegun og víðsýni." Þarf að taka því að ekki allir verða sammála honum Vilhjálmur Egilsson, alþingis- maður Sjálfstæðisflokksins, sagði í Ummæli forseta ís- lands um gagnagrunn og erfðavísindi í ræðu á Hólahátíð hafa vakið athygli. Pétur Gunn- arsson leitaði við- bragða stjórnmála- manna og fræðimanna við ræðu forsetans. samtali við Morgunblaðið að í um- mælum sínum hefði forseti Islands fjallað um málið frá ýmsum hliðum en Vilhjálmur kvaðst ekkert vilja segja um ummælin efnislega. Um það hvort forsetinn hefði með þeim farið út fyrir verksvið sitt, sagði Vilhjálmur að forsetinn mótaði sjálfur að svo miklu leyti sitt verksvið að hann gæti í sjálfu sér sagt allt sem hann vill um það sem hann vill. „Það er í sjálfu sér ekkert sem bannar honum það en hins vegar verður forsetinn líka að meta hvað það er heppilegt að hann blandi sér í mál sem eru til afgreiðslu á hinum pólitíska vett- vangi hverju sinni. Hann þarf þá að taka því eins og aðrir, sem blanda sér í þau mál, að það er ekki víst að allir séu sammála honum.“ Engin lög eða reglur „í fyrsta lagi er ekki að finna nein lög eða reglur sem varða for- setaembættið sem lúta að því á hvern hátt forseta Islands er heim- ilt að tjá sig,“ sagði Gunnar G. Schram, prófessor í stjórnskipun- arrétti yið lagadeild Háskóla ís- lands. „I öðru lagi hefur það færst í vöxt að fyrri forsetar íslands hafa tjáð sig um mál sem eru ofarlega á baugi með þjóðinni, m.a. um ástand í menntamálum, umhverfismál og önnur helstu vandamál sem þeir telja að steðji að þjóðinni á hverj- um tíma. Forsetinn nýtur náttúr- lega tjáningarfrelsis eins og aðrir íslenskir þegnar. Á hinn bóginn er það ljóst að forseti væri talinn fara út fyrir verksvið sitt ef hann færi að blanda sér í stjómmálaumræður eða deilur hér á landi eða beina órökstuddri og óréttmætri gagn- rýni að einstaklingum, þingmönn- um, ráðherrum eða öðrum í þjóðfé- laginu. Þannig að hann verður að gæta virðingar og hófs í hvívetna að því er ummæh varðar." Um það hvort eiginleg afstaða til deilumálsins hefði falist í orðum forsetans sagðist Gunnar hafa fremur talið ummælin almenns eðl- is. „Hann varpaði ljósi á bæði sjón- armiðin í þessu máli, sem hefur verið mikið til umræðu. Hann var- aði við því að ísland einangraði sig og ræddi hættuna á því að gróða- sjónarmiðin bæru almenna skyn- semi ofurliði. Menn verða að meta hvort þeir telja að þar hafi hann farið út fyrir þessi óskráðu en eðli- legu mörk sem forseta eru sett í þjóðmálaumræðunni." Leyfist að ræða þjóðmálin á rök- rænum, hófsömum grundvelli Gunnar sagðist aðspurður ekki muna til þess að forseti hefði rætt sérstaklega um mál sem lagafrum- varp lá var fyrir um. „Enda skiptir það í sjálfu sér ekki höfuðmáli. Það má segja að svo framarlega sem forseti gætir hófs og byggir mál sitt á rökrænum grundvelli leyfist honum að ræða þjóðmálin almennt eins og öðrum þegnum en hann verður að gæta þess að forseta- embættið á að vera hafið upp fyrir pólitísk- ar deilur og skylming- ar og má vitanlega ekki gefa færi á sér með því að beita óréttmætri gagnrýni. Sér í lagi vegna þess að hingað til hafa menn ekki talið við- eigandi að gagnrýna forsetann op- inberlega. Þannig að hér er um nokkuð vandrataða meðalhófsleið að ræða,“ sagði Gunnar G. Schram. Lýsti andstöðu við einkarétt Svanur Kristjánsson, prófessor í stjómmálafræði við félagsvísinda- deild Háskóla íslands, kvaðst ekki sjá að forsetinn hefði í ræðunni á Hólahátíð tekið sérstaka afstöðu til lagafrumvarpsins um miðlægan gagnagmnn, aðra en þá að nauð- synlegt væri að vanda til málsmeð- ferðarinnar. „Þó held ég að það verði að segja að hann sé að taka afstöðu til einkaréttarins og leggj- ast gegn því að einhver fái einka- rétt að gagnagrunninum," sagði Svanur Kristjánsson. „Það leiðir af sjálfu sér að þegar forseti tekur til máls_ með þeim af- gerandi hætti sem Ólafur Ragnai' hefur gert, að hann er að reyna að hafa áhrif á stefnumörkun, sem honum er fullkomlega heimilt. Hann er handhafi löggjafaivalds- ins ásamt Alþingi. En um leið hlýt- ur forsetaembættið, og sá sem gegnir því á hverjum tíma, að opna fyrir þá möguleika að embættið verði umdeildara en það hefur ver- ið í tíð Kristjáns Eldjárns og Vig- dísar Finnbogadóttur.“ Svanur sagði að stjórnarskráin gerði enda ráð fyrir ágreiningi for- seta, Alþingis og ríkisstjórnar og fengi forseta vald til að leggja laga- frumvörp fyrir Alþingi og til að neita að undimta lög og skjóta þeim þannig til þjóðaratkvæðis. Svanur áréttaði að það væri inn- an ramma heimilda forsetaemb; ættisins að taka afstöðu til mála. „I 2. gr. stjórnarskrárinnar segir að Alþingi og forseti Islands fari sam- an með löggjafarvaldið. Það er alltaf verið að setja málin upp eins og ísland sé þingræðisríki þar sem forsetinn hefur ekkert hlutverk. En það er mikilvægt í þessari um- ræðu að hafa í huga að í stjómskip- uninni erum við með sambland af forsetaræði og þingræði. Forsetinn hefur, eins og Sigurður Líndal hef- ur bent á, sjálfstæðar heimildir sem handhafi löggjafarvalds „og er þar ekki á neinn hátt háður atbeina ráðherra enda er það í samræmi við að hann sæki umboð sitt beint til þjóðarinnar“,“ sagði Svanur og vitnaði þar að sögn í grein sem birtist eftir Sigurð Líndal lagapró- fessor í Skírni 1992 um þetta efni. Hann sagði að í sömu grein Sig- urðar kæmi fram að þegar horft væri á stjórnskipulega stöðu for- setans yrði að skýra stjórnarskrár- ákvæði út frá því að forseti sækti umboð sitt beint til þjóðarinnar. Það bæri að hafa í huga, ásamt því að forsetinn gæti ekki leitt það hjá sér að líkt og margt sameini þjóð- félagið sem hann væri skipaður yf- ir væri annað sem ylli þar sundur- þykkju. Svanui- sagðist draga þá ályktun að út frá lögfræðilegu sjónarmiði væru ummæli Ólafs Ragnars því innan þess ramma sem forseta- embættinu væri sniðinn. Með tilliti til hefðarinnar um afskipti forseta af stjómmálum hefði forsetinn ekki tekið þátt í flokkapólitík með svip- uðum hætti og t.d. Sveinn Björns- son og Ásgeh- Ásgeirsson gerðu við stjórnarmyndanir, eins og lýst væri í nýrri bók Vals Ingimundar- sonar. Auk þess að beita sér gegn stjórnaraðild sósíalista hefði Ás- geir á tímabili rekið utanríkis- stefnu í andstöðu við sitjandi ríkis- stjóm. „Ólafur Ragnar hefur heldur ekki reynt að hafa beint áhrif á það hvaða mál em tekin til umfjöllunar og sett í forgang eins og Vigdís gerði í nýársávarpinu 1995 þegar hún lýsti því yfir að menntamál ættu að vera helstu mál kosn- ingabaráttunnar fyrir alþingiskosninganna heldur er hann að taka afstöðu til þessa máls sem uppi er í samfélaginu. Það er hvergi gert ráð fyrir því í okkar hefðum eða lögum að þeir einir megi taka til máls um mikilvæg mál í samfélag- inu sem sitja á Alþingi." Svanur sgaði að þegar haft væri í huga að stjórnmálaflokkarnir hefðu bmgðist því hlutverki að hafa áhrif á stefnumótun í gagna- grannsmálinu, sem væri komið fram vegna þrýstings og kynning- ar hagsmunaaðila mætti líta svo á að enn brýnna væri en ella að for- seti Islands blandaði sér í umræð- una. Benti á tvö megin- sjónarmíð Embættið á að vera hafið yfir pólitískar deilur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.