Morgunblaðið - 18.08.1998, Side 51
52 ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Blindrafélagið fær
höggmynd að gjöf
LISTAMAÐURINN Teddi, fullu
nafni Magnús Theodór Magnús-
son, gaf 5. ágúst sl. Blindrafé-
laginu listaverk eftir sig. Lista-
verkið heitir Afrísk kona og er
höggmynd unnin í íslenskan
reynivið.
Blindrafélagið hefur tvívegis
sótt Iistasýningar Tedda í
Perlunni og einnig í Ráðhúsi
Reykjavíkur árið 1994.
„Höggmyndir Tedda í tré í
mismunandi ástandi og af ólík-
um uppruna og eru sérstaklega
lifandi og áhrifamikil list sem
félagsmenn Blindrafélagins
hafa notið og munu með þessari
gjöf halda áfram að njóta um
ókomna tíð,“ segir í frétt frá
Blindrafélaginu.
TEDDI við höggmyndina
Afrísk kona.
Námskeið um Ritn-
inguna í Vatnskógi
NAMSKEIÐ verður í sumarbúð-
um KFUM í Vatnaskógi dagana
20.-23. ágúst. Á námskeiðinu, sem
er öllum opið, verður „rölt“ um síð-
ur Gamla testamentisins undir
leiðsögn gestakennara frá Noregi
sem heitir Jon Steinar Jacobsen.
Auk þess verða í boði ýmsar val-
stundir um málefni tengd Biblíunni
og kristinni trú og koma kennarar
víða að.
Námskeiðið heldur Biblíuskólinn
við Holtaveg sem er í eigu KFUM
og KFUK, Kristniboðssambands-
ins og Kristilegu skólahreyfíngar-
innar. Það hefst á fímmtudags-
kvöld kl. 21.30 og lýkur um kl. 16 á
sunnudegnum. Gjald er 5.500 kr.
fyrir 16 ára og eldri en hámarks-
gjald fyrir hjón með böm undir 16
ára aldri er 11.000 kr. og er þá
matur og gisting innifalin.
Skráning er á skrifstofu Biblíu-
skólans við Holtaveg kl. 8-16 virka
daga til 19. ágúst. Þar fást einnig
nánari upplýsingar og dagskrá.
Útsala
Stuttar og síðar kápur
Sumarúlpur og heilsársúlpur
Dæmi: Áður kr. 15.900, nú kr. 5.000.
Opið laugardag kl. 10-16
\oÁHU5ID
Mörkin 6, sími 5SS 551S
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
DOMUS MEDICA - KRINGLUNNI
Nýjar
haustvörur
ecco
í DAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Vegagerðin
og vegir
Vestfirðinga
ÉG hefi á þessu sumri loks
haft svigrúm til að aka
með góðum forunautum
tvær hringferðir um landið
okkar mikilfenglega í sum-
arskrúða.
Hin fyrri var eftir þjóð-
braut nr. 1, sólarsinnis í
júni/júlí. Sú leið mun vera
1.382 km og þar af 80%
með bundnu slitlagi, skv.
upplýsingum frá skrifstofu
Vegagerðarinnar. Hinn
óbundni hluti leiðarinnar
fannst mér mun meiri en
20% hringsins. Það er ef-
laust vegna þess að hann
er á köflum mjög seinfar-
inn, því holurnar eru
margar. Síðari ferðin, nú í
júlí/ágúst var um Vestfirð-
ina, eftir þeirri á löngum
köflum hrikalegu leið nr.
60 og nr. 61. Mikilfengleiki
fjallanna þarna á Vest-
fjarðakjálkanum mun ekki
gleymast mér, né heldur
fossinn Dynjandi og ekki
heldm' ýmis mannanna
verk, svo sem vegirnir og
brýrnar yfír Gilsfjörð,
Dýrafjörð, Önundarfjörð
og jarðgöngin miklu við
Isafjörð. Og gott var að sjá
hve minning Jóns Sigurðs-
sonar forseta á Hrafnseyri
er fógur og vegleg. En
ljóðurinn á vegakerfmu
um Vestfirði er hve við-
haldið víða á malarvegun-
um er óviðunandi. Ekki er
nóg að leggja vegi, þeim
þarf að halda við, rétt eins
og við mannfólkið leitumst
við að hirða líklama okkar
daglega og við leitum
lækna í þvi viðhaldi er
þurfa þykir. Svo holóttir
og harðir voru þama ýmsir
vegakaflar að engu taii
tekur. Mér varð hugsað til
vökumanna Vestfirðinga á
Alþingi, þingmannanna.
Sofa þeir nú á verðinum?
Ef svo er þá hvet ég þá til
að vakna til dáða, einnig í
sambandi við vegina þarna
í vestrinu. Vegirnir nr. 60
og 61 hljóta að hafa sama
rétt til viðhalds og þjóð-
braut nr. 1 - eða er það
ekki? Ef byggð á að hald-
ast á Vestfjörðum þá
hljóta íbúar þar að njóta
sama réttar í samgöngu-
málum og aðrir lands-
menn. Umsögn Vegagerð-
arinnar við þessari ábend-
ingu væri þakksamlega
þegin.
H.Þ.
Dýrahald
Kettlingur óskar
eftir heimili
KETTLINGUR, 8
vikna fress, óskar eft-
ir góðu heimili. Er
kassavanur. Upplýs-
ingar í síma 554 3187.
Hefurðu séð
síamsköttinn Nóa?
NÓI er frekar stór
síamsköttur með
ljósbrúna slikju á feldinum
(chocolate point). Hann
hvarf frá heimili sínu á
Laufásvegi að morgni mið-
vikudagsins 12. ágúst sl.
Engin ói er á honum en
hann er eyrnamerktur
með auðkenninu R7220.
Nói á það til að vera dálít-
ið mannfælinn og kann að
hafa lokast inni í bílskúr.
Allar upplýsingar um ferð-
ir eða afdrif Nóa frá því á
miðvikudag væru þegnar
með þökkum. Síminn er
552 0052.
SKAK
llinsjón Margcir
Pétursson
STAÐAN kom upp á
rússneska meistaramót-
inu í Sánkti Pét-
ursborg sem lauk
í síðustu viku.
Konstantín
Landa (2.505) var
með hvítt, en Ild-
ar Ibragimov
(2.590) hafði svart
og átti leik. Hvít-
ur lék síðast 22.
Re3-g2? en
skárra var að
setja riddarann á
fl.
22. - Bc4!! og
hvítur ákvað að SVARTUR leikur og vinnur.
gefast upp. Hann sá fram
á að fá á sig aðra biskups-
fóm eftir 23. Dxc4. Þá
leikur svartur 23. -
Bxf2+! og hvíta staðan er
með öllu vonlaus eftir
bæði 24. Kxf2 - Hxd2+
25. Ke3 - Hxc2 og 24. Ke2
- Dxg3.
HOGNI HREKKVISI
Pennauinir
ÞRÍTUGUR Dani sem
getur skrifað á íslensku
með menningu og útivist
sem áhugamál:
Hans Nielsen,
Birkeskoven 46,
2600 Glostrup,
Danmark.
ÞRETTÁN ára japönsk
stúlka með áhuga á bréfa-
skriftum og verslunar-
ferðum:
Yuko Takano,
2-8 Nishidayudai,
Himeji Hyogo 670,
Japan
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynn-
ingar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja daga
íyrirvara fyrir sunnudags-
blað. Samþykki afmælis-
barns þarf að fylgja af-
mælistilkynningnm
og/eða nafn ábyrgðar-
manns og símanúmer.
Fólk getur hringt í síma
569-1100, Sent í bréfsíma
569-1329, sent á netfangið
ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík.
Víkver|i sknfar...
VÍKVERJA hefur borizt r\G BRÉFRITARI heldur áfram
svohljóðandi bréf frá Guð- V-Jog segir: „Það er nú reyndar
mundi Fylkissyni, lögreglumanni:
„Víkverji 11.08.1998 kemur m.a.
að lausagöngu sauðfjár við þjóðvegi
í pistli sínum. Það er rétt að það er
gersamlega óviðunandi ástand að
sauðfé gangi laust á þjóðvegum
landsins. En hvers er það að sjá til
þess að svo sé ekki? Er það bónd-
ans? Skoðum aðeins málið. Fyrir
einhverjum tugum og jafnvel hund-
ruðum ára voru bændur með kind-
ur víðs vegar um landið. Þá voru
ekki neinir vegir né bflar. Síðan
komu bílar og í framhaldi vegir.
Þar sem kindurnar höfðu verið var
allt í einu búið að leggja vegi og áð-
ur en langt um leið voru bflar farnir
að aka á hátt í hundrað kílómetra
hraða um þessa vegi. Er hægt að
ætlast til þess að bændurnir breyti
öllu í sínum búskap af því að vegir
og bflar komu til? Er það ekki frek-
ar að það sé veghaldara að sjá til
þess að kindurnar geti áfram verið
óhultar í sínu umhverfí?"
þannig í vegalögum að þar er kveðið
á um að girt skuli meðfram nýjum
vegum og þar sem girðing er beggja
vegna vegar er hægt að banna
lausagöngu búfjár. Það er enn langt
í land með að svo verði. Umræðan
hefur því miður verið á neikvæðan
hátt gagnvart bændum. Einhverjir
hafa sagt að bændurnir séu búnir að
beita fénu á vegina. Meira að segja
Víkverji orðar þetta á neikvæðan
hátt gagnvart bóndanum í síðustu
setningu þegar hann segir: „Og svo
eiga bíleigendur að borga bændum
skaðabætur!!“ Hvað með bóndann
sem hafði girt af landið sitt fyrir 25
árum og haldið vel við girðingunni.
Vegagerðin tók eignarnámi land hjá
honum og lagði veg í gegnum tún og
beitilönd. Þetta var áður en vega-
gerðinni var gert að girða af veginn.
Skyndilega var kominn vegur í
gegnum mitt landið og kindurnar
sem áður voru innan girðingar voru
á veginum. Bóndinn girti af í nánd
við bæinn og vildi fá rörahlið á veg-
inn til að hann gæti lokað kindurnar
af. Slíkt hlið kostar um það bil
600.000 kr. Á bóndinn að borga það
eða vegagerðin? Bóndinn fær hliðið
á einhverjum næstu 4-6 árum.
Hættum að hallmæla bændum fyrir
lausagöngu búfjár við vegi. Gerum
þá kröfu að veghaldari girði af veg-
ina. Við getum þá vonandi ferðast
um vegina af meira öryggi og lifi-
brauð bóndans verður ekki skert.
Guðmundur Fylkisson, lögreglu-
maður.“
XXX
VÍKVERJI getur fallizt á að
Guðmundur Fylkisson hafi
töluvert til síns máls. En alltént
hljóta menn að vera sammála um,
að óbreytt ástand gengur ekki. Ein-
um eða tveimur dögum eftir að um-
ræddur Víkverjapistill birtist
hvolfdu útlendingar bíl norður í
landi þegar þeir reyndu að koma í
veg fyrir árekstur við kindur. Til
allrar hamingju varð ekki dauðaslys
eins og í Öræfasveitinni fyrir
nokkrum vikum.