Morgunblaðið - 18.08.1998, Side 15

Morgunblaðið - 18.08.1998, Side 15
16 ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1998 LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Jónas Erlendsson MÚLAKVÍSLARBRÚIN vestast á Mýrdalssandi. Múlakvíslar- brúin að hverfa í aur Fagradal. Morgunblaðið. MIKILL aur hefur hlaðist að brúnni yfir Múlakvísl. Brúin var byggð um 1990 og voru þá 3 metr- ar undir hana en nú er það aðeins tæpur metri og þegar mikil úr- koma er og bráðnun á jöklinum þá gutlar vatnið upp undir gólfið á brúnni. Mikið er búið að vera í ánni að undanförnu. Að sögn Guðjóns Þorsteinssonar starfsmanns Vegagerðarinnar í Vík er vatnið í henni ekki ósvipað hlaupvatni. Guðjón segir að ekki hafi verið tekin ákvörðun um hvað hægt sé að gera svo að brúin fari ekki í kaf. Einnig geti verið mjög hættulegt ef klakastífla komi í Múlakvísl en fylgst verði grannt með gangi mála. Þessi aursöfnun við brúna hefur komið Vegagerðarmönnum mjög á óvart því að meðan gamla bráin stóð grófst stöðugt undan henni eða í kringum 3 metra en hún stóð á svipuðum slóðum og sú nýja. Öðruvísi fyrirtæki 1. Ein þekktasta unglingaverslun landsins, leiðandi ítísku til margra ára, til sölu þótt ótrúlegt sé. Vel staðsett. Nýr og góður lager. Frábærtfyrirtæki fyrir réttfólk með hausinn í lagi og þá, sem vilja verða ríkir og vilja vinna fyrir því. 2. Fiskvinnslufyrirtæki til sölu í eigin húsnæði á höfuðborgar- svæðinu. Góð aðstaða. Nægur markaður. Hráefni á mörkuðun- um. Hægt að stórauka veltuna. 3. Viðgerðar- og smíðaverkstæði fyrir bíla, vagna og járnsmíði til sölu. Vel þekkt og viðurkennt. Öll tæki til staðar og mikil vinna. Framtíðarfyrirtæki. 4. Þekkt bón- og dekkjaverkstæði til sölu, staðsett á besta stað í Reykjavík, þar sem fólkið og bílarnir eru. Öll tæki. Næg vinna. Föst viðskiptasambönd. Þetta geta allir og allir græða. 5. Þjónustufyrirtæki fyrir kvikmyndafólk. Myndsetning, fjölföldun, klipping, upptaka, útlán. Öll þjónusta fyrir mál og myndir. Landsþekkt fyrirtæki og aðeinsfyrir filmufíkla. Endalausir möguleikar fyrir ungt fólk með hugmyndir og þor. 6. Ein þekktasta og sérstakasta nýlendu- og matvöruverslun landsins til sölu. Þekkt fyrir uppákomur og þjónustulund. Skemmtilegur vinnustaður þar sem mannleg tengsl skipta máli. Staðsett í Reykjavík á gömlum stað. Óvenjulegt tækifæri til að eignast óvenjulega framtíðarfyrirvinnu. 7. Steikhús til sölu. Einn vinsælasti matsölustaður borgarinnar til sölu, þar sem steikurnar renna út á færibandi og peningarn- ir til baka beint i kassann . Dæmi fyrir trausta aðila. 8. Herrafataverslun við Laugaveginn, sem allir þekkja og er á frábærum stað. Með ómetanlega góð erlend viðskiptasamb- önd sem þróast hafa í tímans rás.Nokkuð fyrir þig? 9. Auglýsingaskilti við aðalumferðargötu borarinnar. Endalausir tekjumöguleikar. Meðf. ertölva og skrifstofubúnaður. Þægi- legt fyrir snjalla sölumenn. Auðvelt í meðhöndlun, engin sérþekking. 10. Einstakur veitingarstaður, sem sagður er af sérfræðingum einn sá besti á allri kúlunni. Menn eru krýndir fyrir og eftir hverja máltíð. Dæmi um frábæran árangur snillinga. Getur verið laus strax þó aðalvertíðin sé rétt að byrja. 11. Hjólbarðafyrirtæki á Austurlandi til sölu ásamt tilheyrandi húsnæði. Góð vinna og mikil í kyrrlátu umhverfi og fögru. 12. Einn af stærri söluturnum landsins til sölu. Er í eigin húsnæði sem er nýlegt og einnig til sölu . Margar bílalúgur og hröð afgreiðsla. Mikil velta og góð álagning, enda er selt mikið af eigin framleiðslu, steiktu. Miklar aukatekjur, kassar, lottó, leiga á aðstöðu o.fl. Selst traustum aðila. 13. Ein fullkomnasta og þekktasta málningarverslun landsins til sölu. Vel staðsett í Reykjavík. Verslun sem allir þekkja. Þægileg framtíðarvinna fyrir iðnaðarmann, sem vill verða sjálfstæður. 14. Ein glæsilegasta sérverslun landsins er til sölu, sem selur vörur fyrir dömur, þó ekki fatnað. Staðsett við ný endurbættan Laugaveg. Mikil verslun og möguleikarnir endalausir. Glæsi- legur vinnustaður fyrir ungar tignarlegar konur. Verðið mjög sanngjarnt. 15. Þekktur söluturn við mikla og vaxandi umferðargötu til sölu strax. Tvær bílalúgur, góð afgreiðsla, lottó, spilakassar, smyr brauðið sjálfur. Góð velta, sanngjarnt verð. Gott fjölskyldufyrir- tæki. 16. Gjafa- og blómaverslun í fjölmennasta hverfi landsins og sú eina sinnar tegundar. Vaxandi velta. Mjög góð aðstaða. Gott fyrirtæki með góða afkomu. Besti tíminn framundan. Lifandi tekjuöflun. 17. Þjónustufyrirtæki með mikla tekjumöguleika. Engin sérþekk- ing, fyrirtæki í fullum gangi og hefur auk þess mjög góðan tilgang. Óteljandi hugmyndir fylgja með. Þetta geta flestir. Rífandi tekjur. 18. Framleiðslufyrirtæki sem getur verið hvar sem er á landinu. Steypir ýmsar framleiðsluvörur í mót, flytur inn hráefnið sjálft að hluta til. Fastir viðskiptavinir. Góð tæki. Þarf 50-70 fm. 19. Framleiðslufyrirtæki í byggingariðnaðinum. Aðeins tvö svona fyrirtæki á landinu og verkefnin vaxandi. Allar vélar, tæki og áhöld ásamt vinnu langt fram í tímann. Gæti hentað með öðru en þarf 250 fm. Framleiðir viðhaldsfría vöru sem er mikil húsaprýði og lífsgæðafylling. Starfsþjálfun. Höfum aldrei haft meira úrval af góðum fyrirtækjum en í dag. Hafið samband. Fullur trúnaður. Upplýsingar aðeins á skrifstofunni. F.YRIRTÆKIASALAIM SUÐURVE R I SÍMAR581 2040 OG 581 4755, REYNIR ÞORGRÍMSSON. Heimshorn og Hornsteinar afhentir Morgunblaðið/Aðalheiður FRÁ úthlutun Heimshornsins og Hornsteina Töðugjalda og Sunnlenska fréttablaðsins. F.v. Drífa Hjartar- dóttir frá úthlutunarnefndinni, Kári Stefánsson forstjóri íslenskrar erfðagreiningar hf., Guðmundur Ármann Pétursson frá Sólheimum, Dofri Eysteinsson framkvæmdastjóri Suðurverks-Arnarfells, Hallur Hallsson frá Free WiIIy Keiko Foundation, Hrönn Sigurðardóttir sem tók við Hornsteini fyrir hönd Hjartar Þórarinssonar og Gunnar A. Gunnarsson frá Vottunarstofunni Túni. TÖÐUGJALDAHÁTÍÐ lauk í blíð- skaparveðri á Gaddstaðaflötum við Hellu á sunnudag. I lok dag- skrár fóru fram viðurkenningar Töðugjaldanna og Sunnlenska fréttablaðsins til aðila á Suður- landi sem skarað hafa fram úr að mati dómnefndar. Auk þess var svokölluðu Heimshorni úthlutað, en þau fá aðilar, íslenskir eða er- lendir, sem komið hafa íslandi á framfæri á erlendri grund. I fyrra hlaut söngkonan Björk Heims- hornið og 1996 Vigdís Finnboga- dóttir, fyrrverandi forseti. Það var Kári Stefánsson sem afhenti viðurkenningarnar fyrir Töðugjöldin og Sunnlenska fréttablaðið. Hornstein fyrir at- vinnumál hlaut verktakafyrirtæk- ið Suðurverk-Arnarfell fyrir mikla verkkunnáttu, skipulag, dirfsku og hröð vinnubrögð við byggingu frárennslisskurðar orkuveitunnar á Sultartanga. Fyrir menningarmál fékk Hjörtur Þórarinsson, framkvæmdasljóri Tónlistarskóla Árnesinga Horn- stein, en hann hefur um árabil unnið mikið menningarstarf í liér- aði. Hefur hann stuðlað að upp- byggingu og starfsemi tónlistar- skóla í samstarfi við sveitarfélög- in sem og að standa fyrir fjöl- Keikó heiðraður á Töðu- gjöldunum breytilegum tónleikum, kórastarfi og ýmsum öðrum tónlistarvið- burðum á Suðurlandi. Sólheimar í Grímsnesi fengu Hornstein fyrir umhverfismál, en síðan 1936 hef- ur þar verið unnið merkilegt starf, bæði með dvalar- og vist- heimilinu og atvinnustarfsemi. Þar eru nú m.a. trjáplöntustöð, grænmetisræktun, húsdýrahald, vefstofur, kertagerð, verslun og ferðaþjónusta. Umhverfismál hafa verið vaxandi þáttur í starfsem- inni, hvað varðar uppbyggingu og ræktun, sem og fræðsla og nám- skeiðahald. Gunnar Á. Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri hjá Vottunarstof- unni Túni í Vík, hlaut Hornstein vegna frumkvöðulsstarfa sinna, en liann hefur unnið manna mest hér á landi að þróun í lífrænum landbúnaði. Hugmyndafræði, framsetning og kynning á vottun- arreglum eru hans verk og þrátt fyrir töluverðan mótbyr kerfisins hefur Gunnar ekki látið deigan síga, en haldið verkinu áfram af þrautseigju, vandvirkni og fram- sýni. Nú eru á Suðurlandi á annan tug býla með vottaða framleiðslu og þrjú leiðandi landbúnaðarfyr- irtæki. Hvalurinn Keikó fjarri góðu gamni Uthlutunarnefnd viðurkenning- anna sem skipuð er Drífu Hjartar- dóttur, Jóni Þórðarsyni og Birgi Þórðarsyni fannst við hæfi að sá Islendingur sem hvað mesta at- hygli og aðdáun hefur fengið að undanförnu hérlendis og erlendis fengi Heimshornið, en það er að sjálfsögðu hvalurinn Keikó. Hann hefur um leið vakið athygli á sínu gamla heimalandi, skapað atvinnu nú þegar og mun vafalaust eiga eftir að draga íjölmarga ferða- menn til landsins með tilheyrandi gjaldeyristekjum og atvinnutæki- færum tengdum ferðaþjónustu. Að flytja hvalinn heim vekur mjög mikla athygli á íslandi og hefur tvímælalaust auglýsingagildi. Morgunblaðið/Atli Vigfússon Margt um manninn í Baldursheimi Laxamýri - Gestkvæmt var hjá þingeyskum bændum um helgina, en opið hús var á bæjunum Baldursheimi í Mývatnssveit og Halldórsstöðum í Bárðardal. í Baldursheimi var fjölmennt mestan hlut dags og gátu gestir skoðað búfénað, þegið veitingar og litið augum mikinn árangur í landgræðslu allt í kringum bæinn. Yngri kynslóðin skemmti sér vel og boðið var á hestbak. Á myndinni má sjá Ólöfu Þuríði Gunnarsdóttur í Baldursheimi teyma undir Þóru Bryndísi Másdóttur frá Húsavík.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.