Morgunblaðið - 18.08.1998, Side 53

Morgunblaðið - 18.08.1998, Side 53
54 ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1998 MORGUNBLAÐIÐ DÓPSALINN og melludólgur- inn „True Romance“. vinna LeigumorÐingi www.mbl.is FÓLK í FRÉTTUM ett Letter“. að stunda smáglæpi. Hann hreifst af Malcolm McDowell í „If...“ eftir Lindsay Ander- son. „Ég fann mikla sam- kennd með andhetjunni í „If...“ sem sker upp herör gegn kerfinu.“ Hann rekur upplifun sína á þeirri mynd til þess að hann hefur enn svo gaman af þvi að leika utangarðsfólk, „þetta fólk sem er alltaf kolruglað". Hann fór í leiklistarskóla og þeg- ar námi iauk starfaði hann með breskum leikstjórum á borð við Al- an Clark og Mike Leigh áður en hann vakti heimsathygli í myndun- um Sid og Nancy, eftir Alex Cox þar sem hann lék pönkarann Sid Vicious, og „Prick Up Your Ears“, þar sem hann fór með hlutverk leik- ritaskáldsins Joe Ortons. Hann tók að leita uppi hlutverk í Bandaríkjunum þegar kvik- myndaarullurnar sem buðust í Bretlandi „voru um það bil tvær á ári og Daniel Day-Lewis og Tim Roth hrepptu þær.“ í Bandaríkjun- um var honum tekið fagnandi, það var eins og Hollywood hefði beðið eftir honum í öll skuggalegu hlut- verkin sem draumaborgin hefur uppá að bjóða. Hann var glæpamað- ur í „State of Grace“, Lee Harvey Oswald í „JFK“ eftir Oliver Stone, Drakúla í „Bram Stoker’s Dracula", melludólgur í „True Romance", leigumorðingi í „Leon“ og Arthur Dimmsdale í „The Searlet Letter“. Gary Oldman talar mjög opin- skátt um drykkjusýki sína, sem hann segist nýlega hafa hreinsað sig af. „Sem leikari er maður alltaf að rugla með tilfinningar sínar. Þú getur grátið frammi fyrir 500 manns eða öskrað eða nauðgað og það losar um hömlur í þér. En það gerir mig kvíðinn og taugaveiklaðan og mjög erfíðan í sambúð." Drykkj- an gerði hann þunglyndan og fullan af sjálfseyðingarhvöt og hann skildi tvisvar, fyrst við leikkonuna Lesley Manville og síðar við Umu Thur- man. „Ég man eftir mér skríðandi inn á klósett eins og 85 ára gamal- menni. Ég varð að drekka þrjú glös af vodka áður en ég fór að halda því niðri.“ Á endanum leitaði hann hjálpar. Þó ekki fyrr en eftir að hafa lent í bílslysi í Los Angeles. Ef hann átti einhverntíma að geta gert „Nil By Mouth“ varð hann að vera edrú. Hann fór í afvötnun í Virginíu. Núna, þremur árum síðar, veit hann ekki nema hann snúi sér að öðru í framtíðinni en leiklist. „Ef ég ynni í lottóinu mundi ég aldrei framar stíga framfyrir kvikmynda- tökuvél," segir hann. „Þannig líður mér þessa stundina í það minnsta. Ég lifi á því að leika en ég hef ekki lengur þennan eld innra með mér. Það þarf ekki að þýða að mér falli ekki leikurinn en það nægir mér ekki lengur að koma á tökustað, staðsetja mig rétt og fara með setn- ingarnar ... Það er þreytandi að vera alltaf sá sem er með betri hug- mynd en allir aðrir á staðnum." Kvikmyndagerðarmaðurinn Old- man er með tvö stutt kvikmynda- handrit í takinu undir því sameigin- lega heiti „Roast Beef‘. Hann er einnig að hugleiða að gera mynd um löggur í New York á sjöunda og átt- unda áratugnum. I það minnsta eru líkindi á því að hann láti óþokka- hlutverkin vera í bili þótt ekki sé hann svo vitlaus að segja beinlínis að hann ætli aldrei að leika þau aft- ur. „Það er ekki oft sem koma aðal- hlutverk eins og þau í „Raging Bull“ eða Sid og Nancy. Slík hlut- verk koma á tíu eða fimmtán ára fresti. Ef þú ert heppinn færðu kannski tvö eða þrjú slík á öllum þínum ferli. Og það eru ekki allir sem njóta þess að vera í því sam- bandi sem De Niro er við Scorsese. Það er einstakt. Maður verður alltaf að borga skuldirnar. En ég er að hætta í þessum óþokkahlutverkum. Ég hef fengið þrjú ný tilboð um slík hlutverk og ég ætla ekki að halda áfram í þeim. Jæja, kannski ef ég má til,“ segir hann svo. Líklega er kominn tími á Gary Oldman sem óþokka. Menn geta gert of mikið af góðum hlut og hann virðist gera sér Ijósa grein fyrir því; hann á það á hættu að vera hlægi- legur með því að endurtaka sjálfan sig í sífellu auk þess sem hann er miklu betri og meiri leikari en óþokkahlutverkin gefa til kynna. En rómantísk gamanmynd? Það verður erfitt. Breski leikarinn Gary Oldman hefur leikið nær eingöngu óþokka í bíómyndum mörg undanfarin ár en nú segist hann ætla að hætta því. Arnaldur Indriðason skoðaði litríkan feril þessa skemmtilega leikara, sem er sjálfur farinn að eiga við kvikmyndagerð. Vesturgötu 3 _________ SUMARTÓNLEIKAROÐ KAFFILEIKHÚSSINS ,Ágústkvöld“. Signý Sæmundsdóttir syngur lög úr öllum áttim. fim 20. ágúst kl. 21 laus sæti MENNINGARNÓTT I KAFFILEIKHÚSINU lau. 22. ágúst „Líf manns" e. Leoníd Anrejev. Frums. í tilefni Menningamætur. kl. 22 laus sæti Kvennaband harmonikufélags Reykjavíkur kl. 23 laus sæti og að- gangur ókeypis Draugasögur úr miðbænum í flutn- ingi Erlings Gíslasonar, kl. 00.30 laus sæti, aðg. ókeypis Míðasala kl. 15 til 18 alla virka daga Miðapantanir allan sólarhringinn í sima 551 9055. Netfang: kaffileik@isholf.is OFLEIKUR í Fimmtu höfuðskepnunni. OLDMAN hefur sérhæft sig í hlutverki illingjans á hvíta tjaldinu og nú þegar hann er farinn að gera bíómyndir sjálfur segir hann að hann þurfi að leika tvo dýra óþokka til þess að eiga fyrir mynd eins og „Nil By Mouth“, þeirri fyrstu sem hann gerir sjálfur. „Þetta eru svona kringumstæður þar sem maður fer að eltast við skottið á sjálfum sér,“ segir hann í nýlegu tímaritsviðtali. „Þú verður vinsæll, verðið á þér hækkar, þú græðir meiri pening og þótt ekki starfi hjá mér blaðafulltrúi og lífvörður eru þónokkrir sem lifa á Gary Oldman iðnaðinum. Þú hefur ákveðinn lífsstíl, þú þarft að halda honum við. Ef ég ætla að taka frí í eitt og hálft ár til þess að gera mynd eins og „Nil By Mouth“ og Sýningar hefjart kl. 20.00. Óióttar panlartir rcldar'rf Lau. 22, síðasta sýning. Sýningar hefjast kl. 20.00. Miðasala sími 551 1475. Opin alla daga Id. 15-19. Simapantanir frá kl. 10 virka daga ogfrákl. 13 um helgar. setja í hana 2,5 milljónir dollara af mínum eigin peningum, þá þarf ég að leika óþokkana í stórmyndunum. Ég mundi strax leika í „Air Force One“ til þess að greiða skuldirnar." Engar rómantískar gamanmyndir get rétt ímyndað mér hvemig ykk- ur hefur líkað við leikinn í Fimmtu höfuðskepnunni. Ég ofleik hræði- lega.“ Og síðar segir hann: „í sann- leika sagt horfi ég stundum á mig í þessum myndum og hugsa sem svo, ekki vissi ég að ég væri að gera þetta. En ef ég er hættur að hafa gaman af leiknum þá er þar líka að hluta til um að kenna fólkinu sem sendir mér handrit. Það er ekki eins og höfundar „When Harry Met Sally...“ rjúki upp til handa og fóta og hrópi: Frábært, fáum Gary Old- man í aðalhlutverkið. Ég fæ aldrei rómantískar gamanmyndir uppí hendurnar. En ef á að gera mynd um Charles Manson þá spyrja þeir strax eftir mér.“ Hann sér ekki eftir neinu. „I „State of Grace" er sumt af því besta sem ég hef gert en enginn veitti því athygli." Hann gerði Luc Besson greiða þegar hann sam- þykkti að leika í Fimmtu höfuð- skepnunni en hann hafði leikið fyrir hann áður í „Leon“ og Besson hjálpaði honum að útvega fé í „Nil By Mouth“. Og þegar Oldman las handrit Quentins Tarantinos, „True Romance", „hló ég mig máttlausan. Ég hafði gaman af þeim kokteil öll- um. “ Erfið æska Hann hefði reyndar getað leikið aðalhlutverkið í sinni eigin bíómynd en hafnaði því eftir nokkra umhugs- un. Aðalpersónan í „Nil By Mouth", drykkjumaðurinn og fjölskyldufað- irinn Ray, er byggð að nokkru leyti á lífi föður Oldmans. „Það er sárs- aukafullt og erfitt að leika slík hlut- verk.“ Oldman segir myndina vera ástarbréf til föður síns. „Hann lést þegar hann var 62 og við náðum aldrei saman. Ég þekkti hann varla. Þrátt fyrir það sem hann gerði saknaði ég hans alltaf. Ég drakk vegna þess í 25 ár. Mér fannst kom- inn tími til að loka því máli og koma fyrirgefningunni að.“ Faðir Oldmans, Leonard, fór frá fjölskyldunni þegar Gary var sjö ára gamall. Strákurinn fékk að vita það hjá kennurunum sínum að hann væri heimskur og hætti í skóla og Gamanleikrit í leikstjórn Siguröar Sigurjónssonar fim. 20/8 kl. 21 örfá sæti laus fös. 21/8 kl. 21 lau. 22/8 kl. 23 Miðaverð kr. 1100 fyrir karla kr. 1300 fyrir konur Vöröufélagar Ll fá 30% afslátt Sýnt í íslensku óperunni Miðasölusími 551 1475 Gary er ekki viss sjálfur hvemig það kom til að í hvert sinn sem leik- stjórar þurfa illingja í myndirnar sínar er það hann sem þeir hringja í. Mjúku rullurnar standa honum einfaldlega ekki til boða. „Ég hætti að taka sjálfan mig alvarlega og leikferilinn," segir hann í samtali við kvikmyndatímaritið Neon, „vegna þess að ég var farinn að líta á mig sem hverja aðra vöru. Ég var orðinn þreyttur á sjálfum mér; ég ÞJÓNN fim. 20/8 kl. 20 UPPSELT fös. 21/8 kl. 20 UPPSELT fös. 21/8 kl. 23.30 aukas./örfá sæti sun. 23/8 kl. 20 örfá sæti laus fim. 27/8 kl. 20 örfá sæti laus lau. 29/8 kl. 20 UPPSELT lau. 29/8 kl. 20 UPPSELT Mðssala opin kL 12-18 Qsottar patani* 1 sádar datfega Mðasdtemt 5 30 30 30 „MEANTIME" frá 1981. VÍRAÐUR í Sid og Nancy. Dauðleiður á óþokkunum SKAPILLUR Beethoven. HRYÐJUVERKA- MAÐURíFor- setaflugvélinni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.