Morgunblaðið - 18.08.1998, Side 36

Morgunblaðið - 18.08.1998, Side 36
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1998 37 AÐSENDAR GREINAR Gerir Útflutningsráð ÞESSI spurning hefur enn á ný verið viðruð. Gagnrýni þessi er raunar ekki ný af nálinni. Fjármögnun Utflutningsráðs hefur lengi sætt gagnrýni, þar eð öll fyrirtæki í landinu, hvort sem þau stunda útflutning eða ekki, þurfa að greiða svonefnt mark- aðsgjald, sem er 0,015% af virðisauka- skattskyldri veltu. Sjálfsagt má færa viss rök fyrir þessari gagnrýni, en ekki síð- ur má færa mjög skýr og haldgóð rök fyrir því, að sá stuðningur og þjónusta sem Ut- flutningsráð veitir útflutningsfyr- irtækjum, gagnist öllum fyi'ir- tækjum í landinu. Staðreyndin er nefnilega sú að auknar útflutn- ingstekjur gera kleift að flytja inn vörur. An útflutnings væri enginn innflutningur. En gagnrýni beindist ekki bara að fjármögnun Útflutningsráðs, heldur einnig að starfsemi ráðsins. Sú gagnrýni á hins vegar síður rétt á sér, sérstaklega ef menn þekkja til eða hafa kynnt sér starfsemi þess. í því sambandi tel ég rétt að segja nokkuð frá farsælu samstarfi Marels hf. og Útflutningsráðs. Eitt af hlutverkum Útflutnings- ráðs er að aðstoða lítil og meðal- stór fyrirtæki við að koma vörum sínum og þjónustu á markað erlendis. Til að sinna þessu hlut- verki býður ráðið fyr- irtækjum m.a. þátt- töku í alþjóðlegum sjávarútvegssýning- um, markaðsupplýs- ingaöflun, umboðs- mannaleit, þjónustu markaðsráðgjafa er- lendis, markaðsráð- gjöf, þátttöku í kaup- stefnum og viðskipta- sendinefndum, sem og opinberum heimsókn- um, t.d. forseta Is- lands og utanríkisráð- herra. I raun má segja að öll þessi þjónusta renni saman í það stóra hlutverk Út- flutningsráðs að koma íslenskri vöru og þjónustu á framfæri er- lendis. Til þess eru notaðar fjöl- margar leiðir - þátttaka í fjöl- breyttum verkefnum, alþjóðlegum tengslum og persónulegum sam- skiptum. Ailir sem stunda útflutning og alþjóðlega starfsemi vita að sú vinna kostar ekki aðeins verulega fjármuni og tíma, hún krefst einnig sérþekkingar á erlendum mörkuð- um ekki síður en á málefnum ís- lenskra fyrirtækja. Útflutningsráð íslands hefur á hverju ári um 200 milljónir til ráðstöfunar til að sinna þessu viðamikla hlutverld sínu. Raunar skilar markaðsgjaldið ráð- inu ekki nema 110 milljónum, aðrar * Islensk útflutningsfyr- irtæki, segir Geir A. Gunnlaugsson, þurfa engu að síður að vera sífellt í leit að nýjum markaði. tekjur eru tengdar verkefnum sem það tekur að sér fyrir íslensk fyrir- tæki. Marel telst í dag stórt fyrirtæki á íslenskan mælikvarða, með yfir 400 starfsmenn (eftir kaupin á Carnitech) og með um 4 milljarða veltu í fyrra. Við höfum selt vörur okkar til um 50 landa og tökum ár- lega þátt í 10-20 vörusýningum. Við erum með eigin söluskrifstofur og fyrirtæki í fimm löndum og um- boðsmenn í um 25 löndum. Þegar Marel var að stíga sín fyrstu spor á alþjóðlegum markaði, var mikil þörf fyrir stuðning og að- stoð í markaðssetningu erlendis. A þeim tíma stóð Útflutningsráð fyr- ir þátttöku íslenskra fyrirtækja í alþjóðlegum sjávarútvegssýning- um. Þar komst Marel að vissu leyti fyrst í snertingu við erlenda mark- aði. í framhaldi af þessu hefur Marel náð fótfestu á mörkuðum um allan heim. Samstarfið við Út- flutningsráð hefur að þessu leyti skipt verulegu máli. Starfsemi Útflutningsráðs var Marel hf. mikilvæg á fyrstu árum gagn? fyrirtækisins, bæði í tengslum við sýningar og með stofnun svonefnds útflutningshóps, en fyrirtækið var þátttakandi í tveim slíkum hópum. I dag býður Útflutningsráð fjöl- breytta þjónustu sem Marel nýtur á ýmsan hátt, þó svo fyrirtækið sé nú bæði miklu stærra og öflugra en áður og hafi burði til að fara sínar eigin leiðir. Allt frá upphafi hefur samstarf Útflutningsráðs og Marels hf. verið bæði farsælt og ánægjulegt. Nú snýst þetta samstarf sem fyrr um þátttöku í sýningum undir merkj- um Útflutningsráðs, en einnig hef- ur Marel tekið þátt í opinbei-um heimsóknum til Kína, Kóreu, Ar- gentínu og Chile, sem Útflutnings- ráð hefur skipulagt að verulegu leyti. Auk þessa er Marel eitt fyrir- tækjanna sem eiga samstarf við Markaðsráðgjafa Útflutningsráðs í Ekvador. Ef áfram á að auka hagvöxt á íslandi og þar með bæta lífskjör verður það ekki gert nema með auknum útflutningi á vöru og þjónustu. Stór og öflug fyrirtæki sem tekist hefur að byggja upp markað erlendis skipta þar vissu- lega verulegu máli. En það er ekki síður mikilvægt að taldst að efla fleiri fyrirtæki í útflutningsstarf- semi. Starfsemi Útflutningaráðs skiptir þessi fyrirtæki mestu máli. Sú aðstoð sem ráðið hefur og get- ur veitt þessum fyrirtækjum hefur skipt sköpum og það er þeirra vegna, sem við öll eigum að leggj- ast á eitt og styrkja og efla Út- flutningsráð. I velflestum nágrannalöndum okkar, bæði helstu samkeppnis- löndum okkar og einnig lönduní sem menn bera sig gjaman saman við þegar meta þarf árangur í efna- hagsmálum, eru starfandi stofnan- ir og opinber sjálfseignarfyrirtæki af svipuðum toga og Útflutnings- ráð Islands. Flest þessara landa leggja um þessar mundir aukna áherslu á starfsemi sinna útflutn- ingsráða og stjórnvöld beita þeim fyrir sig í útflutningshvetjandi starfsemi og aðgerðum. Til dæmis má nefna að í Danmörku er lögð enn meiri áhersla á starfsemi af þessu tagi og veitt til hennar aukið? fjármagn þegar vel gengur í út- flutningsgreinunum. Okkur íslendingum hættir hins vegar til þess að gleyma þeirri staðreynd, að þótt útflutningur frá Islandi gangi vel á einhverjum tíma, þarf að sinna viðskiptavinun- um hvar sem þeir eru í heiminum og sýna sig og sjá aðra á alþjóðleg- um sýningum, svo dæmi séu nefnd. Þannig er harðnandi samkeppni mætt, samkeppnisforskotið skerpt og erfiðari tímar undirbúnir, því þeir koma líka, alveg eins og góð- ærið. Útflutningsráð íslands býður ís- lenskum útflutningsfyrirtækjun^ þá víðtæku, alþjóðlegu og sér- hæfðu þjónustu sem þau þurfa til að auka útflutning, styrkja sig á al- þjóðlegum markaði og auka þannig gjaldeyristekjur okkar Islendinga. Og um það snýst nú málið, þegar öllu er á botninn hvolft. Höfundur er forstjóri Marels hf. Geir A. Gunnlaugsson INNLENT Dulrænir dagar á Selfossi SÁLARRANNSÓKNARFÉLAG Suðurlands heldur Dulræna daga 20.-30. ágúst nk. í Listasafni Árnes- inga, Tryggvagötu 23, Selfossi. Þar verða myndlistar- og bókasýningar ásamt erindum og námskeiðum. Tilgangur með sýningunni er að sem flestir fái tækifæri til að kynn- ast þessum málum á aðgengilegan og auðveldan hátt. Aðgangseyri er stillt í hóf en félagið verður með kaffi og tækifæriskort til sölu sem ætlað er að borga fræðslustarf í vet- ur. Einnig verður opið í húsi félags- ins, Tryggvagötu 24, frá kl. 17 og þar til erindi kvöldsins byrja. Myndlistai-sýningin er opin þriðjudaga til sunnudaga kl. 14-17. Listamennimir koma úr ýmsum áttum og þeir sem sýnt hafa áður eru: Anna Magnúsdóttir með álfa og engla úr grjóti, Bergljót Njóla Jakobsdóttir og Sigrún Olsen, Brynja Grétai’sdóttir með olíumál- verk, Dóra Kristín Halldórsdóttir sýnir pastelmyndir og Erla Stefáns- dóttir er með myndir af náttúruver- um. Listamenn sem eru að sýna í fyrsta sinn eru Herder Andersson sem sýnir 7 vatnslitamyndir og Þór- unn Emilsdóttir miðill kemur á pappír þeim myndum sem hún skynjar og hafa ákveðna merkingu. Meðal mynda hennar er mynd frá Atlantis hinu forna. Tvö námskeið verða. Þórhallur Guðmundsson miðill kennir fólki að nota liti og tónlist til sjálfshjálpar og til að bæta samskipti við fólkið okk- ar. Guðvarður Birgisson er með grunnnámskeið í tarotlestri. Rútuferð verður með Erlu Stef- ánsdóttir sjáanda. Heimsóttir verða huldu- og álfafólksbyggðir. Eva Einarsdóttir ljósmóðir veltir fyrir sér hvenær sálir komi í líkamann og Kristinn Á. Friðfinnsson talar um sjálfrækt og trú til forna. Smd&W (huÍA&h' Haustafsláttur á pallhýsum! Eigum fyrirliggjandi 4 pallhús, sem seljast með 50 þúsund króna afslætti. 'u ' ’ Palíbílaeígendur Pallhús sf., Ármúla 34, sfmar 553 7730 og 561 0450. www.mbl.is S- 3 Tnémudir én endurgjalds C Ofurtilbod í opnunarul Allir sem gerast áskrifendur hjá Símanum Internet fyrir 22. ágúst fa þriggja mánaöa áskrift án endurqjalds. Pjónustuuer allt sem þú uilt uita um Internetid I nýja þjónusfuvcrinu facröu alla tækniþjónustu, upplýsingar, ráógjöf, mótöld, síma, ISDN kort, GSM farsíma, ISDN síma, hugbúnaö, tímarit um Internctiö og allt sem þarf á nctinu! lijóddii löluunm junni im*d. Þú kcmur cinfaldlcga mcö tölvuna til okkar í nýja Þjónustuveriö og færð hana daginn cftir með öllum intcrnctforritum uppscttum. 800 7575 Stjiádu |utj í símu 9 19 dci<j«t D(j \/ 18 l«iti(j<Ht|i)(jft. HuitJl, IbMJSfcplt ut’tí) OCJ «»|(l t Cl <1 Llll SIMINN ínternet

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.