Morgunblaðið - 18.08.1998, Side 42
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1998 43
I
Magnús biðjum guð að blessa ykk-
ur öll.
Þuríður Ólafsdóttir.
J
i
+
Núna er Nína vinkona mín horfin
úr augsýn, nú er ekld lengur hægt
taka upp símann og hlýða á ráðin
hennar og heyra jákvæðar fréttir,
en endurminningar skildi hún eftir
margar skemmtilegar og lærdóms-
ríkar.
Eg kynntist henni þegar ég var
níu ára. Við urðum strax vinkonur.
Þá var ég send í sveit upp í Vatns-
fjörð þar sem sr. Þorsteinn faðir
hennar bjó með fjölskyldu sinni.
Það mun hafa verið fyrir tilverknað
afa míns, sr. Friðriks Hallgrímsson-
ar dómkirkjuprests, sem ég komst í
svo góðan stað til sumardvalar. Og
mér finnst eins og ég hafí búið að
því alla tíð síðan. í endurminning-
unni var alltaf sólskin í Vatnsfirði.
Það kemur ekki hvað síst til af því
að lífsviðhorf fólksins sem byggði
staðinn var svo jákvætt, á heimili
sr. Þorsteins og Laufeyjar í Vatns-
firði var enginn skuggi, þar giltu hin
jákvæðu lífsviðhorf ein.
Nína vinkona mín hlaut þessa já-
kvæðu lífssýn í heimanmund. Hún
gat aldrei heyrt neinum hallmælt og
sá alltaf ljósu hliðarnar á hverju
máli. Það má líka segja að hún hafi
aldrei yfirgefið fóðurhús, því hún
bjó næstum alla tíð undir sama þaki
og foreldrar hennar.
Á unglingsárunum fluttist ég til
útlanda til náms og síðar eignaðist
ég ytra börn og buru, þannig að um
hríð fjarlægðumst við vinkonui'nar.
En þegar ég kom heim aftur með
börnin min fjögur höguðu örlögin
því svo að við eignuðumst heimili í
námunda við þessa bemskuvinkonu
mína við Bugðulæk. Og einmitt þar
bjuggu þau Nína vinkona og Guð-
mundur bóndi hennar og dæturnar
fjórar. I sama húsi bjuggu foreldrar
hennar sem hún rækti svo fallega
meðan hún gat. Við Bugðulækinn
bjó stórfjölskyldan - og meira að
segja hafa sumar dætur þeirra búið
sér heimili í nágrenninu á seinni ár-
um. Þannig hefur stórfjölskylda sr.
Þorsteins í Vatnsfirði haldið áfram
að dafna og sýna einstæða sam-
heldni nú í Reykjavík.
Nína vinkona var gædd sérstök-
um hæfileikum, svo sem elskusemi
og varkámi í mannlegum samskipt-
um. Hún var einnig með eindæmum
heiðarleg, samviskusöm og ná-
kvæm. Það segir sína sögu um Nínu
að ég held að hana hafi aldrei vant-
að í vinnu einn einasta dag í tæpa
tvo áratugi sem hún gegndi síma-
vörslu hjá Eimskipum.
Hún hætti að vinna þegar hún var
67 ára gömul. Hún hafði átt við
slæmsku í mjöðmum að stríða og fór
í aðgerð af þeim sökum. Er
skemmst frá því að segja að hún
varð aldrei góð - og fékk um svipað
leyti vitneskju um mein það sem dró
hana til dauða á örfáum mánuðum.
Við ræktuðum vináttu okkar með
margvíslegum hætti; í 37 ár spiluð-
um við hálfsmánaðarlega brids með
þeim hléum sem urðu meðan ég bjó
erlendis. Saman fórum við í ferð til
London og oftsinnis í hverri viku
spjölluðum við vinkonurnar saman í
síma eða heimsóttum hvor aðra.
Það var ekki háttur Nínu að tala
um erfiðleika eða það sem skyggði á
í lífinu. Hún lifði því af dugnaði og
lífsgleði þar sem fjölskylduböndin
voru mikilvægust. Guðmundi Finn-
björnssyni manni sínum hafði hún
búið með í nærri hálfa öld í ham-
ingjuríku hjónabandi. Hún átti góð-
an bónda, fjórar yndislegar dætur
og glæsilegan hóp barnabarna sem
öll áttu sterk ítök í Nínu. Þau sakna
hennar öll sem og faðir hennar sem
orðinn er eitt hundrað ára. Um leið
og ég votta þeim öllum mína ein-
lægustu samúð vona ég að hin já-
kvæða lífssýn hennar og sterku fjöl-
skyldubönd verði þeim til styrktar í
sorginni. Nína vinkona mín stendur
hjarta mínu nær, hún yfirgaf þenn-
an heim með sömu tillitsseminni og
hún hafði lifað í honum. Mér þótti
vænt um að vera á staðnum og geta
haldið í höndina á vinkonu minni
rétt áður en hún leið hljóðlega út af,
- kærleiksljósinu geymd.
Þóra Hallgrímsson.
FRIÐFINNUR
GÍSLASON
Friðfinnur
Gíslason fæddist
26. maí árið 1923 á
Efri-Vindheimum á
Þelamörk í Hörgár-
dal. Hann lést á
Fjórðungssjúkra-
húsi Akureyrar 10.
ágúst síðastliðinn.
Foreldrar Friðfinns
voru Rannveig
Pálsdóttir og Gísli
Friðfinnsson. Þau
áttu fjögur börn og
eru tvö á lífi, Stein-
unn og Þórdís.
Friðfinnur kvæntist
6.1. 1945 Ingunni Helgu Hall-
grímsdóttur, f. 14.2. 1924. Þau
bjuggu lengst af í Sæborg í
Glerárhverfi.
Börn Friðfínns og Ingunnar
eru: 1) Gísli, f. 7.11. 1943, 2)
Sóley, f. 8.11. 1944,
3) Skúli, f. 18.8.
1946, 4) Þórdís, f.
10.5. 1948, 5)
Brynja, f. 8.5. 1949,
6) Jóna, f. 22.11.
1951, 7) Edda, f.
10.6. 1962, 8)
Hrönn, f. 23.9.
1964. Barnabörn
Friðfinns og Ing-
unnar eru 28 talsins
og barnabarnabörn
29.
Friðfinnur fór ung-
ur til sjós, aðeins 14
ára, en lengst af
starfaði hann hjá verksmiðjum
Sambandsins á Gleráreyrum,
eða í 45 ár.
Útför Friðfinns fer fram frá
Akureyrarkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
Elsku pabbi, við þökkum þér
fyrir allar góðu stundimar sem við
áttum með þér. Alltaf var stutt í
grín og hlátur, alveg fram á síðasta
dag.
„Þó ég sé látinn, harmið mig
ekki með tárum. Hugsið ekki um
dauðann með harmi og ótta. Eg er
svo nærri að hvert eitt ykkar tár
snertir mig og kvelur, þó látinn
mig haldið. En þegar þið hlæið og
syngið með glöðum hug lyftist sál
mín upp í mót, til ljóssins. Verið
glöð og þakklát fyrir allt sem lífið
gefur. Og ég, þó látinn sé, tek þátt í
gleði ykkar yfir lífínu.“ (Kahlil Gi-
bran.)
Við söknum þín sárt, minningin
um þig mun lifa í hjörtum okkar.
Guð styrki þig, elsku mamma, í
þinni sorg.
Far þú í ffiði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt
(V. Briem.)
Ástarkveðjur,
Börnin.
„Þegar þú ert sorgmæddur,
skoðaðu þá aftur huga þinn, og þú
munt sjá, að þú grætur vegna þess,
sem var gleði þín.“
Elsku afi minn. Þegar ég sit hér
og hugsa til þín finnst mér eins og
ég eigi eftir að hitta þig rétt bráð-
um. Eins og þú hafir bara skroppið
í smástund og komir rétt bráðum
aftur. En ég sé þig ekki aftur fyrr
en ég kem yfir til þín. Eg veit að þú
munt taka vel á móti mér eins og
þú varst alltaf vanur að gera. Þú
sýndir manni alltaf fullkomlega
hversu velkominn maður var til þín
afi minn.
Elsku afi, þú varst svo yndisleg-
ur og hjartahlýr. Það fór ekki
framhjá neinum hversu vænt þér
þótti um þitt fólk og þú hafðir svo
gaman af því að stjana við okkur
barnabörnin. Þú varst alltaf svo
góður við okkur og gerðir allt fyrir
okkur. Þú fylgdist alltaf svo vel
með því hvernig mér gengi í nám-
inu og samgladdist mér alltaf svo
innilega þegar' mér gekk vel. Þú
hafðir líka alltaf svo gaman af því
að hlusta á mig spila á píanóið. Ég
á eftir að sakna þess mikið. Ef ég
hafði áhyggjur voru þær ekki leng-
ur til staðar eftir stutt spjall við
þig-
Það er svo margt sem ég vil
segja þér afi minn, að það gæti fyllt
mörg blöð. En ég verð víst að bíða
með það þar til við hittumst aftur
seinna.
Það var svo sárt að sjá þig í síð-
asta skiptið, en þú varst svo falleg-
ur. Nú veit ég að þér líður vel hjá
honum Gísla, fóður þínum, og
Rannveigu, móður þinni. Kannski
ertu jafnvel búinn að hitta litla
hundinn minn hann Ebba. Þú
hafðir nú alltaf svo gaman af hon-
um og honum þótti svo vænt um
þig. Þau voru alltaf mikil fagnaðar-
lætin í honum þegar þú komst í
heimsókn.
Elsku amma mín. Missir þinn er
mikill enda voruð þið afi svo sam-
rýnd. Það fór ekki framhjá neinum
hversu heitt þið elskuðuð hvort
annað. Þú veist að ég er alltaf til
staðar fyrir þig amma mín.
Elsku afi, ég vil senda þér nokk-
ur falleg kveðjuorð sem ég fann í
bókinni Alveg einstakur afi, en það
er einmitt það sem þú varst:
Þegar ég óttast vil ég helst vera
hjá þér. Þú hefur sagt mér að víst
hafir þú oft orðið hræddur. En allt
fór þó vel að lokum.
Þú hefur verið fastur punktur í
allri tilveru minni. Ég man bros-
andi augu þín, hönd þína sem leið-
beindi mér, arm sem forðaði mér
frá vá og ruggaði mér í svefn. Ég
sat á háhesti, þrýsti hönd þína, átti
með þér ævintýr. Hlustaði á sög-
urnar þínar. Hló að skrýtlunum.
Undraðist töframátt þinn. Þú ert
hluti af lífi mínu. Hluti af mér. Um
eilífð.
Ég elska þig svo mikið og ég á
eftir að sakna þín sárt. Ég á heilan
hafsjó af minningum um þig sem
allar eru svo yndislegar. Þær eiga
sér stóran stað í hjarta mínu. Ég
mun varðveita þær þar og þær
gleymast aldrei.
Þín afastelpa,
Eva.
Legste
I rúmgóðum sýningarsölum okkar eigum
við ávallt fyrirliggjandi margar gerðir
legsteina og minnisvarða úr íslenskum
ogerlendum steintegundum.
Verið velkomin til okkar eða
hafið samband og fáið myndalista.
II S.HELGASON HF
ISTEINSMIDJA
SKEMMUVEGI 48, 200 KÓP.,SÍMI:557-6677/FAX:557-8410
+
Ástkær sonur okkar, bróðir, mágur, föður-
bróðir og ömmubarn,
HJALTI ÓLI EIRÍKSSON,
Faxatúni 40,
lést af slysförum föstudaginn 14. ágúst sl.
Útförin auglýst síðar.
Jóhanna S. Sigmundsdóttir, Eiríkur Hjaltason,
Helgi Eiríksson, Eivar Þór og Agnar Freyr Helgasynir,
Heiðar Sigmar Eiríksson, Anja Zillke,
Ólína Jóhanna,
Álfheiður Björnsdóttir,
Ólína Rebekka Eiríksdóttir.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ÞURÍÐUR HALLDÓRSDÓTTIR
frá Eyrarbakka,
lést á Garðvangi laugardaginn 15. ágúst.
Útförin verður auglýst síðar.
Alda Jensdóttir,
Haildór Á. Jensson, María Valdimarsdóttir,
Kristinn Þ. Jensson,
Sævar Þorkell Jensson, Julie Price,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
BRAGIHALLDÓRSSON,
Vallargötu 18,
Keflavík,
andaðist föstudaginn 14. ágúst.
Fjóla Bragadóttir,
Baldur Bragason, Valgerður Óladóttir,
Pétur Georgesson, Valgerður Fjóla Baldursdóttir,
Bragi Baldursson
og barnabarnaböm.
v/ PossvogsUipkjwgapð
Sími: 554 0500
3 Erfídrykkjur 3
H
H
H
H
H
H
P E R L A N
H
H
H
H
H
H
H
u Sími 562 0200
rnxTiiiiiTin
/
Þegar andlát
ber að höndum
Útfararstofa kirkjugarðanna ehf.
Sími 551 1266
Allan sólarhringinn
Krossar á (eiði
Ryðjrítt stóí - varaníegt efni
Krossamir emframkidcíir
úr hvíthúSuðu, ryðfríu stáíi.
M imisvarði sem endist
um ókomna tíð.
Sóihross m/geisíum. £
Hæð 100 sm.frájörðu.
Tvöfaíáur ítross.
Hceð 110 smfrájörðu.
Hringiö í síma 431-1075 og fáiö litabækling.
BLIKKVERKt
Dalbraut 2, 300 Akranesi.
Slmi 431 -1075, fax 431 -3076