Morgunblaðið - 18.08.1998, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 18.08.1998, Blaðsíða 20
MORGUNB LAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1998 21 Furusveppir, lerkisveppir og kúalubbi Tínið og frystið fyrir veturinn NÚNA er rétti tíminn að fara og tína furu- og lerkisveppi og frysta fyrir veturinn. Halldór Sverrisson sem er sérfræðingur í plöntusjúk- dómum hjá Rannsóknarstofnun Landbúnaðarins segir að yfirleitt sé kúalubbi, sem er birkisveppur, fyrr á ferðinni en þó sé hægt að finna hann líka um þessar mundir. „Sveppir koma í ljós eftir rigningu svo núna eftir nokkuð vætusama tíð undanfarna daga ætti að vera auð- velt að fara í sveppatínslu hér í Reykjavík og næsta nágrenni." Halldór segir að ekki séu eitraðir sveppir í hópi þessara stóru sveppa sem um er að ræða en hann segir að sumir þeirra séu beiskir og bragðvondir. Sumir sveppir óætir Hann segir að hægt sé að fara eft- ir einfaldri reglu þegar tína á sveppi. „Fólk getur skoðað undir hattinn á sveppum. Ef hann lítur þar út eins og blöð sem liggja í allar áttir út frá miðstilki er sveppurinn líklega óæt- ur. Sveppur sem er á hinn bóginn svampkenndur undir hattinum og með smá götum er að öllum líkindum ætur. Slíkir sveppir tilheyra hópi svokallaðra pípusveppa og í þann hóp falla furusveppir, lerkisvepph’ og einnig kúalubbi." Best að tína unga sveppi Halldór bendir á að best sé að taka unga sveppi því hann segir al- Morgunblaðið/Árni Sæberg HALLDÓR Sverrisson segir að liturinn á kúalubba sé svipaður og á furusveppi og hann vex í námunda við birkitré. Hattur- inn á kúalubba er heldur þurr- ari en á furusveppi en að öðru leyti svipaður. gengt að flugur verpi í þá og því sé ráðlegt að forðast gamla sveppi. Ennfremur mælir hann með því að sveppir séu tíndir þar sem tré eru frekar lágvaxin því meira er af sveppum nálægt þeim en við hávax- in tré. - En eru ekki einhverjir sveppir Spurt og svarað um neytendamál Morgunblaðið/Golli EKKI má setja aðrar umbúðir en fernur í pokana sem eiga að fara í endurvinnslu Ekki umbúðir af kexi og morgunkorni í endurvinnslu Má setja umbúðir af kexi og undan morgunkorni með fernum i endur- vinnslu? „Nei, það má ekki setja umbúðir utan af morgunkorni, kexi eða þess háttar með fernum í pappírs- gámana,“ segir Ragna Halldórs- dóttir, umhverfisfræðingur hjá Sorpu. ,Ástæðan er sú að fyrirtækið II Returpaper sem tekur við pappír til endurvinnslu í Svíþjóð tekur það mikið gjald fyrir þess háttar um- búðir að það svarar ekki kostnaði fyrir Sorpu að senda slíkar umbúðir til endurvinnslu", segir Ragna. Þegar hún er spurð hvort algengt sé að fólk safni slíkum umbúðum með fernunum segir hún að svo sé. „Það hefur borið nokkuð á því en ég vil bara ítreka að femur eiga að vera alveg sér í lokuðum pokum og dagblöð, tímarit og annar pappírs- póstur síðan sér.“ Nýtt Vinnufatnaður DANBERG ehf, hefur tekið að sér sölu og dreifingu á vinnufatnaði frá Chef Revival Usa Inc. Þessi fatnaður er ætlaður starfsfólki veitingahúsa, mötuneyta og þeim sem vinna við matvælaiðnað. www.mbl l.is NEYTENDUR LERKISVEPPUR SVONA lítur lerkisveppur út undir hattinum. FURUSVEPPUR FURUSVEPPUR undir hattinum. eitraðir? „Ef fólk einbeitir sér að þessum þremur tegundum þá þarf það ekk- ert að óttast. Þessu er öðruvísi hátt- að erlendis þar sem fleiri eitraðar tegundir eru fyrh’ hendi." - En hvar er þessar sveppateg- undir helst að finna í nágrenni höf- uðborgarinnar? „Það er á skógræktarsvæðum eins og í Öskjuhlíðinni, við Rauða- vatn, í Elliðaárdal, Heiðmörk og Hamrahlíð við Úlfarsfell." - Hvernig er best að matreiða sveppina? í sveppum er smávegis af trefjum eða 1,7 grömm í 100 grömmum, Töluvert er af B2- vítamíni eða um 43% af ráðlögðum dagskammti í 100 grömmum. Þá er í þeim að finna Bl-vítamín, fólasín og kalíum. „Það eru eflaust til margar góðar aðferðir við matreiðslu. Ágæt að- ferð er að safna töluverðu magni, hreinsa sveppina mjög vel og steikja þá í smjöri. Að því búnu má frysta þá í litlum pokum og eiga í hæfilega skammta yfir veturinn til að nota í matargerð eins og í sósur og súpur.“ Bragðmeiri en ræktaðir sveppir - Er svipað bragð af þessum þremur tegundum? ? „Já, það er svipað bragð og nokkru sterkara af þessum villtu sveppum en af þeim sem eru rækt- aðir.“ ORÐABÆKURNAR Dönsk íslensk íslensk dönsk orðabók OtMk-IUw-hk UlontbU - thHwV Frönsk íslensk íslensk frönsl orðnbók DktiwioW Ódýrar og góðar orðabækur fyrir skólann, ó skrifstofuna og í ferðalagið ^ o. ORÐABÓKAÚTGÁFAN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.