Morgunblaðið - 18.08.1998, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 18.08.1998, Qupperneq 23
24 ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1998 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Stjórn Kíríjenkós lækkar gengi rúblu Segist standa við skuldbind- ingar sínar Moskvu. Reuters. RÍKISSTJÓRN Rússlands ákvað í gær að víkka vikmörk við gengis- skráningu rúblunnar og frysta af- borganir á erlendum lánum um 90 daga skeið. Sergei Kíríjenkó, for- sætisráðherra, segir ekki um geng- isfellingu að ræða: „Aðgerðirnar eru nokkuð róttækar en bæði tíma- bærar og nauðsynlegar til þess að tryggja stöðugleika í rússnesku efnahagslífí," sagði forsætisráð- herrann á blaðamannafundi. „Við munum standa við skuldbindingar okkar,“ sagði Kíríjenkó enn fremur, aðspurður um greiðslufrystingu er- lendra lána. Forsætisráðherrann fór eins og köttur í kringum heitan graut er um gengisfellingu að ræða og sagði að- gerðimar endurspegla nýja nálgun á gengisstefnu stjórnarinnar. Staðið í biðröð eftir dollurum Ákveðið hefur verið að gengi rúblunnar gagnvart Bandaríkjadoll- ar megi fljóta á á bilinu 6 - 9,5rúbl- ur fyrir einn dollar það sem eftir er ársins. Ríkisstjómin hafði áður skuldbundið sig til þess að gengi rúblunnar gagnvart dollaranum færi ekki yfir 7,13 rúblur til ársins 2001. Gengi dollarans hefur verið um sex rúblur að undanförnu en í gær kostaði hann 7,5-8 rúblur á mörkuð- um í Moskvu. Borgarbúar stóðu í biðröðum að reyna að verða sér úti um Bandaríkjadali í gærdag en framboð svaraði ekki eftirspurn og margir fóm tómhentir heim. Al- gengt er að almenningur í Rúss- landi eigi allt sitt sparifé í dolluram. f yfírlýsingu frá Alþjóðagjaldeyr- issjóðnum segir að áhrif þessara að- gerða verði skoðuð nákvæmlega og lýst þeirri von að ríkisstjómin standi við neyðaráætlun sína í efna- hagsmálum. Aðeins þannig geti sjóðurinn reitt fram næstu greiðslu umsaminna lána í september nk. Dúman kemur saman til aukafundar Rússneska þingið verður kallað saman til aukafundar á föstudag til þess að ræða efnahagsaðgerðir rík- isstjórnarinnar. Leiðtogi kommúnista, Gennady Zjúganov, segir stöðuna í rússnesku efnahagslífi verða á dagskránni en ólíklegt að frumvörp ríkisstjómar- innar, sem fyrir liggja, um aðgerðir í efnahagsmálum verði tekin á dag- skrá aukafundarins. Fossett bjargað Sydney. Reuters. ÁSTRÖLSK skúta kom banda- ríska loftbelgsfaranum Steve Fossett til bjargar í gær þar sem hann var á reki á Suður-Kyrra- hafi eftir að belgur hans hrapaði í þrumuveðri í fyrrinótt, að því er ástralskar björgunarsveitir greindu frá. Skútan Atlanta fann Fossett skömmu fyrir 11.30 í gær en belgur hans hrapaði í Kóralhaf, norðaustur af Ástralíu, upp úr miðnætti í fyrrinótt. Þar með lauk Qórðu tilraun Fossetts til að verða fyrstur manna til að fljúga umhverfis hnöttinn í loftbelg. Talsmaður ástralskra björgun- aryfírvalda sagði að Fossett yrði að líkindum fluttur yfír í skip ný- sjálenska flotans. Haft var eftir Fossett í gær að belgurinn hefði hrapað um 9.000 metra eftir að hafa orðið fyrir eldingu. Fossett sakaði ekki. Fossett hafði reyndar tekist að setja met með því að fljúga 16.876 km, sem er það lengsta sem loftbelg hefur verið flogið. Alls náði hann að fljúga 24.476 km leið áður en hann hrapaði. „Fyrst þegar belgurinn gaf sig í 29 þúsund feta hæð var ég aðal- lega vonsvikinn yfír því að kom- ast ekki umhverfis hnöttinn,“ sagði Fossett. „En svo þegar ég hélt áfram að hrapa fór ég að hugsa meir um að halda Iífi.“ Snemma í gærmorgunn náðust neyðarsendingar frá björgunar- báti Fossetts og flugvél frá Nýju Kaledóníu varpaði niður til hans stærri báti og talstöð. Fór ÁSTRALÍA ' AFRÍKA Indlandshaf Suður Atlantshaf SJÁLAND/ Suðurskautsland KYRRAHAF LOFTBELGUR FOSSETTS HRAPAR Fossett yfir í stærri bátinn. Björgunarmenn sögðu að veður væri gott á þessum slóðum. Um það bil fimm klukkustund- um áður en samband við loftbelg Fossetts rofnaði hafði hann verið varaður við því að hann væri að nálgast mikinn illviðrisbakka. Ævintýramanninum Steve Fossett var bjarg- að í gær eftir að loft- belgur hans hrapaði í Kóralhafið. Þótt Fossett mistækist ætlunarverkið tókst honum engu að síður að setja lengdar- met í loftbelgsflugi. gCairns Kóralhafseyjar 200 km KÓRALHAI ASTRALIA Brisbane ® Bellona-rif Fossett komst um borð í björgunarbát Nýja- w Kaledónfa SUÐUR AMERlKA © LEIÐARBÓK: Q) 8. ágúst kl. 1.00 Flugtak í Mendoza í Argentínu © 8. ágúst kl. 22.30 Hraði: 71 km/klst Leið: 2.018 km ©9- ágúst kl. 22.00 Hraði: 69 km/klst Leið: 3.596 km @10. ágúst kl. 23.31 Hraði: 118 km/klst Leið: 6.213 km © 11. ágúst kl. 22.00 Hraði: 190 km/klst Leið: 9.979 km © 12. ágúst kl. 10.49 Hraði: 90 km/klst Leið: 12.256 km © 13. ágúst kl. 22.00 Hraði: 57 km/klst Leið: 15.307 km © 14. ágúst kl. 11.30 Hraði: 90—120 km/klst Leið: 16.103 km © 15. ágúst kl. 18.49 Hraði: 179 km/klst Nýtt met: 16.876 km © 16. ágúst kl. 13.25 Hraði 134 km/klst Leið: 24.466 km ® 17. ágúst kl. 0.30 Belgurinn hrapar í Kóralhafið Leið: 24.476 km Reuters 20 faras.t í námuslysi í Ukraínu TUTTUGU fórust og Qögurra er saknað eftír gassprengingu í kola- námu í tíkraínu. Metangasspreng- ing varð í námunni, sem er nærri borginni Luhansk í austurhluta landsins, á sunnudagsmorgun þeg- ar 28 námuverkamenn voru að störfum. Björgunarmenn leita enn þeirra sem saknað er. Á myndinni má sjá tvo björgunarmenn koma upp úr námunni að lokinni leit í gær en skyldmenni þeirra sem saknað er standa álengdar og bíða frétta. Rúmlega 200 verkamenn hafa farist í námaslysum í tíkra- ínu á þessu ári. British Airways boðar „gult spjald“ BRITISH Airways hefur tilkynnt að 1 næsta mánuði verði farið að veita farþegum, sem hegða sér illa um borð í vélum félagsins, skrifleg- ar aðvaranir, eða „gult spjald", að því er BBC greindi frá. Verða farþegarnir varaðir við því að þeir kunni að verða handteknir og gerðir ábyrgir fyrir aukakostn- aði þurfí að bregða út af flugáætlun vegna hegðunar þeirra. Flugfélagið segir ástæðuna fyrir þessu vera þá, að tilfelli svonefnds „flugtryllings" hafi fjórfaldast á undanfömum þrem áram. í síðasta mánuði varð að lenda flugvél félagsins, sem var á leið frá Rio de Janeiro til London, á Tenerife vegna þess að ölvaður far- þegi reyndi að brjótast inn í stjóm- klefann. í maí var breskur kaup- sýslumaður, sem hótaði að drepa flugmann þotu BA og meiða annan farþega, sektaður um jafnvirði tæp- lega hálfrar milljónar íslenskra króna. Vélin var á leið frá London til Flórída, en vegna atviksins var henni lent í Boston. Reykingar era bannaðar á öllum leiðum BA, og á síðasta ári tengdust um það bil 70% af 260 alvarlegum atvikum um borð reykingum. Maður á leið til Afganistans handtekinn vegna tilræðanna í Afríku Bandarískt starfs- lið flutt frá Pakistan Islamabad, Nairobi, Washington. Reuters. BANDARÍKJAMENN lokuðu í gær fjóram miðstöðvum sínum í Pakistan fyrir almenningi „þar til annað verður tilkynnt", og bjuggu sig undir að flytja á brott allt starfs- fólk sem ekki þarf bráðnauðsynlega á að halda. Utanríkisráðuneytið til- kynnti um þetta og sagði „alvarleg- ar hótanir“ gegn bandarískum ríkis- borguram og bandarískum stofnun- um vera ástæðuna. Tilynningin kom í kjölfar þess að kenýskir og bandarískir rannsókn- armenn staðfestu í gær að þeir væra að yfirheyra granaðan mann, sem framseldur var frá Pakistan, í tengslum við sprengjuárásir á tvö bandarísk sendiráð í Kenýa og Tansaníu 7. ágúst sl. Maðurinn hefði neitað allri aðild að tilræðunum. í yfirlýsingu frá bandaríska sendiráðinu í Nairobi, höfuðborg Kenýa, sagði að pakistönsk yfirvöld hefðu snúið manninum aftur til Kenýa síðla kvölds 14. ágúst. Hann héti Mohammed Saddiq Odeh, einnig þekktur undir nöfnunum Abdull Bast Awadh og Mohammad Sadiq Howaida. í yfirlýsingunni sagði ennfremur: „Saddiq Odeh hefur ekki játað á sig neina ábyrgð á sprengingunum í Nairobi og Dar Es Salaam, né hefur hann bendlað annað fólk við þessa viðburði." Að minnsta kosti 257 manns létu lífið og rúmlega 5.000 slösuðust í tilræðunum. Pakistanska blaðið The News greindi frá því í gær að Saddiq Odeh hefði verið á leið frá Pakistan til Afganistans þegar hann hefði verið handtekinn. Yfirvöld í Pakistan sögðust í gær sýna því fullan skilning að Banda- ríkjamenn skuli kalla heim flesta opinbera starfsmenn sína í landinu á meðan núverandi ástand ríki. „Ríkisstjóm Pakistans er enn sem fyrr algerlega andvíg hvers konar hryðjuverkastarfsemi," sagði í til- kynningunni. Á sunnudag vöraðu bandarísk stjómvöld bandaríska ríkisborgara við því að fara til Pakistans. Margir hafa orðið til þess að kenna múslímskum öfgamönnum um sprengjutilræðin, þótt engar beinar vísbendingar hafi komið fram um slíkt, að því er breska rík- isútvarpið BBC greindi frá. Einn þeirra sem hafa verið nefndir í þessu sambandi er saudi- arabíski auðkýfingurinn Osama bin Laden, en hann er búsettur í Afganistan og hefur opinberlega heitið því að halda áfram heilögu stríði gegn Bandaríkjunum. Hafa sérfræðingar sagt að hann sé hluti af nýrri, alþjóðafylkingu innan Islam sem sameini saudíska, eg- ypska og aðra hópa. Albright til Afríku Madeleine Albright, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, hélt í gær af stað til Kenýa og Tansaníu þar sem hún mun heimsækja banda- rísku sendiráðin og „flytja skilaboð frá þjóðinni". Kvaðst hún myndu bera Kenýa- og Tansaníubúum „vináttukveðjur" og er talið að hún muni tilkynna nánar um fyrírhug- aða aðstoð Bandaríkjanna til ríkj- anna tveggja vegna sprengjutilræð- anna. Þá mun hún heimsækja fólk sem slasaðist í tilræðunum og er enn á sjúkrahúsi. Utlendingar flvja frá Kinshasa Kinshasa. Rcuters. HUNDRUÐ útlendinga yfirgáfu Kinshasa í Lýðveldinu Kongó um helgina vegna átakanna í landinu. Laurent Kabila, forseti, sneri aftur til höfuðborgarinnar á sunnudag. Við komuna þangað ítrekaði forset- inn áskorun sína til landsmanna um að berjast gegn uppreisnarmönnum þar til yfir lyki. Állt var með kyrr- um kjöram í Kinshasa í gær en sókn uppreisnarhermanna heldur áfram. Þeir hafa náð bænum Songololo á sitt vald og nálgast Mbanza Ng- ungu, sem er 150 km fjarlægð frá Kinshasa. í gær reyndu starfsmenn er- lendra sendiráða að semja við yfir- völd um leyfi til brottfarar fyrir út- lendinga, bæði með flugi frá flug- vellinum í Kinshasa og með ferju yf- ir Kongó-fljót til Brazzaville, höfuð- borgar grannrikisins Kongó. Á leið sinni til Kinshasa ferðaðist Kabila til Luanda í Angólu og átti fund með forseta landsins, Eduardo dos Santos, og Sam Nujoma, for- seta Namibíu, til þess að ræða ástandið í Kongó. Utanríkisráðherr- um Zimbabwe, Zambíu, Tansaníu og Namibíu hefur verið falið að finna friðsamlega lausn deilunnar en uppreisnin í Lýðveldinu Kongó braust út 2. ágúst sl.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.