Morgunblaðið - 18.08.1998, Síða 26
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1998 27
LISTIR
Krúsin hans Sókratesar
ERLEJVDAR
BÆKUR
Sponnusaga
VONARGLÆTA, THE LAST
BEST HOPE
eftir Ed McBain Hodder and
Stoughton 1998. 296 síður.
BANDARÍSKI spennusöguhöf-
undurinn Ed McBain á sér fjöld-
ann allan af dyggum lesendum,
sem fylgt hafa honum í gegnum
þykkt og þunnt í marga áratugi.
Tveir þeirra voru sænsku saka-
málahöfundarnir Sjöwall og Wa-
hlöö en eins og greinarhöfundi var
bent á nýlega þýddu þau bækur
McBain á sænsku áður en þau
tóku sjálf uppá því að skrifa saka-
málasögurnar um Martin Beck og
kompaní. Þess vegna er kannski
ekki svo galið þótt lesendur þess-
ara höfunda sjái einhverja sameig-
inlega þætti í skrifum þeirra.
Þekktastar eru bækur McBain um
rannsóknarlögreglumennina á 87.
stöð í New York, m.a. Steve
Carella, og einnig sería hans um
lögfræðinginn Matthew Hope. í
nýjustu sögunni, The Last Best
Hope eða Vonarglætan, vinna
þessir tveir saman að lausn dular-
fulls mannshvarfs þótt þeir hittist
aldrei en talist aðeins við í gegn-
um langlínusamtöl, annar í steikj-
andi sólinni í Flórída en hinn í
fímbulvetri í New York.
Enn um Fuglana
McBain er sem kunnugt er
skáldanafn Evan Hunters, sem
einnig skrifar sakamálasögur und-
ir sínu rétta nafni og reyndi fyrir
sér í gerð kvikmyndahandrita í
gamla daga og vann m.a. með Al-
fred Hitchcock við Fuglana. Þess
vegna eru tíðar tilvísanir í bíó-
myndir í sögu hans, nokkrar í
sjálfa Fuglana. Á einum stað efast
ein af persónunum um að
Hitchcock hafi skrifað handrit
myndarinnar þegar einhver
ámálgar það við hana, á öðrum
stað kemur fram að handritshöf-
undurinn, „einhver bögubósi frá
New York“, hefði notað götuheiti í
Los Angeles í nafn á einni persónu
myndarinnar. Fremur eru þetta
spaugileg innskot sem McBain
hefur með gömlum og tryggum
lesendum sínum til skemmtunar
og falla auðvitað að frásögninni
eins og flís við rass og ýtir undir
það kómíska samband sem
McBride vill hafa við lesendur
sína.
I þessari nýju sögu gerist það
að ung kona leitar á náðir lögfræð-
ingsins Matthew Hope í Flórída
því maðurinn hennar er horfínn og
sást síðast í New York. Hún vill
fínna hann svo hún geti skilið við
hann. Hope hringir norður í kuld-
ann. Það er vetur í New York svo
dregið hefur úr hinni eilífu glæpa-
öldu og Carella á 87. stöð hefur
svosem ekkert betra að gera en
aðstoða þennan mann sem hringt
hefur úr sólskininu fyrir sunnan.
Hann fer á stúfana en áður en
hann getur sagt svo mikið sem
Hitchcock er maðurinn fundinn,
steindauður suður í Flórída. Ekki
líður á löngu þar til annað lík
fínnst tengt manninum og það
sem furðulegast er að leirkrúsin,
sem vel má vera að Sókrates hafí
sopið eitur sitt úr, tengist málinu
með mjög beinum og afdrifaríkum
hætti.
Svíkur engan
Sem fyrr er frásögnin bæði hröð
og spennandi og persónumar ljós-
lifandi, dregnar fáum en skýrum
dráttum. Sagan er ríkulega skreytt
lýsingum á kynferðislegu sam-
bandi þrjótanna í sögunni og sam-
tölin eru það sem stundum er kall-
að beinskeytt og oft skopleg. Þykja
fáir standa McBain á borði í sam-
talasmíð. Þá er hin gamalkunna og
raunsanna lýsing á starfi rann-
sóknarlögreglunnar til staðar, þar
sem þrammað er frá einu vitninu
til annars og spurt í þaula þangað
til brotin taka að raðast saman.
Lítilfjörlegt smáatriði hér, frekar
ómerkilegur vitnisburður þar,
glugga í gamlar skýrslur, aftur að
tala við vitni og smám saman kem-
ur eins konar sannleikur í ljós.
Þeir fjölmörgu sem þekkja Ed
McBain vita að hverju þeir ganga
og þeir vita að hann svíkur ekki
frekar en fyrri daginn.
Arnaldur Indriðason
EDDA Björgvinsdóttir og Ellert A. Ingimundarson eru hér
í hlutverkum í Sex í sveit.
Sex í sveit áfram í
Líttu vio og
LEGGÐU ÞIG!
Hágæða heilsurúm
á hagstæðu verði
Hægt er að taka verin utan af rúmunum,
bæði yfir- og aðaldýnum, og þvo í
þvottavél við 60°c.
B orgarleikhúsinu
ÁFRAMHALDANDI sýningar á
gamanleiknum Sex í sveit hefj-
ast í Borgarleikhúsinu laugar-
daginn 12. september.
Sex í sveit er gamanleikur eft-
ir Marc Camolettis í leikgerð
Robins Howdons og leikstjórn
Maríu Sigurðardóttur.
Leikendur eru Björn Ingi
Hilmarsson, Edda Björgvins-
dóttir, Ellert A. Ingimundar-
son, Gísli Rúnar Jónsson, Rósa
Guðný Þórsdóttir og Halldóra
Geirharðsdóttir. Leikritið er í
þýðingu Gísla Rúnars Jónsson-
ar. Hljóð annast Baldur Már
Arngrímsson, lýsingu Elfar
Bjarnason, búninga hannaði
Stefanía Adolfsdóttir og leik-
mynd er eftir Steinþór Sigurðs-
son.
Sýningar á verkinu síðastliðið
ár urðu 33 og áhorfendur 17.000.
Miðasalan er þegar hafín.
Lífstíðarábyrgð gegn fjaðrabroti.
epol
Skeifunni 6
sími 568 7733
Með lO raða lottóseðli og Jóker
getur þú unnið glæsilegan
TOYOTA Avensis.
í þágu öryrkja,
ungmonna og fþrótta