Morgunblaðið - 18.08.1998, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 18.08.1998, Blaðsíða 27
28 ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1998 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ MIRROR of Water eftir Mariko Mori. Ljósmynd milli gleija í 5 hlutum, frá 1998. 3x6 metrar. Harður heimur og óvæginn * I London eru nú sem oftar margar forvitnilegar myndlistarsýningar. Halldór Björn Runólfsson segir hér frá tveimur þeirra; sýningu í Hayward Gallery á myndböndum, neónverkum og teikningum Bruce Nauman og sýningu í Serpentine Gallery á ljósmyndum og myndböndum Mariko Mori. ÞAÐ virðist vera sama hversu oft Bruce Nauman verður á vegi manns, verk hans eru alltaf jafnfersk. Þar kemur til einstæð tilfinning hans fyrir efniviði í tengslum við umhverfi. Eins og svo margir lista- menn sem búa yfir líkamlegri til- finningu fyrir skipan hlutanna virkj- ar Nauman skynjun sína langt um- fram sjónina. Þannig eru snertiflet- irnir alltaf nýir þótt verkin séu sjálf- um sér lík eða þau hin sömu og sýnd hafa verið. Sturtuklefar Ifö sturtuklefamir eru fáanlegir í mörgum stærðum og gerðum, úr plasti eða öryggisgleri. Ifö sturtuklefamir em trúlega þeir vönduðustu á markaðnum í dag. Ifö sænsk gæðavara. Heildsöludreifing: --A-. Smiðjuvegi 11. Kópavogi Sími 564 1088.fax 564 1089 Fæst i bvogingavöruverslunum um land allt. Nauman fæddist í Indiana-fylki í miðvestur-Bandaríkjunum árið 1941. Ásamt listum - þar með talið óformlegt nám í klassískri tónlist, píanóleik og analýtískri heimspeki Wittgensteins - lagði hann stund á eðlis- og stærðfræði við Wisconsin- háskóla, Madison, en hélt síðan til Kaliforníu, árið 1964, þar sem hann helgaði sijg alfarið listnámi og list- sköpun. Arið 1989 fluttist Nauman til smábæjarins Galisto, skammt frá Santa Fe í Nýju-Mexíkó þar sem hann stundar hrossatamningar í hjáverkum ásamt annarri eiginkonu sinni, listmálaranum Susan Rothen- berg. Bruce Nauman stóð ungur frammi fyrir þeirri spumingu hvert halda skyldi eftir að naumhyggjan - minimal-listin - hafði gengið af ailri hefðbundinni formhugsun dauðri. Það voru miklu fremur leikverk Samuels Beckett og dansverk ball- ettmeistaranna Meridith Monk og Merce Cunningham sem vísuðu hon- um veginn út úr óvissunni en sú myndlist sem kollegar hans voru að fást við. Með því að gera vinnustof- una að tilraunastöð fyrir eigin lík- amstjáningu kviknaði sú fjölþætta og sundurleita list sem Nauman ástundar. Alls kyns gönguæfingar, andlits- grettur og línudans fengu á sig form gegnum gips- og vaxafsteypur, teikningar, ritaðan og lesinn texta, myndbönd, mislitar neónpípur og höggmyndir úr trefjaplasti, stálbit- um, steypu og gúmkvoðu. Þannig á Nauman það til að útfæra sömu hug- myndina á mismunandi hátt. Sama þulan er vélrituð, steypt í mót, mót- uð í blikkandi og mislit neónskylti, ellegar lesin upp af mismunandi leik- urum á myndskjá. Vegna ólíkra húsakynna og mismunandi afstöðu er virkni verkanna gjörólík frá einni RAW Materíal with Continuous Shift - MMMM, 1991. Myndband með höfði listamannsins. PtSS AG v Ol.íí S1.86ÞAHO 016 Ctíá’ KISS ANL) Gl£ -AOf: ANODr Htffe'ákirén émmmœ mmm»m ratow ANODie m Atlþ.UVk wmrnrn- PiSS ÁNÖ U¥€ UVfi HIS'iAW. Uw !-(ttm Afí lauör anu uve T&J&t aíi@uví FEEL ANO UV6 mmtmwi tllOW ANO uv? YOUNG ANP 016 OiÐ ÁMib 0 • t xjN ANO 0:t íMif l/.'> PlAVANOQÍfc SUdWjj&®K iDMF ANO O’c niLtmm ssfeiLAííwete Ha ANií ftNL ■SA$t&Í40& FAH.IP&OI6 CNWUi ANOO'i ÁiNK 4NO tyv ÍÁ". lOUANOUV snysttpw W&Wp w 1*041) i jV Tf;l I m\) I IV Sftrnmw mAtmm 'ummnw' ONE Hundred Live and Die, 1984. Neónpípur á málm- plötum, 300x336x53 cm. sýningu til annarrar. Skipan þeirra má líkja við mismunandi uppfærslur í leikhúsi. Þannig eru hálfopin húsakynni Hayward Gallery líkt og sniðin fyrir myndvarp hinna fjörutíu verka og gott betur, sem komin eru til Lund- úna frá Pompidou-miðstöðinni í París. Keðjusöngur gjörningaleikar- ans Rinde Eckert í verkinu Ant- hro/Socio, frá 1991, þar sem hann tónar í síbylju „Feed Me, Help Me, Eat Me, Hurt Me“ á þremur veggj- um endurspeglar með fáguðum hætti Raw Materíal, myndband frá sama ári af höfði Naumans sjálfs, sem hringsnýst bæði rétt og á haus. Á Documenta 9 í Kassel, 1992, spann höfuð Rinde Eckerts einmitt með þeim hætti. Þótt hugmyndin sé end- urtekin er hún aldrei nákvæmlega eins. Þess vegna er hver ný sýning á verkum Bruce Nauman einstæður viðburður líkt og tónleikar, þó svo efnisskráin sé öllum kunn. Sýningin er opin til 6. september. Opið daglega frá kl. 10-18. Sýning- arskrá: £19,95. Nirvanabarokk HVORT heldur menn kunna að meta verk Mariko Mori eður ei hljóta þeir að fyllast ákveðnu stolti frammi fyrir ljósmyndum hennar og myndböndum vegna hins greinilega skyldleika þeirra við verk Bjarkar Guðmundsdóttur. Eins og nafnið bendir til er Mori japönsk að upp- runa - fædd 1967 - og komin á topp- inn um tvítugt eins og flestar stjöm- ur margmiðlunaraldarinnar. Við nálgumst óðfluga Edensrann Andy Warhol....þegar allir verða heims- frægir í kortér.“ Allt frá því Charles Baudelaire tók að dásama gerviparadís stórborgar- samfélagsins upp úr miðri síðustu öld hafa áhrif hins upprunalega og einstæða farið halloka fyrir tilbúnum fjölfóldunarbrellum vitundariðnaðar- ins. Ástæðan er augljós. Um leið og framleiðsluöflin gátu ungað út ódýr- um eftirlíkingum af upprunalegum varningi var veldi hins ekta og nátt- úrulega í uppnámi. Augljósasti vitn- isburðurinn er verðmunurinn á bleiktum strásykri og brúnum hrá- sykri; bleiktu hveiti og heilu; hvítum grjónum og óunnum hýðishrísgrjón- um. Vegna þess hve margfalt fleiri jarðarbúar aðhyllast ofunnið fæði leggur offita fleiri þeirra að velli en hörgulsjúkdómar. Hið ekta og nátt- úrulega er varla á færi annarra en örlftillar yfirstéttar. Matarmenningin endurspeglar annað menningarlegt verðmætamat. Það er ekki nóg með að fæðan sé bleikt heldur kýs stór hluti mann- kyns bleikt umhverfi. Enginn litur undirstrikar viðlíka fráhvarf manns- ins frá náttúrulegu umhverfi sínu. Bleikrn- er klæða- og leikfangalitur meybarna og ítrekar líkt og fólblár drengjapastellinn þroskaleysi brjóst- mylkingsins. Sem hluti af táknmáli fulltíða kvenna gengur bleikur litur þar af leiðandi í berhögg við náttúru- legan kynþokka. Annað tveggja und- irstrikar hann söknuð eftir óaftur- kræfu sakleysi ellegar mótþróa gegn ellinni, óumflýjanlegum rökum hinn- ar gegnheilu tilveru. Það er þessi gervilega afstaða Mariko Mori sem minnir svo sterklega á gelgjustíl Bjarkar. Tilbúningur hennar er engu að síður hrífandi; uppfullur af stórfeng- legum sýndarbrellum; guðdómleg- um, austurlenskum gleðileik og lit- rænu augnayndi sem ekki gefur eftir neinni vestrænni málaralist. Nir- vanabarokk væri réttnefni á þrívídd- arkenndri furðuveröld Mori sem dansar fyrir augum manns. Risaljós- myndir hennar - allt að sex metra langar - eru sannkölluð nútímaleg meistaraverk. Mirror of Water er til dæmis margfölduð sjálfsmynd tekin í frönskum kalksteinshelli. Þar svíf- ur hálfgagnsætt lótusblóm eins og marglyttugeimfar yfir vötnum. Sem opinberun innri þrár sver þessi heill- andi draumheimur sig í ætt við Tím- ann og vatnið eftir Stein Steinarr, um leið og hann brýtur listinni braut út yfir Stóra gleríð hans Duchamps. Ef til vill greinum við í verkum Mariko Mori brot af þeirri upplifun sem liggur handan sjónrænna landamæra okkar aldar. Þetta er sumarsýnin; opin daglega frá kl. 10-18. Aðgangur ókeypis. Sýningarskrá: £12.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.