Morgunblaðið - 18.08.1998, Síða 28

Morgunblaðið - 18.08.1998, Síða 28
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1998 29 Hitt húsið Tónleikar Strok- kvartetts- ins Anima STROKKVARTETTINN Anima heldur tónleika í ÍR- húsinu við Landakot á morgun, miðvikudag, kl. 20.30. Leikin verða verk eftir Jón Leifs, Borodin og Stravinsky. Strokkvartettinn Anima er kvartett ungra tónlistarmanna sem starfræktur hefur verið í sumar á vegum Iþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur, Hins hússins. Meðlimir kvartettsins eru Álfheiður Hrönn Hafsteinsdótt- ir, fíðla; Hildur Ársælsdóttir, fíðla; Sólrún Sumarliðadóttir, selló, og Valgerður Ólafsdóttú', víóla. Þær hafa nýlokið námi við Tónlistarskólann í Reykja- vík eða stunda þar nám á loka- stigi. Leiðbeinandi kvai-tettsins er Guðmundur Kristmundsson. Tónleikarnir eru lokapunkt- ur sumarvinnu kvartettsins hjá Hinu húsinu og er aðgangur ókeypis. Hveragerðiskirkja Tónlist eftir dönsk tónskáld ELISABETH Zeuthen Schneider fiðluleikari og Hall- dór Haraldsson píanóleikari halda tónleika í Hveragerðis- kirkju á morgun, miðvikudag, kl. 20.30. Á efnisskrá tónleikanna er tónlist eftir dönsk tónskáld. Fyrst er Sónata í g-moll op. 8 eftir J.P.E. Hartmann, eitt helsta tónskáld rómantíska tím- ans í Danmörku, þá Andante og allegro eftir son hans, Emil, og að lokum Sónata í A-dúr op. 9 eftir Carl Nielsen. Þau Elisabeth og Halldór hafa haldið allmarga tónleika saman undanfarin ár og einu sinni áður í Hveragerðiskirkju. Kammermúsíkverð- launin 1998 Vetur í norðri BIRGITTA Holst Olsson, danskt tónskáld, hlaut Kammermúsíkverðlaunin 1998 fyiúr tónverkið Vetur í norðri. Verðlaunin eru veitt norrænum kventónskáldum og er verð- launaupphæðin 50.000 sænskai- krónur. Fjögur tónverk sem komust í úrslit voru flutt á kammermúsíkhátíðinni I Örebro í Svíþjóð 8. ágúst sl. Ekkert tónverk barst frá Is- landi. íkki kam h * *• kdíýOýlH LISTIR Kraftmikill leik- ur og skringileg raddskipan TONLIST Hallgrímskirkja ORGELTÓNLEIKAR Odile Pierre frá Normandí flutti verk eftir þýsk, spönsk og frönsk tónskáld. Sunnudagurinn 16. ágúst, 1998. LÍKLEGA hefðu fáir trúað því að orgeltónleikar yrðu svo vel sóttir sem átt hefur sér stað um tónleika þá sem ganga undir nafninu Sumar- kvöld við orgelið og haldnir hafa verið hvert sunnudagskvöld yfir sumartímann í Hallgrímskirkju. Líklega hefur hið mikla orgel kirkj- unnar úrslitaáhrif og ætti það að verða mönnum umhugsunarefni varðandi tónlistarhús, sem trúlega, ef vel tekst til um gerð þess, gæti orðið mikil lyftistöng fyrir tónleik- hald í Reykjavík, Það er nefnilega margt, sem dregur fólk saman til mannfagnaðar. Að þessu sinni voru sumarkvölds- tónleikarnir í Hallgrímskirkju framfærðir af frönskum orgelleik- ara, Odile Pierre að nafni. Hún hóf tónleikana með g-moll fantasíunni og fúgunni BWV 542, eftir Johann Sebastian Bach. Þetta volduga verk er samið um og eftir 1712 og er eitt af fáum orgelverkum sem meistar- inn samdi er hann starfaði í Cöthen. Sagnfræðingar hafa talið hugsan- legt að Johann Sebastian hafi þekkt til verka eftir Purcell og að þaðan sé nafngiftin „fantasía og fúga“ en Bach talar um að ein tokkatan eftir hann sé í „fantasíu og fúgu „ stíl. Um þetta atriði er ekkert vitað og um hreina ágiskun að ræða. Fantasíur voru afar frjálsar í formi og efnislega farið úr einu í annað. G- moll fantasían er í raun tvískipt, þar sem á víxl er leikið með sams konar tónferli og í tokkötu en á milli er tónferlið kontrapunktískt og á köfl- um sérlega ki-ómatískt. Fúgustefið er meðal frægustu stefja meistar- ans en gerð slíkra stefja er sérstakt rannsóknarefni. Fúgan er magnað- ur tónbálkur og var leikur Odile Pi- erre á köflum nokkuð órólegur en kraftmikill. Odile Pierre er krafmikill orgel- leikari, sem kom sérlega vel fram í tveimur verkum eftir Louis Vierne, Hjmne au soleil og Faux follet, sér- kennilegu verki, eins konar eld- glæringar á orgei, sem er sniðug- lega samið og erfitt í leik, og Prelúdíu og fúgu í H-dúr eftir Marcel Dupré. Prelúdían er ekta franskur orgelniður en fúgan er í raun hálfklén fúga, sem að Iokum rennur saman við hljómnið prelúdí- unnar, Annað viðfangsefni tónleikanna er eftir Francesco Con'ea de Arauxo (1583-1654), spánskan org- elleikara við San Salvador í Sevilla, sem menn eru ekki sammála um hvenær var uppi og nefna sumir 1575 sem fæðingarár hans. Merkasta framlag hans er eins kon- ar kennslubók í orgelleik, „Libro de tientos, sem samanstendur af 62 „tientos", sem er raðað í erfiðleika- röð, þremur tilbrigðaverkum og fjórum smærri verkum, er öll þykja hin merkilegustu. Tónmál hans er oftast tvískipt, því eftir að hafa gert stutta kynningu á einhverju stefi vendir hann sér í tokkötuleik en auk þess er hann sérstæður fyrir mikla og oft djarfa notkun biðtóna og þverstæða tónskipan (t.d. c á móti cís). Pien'e lék Tinento á tíunda tóni í nokkuð yfirdrifinni raddskipan og líklega allt of hratt, eins og nútíma flytjendum hættir oft til, þegar flutt er mjög gömul tónlist, en þó á sann- færandi og kraftmikinn máta. Sú venja að leika smáþætti úr stærri tónverkum frönsku meistar- anna, eins og að þessu sinni, Bened- ictus úr Couvents orgelmessunni, eftir Fr. Couperin og hugleiðingu úr fyrstu orgelsinfóníu Vidors, þjónar því einu að nota þessa smá- þætti sem þægileg millispil. Verkin sjálf eru engin millispilsmúsik og mætti hugleiða það atriði, að leika t.d. einhverjar af orgelsinfóníunum í heild og láta þær mynda eins konar þema fyrir næstu sumartónleika. Eins og fyrr segir er Odile Pierre hörkugóður kraftmikill og athyglis- verður orgelleikari en tónsmíð eftir hana, Tilbrigði yfir þrjú jólalög frá Normandí, er hinn undarlegasti samsetningur 14 tilbrigða, sem á köflum eru hefðbundin í tónskipan en svo oftlega á móti klædd í alls konar skringilega raddskipan og flutningamáta, frekar tilgerðarleg- an og ekki líklegan til að vekja meiri áhuga en sem nemur stuttlegri undrun á tiltældnu hveju sinni. Jón Ásgeirsson. Fákafeni 9 sími 5682866

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.