Morgunblaðið - 18.08.1998, Page 30
MORGUNBLAÐIÐ
MENNTUN
ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1998 31
Málalok vegna starfs prófess-
ors í taugasjúkdómafræði
Morgunblaðið/Ai-naldur
„EF þessi vinnubrögð eru algeng í Háskóla íslands er
hann í vanda staddur,“ segir Martin Grabowski.
STJÓRNSÝSLUKÆRA dr. Mart-
ins Grabowski, læknis við háskóla-
sjúkrahúsið í Lundi, var ekki tekin
til greina af menntamálaráðherra.
Henni var hafnað á forsendum há-
skólaráðs Háskóla íslands. Málið
er því úr sögunni því Grabowski
reiknar ekki með að leita til dóm-
stóla.
Grabowski kærði eftir ákvörðun
deildarfundar læknadeildar við Há-
skóla Islands um að mæla með Elí-
asi Ólafssyni í starf prófessors í
taugasjúkdómafræði og yfirlæknis
taugalækningadeildar Landspítal-
ans. Meginorsök kærunnar var að
dómnefnd um hæfni umsækjenda
lýsti Grabowski óhæfan til að
gegna stöðunni og kom hann því
ekki til greina þegar deildarfundur
valdi mann í starfið. Kvörtunin
beindist á engan hátt gegn Elíasi,
heldur dómnefnd og meðferð máls-
ins.
Þrír af fimm umsækjendum
gerðu alvarlegar athugasemdir við
störf dómnefndarinnar og sendu
rektor Háskólans eins og þeir hafa
rétt til að gera. Athugasemdir
Martins voru ekki teknar til greina.
Hann sendi menntamálaráðherra
umkvörtun vegna málsins. Ráð-
herra sendi hana áfram til háskóla-
ráðs sem hafnaði henni. Martin
sendi þá stjómsýslukæru m.a. á
þeim forsendum að hann hefði
mestu rannsóknarreynsluna af um-
sækjendum, að rannsóknirnar
hefðu hátt vísindalegt gildi og að
jafnræðisregla með umsækjendum
hefði verið brotin.
Ráðherra framseldi kæruna til
háskólaráðs, sem taldi að gögn
málsins nægðu ekki til að láta aug-
lýsa stöðuna á ný. Ekki var fallist á
að dómnefnd hefði brotið ákvæði
reglna um veitingu starfa háskóla-
kennara.
Menntamálaráðherra er sam-
kvæmt 11. gr. laga nr. 131/1990
bundinn af tillögu deildarfundar.
Hann getur ekki gert athugasemdir
við málsmeðferð, aðeins fallist á
hana eða hafnað og er þá staðan
auglýst að nýju.
I bréfi til Martins segist mennta-
málaráðherra ekki hafa forsendur
til að breyta ákvörðun háskólaráðs.
Andlega erfítt tímabil
„Ég leitaði ráða hjá lögfræðingi í
framhaldi af þessu um hvort ég
gæti sótt þetta mál fyrir dómstól-
um. Hann taldi þetta vera erfitt mál
og óljóst um málalok," segir Martin
Grabowski sem var nýlega hér á
landi í sumarfríi. Hann býst ekki við
að kæra aftur.
„Það var áfall að vera talinn
óhæfur af dómnefndinni til að
gegna starfinu. Og það var ósann-
gjarnt því ég vissi að ég var ekki
óhæfari en aðrir umsækjendur,“
segir hann, „þetta var andlega erfitt
tímabil".
Hann segist hlynntur því að Há-
skóli Islands geti ráðið þá starfs-
krafta sem hann vill. „Hins vegar
svíður mér aðferðin sem beitt er til
að útiloka menn frá vali. I þessu til-
viki gat deildarfundur læknadeildar
ekki fengið að velja mig eða hafna
því dómnefndin útilokaði mig með
óhæfnisdómi," segir hann
„Ef þessi vinnubrögð era algeng í
Háskóla Islands er hann í vanda
staddur og þetta er merki um ófag-
leg vinnubrögð. Ég er hræddur um
að hann fái slæmt orð á sig því
svona lagað fréttist til annarra
landa,“ segir hann. Martin segir að
mál sitt hafi vakið athygli meðal
sænskra lækna.
Hann segir að enginn hafi þorað
að hnekkja dómnefndarálitinu
þrátt fyrir augljósa ósanngirni
þess í garð hans og fleiri umsækj-
enda. „Ekki rektor, ekki háskóla-
ráð og ekki menntamálaráðherra,"
segir hann.
„Það gladdi mig aftur á móti að
ég fann fyrir góðum stuðningi frá
ýmsum íslenskum læknum sem
sendu mér til dæmis góð orð í jóla-
kortum og ég hef líka fundið það í
heimsókn minni hingað núna. Marg-
ir hafa harmað slæm vinnubrögð í
þessu máli.“
Vinnubrögð vegna stöðuveitinga
Miklar umræður hafa orðið um
þetta mál meðal lækna.
Á deildarfundi læknadeildar var
t.a.m. borin fram tillaga um nýtt
mat á umsækjendum um starf pró-
fessors í taugasjúkdómafræði en í
ljós kom að deildarfundur hafði ekki
vald til að krefjast þess. Hann varð
að ganga til atkvæða á grundvelli
niðurstöðu matsnefndar og vegna
þess að rektor Háskóla íslands
gerði ekki athugasemd við það.
Vinnubrögð undanfarin ár vegna
stöðuveitinga í læknadeild hafa
þreytt menn, en nefna má að skipa
þurfti nýja dómnefnd vegna veiting-
ar prófessors í geðlæknisfræði eftir
að niðurstaða hinnar fyrri var gerð
ógild með stjórnsýslukæru.
Meðal þess sem angraði menn
vegna máls Martins Grabowskis er
að gögn voru lögð fram á deildar-
fundi læknadeildar sem sýndu að
jafnræðisreglan var brotin á um-
sækjendum. Einnig að tveir með
doktorspróf voru taldir óhæfir og að
tveir án doktorsprófs hæfir og þar
af annar sem hæfastur í starfið.
Rektor og menntamálaráðherra
voru send gögn sem sýndu að Mart-
in Grabowski bar af öðrum umsækj-
endum þegar vísindaverk voru tal-
in. Tilvitnanir í greinar Grabowskis
samkvæmt Science Citation Index
voru yfir hundrað talsins í árslok
1996. Sigurlaug Sveinbjörnsdóttir
kom næst með 52 tilvitnanir og
Finnbogi Jakobsson svo með 45.
Níu sinnum var vitnað í verk Páls
Ingvarssonar og einu sinni í verk
Elíasar Ólafssonar.
Fjölbrautaskólinn
í Breiðholti
Námsleiðir í kvöldaskóla FB
á haustönn 1998
BÓKNÁM Félagsfræðibraut
Náttúrfræðibraut
Nýmálabraut
IÐNNÁM Grunndeild í tréiðnum
Grunndeild í rafiðnum
Húsasmíðabraut
Rafvirkjabraut
HEILBRIGÐISNÁM Sjúkraliðabraut
LISTNÁM Handíðabraut
Myndlistarbraut
VIÐSKIPTANÁM Ritarabraut
Skrifstofubraut
Tölvubraut
Hagfræðibraut
Markaðsbraut
Hægt er að taka einstaka áfanga, brautir, stúdentspróf eða
starfsréttindi, eftir áhuga hvers og eins.
Innritað verður 18. og 20 ágúst kl. 16:30-19:30 og
laugardaginn 22. ágústkl. 10:30-13:30.
Kennsla hefst mánudaginn 24. ágúst.
Allar upplýsingar um kvöldskóla FB eru á heimsíðu skólans
www.fh.is
flðeins 300 sæti
á sértilboði
Bókaðu til
London
með Heimsferðum
og tryggðu liér
kr.
afslátt fyrir manninn
Gildir i ferðir frá mánud.-fimmtud.
ef bókað fyrir 20. ágúst.
Heimsferðir kynna nú fjórða árið í röð, bein leiguflug
sín til London, þessarar vinsælu höfuðborgar Evrópu,
og aldrei fyrr höfum við boðið jafn hagstætt verð og
jafn gott úrval hótela. Ef þú bókar fyrir 20. ágúst
getur þú tryggt þér ótrúleg kjör og komist til
heimsborgarinnar á lægra verði en nokkru sinni fyrr.
Glæsiteg ný hótel í boði
Flugsæti til London
Verð kr.
16.890
Flugsæti fyrir fullorðinn með sköttum.
Ferð frá mánudegi til fimmtudags,
ef bókað fyrir 20. ágúst.
Flug og hótel í 3 nætur
Flug og hótel í 4 nætur,
helgarferð
Verð kr. 32«790
Ferð frá fimmtudegi til mánudags,
Butlins-hótelið.
Verð kr.
22.690
Ferð frá mánudegi til fimmtudags, ef
bókað fyrir 20.ágúst, Butlins-hótelið.
Flug alla mánud. og
fimmtud. í okt. og nóv.
Fyrsta brottför 1. okt.
íslenskir fararstjórar
Heimsferða tryggja þér
örugga þjónstu í
heimsborginni
Austurstræti 17, 2. hæð ♦ sími 562 4600
www.heimsferdir.is