Morgunblaðið - 18.08.1998, Page 43

Morgunblaðið - 18.08.1998, Page 43
44 ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar og amma, HUGLJÚF DAGBJARTSDÓTTIR, Bláhömrum 4, Reykjavík, lést á Landspítalanum mánudaginn 17. ágúst. Guðmundur Þengilsson, börn og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn, HÖRÐUR VALDIMARSSON, áður búsettur á Skólavegi 16 í Keflavík, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði aðfaranótt sunnu- dagsins 16. ágúst. Fyrir hönd aðstandenda, Sigurrós Sigurðardóttir. t a Ástkær eiginmaður minn, sonur, faðir okkar, tengdasonur, tengdafaðir og afi, JENS ÓLAFSSON verslunarstjóri, Hlíðartúni 1, Hornafirði, andaðist á heimili sínu að morgni laugardag- sins 15. ágúst. Minningarathöfn fer fram frá Hafnarkirkju þriðjudaginn 18. ágúst kl. 13.30. Jarðarförin verður auglýst síðar. Helga Steinunn Ólafsdóttir Sigrún Jensdóttir, Sveinbjörg Baldvinsdóttir, Ólafur Jensson, Guðný Björg Jensdóttir, Sigrún Jensdóttir, Halldór Jensson, Eygló Jensdóttir, Ólafur Guðmundsson, Hanna M. Sigurðardóttir, Gunnar Þór Þórarnarson, Torfi Geir Torfason, Margrét Ármann, Björn Austfjörð og barnabörn. + Ástkær eiginmaður, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HRÓAR B. LAUFDAL, lést á heimili sínu, Munkaþverárstræti 6, Akureyri, aðfaranótt sunnudagsins 16. ágúst. Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstu- daginn 21. ágúst kl. 13.30. Jóhanna Jóhannsdóttir, Birna Laufdal, Þórir Steindórsson, Hreinn Laufdal, Hrönn Laufdal, Carl David Hamiiton, barnabörn og barnabarnabarn. + SIGURBJÖRG SIGURJÓNSDÓTTIR, Litlulaugum, Reykjadal, er látin. Jarðarförin fer fram frá Einarsstaðarkirkju laugardaginn 22. ágúst kl. 14.00. Systir og systkinabörn. + Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, PÁLLTRAUSTASON, Grund, andaðist laugardaginn 8. ágúst. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Elínborg Oddsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. SIGURJON ÚLFARSSON + Siguijón tílfars- son fæddist í Reykjavík 6. sept- ember 1920. Hann lést á Landspítalan- um 7. ágúst síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Margrét R. Halldórsdóttir, f. á Ketilsstöðum í Hjaltastaðarþingá í N-Múlasýslu 21. október 1896, og tílfar J. Ingimund- arson, f. í Þverholti í Álftaneshreppi á Mýrum 3. ágúst 1888. Fósturfaðir Sigurjóns var Skæringur Markússon, f. á Hjörleifshöfða í Vík í Mýrdal, f. 28. júh' 1889. Siguijón átti þijú systkini sem nú eru látin. Þau voru Ólöf, f. 1917, Guðrún, f. 1918, og Baldur, f. 1923. Auk þess á Siguijón hálfbróður, tílf- ar, sem búsettur er erlendis. Hinn 9. nóvember 1940 kvæntist Sigurjón Elísu Ólöfu Guðmundsdóttur, f. 24, febrúar 1921, d. 19. júní 1983. Þau eignuðust sjö börn. Þau eru: 1) Margrét, f. 9. mars 1939. 2) Guðmund- ur, f. 15. júní 1942, d. 26. september 1987. 3) Sigurður, f. 15. júní 1942. 4) Hanna, f. 25. febrú- ar 1945. 5) Sigríður, f. 13. október 1947. 6) Skæringur, f. 11. apríl 1951. 7) Ólöf, f. 4. júní 1956. Siguijón hóf störf hjá BP, síðar Olís, 15 ára gamall og starfaði þar samfleytt til ársins 1990 er hann lét af störfum vegna veikinda. Síðustu árin bjó Siguijón með sambýliskonu sinni, Maríu Ólínu Kristinsdóttur, að Ár- skógum 6 í Reykjavík. Siguijón verður jarðsunginn frá Langholtskirkju í dag, og hefst athöfnin klukkan 13.30. Jarðsett verður í Gufunes- kirkjugarði. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi. Hin ljúfú og góðu kynni af alhug þakka hér. Pinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibj. Sig.) Þín Ólína. Þegar Sigurjón tengdafaðir minn fæddist voru aðeins tvö ár liðin frá stofnun sjálfstæðs ríkis á íslandi. Foreldrar Sigurjóns hafa alið böm sín upp í þeim anda að vera ávallt sjálfstæð eins og íslenska ríkið og hefur það greinilega komið fram í lífsmunstri Sigurjóns allan hans aldur. Sigurjón og systkmi hans ólust upp við kröpp kjör á erfíðum tíma millistríðsáranna. Atvinnuleysi var í Reykjavík og fór faðir hans ekki varhluta af því og margir dag- ar liðu að kvöldi án þess að vinnu væri að fá þótt beðið væri í biðsal atvinnuleysisins. Úlfar, faðir Sigur- jóns, var harðduglegur maður sem vildi fjölskyldu sinni allt hið besta og uggði því ekki að sér er hann SuðurlandsbrauttO 108 Reykjavík • Símí 5531099 Opið öli kvöld líI kl. 22 - ciunig um helgai Skreytitigar fyrir öll tilefni, Gjafavörur. varð fyrir slysi við grjótmulning með sleggju og meitil í Öskjuhlíð. Sárið var ekki mikið en blóðeitrun komst í það og eftir langa sjúk- dómslegu, síðast á Vífilsstöðum lést Úlfar 1928 frá fjórum ungum börn- um. Margrét kona hans stóð nú ein sem fyrirvinnan í miðri heimskreppunni og þeim erfíðleik- um sem hér í Reykjavík voru í at- vinnumálum verkafólks. Margi’ét gat þó með fádæma dugnaði haldið fjölskyldunni saman. Hún giftist síðan góðum manni, Skæringi Markússyni, 1930 og reyndist hann Margréti og börnum hennar afar vel. Þá eignuðust þau einn son sam- an, Úlfar Skæringsson. Reistu þau Skæringur og Margrét sér hús við Þjórsárgötu 5 í Skerjafirði og allt virtist ganga í haginn. En skjótt skipast veður í lofti og 9. maí 1942 hrapar flugvél frá norska flughern- um á hús þeirra og brann það til kaldra kola. Fjölskyldan missti þarna allt sitt og einnig fjölskylda Ólafar, elstu dóttur Margrétar sem hafði stofnað heimili sitt þar. Eins og áður er sagt var Sigurjón afar sjálfstæður maður, svo sjálf- stæður að er velja skyldi lífsföru- naut skyldi það gerast snemma og þegar hann, 15 ára gamall, hafði augastað á fallegri, kornungri stúlku, Elísu Guðmundsdóttur, mætti hann án nokkurrar fylgdar fullorðinna í kirkju þar sem stúlkan hans var að fermast til að fylgjast með og sjá hana. Og unga ferming- arstúlkan féll fyrir þessum hátt- prúða og myndarlega pilti og þau skildu aldrei síðan og eignuðust þau sjö börn. Þar sem Sigurjón mundi atvinnuleysi fóður síns sagði hann ekki upp né var sagt upp þeirri at- vinnu sem hann hóf hjá Ölíuverslun Islands, þá 15 ára gamall. Hann var farsæll starfsmaður þess fyrirtækis í yfír 50 ár og hlaut í samsæti þakk- læti stjórnenda þess að loknum vinnudegi. év'éT: egsteinar Lundi . v/Nýbýlaveg SÓLSTEINAR 564 4566 + Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GARÐAR B. ÓLAFSSON, Eyrarlandsvegi 27, Akureyri, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri mánudaginn 17. ágúst. Börn, tengdabörn og barnabörn. Elísa og Sigurjón hófu búskap 1939 og leigðu sér húsnæði í fyrstu, en seinna fengu þau lóð í Nökkvavogi 5 og tóku að reisa sér sitt eigið hús. Það gerðu þau á nokkrum árum, mest í aukavinnu og með hjálp systkina Elísu. Vandað hús reis í Nökkvavogi, fjölskyldan fluttist þangað og Sigurjón var ánægður. Þarna undi hann sér vel og var fjölskyldan og húsið hans honum allt og hugsaði hann jafn vel um hvort tveggja. Að sjá sjö börn- um farborða og byggja hús var ekki auðvelt, en Sigurjón hafði fasta vinnu og gat unnið langan vinnu- dag. Þá hjálpuðu systur Elísu, Hanna og Sigríður, og bróðir þeirra, Meyvant, en þau voru ein- hleyp, til við uppeldi barnanna og tóku þau Margréti elstu dóttur þeirra hjóna á heimili sitt á Hring- braut 56 og ólu hana upp sem sína eigin dóttur. Yngri börnin nutu einnig umönnunar þessa fólks og þátttöku þess í þeim hluta uppeldis- ins sem ekki voru brýnustu nauð- þurftir, og er gaman að sjá þær myndir af börnunum sem voru teknar á ljósmyndastofu að þeirra tilhlutan. Sigurjón hafði ríka ábyrgðartil- finningu fyrir sinni fjölskyldu og vildi að öryggi sæti í fyrirrúmi og man ég hve vel hann gekk frá brunavörnum í Nökkvavogi, til dæmis voru hringaðir kaðlar festir undir miðstöðvarofnum á efri hæð sem henda skyldi út um glugga til að geta sigið niður, brytist eldur út. Þá voru allir aðdrættir gerðir af hagsýni, líkt og í sveitum voru tekn- ir heilir kindaskrokkar og gert slát- ur og sett í súr, egg og fugl austan úr Mýrdal. Þá voru settar niður kartöflur og rófur og þurfti því minna á peningum að halda frá degi til dags. Þegar undirritaður kynntist heimilinu í Nökkvavoginum var fjöl- skyldufaðirinn farinn að sjá fram á léttari tíma og jafnvel tómstunda- iðkun. Sigmjón eignaðist tvo hesta sér til ánægju en um leið var hann með nokkrar kindur og hænsni í litla skúrnum á lóðinni, til þess að ég held að friða samviskuna. Þetta skepnuhald inni í miðju íbúðar- hverfí var rækt af stakri reglu og snyrtimennsku, án athugasemda nágrannanna. Og fyrstir allra hesta voru reiðhestar Sigurjóns að fara úr hárum á veturna og báru þeir af vegna góðrar hirðu. Þegar bústofn- inn var aðeins tveir hestar gerði Sigurjón bflskúr úr litla húsinu á lóðinni, en nú hafði hann eignast bfl og varð það til þess að þau hjón gátu ferðast um helgar í þær sveitir sem Sigurjón hafði ekið olíubílnum áður fyrr. Hann þekkti fólk á flest- um bæjum á Suðurlandi og alls staðar var hann aufúsugestur þar sem hann kom. Nokkrar ferðir fór- um við Sigurjón saman, m.a. til að kaupa unga fola sem Sigurjón tamdi svo. Þetta voru skemmtilegar ferðir og fannst mér hann tala hressilega við húsfreyjurnar á þeim bæjum sem við komum á og var því vel tek- ið. Þá fór ég með Sigurjóni austur að Klaustri á nýjum olíubíl og fannst mér með ólíkindum hvernig hann hitti á þröngu brýrnar á fullri ferð en þetta var háttur hans, hann hafði séð þær mjórri og oft ræddi hann um þær svaðilfarir sem þeir olíubílstjórar lentu í á árum áður og var gaman að heyra hann segja frá því. Nú tekur við rólegra tímabil í lífí Sigurjóns, hann hættir að keyra olíubíl út í sveitir en þjónustar olíu í Reykjavík og nágrenni, meiri tími fyrir fjölskyldu og hús, en öll sum- arfrí fóru í snyrtingu og viðhald því ríkar kröfur gerði hann til sín um TÓUUfHAI) OAAóAflt) SJfl um 4I0TÍL flOK MiIIlilMIIT • (flfí Upplýsingar í s: 551 1247

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.