Morgunblaðið - 18.08.1998, Síða 48
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1998 49
1
1
í
4
1
i
i
1
i
i
(l
I
i
i
I
I
4
4
I
4
4
1
4
■i
4
4
é
4
4
í
. j
FRÉTTIR
KIRKJUSTARF
ÞAÐ var stórveiði á svæði 9 í Eystri-Rangá 5. ágúst sl., en þá veiddust
alls 46 laxar á svæðinu. Þetta voru f.v. Rúnar Jdnsson, Gunnar Ó. Jóns-
son, Svandís Ragnarsdóttir, Sigurður Sigurjdnsson, Stefán Gissurarson
og Axel Gissurarson. Tveir laxanna voru rúmlega 20 punda.
Rífandi
gang'ur í
laxveiðinni
VIÐA er myljandi góð veiði og ljóst
að laxveiðin verður mun betri hér á
landi á þessari vertíð heldur en í
fyrra, sem var raunar fremur lélegt
sumar. Menn eru þegar byrjaðir að
gæla við kenningar um 25-30% meiri
veiði og gangi það eftir fer sumar-
veiðin vel yfir meðalveiði síðustu
tuttugu ára.
„Gasalega gaman“
í Miðfírðinum
„Maður er næstum í öðrum heimi
eftir þessi mörgu mögru ár. Ég hef
svo sem upplifað þetta áður, í gam-
alli tíð, en það er gasalega gaman að
þetta sé að koma svona skemmtilega
upp á ný. Síðasta þriggja daga holl
var með 138 laxa, hollið á undan 171
lax og þar á undan var fyrsta maðka-
hollið eftir flugutímann með 227
laxa. Það eru alls komnir 1.370 laxar
á land, en allt síðasta sumar var veið-
in aðeins 602 laxar,“ sagði Böðvar
Sigvaldason á Barði við Miðfjarðará
í gærdag. Böðvar sagði veiðina nær
alla vera vænan smálax sem væri vel
dreifður um allt veiðisvæðið og
stöðugt væru að koma nýjar göngur.
153 laxar í „maðkaopnun“
Fyrsta maðkahollið í Víðidalsá
veiddi 153 laxa á fjórum dögum og
voru þá komnir 770 laxar á land að
sögn Elsu Ýrar Guðmundsdóttur í
veiðihúsinu við ána. Hópurinn sem
hóf veiðar á hádegi sunnudags veiddi
26 laxa þá síðdegis og góð veiði var
einnig í gærmorgun. Elsa sagði lax-
inn blandaðan að stærð, nýlega
hefðu veiðst allt að 19 punda fiskar,
en annars væri megnið af laxinum
smálax.
Vatnsdalsá „fer í þúsund"
„Þetta gengur vel hjá okkur, eitt
hollið var að hætta með 99 laxa og
ekkert holl hefur veitt minna síðan
13. júlí. Þetta hefur hlaupið á 99 tO
127 löxum sem er prýðilegt. Besti
tíminn er nú liðinn þannig að við
reiknuðum alltaf með því að veiðin
myndi fara hægt og bítandi dvínandi.
En það er mikill lax í ánni og von á
góðum tökum allt til enda. Alls eru
komnir hátt í 800 laxar á land, þar af
660 á aðalsvæðinu," sagði Ingólfur
Ásgeirsson, staðarleiðsögumaður við
Vatnsdalsdá, í gærdag. Hann sagði
stærstu laxana vera þrjá 22 punda
úr Hnausastreng, einnig væri kom-
inn 21 punds fiskur úr Rofabakka og
„nokkrir 20 punda“ bæði úr Torf-
hvammshyl og Hnausastreng.
Nokkrar nýjar tölur
Þverá ásamt Kjarrá voru komnar
með 1.728 laxa á sunnudagskvöld og
er það meira en allt síðasta sumar.
Svipuð veiði er komin úr Norðurá.
Haukadalsá í Dölum var komin með
658 laxa sem er mun meira en allt
síðasta sumar og Vopnafjarðarámar
Hofsá og Selá eru komnar með 650
og 680 laxa hvor.
Feiknagóð silungsveiði
Gífurleg veiði er enn í Laxá í Mý-
vatnssveit og Laxárdal og virðist ekk-
ert lát vera á. Úr Laxá í Mývatnssveit
voru um helgina komnir um 5.000
urriðar á land og rúmlega 2.000 til
viðbótar úr Laxárdalnum. Nýlega
fékk hópur Bandaríkjamanna í Mý-
vatnssveit 800 fiska á sex dögum.
Feiknagóð bleikjuveiði hefur verið
í Miðá í Dölum að undanfórnu og
hollin verið að fá 50 til 70 bleikjur að
jafnaði, mest 1 til 3 punda fiska.
Slangur af laxi er einnig að veiðast,
en fyrir helgina voru komnar yfir
500 bleikjur á land.
UR DAGBOK LOGEGLUNNAR
UM tvö þúsund manns voru í mið-
borginni í Reykjavík aðfaranótt
laugardags þegar flest var. Ástandið
var nokkuð gott, engin alvarleg mál
komu upp. Nokkrir voru þó að
stimpast og fáeinir voru fluttii- á
slysadeild með skrámur eða minni
háttar meiðsl. 11 unglingar voru
fluttir í athvarf og áfengi tekið af 9
ungmennum. Tveir voru teknir fyi-ir
að kasta af sér vatni.
Talið er að um 4-5.000 manns hafi
verið í miðborginni aðjaranótt
sunnudags þegar flest var. Ástandið
vai- gott, lítið um ólæti eða átök
manna á milli og sjaldan þörf fyrir
afskipti lögiæglu. Þó voru höfð af-
skipti af 9 ungmennum vegna aldurs,
10 manns handteknir vegna ölvunar
og nokkrir vont teknh- fyi’ir að kasta
af sér vatni. Um helgina fylgdist lög-
reglan sérstaklega með svæðinu í
kring um Vesturbæjarskóla við Sól-
vallagötu en þar hefur verið nokkuð
um það að unglingar safnist saman
með hávaða í sumar. Tekið var
áfengi af nokkrum ungmennum og
einn tekinn fyrir veggjakrot. Ung-
mennum var vísað heim og þeim gert
grein fyrir að þarna væri ekki sam-
komustaður og þau veldu ónæði fyrir
íbúa í nágrenninu. Haldið verður
áfram að stugga við unglingum sem
safnast saman á þessu svæði. Það
gerist öðru hvoru að stugga þarf sér-
staklega við unglingum sem fara að
safnast saman á ákveðnum stað og
hefur verið hreinsað til að nokkrum
slíkum stöðum á þessu ári.
Umferðin
10 voru teknir fyifr ölvun við akst-
ur og 42 fyrir of hraðan akstur um
helgina. Haldið var áfram við sér-
stakt eftirlit vegna ölvunarakstur
um helgina. Aðfaranótt laugardags
voru stöðvaðar 275 bifreiðir. 15 öku-
menn höfðu ökuskírteini ekki með-
ferðis og einn hafði ekki spennt bíl-
beltið. Aðfaranótt sunnudags voru
um 600 bifreiðir stöðvaðar. Yfir 50
ökumenn voru ekki með ökuskírteini
meðferðis, einn var ökuréttindalaus
og annar með of marga farþega.
Enginn ökumaður fannst undir
Helgina 14. til 17. ágúst 1998.
Margir
í miðborg-
inni en lítið
um ólæti
áhrifum áfengis.
Ekið var á gangandi vegfaranda í
Lækjargötu aðfaranótt sunnudags.
Hann kvartaði um eymsli í baki og
hnjám. Um svipað leyti var stöðvuð
bifreið í Þingholtunum vegna brota á
stöðvunarskyldu. í bifreiðinni fannst
nokkuð af fíkniefnum. Harður
árekstur varð á Breiðholtsbraut
/Stekkjarbakka um tíuleytið á laug-
ardagsmorgun. Minniháttar áverkar
voru á ökumönnum og einum far-
þega. Síðdegis á laugardag var bif-
reið stöðvuð á Suðurlandsvegi við
Sandskeið en hún var á 152 km
hraða. Ökumaðurinn var erlendur
ferðamaðm- sem vai- sviptur ökuleyfi
til bráðabirgða. Um kvöldið var
stöðvuð bifreið á 119 km hraða á
Reykjanesbraut þar sem hámarks-
hraði er 60 km/klst. Ökumaður var
sviptur ökuleyfi til bráðabirgða.
Stimpingar og árásir
Um kl. 04 aðfaranótt sunnudags
var tilkynnt um hópslagsmál á Vest-
urgötu. Þau voru ekki meiri en svo
að hægt að að afgreiða málið á vett-
vangi. Um svipað leyti var tilkynnt
um útlending sem hefði orðið fyrir
líkamsárás. Maðurinn vildi ekkert
tjá sig um málið. Tveh- aðrir kvört-
uðu um líkamsárás á svipuðum tíma
en málin reyndust svo minniháttar
að meintir þolendur vildu ekkert
gera í málinu. Ráðist var tvo drengi í
Seljahverfi um svipað leyti seint á
sunnudagskvöld. í báðum tilfellum
voru aðrir drengir að verki.
Innbrot og þjófnaðir
Síðdegis á laugardag var tilkynnt
innbrot í bifreið við Stekkjarbakka.
Stolið var veski með peningum og
skilríkjum. Um sama leyti var til-
kynnt um innbrot í bifreið við Hverf-
isgötu. Stolið var jakka og pappírum.
Á sunnudag var tilkynnt um innbrot
og þjófnað á hjálmi og útvarpi úr bif-
reið við Hverfisgötu.
Það er ástasða til að minna fólk á að
skHja ekki eftir verðmæti sem gætu
íreistað þjófa í bifreiðum. Ef þjófur sér
álitlega hluti í bifi-eið eru meiri líkur á að
hann bijótist inn hana
Á laugai-dagskvöld var stolið reið-
hjóli frá ferðamanni meðan hann var
á veitingastað við Rauðarárstíg.
Þetta minnir á það að sjálfsagt er
að læsa reiðhjólum alltaf og alls stað-
ar þótt menn fari aðeins frá þeim
skamma stund. Best er að læsa aft-
urhjóli og stelli saman og helst að
læsa því við eitthvað fast eða jafnvel
annað reiðhjól.
Um sama leyti var tilkynnt um
innbrot í hús við Hryggjarsel. Þar
var stolið myndbandstæki.
Annað
Undanfarið hefur nokkrum sinn-
um komið til afskipta lögreglu af því
að reglurnar um íslenska fánann
hafa verið brotnar. Ákveðnar reglur
gilda um á hvaða tíma má flagga og
einnig um það hvar fáninn á að
hanga meðal annarra fána og eru
menn hvattir til að kynna sér þessar
reglur.
Á laugardag fannst langvíuungi í
garði við Holtsgötu. Honum vai-
komið til sjávar. Um sama leyti var
strætisvagnabílstjóri aðstoðaður við
að losna við tvo farþega sem ekki
vildu yfirgefa vagninn. Ekki er vitað
hvort þetta hafi verið af því að þeim
fyndist svo gaman í strætó.
Aðfaranótt sunnudags var tilkynnt
um mann sofandi á gangstétt á Há-
teigsvegi. Þetta var erlendur ferða-
maður sem var að bíða eftir unnustu
sinni sem var í nálægu húsi en hann
hafði lagst til svefns í svefnpoka sín-
um meðan hann beið. Síðdegis á
sunnudag var tilkynnt um að hundur
hafí bitið barn í Mosfellsbæ. Minni-
háttar áverkar voru á vör barnsins.
Kvennalistinn
Fundur um af-
skiptaleysi í
samfélaginu
GEORG Lárusson lögreglustjóri og
afbrotafræðingarnir Karl Steinar
Valsson og Hildigunnur Ólafsdóttir
ræða um afskiptaleysið í samfélag-
inu á opnum fundi í dag kl. 17. Fund-
arstýra verður Guðrún Ögmunds-
dóttir. Tilefni umræðunnar er at-
burðurinn sem varð nýlega við
Reykjanesbraut þar sem fjöldi fólks
leiddi hjá sér hjálparbeiðni konu sem
varð fyrir fólskulegri árás manns.
Safnaðarstarf
Áskirkja. Opið hús fyrir alla ald-
urshópa kl. 10-14. Léttur hádegis-
verður. Samverustund foreldra
ungra barna kl. 14-16.
Hallgrímskirkja. Fyiirbænaguðs-
þjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir
sjúkum.
Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjón-
usta með altarisgöngu kl. 18.30.
Bænaefnum má koma til sóknar-
prests í viðtalstímum hans.
Vídalínskirkja. Opið hús fyrir
eldri borgara í Kirkjuhvoli milli kl.
13 og 16 alla þriðjudaga í sumar.
SMÁAUGLÝSINGAR
ÝMISLE6T
INordiska
Afrikainstitutet
auglýsir hér með
FERDASTYRKI
til rannsókna í Afríku.
Síðasti umsóknardagur
16. september 1998.
NÁMSSTYRKIR
fyrir nám við bókasafn stofnunar-
innar tímabilið janúar-júní 1999.
Sfðasti umsóknardagur
1. nóvember 1998.
Umsóknum sé skilað á sérstök-
um eyðublöðum sem hægt er
að nálgast á internetínu:
http://www.nai.uu.se
eða Nordiska Afrikainstitutet
Netfang: nai@nai.uu.se
Box 1703,
SE-751 Uppsala, Sverige.
Sími 00 46 (0)18 562200.
jH Stjörnukort
K Persónulýsing,
framtíðarkort,
Jfe einkatimar.
Gunnlaugur
PÁÝS RM& Gudmundsson.
Uppl. í síma 563 7075.
Sendum í póstkröfu.
KENNSLA
Að virkja orku og sköpunar-
kraftinn.
Dags- og/eða
helgarnámskeið í
náttúruperlunni
Nesvík á Kjalarnesi
22.-23.8.
Pessi námskeið
eru fyrir þá sem vilja:
•Opna og orkujafna orkustöðvar
•Losa stress/spennu og lina
sársauka
•Uppgötva röddina sína
•Upplifa sjálfstjáningu
•Heila með orku og tónun
Kennari verður Esther Helga
Guðmundsdóttir, fv. skólastjóri
Söngsmiðjunnar. Upplýsingar
og skráning í síma 699 2676.
ocl FAGOR
ct
O
§
Q.
•g
%/%
Kæliskápar
Módel Stærð, hxbxd TILB0Ð Rétt verð
kælir/frystir (innb.) FFS-10 88x55x58 25.900 31.350
kælir/frystir (innb.) FFS-16 122x55x58 31.900 37.874
kælir/frystir (innb.) FFS-17 140x60x58 33.700 39.884
kælir/frystir (uppi) FFD-20 129x55x58 34.800 39.895
kælir/frystir (uppi) FFD-23 147x60x59 43.750 51.471
kælir/frystir (uppi) FFD-27 170x60x59 46.900 56.421
kælir/frystir (niðri) FFC-33 170x60x59 49.800 59.789
kælir/frystir (niðri) FFC-35 185x60x59 51.800 61.779
kælir/frystir (niðri) FFC-41 170x60x59 57.600 68.400
kælir/frystir (niðri) FFC-48L 200x60x59 65.800 81.737
RONNING
Bargartúni 54 • S: 565 404 1