Morgunblaðið - 18.08.1998, Page 50

Morgunblaðið - 18.08.1998, Page 50
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐ JUDAGUR 18. ÁGÚST 1998 51 AFMÆLI BORGÞOR V. GUNNARSSON Bóndinn var gamall í Götu og grettin og Ijót hans frú. Og allir töldu þau eystra eindæmis skituhjú. Þó fór að vænkast hans hagur á meðan hann var í Götu sem hann lýsti svona: Gata liggur frá Götu sem er greið íyrir hjólandi mann, ljúfar og lostugar meyjar í Landeyjum skjótt ég fann. Hann Borgþór Gunn- arsson læknir er 80 ára í dag, 18. ágúst. Hann fæddist á bæn- um Akurgerði suður í Garði á Álftanesi í mikilli fátækt og í stóran systkinahóp. Foreldrar hans voru þau hjónin Gunnar Jónsson sem var ætt- aður austan úr Rang- árvallasýslu og kona hans Guðrún Jóns- dóttir sem var ættuð vestan úr Mýrasýslu. Gunnar var sjómaður að stai-fi, og var harðduglegur, en átti dálítið í vandræðum með hann Bakkus og gerði þetta fjölskyld- unni erfitt fyrir. Var oft þröngt í búi. Guðrún, kona hans, var einnig mikill vinnugarpur og sá fyrir að börn þeirra höfðu nóg að borða enda þótt stundum væri úr litlu að spila. Þessi stóra fjölskylda bjó í mjög litlu húsnæði, eða réttara sagt smákofa þarna úti í Garði. Ég sá undirstöðuna frá þessum bæ mörgum árum seinna eftir að hann hafði brunnið til grunna, og varð ég alveg undrandi hvernig allur þessi stóri hópur hafði komist inn í þetta litla hýbýli, en íslendingar eru seigir og láta sér fátt fyrir brjósti brenna. Borgþór ólst þarna upp að mestu leyti, en fór seinna sem unglingur í kaupavinnu austur í sveitir, sér í lagi í Rangárvallasýslu að bænum Götu sem hann lýsti svona: Ein af þessum „ljúfu og lostugu rneyjum" var Inga Hermunds frá Strönd í Land- eyjum og með henni eignaðist hann einn son, Herbert Núma að nafni. Ekki varð þeim Borgþóri og Ingu samræmt og kvæntist hann seinna meir Ástu Guðjóns, ættaðri úr Vestmannaeyjum og eignuðust þau þrjá syni. Borgþór vildi fara til mennta til þess að bæta sinn hag og þar sem hann var ágætis námsmaður lauk hann læknisnámi frá Háskóla ís- lands. Síðan héldu þau hjónin vestur um haf og tók hann frekara nám og gerðist brjóstholsskurð- læknir. Settist hann að í bænum Savannah, sem er við vesturlanda- mæri Ulinois-ríkis og starfaði þar í mörg ár. Síðar fluttist hann dálít- ið austar í ríkinu til bílaborgarinn- ar Belvidere þar sem hann settist í helgan stein eftir að hann hætti störfum á sjötugsaldri. Borgþór var mikið skáld, enda þótt hann hafi aldrei gefið út neitt af sínum skáldskap, nema dálítið af því birtist í vestur-íslenska blaðinu Lögbergi-Heimskringlu í gegnum árin. Læt eg svolítið af skáldskap hans fylgja með. Hérna er hluti af kvæði sem heitir Kvöld í sjómanns koti og er víst um erfiða ævi hans sem barns í Garðinum: Svo er farið að borða besta matinn sem börnin fá og hátt þau um það rausa, hangikét og flautir fá þau ekki en feita lifur, kútmaga og hausa. Móðir þeirra stendur ein í stappi, steðjar um og svarar margra bænum. Uti í horni ósar gamall lampi, urrar kötturinn að nokkrum hænum. Einnig var honum annt um móður sína eins og fram kemur í ljóði hans Móðureyra: Verma láttu liðna stund ljúf er náttin heima, þegar háttar móðurmund mig fer brátt að dreyma. Minnsta hljóð ei missir neitt, mun hið góða heyra, vaknar óðar þótt sé þreytt, þunnt er móðureyra. Einnig gerði hann ljóð um hitt og annað og allt mögulegt svo sem um son sinn Þórð Víking þegar hann var eins árs gamall: Lít ég höfuð Ijúft og frítt, liðið er fyrsta árið, silkimjúkt og silfurhvítt sveipast í lokkum hárið. Hefur í gangi hringlur tvær, hund og trukkinn stóra, bætti við einum bfl í gær boltana á hann fjóra. Og svo auðvitað ansans köttur- inn sem gat verið plága. Um hann sagði hann meðal annars: Kominn er bölvaður kötturinn, úr kolunum skríður hann feginn, síðan fer andstyggðar óþokkinn upp í rúmin nýþvegin. Ef ekki betur sér hegðar hann og hættir þeim óþrifaverkum verð ég að biðja einhvem bóndamann að bregða onum snöru að kverkum. Seinna meir sá hann sig um hönd og orti Erfiljóð kattarins þar sem hann segir m.a.: Er verð ég, kæri, að kveðja þig, af kviða hugur stynur. Hver mun nú stappa stáli í mig sem sterkur, hollur, vinur? Nú fyrst hef ég hálfan grun um hversu þú varst slyngur, því varla finnast maður mun þér meiri heimspekingur. Ef litið er aftur á liðna ævi er margt sem um er unnt að tala og efalaust margt sem maður myndi breyta ef það væri mögulegt, en nú er allt það vatn til sjávar runn- ið. En þó getur mann enn þá dreymt sína drauma, eins og Borgþór skrifaði sem ungur mað- ur: Sem drengur ég lét mig dreyma, í draumi ég þóttist stór, nú gengur mér illa að gleyma því gamla, er miður fór. Til hamingju með áttræðis- afmfælið, pabbi. Númi, Moberly, Missouri. BOMRG Jarðvegsþjöppur og hopparar Gæði á góðu verði! Skútuvogi 12A, s. 568 1 044. |JSP EYRNA- HLÍFAR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.