Morgunblaðið - 18.08.1998, Blaðsíða 54
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1998 55
FÓLK í FRÉTTUM
BÍÓIN í BORGINNI
Sæbjörn Valdimarsson/ Arnaldur Indriðason
Hildur Loftsdóttir
BÍÓBORGIN
Lethal Weapon 4 irk'h
Gaman, gaman hjá Gibson og Glover
og áhorfendur skemmta sér með.
Borg englannar irk
Venjuleg ástarsaga og sérstök frá-
sögn af englum, blandast ekki vel
saman.
Armageddon irk
Afskaplega amerísk stórmynd með
húmor, fínum brellum og miklum
hetjum.
SAMBÍÓIN, ÁLFABAKKA
Lethal Weapon 4 kk'h
Gaman, gaman hjá Gibson og Glover
og áhorfendur skemmta sér með.
Borg englanna kk
Venjuleg ástarsaga og sérstök frá-
sögn af englum, blandast ekki vel
saman.
Armageddon kk
Afskaplega amerísk stórmynd með
húmor, fínum brellum og miklum
hetjum.
Sex dagar, sjö nætur kkV2
Ford og Heche mynda prýðilegt par
í gamanhasarmynd a la Romancing
the Stone. Fulltuggið en ekki leiðin-
legt.
The Man Who Knew to Little k
Bill Murray er sá eini með viti í
meðvitaðri klisjusúpu sem gengur
ekki upp.
Anastasia kkk
Disneyveldið er ekki lengur eitt um
hituna í gerð úrvalsteiknimynda.
Anastasia jafnast á við það besta
sem gert hefur verið. Frábærar
teikningar, persónur og saga, sem
fer frjálslega með sögnina af keis-
aradótturinni og byltingu öreig-
anna.
Mr. Magoo k
Ófyndin mynd, 20 árum of seint á
ferðinni. Leslie Nielsen lyftir henni
ekki upp, er leiðinlegur Mr. Magoo.
Litla hafmeyjan kkk
Falleg og fyndin kvikmynd þar sem
töfrar ævintýrisins blómstra að
fullu.
HÁSKÓLABÍÓ
Dimmuborg kk
Ansi gott útlit á dimmum og ofsókn-
arkenndum trylli frá Astralplaninu.
María, má ég kynna Frank,
Daniel og Laurence kk
Ein af myndum bresku nýbylgjunn-
ar. Þokkaleg gamanmynd en lítið
meira.
Vinarbragð kkk
Mögnuð og eftirminnilega vel leikin
dönsk (-íslensk) mynd af vináttu
tveggja ungra Kaupmannahafnar
smákrimma, sem lýkur með ósköp-
um á íslandi. Óvenjuleg mynd um
manneskjur og tilfínningar.
Blúsbræður 2000 kk
Heldur óspennandi framhald af
góðri kultmynd.
Kvikt hold kkk
Almodóvar heimfærir góða, breska
sakamálasögu uppá blóðhita landa
sinna, gráglettinn og bersögull að
vanda. Skorth- meira tauleysi til að
jafna sín bestu verk. Magnaður
leikur.
Grease kkk
Það er engin spuming, myndin er
algjört „ring a ding a ding“.
KRINGLUBÍÓ
Lethal Weapon 4 kk'h
Gaman, gaman hjá Gibson og
Glover og áhorfendur skemmta sér
með.
Mercury Rising kk
Spennumynd um hundeltan, ein-
hverfan dreng sem telst hættulegur
þjóðaröryggi, og alríkislögguna sem
tekur hann undir sinn verndar-
væng. Hefst með látum, heldur
dampinum lengst af, en lyppast nið-
ur í lokin.
Armageddon kk
Afskaplega amerísk stórmynd með
húmor, fínum brellum og miklum
hetjum.
Sex dagar, sjö nætur kk'h
Ford og Heche mynda prýðilegt par
í gamanhasarmynd a la Romancing
the Stone. Fulltuggið en ekki leiðin-
legt.
Litla hafmeyjan kkk
Falleg og fyndin kvikmynd þar sem
töfrar ævintýrisins blómstra að
fullu.
LAUGARÁSBÍÓ
Sliding Doors kk'h
Frískleg og oft frumleg og vel skrif-
uð rómantísk gamanmynd um
gamla stóra efíð.
Mercury Rising kk
Spennumynd um hundeltan, ein-
hverfan dreng sem telst hættulegur
þjóðaröryggi, og alríkislögguna sem
tekur hann undir sinn verndar-
væng. Hefst með látum, heldur
dampinum lengst af, en lyppast nið-
ur í lokin.
Skotmarkið kkk
Húmorinn er einstakur í þessari
spennumynd, uppfullri af nýjum
hasarbrellum og frumlegri sýn á
glæpaheiminn. Mark Wahlberg er
frábær í aðalhlutverkinu...
Týnd í geimnum kk
Byggð á slöppum sjónvarpsþáttum
en tekst að skemmta manni
framundh’ hlé. Þá rennur allt út í
geiminn....
REGNBOGINN
Senseless kk
Wayans geiflar sig og grettir prýði-
lega í heldur ónýstárlegri gaman-
mynd sem stundum er hægt að
hlæja að.
The Object of My
Affection kk'h
Ljúf og falleg mynd um ást og vin-
áttu. Ekki væmin og dýpri en búast
mátti við.
Titanic kkk'h
Mynd sem á eftir að verða sígild
sökum mikilfengleika, vandaðra
vinnubragða í stóru sem smáu, virð-
ingar fyrir umfjöllunarefninu. Fal-
leg ástarsaga og ótrúlega vel unnin
endurgerð eins hrikalegasta sjó-
slyss veraldarsögunnar.
Anastasia kkk
Disney er ekki lengur eitt um hituna
í gerð úrvalsteiknimynda. Anastasia
jafnast á við það besta sem gert hef-
ur verið. Frábærar teikningar, per-
sónur og saga, sem fer frjálslega
með sögnina af keisaradótturinni (?)
og byltingu öreiganna.
STJÖRNUBÍÓ
Heift k
Afspymuléleg og hrikalega leikin
og leikstýrð blóðlaus og bitlaus
hrollvekja um ófélega
tengsamömmu.
Mel Gibson
í sögu
Dickens
MEL Gibson á í viðræðum um að
leika aðalhlutverk í kvikmynd
sem gerð verður eftir skáldsögu
Charles Dickens, Sögnnni af
tveimur borgum. Gibson hefur
verið að leita að kvikmynd eftir
að hann ákvað að fresta næsta
leiksljórnarverkefni sínu, „Fa-
hrenheit 451“, þar til í maí næst-
komandi.
Ef Gibson tekur verkefnið að
sér hefst vinna við það í haust og
þá hefur hann nógan tíma til að
undirbúa myndina „Fahrenheit
451“ sem gerð verður eftir hand-
riti Terry Hayes og byggð á
skáldsögu Ray Bradburys.
Gibson ætlar sér ekki að leika í
myndinni og hefur leitað til leik-
ara á borð við Tom Cruise og
Brad Pitt um að taka að sér aðal-
hlutverkið.
í BÓK sem gefin var út í tilefni af afmælinu er opnuumfjöllun um
verslun Sævars Karls.
Félag um karlaföt
ALÞJÓÐLEGU karlafatasamtökin
IMB héldu upp á 40 ára afmæli
sitt í maí síðastliðnum. Var hátíð-
in haldin í Róm og voru gestgjaf-
arnir Brioni sem hafa verið með-
limir síðan 1959.
Sævar Karl Ólason er félagi í
samtökunum og var honum boðin
þátttaka „vegna þess að það þótti
einstakt hvaða árangri hægt var
að ná á litlum markaði, í sölu og
niarkaðssetningu á gæðafatnaði
og persónulegri þjónustu. Sam-
tökin ganga út á vináttu og skoð-
anaskipti, þeir stærri læra af
þeim minni og öfugt,“ segir í
fréttatilkynningu frá versluninni.
IMG var stofnað árið 1958 og
eru það samtök fjölskyldurekinna
herrafataverslana. Samanlögð
velta verslana í eigu féiaganna ár-
ið 1997 nam 4,5 til 5 milljörðum
króna og eru verslanir í eigu
þeirra rúmlega 200 með um 2.200
starfsmönnum.
Á hveiju ári koma félagarnir
saman í eina viku, á Islandi árið
1993, skiptast á hugmyndum og
trúnaðarupplýsingum um fyrir-
tækin, ræða vandamál sérvöru-
verslana, stöðu Ijölskyldufyrir-
tækja, karlafatatísku og hvaðeina
sem getur orðið félögunum til
framdráttar.
Á meðal þeirra verslana sem
eru í samtökunum eru Brioni í
Róm, Harry Rosen í Kanada,
Mitchell’s/Richards í Bandarikjun-
um, Don Gil í Austurríki og Henry
Buck’s í Melbourne í Ástralíu.
ÞEIR voru fínir x' tauinu karlarnir á stofnfundinum fyrir 40 árum.
Láttu tælast af ALLURE ilminum og þér finnst þú einstök.
Láttu freistast af nýju línunni fyrir líkamann og baöiö
og þú munt finna mýktina
og hafa ánægju af aö sveipa þig unaöslegum ilmi.
ALLURE: Nautn fyrir líkama og sál.
cLol.
Kringlan