Morgunblaðið - 19.08.1998, Page 18

Morgunblaðið - 19.08.1998, Page 18
18 FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1998 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Ottast að öfgahópar sambandssinna á N-Irlandi hugsi sér til hreyfíngs Tilræðið sagt hafa breytt pólitísku landslagi Omagh, Belfast, Madrid, London. Reuters. SAMTÖKIN „Hið raunverulega IRA“ lýstu í gær sprengjutilræðinu í Omagh síðastliðinn laugardag á hendur sér en kváðust aldrei hafa ætlað að valda dauða óbreyttra borgara því markmiðið hefði ver- ið að valda fjárhagslegu tjóni í miðbæ Omagh. Sögðu samtökin jafnframt að þau hefðu gefíð næga viðvörun vegna sprengjunnar. David Ervine, leiðtogi Framsækna sambands- sinnaflokksins (PUP) sem tengsl hefur við öfga- hóp mótmælenda UYF, sagðist í gær á sjónvarps- stöðinni Sky hafa rætt við talsmenn UVF og kvað ljóst að þeir væru afar næi-ri því að binda enda á vopnahlé sitt og efna til stríðs við „Hið raunveru- lega IRA.“ Sagðist hann ekki lengur geta talið UVF-menn á að halda aftur af sér. David Trimble, forsætisráðherra N-írlands og leiðtogi Sambandsílokks Ulster (UUP), mun í kvöld eiga fund í Dublin með Bertie Ahern, for- sætisráðherra írlands, um aðgerðir þær sem írsk stjórnvöld hyggjast grípa til þannig að hægt sé að draga hryðjuverkamennina sem stóðu að tilræðinu skjótt til ábyrgðar. Hefur þegar verið ákveðið að koma á fót sérstöku úrvalsliði lögreglumanna í þessu augnamiði. Staðfesting þess að „hið raunverulega IRA“ hafi staðið að tilræðinu kemur ekki á óvart og var grunaður höfuðpaur samtakanna jafnvel nafn- greindur í dagblöðum í fyrradag. Talið er að margir af helstu sprengjusérfræðingum IRA hafi gengið til liðs við þessi nýju samtök, m.a. sá maður sem stóð fyrir alræmdu sprengjutilræði IRA í Brighton árið 1984 þar sem reynt var að ráða Margréti Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, af dögum. Samfélag á N-írlandi lamað Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, lýsti í gær í dagblaðsgreinum í The Belfast Newsletter og The Irísh News vonum sínum í þá veru að óhæfuverkið í Omagh yrði til þess að styrkja, fremur en veikja, ásetning manna um að Belfast- samkomulagið skilaði langþráðum friði. Margir eru hins vegar uggandi um framtið friðarumleit- ana og enn fleiri telja fáránlegt að hafa orðið friður í flimtingum í kjölfar slíkra atburða. Sagði Paul Bew, prófessor við Queens-háskóla í Belfast, í samtali við Reu ters-fréttastofuna að íbú- ar N-írlands væru á nálum sem aldrei fyn- enda væri ljóst að illvirkið í Omagh hefði breytt lands- lagi n-írskra stjórnmála. ,Annað hvort verður það til þess að mjaka hlutunum í rétta átt eða fólk mun snúast gegn friðarsamkomulaginu," sagði Bew. Flokkur lýðveldissinnaðra jafnaðarsinna (IRSP), stjórnmálaai-mur Frelsishers Irlands (INLA), lýsti því í gær yfir að engar forsendur væru lengur fyrir vopnaðri baráttu lýðveldissinna á N-írlandi. Hvatti IRSP því INLA og önnur sam- tök skæruliða til að binda enda á öfgaverk sín. INLA eru lítil samtök skæruliða sem klufu sig úr írska lýðveldishernum (IRA) árið 1975 og hafa í gegnum tíðina staðið fyrir nokkrum illvirkjum, myrtu m.a. Airey Neave, sérlegan vin og aðstoðar- mann Margrétar Thatcher, árið 1979. Jeltsín rek- ur helsta efnahags- ráðgjafann Moskvu. Reuters. BORIS Jeltsín, forseti Rússlands, rak í gær Alexander Livshits, helsta ráðgjafa sinn í efnahagsmálum, úr embætti. ínterfax-fréttastofan hafði auk þess eftir háttsettum heimildar- manni að Sergei Kíríjenkó, forsæt- isráðherra, og Sergei Dubinin, yfir- maður rússneska seðlabankans, hefðu boðist til að segja af sér en Jeltsín hafnað. Staðfesti talsmaður forsetans í Kremlín hins vegar að frekari breytingar yrðu sjálfsagt gerðar á ríkisstjóm Jeltsíns áður en yfir lyki. Almenningur í Rússlandi reyndi í gær mjög að fá rúblum sínum skipt í bandaríska dollara eftir að gengi rússneska gjaldmiðilsins var í raun fellt á mánudag. Aðrir reyndu að versla eins mikið og hægt var enda er búist við að verð á ýmsum nauð- synjavörum hækki gífurlega í kjöl- far gengislækkunarinnar. Kíríjenkó hefur reyndar neitað því að gengið hafi verið fellt en að- gerðir ríkisstjórnar Rússlands, sem fólu í sér að þak á gengi rúblunnar gagnvart Bandaríkja- dollar var hækkað, ollu samt sem áður verulegu gengisfalli hennar. „Við getum ekki látið rússneskan efnahag riða til falls,“ sagði Guent- er Rexrodt, ráðherra efnahags- mála í gær, „en Rússar verða að vera meðvitaðir um að ekki er hægt að komast hjá víðtækum efnahagsúrbótum." Sjúganov harðorður um forsetann Stjórn Jeltsíns reyndi í gær að sannfæra erlenda fjárfesta um að greiðslustöðvun á lánum, sem var tilkynnt í gær, hefði ekki áhrif á skuldir Rússlands erlendis, enda eiga þær allar að koma til greiðslu eftir að 90 daga greiðslustöðvun lýkur. Gennadí Sjúganov, leiðtogi kommúnista sem eru í stjórnarand- stöðu í Rússlandi, varaði erlenda fjárfesta hins vegar við því í gær að þeir myndu aldrei sjá fjármuni sína aftur ef þeir héldu áfram að veita „úrkynjuðum og ósiðlegum drykkjumanni“ stuðning sinn, og var hann þar að vísa til forsetans. Hóta kommúnistar að efna til mót- mæla um allt Rússland vegna efna- hagsstjórnar Jeltsíns og jafnframt hyggjast þeir á nýjan leik leitast við að ákæra forsetann fyrir embættis- afglöp. tfVL'Jth Reuters Hótaði sjálfsmorði ÓNEFNDUR maður (t.v.) kom sér fyrir á Krymský'- brúnni í Moskvu í gær og hótaði að svipta sig lífi með því að stökkva fram af ef honum yrð ekki greitt jafnvirði einnar milljónar króna í reiðufé. Geðlæknar á vegum lögreglunnar ræddu við mann- inn og tókst að lokum að telja hann á að liætta við fyrirætlan sína. Rússneskir fjölmiðlar sögðu mann- inn vera fyrrverandi lögregluþjón sem hvergi hefði getað fengið vinnu eftir að hafa setið tvö ár í fang- elsi. Madeleine Albright heimsækir vettvang í Tansaníu og Kenýa „Stöndum þéttar saman en fyrr“ Dar-es-Salaam, Nairóbí. Reuters. MADELEINE Albright, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, vottaði fórnarlömbum sprengjutilræð- anna í Dar-es-Salaam og Nairóbí virðingu sína í gær þegar hún heimsótti sendiráð Bandaríkjanna í borgunum tveimur. Albright sagði ódæðin í Aust- ur-Afríku myndu styrkja samband Bandaríkjanna við Kenýa og Tansaníu. „Hryðjuverkamenn vildu stía okkur í sundur, en hafa í raun valdið því að við stöndum þéttar saman en fyrr,“ sagði utanríkisráð- herrann á blaðamannafundi í Dar-es-Salaam. Albright kannaði fyrst verksummerki sprenging- arinnar í rústum bandaríska sendiráðsins Dar-es- Salaam en hélt svo til Nairóbí á vettvang tilræðis- ins, þar sem Ufundi skrifstofubyggingin stóð. Dagblöð í Kenýu ítrekuðu í gær gagnrýni sína á framgöngu Bandaríkjamanna eftir sprenginguna í Nairóbí en þau hafa áður sakað þá um að hindra björgun Kenýubúa úr rústunum. Albright vísaði ásökununum á bug: „Einhver misskilningur hefur örugglega átt sér stað við björgunarstörfin en ásakanir um harðýðgi okkar fólks eru rangar." Reuters ALBRIGHT kannar rústir bandaríska sendiráðsins í Dar-es-Salaam. Bætur vegna ófrjósem- isaðgerða SÆNSKA ríkinu hafa borist um 140 beiðnir um bætur vegna skipulegra ófrjósemis- aðgerða, sem gerðar voru á Svíum frá 1935 til 1975. Talið er að þúsundir Svía hafi verið gerðir ófrjóar gegn vilja sín- um. Flestir þein-a sem nú sækja bætur eru á aldrinum 60 til 80 ára. 125 þeirra eru konur og fimmtán karlar. Leif Pers- son, formaður nefndar sem rannsakað hefur ófrjósemisað- gerðirnar, segir oft erfitt að ákvarða hvenær fólk hafi verið neytt í slíka aðgerð og hvenær það hafí undirgengist hana sjálfviljugt. Frá 1935 til 1941 var geðveikt fólk undantekn- ingalaust gert ófrjótt í Svíþjóð. Stjórn Nýja- Sjálands springur WINSTON Peters, leiðtogi Nýja-Sjálandsflokksins, til- kynnti í gær að flokkurinn hefði hætt stjórnarsam- starfi við Þjóðarflokk- inn undir for- sæti Jenny Shipley. For- sætisráðherr- ann virðist þó hafa tryggt sér stuðning meirihluta þingmanna, m.a. nokkurra þingmanna Nýja- Sjálandsflokksins. Shipley rak Peters úr ráðherraembætti nýverið vegna andstöðu hans við sölu eignarhluta ríkisins í alþjóðaflugvellinum í höfuð- borginni Wellington. Dauðadómur verði endur- skoðaður DÓMSTÓLL í Teheran í íran mun endurskoða dauðadóm yf- ir þýskum karli, sem var dæmdur fyrir að eiga vingott við íranska konu, og taka mál- ið aftur upp. Þjóðverjinn var fundinn sekur fyrr á þessu ári um samlíf utan hjónabands við ógifta íranska konu. Hún var dæmd til að þola 99 vandar- högg. Diplómatar í Teheran eru vongóðir um að dómurinn yfir Þjóðverjanum verði mild- aður eða maðurinn jafnvel sendur úr landi. íraksstjórn neitar enn samstarfí ERINDREKI Sameinuðu þjóðanna (SÞ) í írak sagði í gær að yfirvöld neituðu enn samstarfi við vopnaeftirlits- nefnd SÞ. Hann sagði Iraks- stjórn standa fast við þá ákvörðun sína að vinna ekki með eftirlitsnefndinni nema samsetningu hennar yrði breytt þannig að meint áhrif Bandaríkjamanna á störf hennar yrðu sem minnst. Jenny Shipley

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.