Morgunblaðið - 19.08.1998, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 19.08.1998, Blaðsíða 32
32 MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ GUÐMUNDUR TÓMAS GUÐMUNDSSON Guðmundur Tómas Guð- mundsson var fæddur í Reykjavík 8. maí 1971. Hann lést 10. ágúst síð- astliðinn. Foreldr- ar hans eru Kristín Þórarinsdóttir, f. 9.10. 1941 og Guð- mundur Olafsson, f. 21.11. 1944. Seinni kona Guð- mundar er Birna Þóra Vilhjálms- dóttir, f. 26.12. 1948. Guðmundur Tómas var yngstur fjögurra systkina. Elst er Guðleif Þór- unn, dóttir Kristínar og fóstur- dóttir Guðmundar, f. 1.3. 1963, hún er gift Kristjáni Inga Kri- stjánssyni. Þeirra dætur eru: Cilia, Sunna og Hanna. Ólafur, f. 27.3. 1966, hann er kvæntur Láru M. Jónsdóttur. Þeirra börn eru: Guðmundur Andri og Stefanía. Þórar- inn Gísli, f. 13.6. 1968, hans kona er Svanhvít Gunnars- dóttir. Dóttir þeirra er Sunna Rún. Móðurforeldrar Guðmundar Tóm- asar eru: Guðleif Árnadóttir og Þór- arinn Gísli Sigur- jónsson, d. 5.10. 1991. Föður- foreldrar: _ Þóra Guðmunds- dóttir, og Ólafur Tómasson, d. 12.10. 1996. Utförin fer fram frá Ás- kirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Það er með miklum harnii og trega, sem ég kveð elskulegan bróður og vin. Hann mun ætíð verða mér hjartfólginn, ljóshærði og bláeygði bróðirinn sem ég eign- aðist fyrir 27 árum síðan. Eg er *j>akklát fyrir að hafa fengið að vera eins mikið með Gumma og við fjöl- skylda mín fengum að vera síðast- liðin ár. Það vom góðar stundir. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Farþúífriði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Fallegu orðin, hlýjan og einlægn- in sem þú alltaf auðsýndir mér munu fylgja mér alla tíð. Eg veit að þú ert kominn á bjartan og góðan •». stað og að þar hefur verið tekið vel á móti þér. Guðleif Þórunn Stefánsdóttir. Ég kynntist eiginkonu minni, Bellu, árið 1986. Stuttu seinna kynntist ég bræðrum hennar, Óla, Badda og Gumma. Gummi var yngstur systkinanna, einungis 15 ára. Ég uppgötvaði strax að Gummi var ákaflega viðkunnanlegur, blíð- ur, viðkvæmur og hvers manns hugljúfí. I samkvæmum, hvort sem um var að ræða fyrir fullorðna eða börn, var hann hrókur alls fagnað- ar. Það duldist mér ekki að um góð- an dreng var að ræða. Allt frá þess- ■ iim tíma var Gummi með annan fót- inn á heimili okkar Bellu. Hann var augasteinn dætra okkar og alltaf kærkominn á heimili okkar. Mánudagskvöldið 10. ágúst sl. bárust okkur Bellu sorgarfréttir. Gummi var látinn, farinn yfír móð- una miklu á vit feðra sinna. Hann er okkur harmdauði. Þó að fregnin um andlát hans sé harmþrungin, yfírþyrmandi og söknuðurinn mik- ill, þá minnumst við þó allra gleði- stundanna er við áttum með hon- um. Gummi var svo sannarlega *gleðigjafi, hjartahlýr, drenglyndur ^og vinur allra. Andlát hans var ótímabært, en þeir deyja víst ungir sem guðirnir elska. Eftirfarandi orð úr Nýja testamentinu eiga við Gumma. Ég er góði hirðirinn og þekki mína og mínir þekkja mig. (Jóh. 10,14) Margar spurningar vakna þegar ungur maður eins og Gummi deyr svo skyndilega í blóma lífsins. Þeim spumingum verður seint eða aldrei svarað. Það eina örugga í lífinu er að maður deyr víst einhvern tím- ann. Sumir þurfa að hlýða kalli dauðans allt of snemma, líkt og var með hann. Það er þó huggun harmi gegn að hafa kynnst þvílíkum dreng sem hann var. Hann kemur alltaf til með að lifa í minningu minni. Eitt er víst að það er líf eftir þetta líf. í Spámanninum eftir Ka- hlil Gibran segir: „Þá mælti alm- ítra: Mál er nú að spyrja um dauð- ann. Og hann sagði: Þú leitar að leyndardómi dauðans. En hvernig ætlar þú að finna hann, ef þú leitar hans ekki í æðaslögum lífsins? Ugl- an, sem sér í myrkri, en blindast af dagsbirtunni, ræður ekki gátu ljóssins. Leitaðu að sál dauðans í líkama lífsins, því að líf og dauði er eitt eins og fljótið og særinn. í djúpi vona þinna og langana felst hin þögla þekking á hinu yfirskilvit- lega, og eins og fræin, sem dreymir undir sjónum, dreymir hjarta þitt vorið. Trúðu á draum þinn, hann er hlið eilífðarinnar. Óttinn við dauð- ann er aðeins ótti smaladrengsins við konung, sem vill slá hann til riddara. Er smalinn ekki glaður í hjarta sínu þrátt fyrir ótta sinn að bera merki konungsins? Og finnur hann þó ekki mest til óttans? Því hvað er það að deyja annað en standa nak- inn í blænum og hverfa inn í sól- skinið? Og hvað er að hætta að draga andann annað en að frelsa hann frá friðlausum öldum lífins, svo að hann geti risið upp í mætti sínum og ófjötraður leitað á fund guðs síns? Aðeins sá, sem drekkur af vatni þagnarinnar, mun þekkja hinn volduga söng. Og þegar þú hefur náð ævitindinum, þá fyrst munt þú hefja fjallgönguna. Og þegar jörðin krefst líkama þíns, muntu dansa í fyrsta sinn.“ (Kahlil Gibran.) Ég bið þá sem eftir lifa að íhuga og fara eftir þeim orðum sem koma fram í kvæðinu Einræður Starkað- ar eftir Einar Benediktsson. Eitt bros - getur dimmu í dagsljós breytt, sem dropi breytir veig heillar skáiar. Pel getur snúizt við atorð eitt. Aðgát skal höfð í nærveru sálar. Svo oft leyndist strengur í brjósti, sem brast við biturt andsvar, gefið án saka. Hve iðrar margt líf eitt augnakast, sem aldrei verður tekið til baka. Einar Benediktsson Ég votta fjölskyldu Gumma og öllum þeim sem eiga um sárt að binda samúð mína. Gummi, ég þakka þér fyrir kynn- in. Ég horfí með trega á eftir þér yfír í annan heim, þar sem ljósið skín skærar. Þú átt þér ávallt stað í hjai-ta mínu. Hvfldu í friði og gakktu á guðs vegum. Þinn mágur og vinur, Kristján Ingi Kristjánsson. Elskulegur og yndislegur frændi minn og vinur, Guðmundur Tómas, er nú látinn. Fregnin um andlát hans kom eins og reiðarslag þar sem ég var staddur í vinnu úti á landi með ferðafólk. Ég gat ekki komið upp orði eftir að ég hafði lagt símtólið á og fékk því erlendan samferðamann minn til að segja fólkinu það nauðsynlegasta þangað til við komum á áfangastað. Guð- mund Tómas hef ég þekkt síðan hann fæddist, þar sem ég kom í þennan heim tæpum tíu árum á undan honum. Við náðum við því miður ekki að vera mikið saman á lífsleiðinni, en frá því ég man eftir honum fyrst, sem barni, geislaði alltaf af honum góðmennskan. Það fór ekki framhjá neinum að þar sem hann var fór góð sál enda þarf ekki að fara langt aftur í ættir til að finna skýringar á því - hvort sem er í föður- eða móðurætt. Vegna vinnu fóður hans dvaldi Guðmundur Tómas mikið á lands- byggðinni og erlendis með fjöl- skyldu sinni á sínum uppvaxtarár- um og því sáumst við ekki nema endrum og sinnum þegar fjölskyld- ur okkar hittust en á milli þeiiTa hefur alltaf verið kærleiksríkt sam- band og mikil vinátta og þá um leið á milli okkar, þrátt fyrir að sam- verustundirnar væru alltof fáar. Það var í raun ekki fyrr en eftir að hann flutti að heiman að við kynnt- umst vel. Mannkostir Guðmundar Tómasar voru auðsjáanlegir og hann hafði þá sérstöku hæfileika að næstum umvefja mann hlýju og væntumþykju með augnaráði sínu einu saman samhliða fallega bros- inu og geislandi góðmennskunni. Ég er ekki hissa á að þessi yndis- legi frændi minn hafí verið umvaf- inn fallegu kvenfólki og það svo kirfilega að okkur frændur hans og vini langaði virkilega að vera í hans sporum. Það þurfti ekki mjög glöggan mann til að sjá þann innri styrk sem hann bjó yfir. Hann gerði það sem hann ætlaði sér og tók þeim þolraunum sem lífið lagði fyrir hann með þvílíkri yfírvegun að að- dáun vakti. Guðmundur Tómas hefur kvatt okkur, nánustu ættingja og vini, áð- ur með mjög skömmum fyrirvara. Ég hélt innra með mér að sú þol- raun sem hann gekk í gegnum þá og stóðst með eindæmum vel hefðu hert hann það mikið að þeir erfið- leikar sem hann þyrfti að glíma við síðar á lífsleiðinni væru eins og hjóm miðað við þá. Við sem eftir lifum sitjum og spyrjum okkur spurninga sem að sjálfsögðu verður aldrei svarað. Ein spurning leitar sterkar á huga minn en aðrar, en hún er sú hvort hann hafi verið búinn að tæma sinn andlega orkuforða á þeirri tiltölu- lega stuttu en vægast sagt mjög ill- færu og fjölbreyttu lífsleið - því verður víst heldur ekki svarað. Ég hef alltaf verið stoltur af þessum ljúfa, góða og dagfar- sprúða, en jafnframt einbeitta frænda mínum. Hann sagði mér til dæmis í grófum dráttum af veru sinni í frönsku útlendingahersveit- inni, sem ég skrifaði blaðagrein um fyrir allmörgum árum og vakti mikla athygli. Ég lét það ekki nægja heldur hef ég sagt með stolti, mörgum - hvort sem er er- lendu eða innlendu fólki frá Guð- mundi og hversu vel hann stóð sig í þessari hersveit, sem er talin hinn illræmdasta í heimi. Hann hélt til Frakklands vel undirbúinn líkamlega og hafði með- al annars lagt stund á bardagaí- þróttir. Þrátt fyrir það fór hann svo til allslaus og ekki mælandi á franska tungu sem hvort tveggja hlýtur að hafa gert veruna þar mun erfiðari en ella. Það sem þar var lagt fyrir hann hefði enginn venjulegur maður haldið út enda sagði hann mér að það hefði þurft að senda marga úr hersveitinni þar sem andlegt sem líkamlegt álagið hafði yfirbugað þá - hámenntaða menn sem ómennt- aða. Skömmu eftir að hann gekk til liðs við hersveitina var hann sendur í Persaflóastríðið. Þar biðu hans ótrúlegir hlutir. Sem dæmi má taka að sérsveitir Bandaríkjahers þorðu ekki að fara til Kúveit fyrr en franska útlendingahersveitin hafði farið á undan þeim til að finna jarð- sprengjur, faldar sprengjur í bílum sem litu út fyi-ir að vera yfirgefnir, íraka sem sætu fyrir þeim og svo framvegis. Guðmundur upplifði að sjá fjölda vina sinna aka trukk á sprengju og springa í loft upp. Þegar það sem eftir var af hersveitinni kom til Kú- veit blasti við þeim sjón sem mér fannst ekki prenthæf af tillitssemi við viðkvæmar sálir. Samkvæmt lýsingum Guðmundar jafnaðist það sem hann sá lítið á við það versta sem ég vissi um voðaverka nasista í síðustu heimsstyrjöldinni, svo dæmi sé tekið. Irakarnir voru enn að framkvæma sín voðaverk þegar þeir komu og sá Guðmundur með sínum eigin augum fólskuverk þeirra, sem hlýtur að hafa haft djúp áhrif á hverja einustu heilbrigða manneskju. Þetta sá hann allt og til viðbótar við meðferð Iraka á sínum eigin her, sem var hroðaleg. Hvern- ig getur annað verið en að svona ung, og að mínu mati, óhörðnuð sál taki allt þetta inn á sig og að það skilji eftir ör á sálinni. Maður sem kemur tiltölulega heill út í þeim mannraunum sem hann hefur þurfti að þola í lífinu er ekki hægt annað en að kalla hetju og það var hann. Guðmundur Tómas stóð sig það vel að hann mátti velja hvers konar vinnu hann myndi vilja vinna inna herdeildarinnar og valdi hann ekki það léttasta heldur það erfiðasta - það að sérhæfa sig í að vera sendur bak við víglínu óvinarins og reyna að gera hann að einhverju leyti óvirkan. Þetta lýsir vel styrk hans og sjálfstrausti. Yfirmenn frönsku útlendingaher- sveitarinnar voru hæstánægðir með piltinn og sögðu að hann mætti fara í frí enda hafði hann bæði fengið með hæstu einkunnum í inn- tökuprófí hersins og einnig staðið sig með afbrigðum vel í stríðinu. Hann fékk að fara heim en sneri ekki aftur. Guðmundur Tómas hafði alltaf löngun til að mennta sig meira en það var eitthvað sem kom í veg fyr- ir að hann héldi sig að náminu þannig að ekki er ólíklegt að ein- hver innri togstreita hafi hrjáð hann. Hann bjó um tíma í Amster- dam og vann við fyrirtæki tengda- móður bróður síns, þar sem hann og kona hans voru einnig hlutaðeig- endur. Veran í Amsterdam hefur vafa- laust einnig haft mikil á hrif á líf Guðmundar. Ég hitti hann nokkrum sinnum þar og lét hann nokkuð vel af sér, þótt mér hafi fundist sem hann væri ekki alls kostar ánægður með lífið og tilver- una. Nú er veru hans lokið hér og hann þarf því ekki að bera sínar þungu andlegu byrðar lengur sem hann gerði í hljóði og lét sjaldan annað í Ijós en að hann væri nokkuð sáttur við lífið og tilveruna. Það er ákveðið tómarúm sem hefur myndast í tilveruna við fráfall Guðmundar, sem manni finnst svo ótímabært og nokkuð sem maður átti ekki von á, nú þegar lífíð blasti við honum og manni fannst hann vera kominn á beinu brautina. Með Guðmundi Tómasi fer ein- lægur og traustur maður, heiðar- legur og góður, sem ég vona að hafi fengið sálarró og líði nú betur. „Ég hlakka til að hitta þig síðar, elsku Guðmundur Tómas minn. Þakka þér fyrir allt það góða sem þú hefur gefið mér. Guð blessi þig, elsku frændi!" Ég, foreldrar mínir, systir og fjölskylda hennar biðjum góðan Guð að styrkja fjölskyldu og ástvini Guðmundar Tómasar í þessari miklu sorg. Góðs drengs verður sárt saknað en minningin um hann mun ylja þeim sem eftir lifa. Þorsteinn Erlingsson. Ó, sólarfaðir signdu nú hvert auga og sér í lagi þau sem tárin lauga. (Matth. Joch.) Hjartkær vinur okkar er horfinn sjónum. Fyrsta minningin er af litl- um glókolli með spurul blá augu og geislandi bros, sem forvitinn kom og bað um að fá að sjá litla barnið á heimilinu, Helga Rúnar, sem þá var aðeins þriggja mánaða. Upp frá þeim degi hófst þeirra einlæga vin- átta sem og annarra á heimilinu. Þessi vinátta var okkur öllum mik- ils virði, gefandi og gagnkvæm. Gummi dvaldist mikið hjá ömmu sinni og afa í Sigluvogi, eða á hæð- inni fyrir ofan okkur. Þar vandist hann á heiðarleika, snyrtimennsku og allar góðar dyggðir og naut þar kærleika og ástúðar sem varð hon- um og öðrum til góða. Þó svo að við hittumst sjaldnar en áður síðustu árin var það ætíð eins og við hefðum hist í gær, þegar Gummi birtist með sitt hressilega, hlýja viðmót og vafði okkur örmum. Kæri vinur, við trúum og vonum að góður Guð sé með þér og verði þér nálægur, og megi hann styrkja og blessa alla ástvini þína í þeirra sáru sorg. Björt minning þín mun ylja okkur um ókomin ár. Af eilífðar ljósi bjarma ber sem brautina þungu greiðir vort h'f sem svo stutt og stopult er það stefnir á æðri leiðir en upphimin fegri en augað sér mót öllum svo faðminn breiðir. (E.Ben.) Sigurlaug Sveinbjörnsdóttir, Helgi Rúnar Hilmarsson og Sveinbjörn Ililmarsson. „Dáinn, horfmn!“ - Harmafregn! Hvílíkt orð mig dynur yfir! . Enégveit, að látinnlifir. Pað er huggun harmi gegn. Hvað væri annars guðleg gjöf, geimur heims og lífið þjóða? Hvað væri sigur sonarins góða? Illur draumur, opin gröf. Síst vil ég tala um svefn við þig. Þreyttum anda er þægt að blunda og þannig bíða sælh funda - það kemur ekki mál við mig. Flýt þér, vinur, í fegra heim. Krjúptu að fótum friðarboðans og fljúgðu á vængjum morgunroðans meira að starfa guðs um geim. (Jónas Hallgrímsson.) Elsku Gummi, hvíl þú í friði og megi Guð vera með þér. Kveðja, Hjördís Sóley. Með örfáum orðum langar okkur til að kveðja fyrrverandi samstarfs- mann okkar, Guðmund Tómas Guð- mundsson. Það var áfall fyrir okkur öll að frétta af andláti hans, það er svo stutt síðan hann var hluti af hinu daglega lífi okkar allra. Hingað í Tindasel kom Gummi snemma árs 1997 og fljótlega sáu allir að þar var góður drengur á ferð. Hann var afar þægilegur í mannlegum samskiptum, hreinn og beinn. Skjólstæðingum sínum var hann mjög góður félagi og duglegur að finna út þarfir hvers og eins. Hann var alltaf sérlega réttsýnn og heiðarlgur þegar málefni fatlaðra voru annars vegar. Ekki verður hjá því komist að nefna hversu liðtæk- ur hann Gummi var við heimilis- verkin og skipti þá ekki máli hvort um var að ræða eldamennsku, þrif eða fatakaup. Það sem hann hafði umfram alla aðra karlmenn hér var hversu flinkur hann var að brjóta saman þvott, nákvæmnin og snyrti- mennskan var álíka og í fínustu verslunum. Þetta fannst kvenfólk- inu eftirsóknarverður eiginleiki og alltaf brosti Gummi breitt þegar hann fékk hrós fyrir þvottinn. En vinnan hjá okkur snerist ekki alltaf um heimilisverkin, stundum gafst tóm til að rabba saman um lífið og tilveruna og þá hafði Gummi oft margt til málanna að leggja. Við eigum öll eftir að sakna Guð- mundar en í hugum okkar hefur hann skilið eftir margar skemmti- legar minningar og fyrir þær erum við þakklát. Fyrir hönd skjólstæðinga okkar þökkum við fyrir liðnar stundir. Starfsfólk sambýlisins í Tindaseli 1.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.