Morgunblaðið - 19.08.1998, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 19.08.1998, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1998 23 Á hjara veraldar KVIKMYJVDIR Háskólab íó DIMMUBORG „DARK CITY“ irk Leikstjdri: Aiex Proyas. Handrit: Proyas, Lem Dobs og David S. Goyer. Kvikmyndatiikustjóri: Darius Wolski. Aðalhlutverk: Rufus Sewell, Ki- efer Sutherland, William Hurt, Richard O’Brien, Jennifer Connelly, Ian Richardson. New Line Cinema 1998. í UPPHAFI var myrkur og myrkrið er eilíft í Dimmuborg, furðulegum stað sem býður uppá furðulegan samsetning af gömlum og nýjum bif- reiðum og húsagerð og þar sem fólk sofnar á miðnætti á meðan draugalegrr menn með kúlu- hatta skipta um minningar þess og breyta borg- inni frá grunni. Allt er það í tih-aun kúluhatt- anna til þess að komast að því úr hverju manns- sálin er gerð. Peir hafa enga sjálfir, aðeins eina sameiginlega vitund, og vilja vita hveiju ná- kvæmlega einstaklingurinn er gerður úr. Það væri gaman fyrir áhorfandann að vita hvað nákvæmlega mynd eins og Dimmuborg er. Hún lítur út eins og hún sé mjög frumleg en höfundur hennar, Alex Proyas, hefur ein- faldlega skellt saman fjöldanum öllum af þekktum þáttum úr bókmenntum og kvik- myndum og soðið úr því oft talsvert tilkomu- mikla fantaísu með skemmtilegum og jafnvel mögnuðum myndskeiðum en svo sem ekki mikið annað. Hann notar Kafka og Orwell og ofsóknaræðið úr „Jacob’s Ladder“, einnig Metrópólis og Frakkana Jeunet og Cairo og svo mætti áfram telja. Úr því verður eins konar leynilögreglusaga, reyfari á astralplaninu þar sem aðalpersónan hefur ekki hugmynd um af hverju hún er hundelt (já, það er Hitchcock) af fljúgandi kúluhött- unum, sem í þokkabót eru klæddir í þykka vetrarfrakka og hafa dæmlaust mikla hugar- orku. í ljós kemur, án þess að kafað sé of mikið í söguna, að þeir eru eins konar guðir mann- anna og mennirnir eiu fórnardýrin þeirra og tilraunardýrin sem þeir halda í algjöni myrkii bæði um sína eigin fortíð og staðsetningu í heimsmyndinni og um tilvist þeiira. Annars skilur höfundurinn eftir fjöldann allan af ósvöruðum spurningum í myndarlok svo það getur hver haft sína skoðun á því sem fram fer. Hverjir erum við mennirnir í sögunni og hvað erum við að gera á þessum stað? Varðar okkur eitthvað um það? Leikararnir eiu allir ágætlega stilltir inn á þessa geðsýkislegu film noir veröld. Breski leikarinn Rufus Sewell, sem er að fóta sig á Ameríkumarkaði, er eitt spurningaiuierki í framan lengst af; William Hurt er góður rann- sóknarlögreglumaður, nokkurn veginn eins og Chandler vildi hafa þá; Ian Richardson fer fyr- ir kúluhöttunum og er í framan eins og þegar hann leikur spillta breska ráðherra; Jennifer Connelly er brothættan dúkkan sem er þess virði að bjarga heiminum fyrir og Kiefer Sutherland er klikkaði prófessorinn eða því sem næst. En það er með mynd eins og Dimmuborg og einnig þá sem leikstjórinn gerði á undan, Krákuna, að ytra byrðið er miklu mun áhugaverðara en innmaturinn. Einhvern veginn tekst honum aldrei að skálda al- mennilega inn í tignarlegar leikmyndirnar. Þannig verður hún meira fyrir augað en vits- munina og þótt myndinni takist að halda at- hyglinni til enda með góðu bíói nægir það okkur ekki. Arnaldur Indriðason Norræn miðaldamál- stefna NORRÆN miðaldamálstefna verður haldin í Skálholti dagana 20.-23. ágúst. Efnið verður menningarleg forysta og eða miðlun kvenna. Margir fyrirlestrar verða á stefn- unni. Jenny Jochens talar um Guð- ríði Þorbjarnardóttur í hlutverki „lóðrétts og lárétts menningarmiðl- ara“, Maria Sjöberg um kvennasögu, Else Marie Wiberg Pedersen um þýðingu á Opinberunum Mechtilde af Hackeborn, Jón Viðar Sigurðsson um afstöðu til barna á þjóðveldistíma Islendinga, Vivian Etting um stjórn- mál, menningu og trú á Norðurlönd- um á fjórtándu öld, Sverrir Jakobs- son vm margræðar konur, Birger Sawyer um hlutverk kvenpa við ki'istni, Gísli Sigurðsson um Óðin og völvuna í Völuspá, Ásdís Egilsdóttir um þöglar og ræðnar konur, Hedda Gunneng um bréfaskriftir kvenna, Sverre Bagge um Önnu Kommenas, Kirsten Tode Raahauge um konur í danskri þjóðvísnahefð, Inga Huld Hákonardóttir um munnlega miðlun kvenna á Islandi fyrh' árið 1200, Ing- vild 0ye um konur og hefðbundna efnislega menningu og Sæbjorg Waliaker Norbeide um konur og breytingar í átt til borgarmenningar. --------------- Nýjar bækur • ÉG er innra með þér er eftir Ei- leen Caddy í þýðingu Ragnheiðar Benediktsdóttur. Bókin er í dagbók- arformi og hefur að geyma texta fyrir hvern dag ársins. Bókinni fylg- ir eftirfarandi kynning: „ÉG ER andi. ÉG ER alls staðar. ÉG ER í öllu. Sá staður er ekki til þar sem ÉG ER ekki. Þegar þú gerir þér grein fyrir þessari staðreynd og get- ui' skilið hana, veistu að guðsríki er innra með þér. Þú getur hætt að leita og snúið inn á við. Þá finnur þú innra með þér allt sem þú leitar að. Þetta er lítið brot af þeim boðskap sem Eileen Caddy hefur tekið á móti. Meira en 40 ár eru liðin síðan hún fékk sína fyrstu handleiðslu frá hljóðri innri rödd, uppsprettunni sem hún kallar Guð hið innra.“ Lífsljós gaf bókina út. Björg Atla gerði kápumynd. Myndskreytingar eru eftir Clandiu Klingemann. Bókin er prentuð í Odda og fæst í verslun- um Máls og menningar, Pennans og Eymundssonar og Betra lífs. Einnig verður bókin seld hjá útgefanda. Söluverð er 1.800 kr. -------♦-♦“♦----- „Grease“ á mið- nætursýningu LEIKFÉLAG Reykjavíkur býður leikhúsgestum upp á miðnætursýn- ingu á söngleiknum „Grease“, sem sýndui’ er í Borgarleikhúsinu. Uppselt hefur verið á allar sýning- ar og boðið hefur verið upp á eftir- miðdagssýningar um helgar. Með miðnætursýningum hyggst leikfélag- ið auka sætaframboð á „Grease" enn frekar, segir í fréttatilkynningu. Fyrsta sýningin verðui' laugardaginn 22. ágúst kl. 23.30. Miðasala á Laugardalsvelli: Frá kl. 10:00. 17 ára og eldrt: 1.500 Börn 11 - 16 ára í stæði: 500 Ökeypis fyrir börn 10 ára og yngri. Hitum upp fyrir Frakkaleikinn! Aðgangskort A giída. Nú er hægt að nots Debetkorí í rniðasölu á Laugardalsveili. Revklaus síúka. Nu verður tekið fasi á Lettum á Laugardaisveili í kvöid þegar iandslið ísiands og Lettlands i knattspyrnu mætast í vináttulandsieik. Ailir okkar bestu menn verða á vellinum tii að stiila saman strengina fyrir ieikinn gegn Frökkum. Ailir á völlinn - Áfram Ísíand! Mætum og hvetjum okkar bestu menn! Samstarfsaðilar KSI eru lllllllll ffl HEKLA SÍÓVá9IaLMENNAR FLUGLEIDIR , ®BÚ BUNAÐARBANKINN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.