Morgunblaðið - 19.08.1998, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 19.08.1998, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1998 41 - I | I I I I I i I ( I ( ( ( < ( ( < < i ( FRÉTTIR Morgunblaðið/KVM HRAFNHILDUR Jóna Jónasdóttir og Ásdís Björk Stefánsdóttir, eigendur Handverkssmiðjunnar í Grundarfirði. STOFNAÐ hefur verið til hand- verkssmiðju í Grundarfirði. Eig- endur hennar eru þær Hrafnhild- ur Jóna Jónasdóttir og Ásdís Björk Stefánsdóttir. Upphaflega var Hrafnhildur ein með handverksstarfsemi ásamt húsmóðurstörfum sínum, sem voru mjög krefjandi þar sem hún átti fatlaða dóttur, Ragnhildi Rún, _sem lést í vor. Eftir það kom Ásdís vinkona Hrafnhildar inn í starfsemina og nefndu þær hana Handverks- smiðjuna Rún í minningu Ragn- hildar Rúnar. Starfsemin hefur vaxið töluvert og hafa þær inn- réttað aðstöðu á neðri hæð á heimili Hrafnhildar. „Við vinnum mest úr tré, skilti, ýmsa nytjahluti og margt fleira Handverks- smiðja í Grundar- firði svo sem sérpantaðar vörur. Nú erum við að útbúa herbergja- merkingar fyrir Hótel Framnes hér í Grundarfirði. Stundum kemur fyrir að við erum beðnar að skreyta birkikransa, sauma bútateppi og jafnvel mála keram- ik. Mest höfum við selt í Galleri Grúski og einnig höfum við selt í Blómasetrinu á Húsavík. Og við höfum orðið varar við góðar und- irtektir annars staðar á landinu," sagði Hrafnhildur og bætti því við að ekki teldi hún ólíklegt að eiginmenn þeirra, þeir Gunnar Jóhann Elísson og Sigurður Pét- ursson, ættu eftir að koma í auknum mæli inn í starfsemina. Vinnutíminn í Handverks- smiðjunni Rún er frá kl. 13-17 og er fólk velkomið að kfkja inn og skoða framleiðsluna á Eyrarvegi 20 í Grundarfirði. Hrafnhildur segir að það hafi gefíð sér mikið á erfiðum tímum að vinna við svona skapandi starf. Undir þetta tekur Ásdís og segir það mjög ánægjulegt og gefandi að starfa við það að breyta hugmynd í list- og nytjamuni, sem prýða heimili manna. LEIÐRÉTT Hundavinafélag íslands í UPPTALNINGU á þeim samtök- um sem standa að sjálfseignarfé- laginu Dýi-aspítala Watsons í gær féll niður nafn Hundavinafélags ís- lands. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. Friðarstólpi settur upp í Eyjum Vestmannaeyjum. Morgunblaðið. FRIÐARSTÓLPI hefur verið settur upp á Skansinum í Vest- mannaeyjum af alþjóðlegu frið- arsamtökunum The World Peace Prayer Society. Stólpinn í Eyjum er, sá fjórði sem reistur er hér á landi en friðarstólpar hafa verið reistir í 169 löndum af samtökunum. Friðarsamtökin voru stofnuð í Japan árið 1955 og hafa þau að markmiði að dreifa bæn um að friður megi ríkja á jörð. Ástæðu þess að stólpinn er reistur í Eyj- um má rekja til þess að 25 ár eru liðin frá eldgosinu á Heimaey og vonast fulltrúar samtakanna til að með honum skapist friður milli náttúru og mannlífs í Eyjum. Á friðarstólpann er bænin: Megi friður ríkja á jörð, letruð á nokkrum tungumálum en um leið og hann var settur upp var einnig sett í jörð við fót hans mappa með friðarbænum á mörgum tungumálum. Etna Saito var ein þriggja fulltrúa samtak- anna sem komu til Eyja með frið- arstólpann. Hún ber nafn af eld- fjallinu fræga, og hefur alla tíð verið mikil áhugamanneskja um eldfjöll og lagt sig fram um að fræðast um þau. Hún sagði að það hefði alla tíð verið draumur sinn að koma til Heimaeyjar og sá draumur hefði ræst nú er hún kom til að reisa friðarstólpann. Þegar stólpinn hafði verið reistur fór Etna með Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson FULLTRÚAR friðarsamtakanna, Guðjón Bergmann, Etna Saito og Kimura ásamt Sigrúnu Ingu Sigurgeirsdóttur, forseta bæjarstjórnar, við friðarstólpann á Skansinum. bæn sem húu endaði á íslensku með orðunum: Megi friður ri'kja á jörð. Megi friður ríkja á Is- landi. Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir, forseti bæjarstjórnar Vest- mannaeyja, þakkaði fulltrúum friðarsamtakanna komu þeirra til Eyja og færði þeim kveðju og þakklætisvott frá bæjarstjórn. Innilega þakka ég öllum þeim, sem glöddu mig með heimsóknum, blómum, gjöfum og heillaóskum á sjötugsafmœli mínu þann 26. júlí sl. Góðra kynna er gott að minnast. Guð blessi ykkur öll. Sváfnir Sveinbjarnarson, Breiðabólsstað. Happdrætti um innflytj endaley fí til Bandaríkjanna SENDIRÁÐ Bandaríkjanna hefur tilkynnt að efnt verði til happdrætt- is um innflytjendaleyfi til Banda- ríkjanna á þessu ári. Fólk fætt á ís- landi sem dregið verður út fær tækifæri til að sækja um innílytj- endaleyfi sem gefur rétt til að búa og starfa í Bandaríkjunum. Skrán- ingartíminn er 30 dagar: Frá há- degi 1. október 1998 til hádegis 31. október 1998. Búist er við að u.þ.b. 55.000 inn- flytjendaleyfum verði úthlutað á heimsvísu, gegnum DV-99-happ- drættið. Fjöldi úthlutaðra innflytj- endaleyfa til þeirra landa sem rétt hafa til þátttöku er ákveðinn alger- lega af handahófi upp að hámark- inu 3.500 á hvert land. Þeir sem dregnir verða út verða að hafa menntun sem samsvarar fram- haldsskóla, „high school" í Banda- ríkjunum, eða tveggja ára starfs- reynslu síðustu fimm árin í starfs- grein sem viðurkennd er af at- vinnumálaráðuneyti Bandaríkj- anna. Þeir þurfa ekki að hafa at- vinnutilboð í höndunum en verða að vera við góða heilsu líkamlega og andlega og geta séð fyrir sér i Bandaríkjunum. Til að geta tekið þátt í útdrættin- um verður viðkomandi að vera fæddur í landi sem rétt hefur til þátttöku. ísland er þar á meðal. Embættismenn sendiráðsins leggja áherslu á að það er fæðingarstaður- inn sem skiptir máli, en ekki ríkis- fang. I frétt frá Sendiráði Bandaríkj- anna segir m.a.: „Allar umsóknir ber að senda til höfuðstöðva í New Hampshire í Bandaríkjunum og verða þær að berast þangað á tíma- bilinu frá hádegi til 1. október 1998 til hádegis 31. október 1998. Aðeins er hægt að skila inn einni umsókn fyrir hvern mann og umsækjandinn getur sjálfur útbúið umsóknina á venjulegan pappír. Ekki er um nein eyðublöð að ræða. Umsækjandinn verður sjálfur að undirrita umsókn sína og líma mynd af sér í vega- bréfsstærð á umsóknina með glæru límbandi, ekki festa hana með hefti eða pappírsklemmu.“ Starfsmenn sendiráðsins taka fram að þótt margir einstaklingar og fyrirtæki auglýsi í dagblöðum og lofi aðstoð við að útvega vegabréfs- áritanir eða að hjálpa fólki við að fá „græna kortið“ þá er DV-áætlunin hreint happdrætti. Allir sem geta skrifað nafn sitt og heimilisfang á blað geta verið með. Eini kostnað- urinn felst í pappíi’num og póst- burðargjaldinu. Þeir sem verða dregnir út þurfa hins vegar að borga sérstakt 75 dollara umsýslu- gjald. Starfsmenn sendiráðsins segjast ’ vita til þess að mörg fyrirtæki sem bjóða aðstoð við útvegun innflytj- endaleyfa setji upp óheyrilega hátt gjald og gefi óraunhæf loforð. Aðr- ir aðstoði umsækjendur fyrir sann- gjarnt verð eða jafnvel ókeypis. En þau fyrirtæki sem segjast geta aukið líkur umsækjandans eru að lofa því sem þau geta ekki staðið við. Til að fá upplýsingar um frágang á umsóknum fyrir DV-happdrættið skal senda frímerkt áritað umslag til Sendiráðs Bandaríkjanna eða sækja upplýsingablaðið á ræðis- mannaskrifstofu sendiráðsins. Einnig er hægt að nálgast upplýs- ingar á Netinu á heimasíðunni http://travel.state.gov Ágústhelgar- skákmót TR HELGARSKÁKMÓT fer fram í fé- lagsheimili Taflfélags Reykjavíkur helgina 21.-23. ágúst. Samkvæmt venju fara fram þrjár atskákir á fóstudagskvöldið frá kl. 20 en svo tvær kappskákir á laug- ardaginn, sem hefjast kl. 10 og kl. 17, tvær kappskákir á sunnudag sem hefjast kl. 10.30 og kl. 17. Tefldar eru 7 umferðir eftir Mon- rad-kerfi með umhugsunartíman- um l'Æ klst. á 30 leiki og síðan 30 mín. til að klára. Verðlaun eru 120 kr. fyrir 1. sæti, 80 kr. fyrir 2. sæti og 50 kr. fyrir 3. sæti. Fyrir hverja 20 þátttakendur umfram 35 bætast við 50 kr. á hvert sæti. Þátttökugjöld: 16 ára og eldri 1.500 kr. (2.300 kr. utanfél.) 15 ára og yngi’i 1.000 kr. (1.500 kr. utan- fél.). Öllum heimil þátttaka. Málþing um heilbrigðisstörf í friðargæslu HALDIÐ verður málþing í Reykja- vík laugardaginn 29. ágúst um heil- brigðisþjónustu í friðargæslu. Mál- þingið halda nokkrir íslenskir læknar og hjúkrunarfræðingar sem hafa verið við friðargæslu í Bosníu á vegum Sameinuðu þjóðanna og NATO. Markmið þingsins er að kynna framlag íslands og miðla upplýsing- um um friðargæslustörf til lækna og hjúkrunarfræðinga sem hafa hugleitt að fara til slíkra starfa. Fyrirlesarar verða Islendingar, Bretar og Norðmenn. Aðgangur að þinginu verður ókeypis, en fjöldi þátttakenda takmarkaður. Þingið verður haldið á ensku. Þeir læknar og hjúki’unarfræð- ingar sem vilja sækja þingið eða óska frekari upplýsinga snúi sér til Halldórs Baldurssonar læknis, Erlu G. Sveinsdóttur, læknis eða Stefáns Alfreðssonar hjúkrunar- fræðings. Flugvallarhring- urinn genginn HAFNARGÖNGUHÓPURINN fer í kvöld, miðvikudagskvöld, frá Hafnarhúsinu kl. 20 i gönguferð með Tjörninni og um Háskóla- hverfið suður í Skerjafjörð. Síðan með sti’öndinni inn í Naut- hólsvík, til baka um Öskjuhlíð, Vatnsmýrina og Hljómskálagarð- inn. Hægt verður að stytta göng- una og fara með SVR til baka. Hjartans þakkir til allra þeirra, sem glöddu okkur á gullbrúðkaupsdegi okkar þann 25. júlí síðastliðinn. Sérstakar þakkir til barna okkar og tengda- barna fyrir þeirra þátt í því að gera okkur daginn ógleymanlegan. Guð blessi ykkur öll. Árni Helgason og Anna Hafliðadóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.