Morgunblaðið - 19.08.1998, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 19.08.1998, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1998 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Fósturskóli í fimmtíu ár BÆKUR Afmælisrit FÓSTURSKÓLI ÍSLANDS eftir Valborgu Sigurðardóttúr. Gott mál 1998. 240 blaðsíður. VALBORG Sigurðardóttir fyrr- verandi skólastjóri Fósturskóla ís- lands hefur skráð 50 ára sögu skól- ans, sem gefín var út á bók nýverið. Fósturskóli íslands átti 50 ára starfsafmæli árið 1996 en skólinn var stofnaður árið 1946 og fyrst nefndur Uppeldisskóli Sumargjafar. Stýrði Valborg Sigurðardóttir skólanum frá stofnun hans til ársin 1985 þegar Gyða Jóhannsdóttir, nú skorarstjóri í leikskóladeild, kom til skjalanna. í bókinni er gerð grein fyrir sögu Fósturskólans frá upphafi og þróun starfseminnar og mótun í hálfa öld. Leitast höfundur verksins líka við að varpa Ijósi á þær grundvallarhug- myndir og uppeldisviðhorf sem menntun leikskólakennara hefur byggst á í gegnum tíðina. Heimildir höfundar eru fjölmargar, bæði prentaðar og óprentaðar, ekki síst þær sem hann hefur í fórum sín- um sjálfur eftir tæp 40 ár við stjóm- völinn. Er þá átt við skólaslitaræður, sem jafnframt voru nokkurs konar annálar í lok skólaárs, prófverkefni, stundatöflur, fundargerðir skóla- nefnda og Bamavinafélagsins Sumargjafar, opinber bréf og skýrsl- ur. Auk námsvísa, nefndarálita, frum- varpa, laga og reglugerða og greina og viðtala í blöðum um hálfrar aldar skeið. Þá veitti Fósturskólinn höf- undi aðgang að skjölum og skýrslum eftir því sem óskað var eftir. Barnavinafélagið Sumargjöf hafði að markmiði að vernda og efla siðferðilega, and- lega og líkamlega heil- brigði barna og þegar uppeldisskóli Sumargjafar var stofn- aður árið 1946 voru nemendumir níu og þrjú bamaheimili rekin í Reykjavík á vegum fé- lagsins. Valborg Sigurð- ardóttir var lengi eini starfsmaður skólans en rúmri hálfri öld síðar hafa hátt á sautjánda hund- rað nemenda útskrifast frá Fóstur- skóla íslands og leikskólar í landinu era orðnir á þriðja hundrað talsins. Húsnæðisskortur og stöðugir flutningar hafa sett svip sinn á skóla- starfið því Fósturskóli íslands fékk ekki fast aðsetur fyrr en eftir 30 ára starf þegar hann flutti í Leiralæk. Önnur tímamót í starfseminni urðu þegar Fósturskólinn var gerður að ríkisskóla árið 1973 og varð lögum samkvæmt fyrir bæði kynin. Fyrstu karlmennirnir voru brautskráðir frá skólanum árið 1983 og vora orðnir 13 talsins árið 1996. Þrátt fyrir ýmsar hrakningar í ár- anna rás, breytingar á nafni skólans og rekstrarformi hefur menntastofn- unin sjálf verið rekin sem ein samfelld heild frá upphafi. Brautskráð- ir nemendur báru starfs- heitið fóstra í tæpa hálfa öld en árið 1994 afréð Félag leikskólakennara að taka upp starfsheitið leikskólakennari í kjöl- far nýrra laga rnn leik- skóla árið 1991. Um tíma, fáeinum ár- um eftir stofnun, stóð til að leggja skólann niður þar eð Barnavinafélagið Sumargjöf hafði ekki lengur fjárhagslegt bol- magn til þess að standa straum af kostnaði við reksturinn. Ekki þótti sjálfsagt þá að fóstrustörf krefðust fagmenntunar og talið að konum, sem þá vora einu nemendur skólans, væri bamauppeldi einfaldiega í blóð borið. Kom þessi skoðun best í Ijós þegar fóstrar tóku að krefjast launa í krafti menntunar sinnar. Frásögnin endar þegar frumvarp um uppeldisháskóla er í bigerð en ný lög um menntun leikskólakennara á háskólastigi tóku gildi um síðustu áramót. Engum blandast lengur hugur um að þroskað fólk með góða menntun sé grannurinn að góðum uppeldisstofnunum en þeir sem halda að þeim áfanga hafi verið náð án mikillar fyrirhafnar ættu að lesa bókina um Fósturskóla íslands. Helga Kr. Einarsdóttir g mvá Valborg Sigurðardóttir TÍNA með keilu, 1992, eftir Peter Nagel. Eggtempera á striga, 98 x 94 cm. Jarðbundið málverk i I í I MYJVPLIST Hafnarborg, Hafnarfirði MÁLVERK FIMM LISTMÁLARAR FRÁ SLÉSVÍK-HOLTSETALANDI Til 24. ágúst. Opið miðvikudaga til mánudaga frá kl. 12-18. HÉR er á ferðinni sýning á mál- verkum þeirra Use Ament (f. 1940), Michaels Arp (f. 1955), Birgittu Borchert (f. 1940), Johannes Duwe (f. 1956) og Peters Nagel (f. 1941). Öll eru þau hversdagslega fígúratíf eins og svo margir raunsæismálarar nú til dags. Stílinn mætti einnig kalla bókstaflegt raunsæi, því eng- inn þessara ágætu málara reynir að bregða upp litrænu andrúmslofti - svo sem birtubrigðum - stemmn- ingu ellegar dulúð í málverkum sín- um. Það sem sett er fram er alls kostar áþreifanlegt, meitlað og full- unnið. Bókstaflegt raunsæi er því meir í ætt við lýsingar en einstæð listaverk og ræður því afgerandi og fastmótað handbragð málaranna og meðvitað val þeirra á stflbrigðum. Birgitta Borchert sker sig þó frá hinum í skissukenndri útfærslu sinni. Hún beitir háu sjónarhorni á samsafn fólks í sýningarrými og bregður því upp með snöggum pensildráttum, nánast eins og skuggamyndum, ekki ósvipað feneyskum vedute-málurum 18. aldar. Raunar er aðferð Borchert mun meir í ætt við blek- og vask- teikningar en málaralist, og ákveð- innar gamansemi í anda Daumiers gætir í þeim verkum sem hún sýn- ir. Reyndar má segja að konurnar tvær í hópnum standi uppi með sterkasta framlagið á sýningunni. Ilse Ament nær sérstæðum áhrifum út úr gljúpum kartonpappanum, sem minnir okkur á þá staðreynd að pappír er síst verri grunnur en strigi undir olíu- og akrýlliti. Besta myndin á sýningunni er væntanlega Mynd með flugvél þar sem Ament tekst að gæða þurrhamrað málverk sitt af málverki af flugvél eigindum með því að ramma það á hvítan pappír og skapa með því sérstæða aukavídd. Michael Arp fæst við sterk og stæðileg form úr umhverfi þunga- iðnaðar og málmsmíði. Sumpart minnir hugarheimur hans á tákn- ræna vélaveröld landa hans Kon- rads Klapheck. Brunahanar Arps með sínum kynbundna mun eru | gerðir að sigurreifri pansarasveit, " jafnógnvænlegri og himingnæfandi og Singer-saumavélaher Klapheks. Raunsær stfll Johannes Duwe væri varla í frásögur færandi ef ekki lægi að baki honum mjög ákveðin tilvísun í portrettmyndir Diegos heitins Velázquez af dapur- legum hirðfíflum. Reyndar er býsna L auðsær skyldleiki milli fýrirsætna Duwes og málarans seviljanska, enda báðir á höttunum eftir „gim- | steinum í mannsorpinu". En um leið " verður þessi tilvísun Duwes til að draga úr ágæti verka hans því þau þola engan samanburð við nýstár- legt og krassandi raunsæi barokkaldarinnar. Peter Nagel reynir að töfra fram undraveröld barnaherbergisins með því að mála sig aftur til bemskunn- . ar. Hann er ekki á ólíkum slóðum og HC Andersen eða Tsjaikovskí í Hnotubrjótnum. Þessar dreymnu | áherslur skilja Nagel frá kollegum ' hans og færa hann nær metafýsísku raunsæi ítalskra málara. Að myndir hans Qalli um nútímafólk, líkt og hann vill vera láta, er engan veginn augljóst. Þær eru mun nær því að vera tímalausar, eins og myndir Magrittes, enda gerast þær alls kostar á innra plani. Ekkert skortir á tæknilega út- færslu þessara ágætu gesta, ef með- i vituð, appóllónsk vandvirkni telst | listamönnum til tekna. Vandinn er þó sá að fimmmenningarnir bæta engum dyram við þá höll sem þeir era að smíða. Enginn þeirra bendir á nýjar leiðir til úrlausnar þeim sem eru í svipuðum sporum; að geta ekki lifað án þess að mála. Að vísu mega sýningargestir læra ýmislegt af þessum norður- , þýsku málurum, svo sem það að menn þurfa ekki að einskorða sig | við nauðgun á íslensku landslagi til | að teljast liðtækir í listinni. Hins vegar eigum við slíkt einvalalið af spennandi múrbrjótum á syiði nú- tímamálaralistar - unga, miðaldra og roskna - að heimsókn fimm- menninganna hefur enga praktíska þýðingu fyrir íslenska málaralist. En þá ber þess að gæta að sýning- arsalir og menningarmiðstöðvar , þurfa heldur ekki að einskorða sig við eintóma nytjastefnu í sýninga- I haldi. | Halldór Björn Runólfsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.