Morgunblaðið - 19.08.1998, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 19.08.1998, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1998 45 Leika saman í fyrsta sinn SAMLEIKUR hjóna í Hollywood er engin nýlunda og var nýtt par að bætast í hópinn. Frengir herma að leikkonan Patricia Arquette hafa ákveðið að slást í för með eiginmanni sínum, Nicholas Cage, og leika í mynd Martins Scorsese „Bringing Out The Dead“. Þess má geta að sam- leikur flestra hjóna á hvíta tjaldinu hefur ekki gengið vel og virðist sem sumir eigi erfitt með að yfirfæra töfra sam- bandsins yfir á filmuna. Meðal þeirra hjóna sem leikið hafa saman með misjöfnum ár- angri ei-u Tom Cruise og Nicole Kidman, Warren Beatty og Annette Bening, John Travolta og Kelly Preston, Alec Baldwin og Kim Basinger og hjónin Dennis Quaid og Meg Ryan. Þetta verður í fyrsta sinn sem Arquette og Cage leika saman í kvikmynd en sérstakt og litríkt hlutverkaval þeirra hefur löngum vakið áhuga manna. I myndinni mun Cage leika út- branninn sjúkraflutningsmann sem er að andlegum þrotum kom- inn. Á hlaupum sínum milli útkalla PATRICIA Arquette, sem ætlar að leika með eiginmanni sínum Nicholas Cage í fyrsta sinn, var við hans þegar hann var heiðraður á dögunum. ásækja hann minningar um látna sjúklinga og fyrrverandi eigin- konu. Ekkert hefur verið gefið uppi um hvaða hlutverk Arquette muni leika. Tökur munu hefjast í New York í september næstkom- andi. hlið JAY Leno með snjóbrettameistarann Ross Rebagliati í viðtali en Jay hefur verið kærður fyrir óviðeigandi ummæli um lærling. Kærður vegna Clintons-brandara FYRRVERANDI lærlingur hjá bandaríska ríkinu, Carrie Photsios, hefur höfðað mál gegn spjallþátta- stjórnandanum Jay Leno vegna brandara sem hann lét flakka í þætti sínum „The Tonight Show“. Brandarinn snerist um kynningar- bækling hins opinbera þar sem mynd var af Carrie með Bill Clinton forseta og státað var af „persónu- legri reynslu" eða „hands-on ex- perience“. Photsios fer fram á rúmlega 5,4 milljónir króna frá Leno og þremur öðram, þar á meðal sjónvarpsstöð í Detroit sem sýndi þáttinn. Myndin í bæklingnum sem Leno vísaði í var tekin þegar Photsios var lærlingur hjá dómsmálaráðuneytinu í Was- hington. Hin 24 ára gamla Photsios segist hafa upplifað „skömm, niðurlæg- ingu og vanvirðu“. Að sögn lögfræð- ings hennar mátti hún þola sím- hringingar og brandara vegna um- mæla Lenos í þættinum. Talsmenn Lenos hafa ekki tjáð sig um málið en lögfræðingur blaðamannafélags Detroit sagði greinilegt að ummæl- in væru grín og að málaferlin ættu sér enga stoð. Lögfræðingur Photsios sagði að réttur konunnar á friðhelgi einkalffsins væri tjáningar- frelsi Lenos yfirsterkari. „Hún á rétt á sínu einkalífi og að vera látin í friði.“ HLJÓMSVEITIN Land og synir spilaði órafmagnað fyrir gesti Astró síðasta fínimudagskvöld. FOLK I FRETTUM Framfluttu tvö lög órafmagnað HLJÓMSVEITIN Land og synir brá undir sig betri fætinum og lék órafmagnað á veitinga- staðnum Astró siðastliðið fimmtudagskvöld. Sveitin, sem hefur undanfarið vermt vin- sældalista með laginu Terlín, frumflutti tvö lög á tónleikun- um auk þess sem eldri lög hljómuðu í órafmögnuðum út- setningum. Ekki var annað að sjá en gestir Astró, sem að þessu sinni sátu og nutu tónlist- arinnar í rólegheitum, kynnu vel að meta líflegan flutning sveitarinnar. Land og syni skipa þeir Gunnar Þór Eggertsson, Hreimur Örn Heimisson, Birgir Nielsen, Njáll Þórðarson og Jón Guðfinnsson. Auk þeirra léku með þeim þetta kvöld þeir Ríignar Gunnarsson gítarleik- ari og Ingólfur Sigurðsson á slagverk. FJÖLMENNT var á Astró og frumflutti sveitin tvö lög fyrir áhugasama gesti. Köld vatnsgusa STRANDGESTUR fær það óþvegið á Ravenna-ströndinni á Italiu sem liggur við Adríahaf. ítalir þyrptust á ströndina í gær enda var þá þjóðarfrídag- ur. Það er alsiða að sumri til á Italíu að koma strandgestum í opna skjöldu með kaldri vatns- gusu. cncn wmemmmxm a slitflotum Lltir: brúnt og grænt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.