Morgunblaðið - 19.08.1998, Síða 19

Morgunblaðið - 19.08.1998, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1998 19 Frysta fóst- urvísi vegna framavona Konum ráð- ið frá neyslu grindhvals Þórshöfn. Morgunblaðið. FÆREYSKUM stúlkum og konum á barneignaaldri hefur verið ráðið frá því að borða grindhvalarengi vegna þess að of hátt hlutfall kvikasilfurs og eiturefnisins PCB mælist nú í kjöti og fitu grindhvala. Segja færeysk heilbrigðisyfirvöld að PCB, sem safn- ast fyi-ir í fitu sjávarspendýra, og kvikasilfur sem er aðallega að finna í kjötinu, sé í svo miklum mæli í grind- hvölum, að það kunni að valda fóstur- skaða í konum sem neyti þess. Aldalöng hefð er fyrir grindhvala- veiðum og neyslu grindhvalakjöts í Færeyjum og er málið þvi viðkvæmt fyi’ir Færeyinga. Þeir búa ennfrem- ur við harðar árásii' dýraverndunar- samtaka, sem telja grindhvalaveið- arnai- grimmilegar. Ekki er búist við þvi að viðvaranir heilbrigðisyfirvalda tii kvenna muni hafa mikil áhrif á neyslu grindhvala- kjöts en færeyski landlæknirinn tel- ur körlum og eldri konum óhætt að borða gi'indhvalakjöt og -rengi einu sinni til tvisvar í mánuði. Þunguðum konum og konum með barn á brjósti er ráðið frá þvi að borða kjötið og öll- um stúlkum og konum á barneigna- aldri ráðlagt að láta hvalrengið alveg vera. ----------------- Fundur í Burma Rangoon. Reuters. LEIÐTOGAR herforingjastjórnar- innar í Burma áttu í gær fund með fulltrúum lýðræðishreyfingarinnar í landinu (NLD) í fyrsta skipti í um eitt ár. Kom fram í yfirlýsingu stjórnvalda að loknum fundinum að þau vonuðust til þess að þessi fundur yrði sá fyrsti af mörgum þar sem leitast yrði við að auka traust milli stjórnvalda og NLD . Aung San Suu Kyi, leiðtogi NLD, var ekki viðstödd fundinn. Hún situr enn í bifreið sinni í mótmælaskjmi. Er hún nú á sjöunda degi mótmæl- anna. BRESK hjón, sem eru í góð- um stöðum og stefna enn hærra, hyggjast láta frysta frjóvgað egg úr konunni, sem koma á fyrir í legi hennar er hún nær fertugu. Er þetta fyrsta dæmið í Bretlandi um að fólk reyni á þennan hátt að stýra barneignum, en hjónin telja að eignist konan barn nú, rétt rúmlega þrítug, geri það framavonir hennar að engu. Hefur málið vakið mikla athygli í Bretlandi en í frétt The Sunday Times segir að því fari fjarri að allir séu sáttir við þetta inngrip í framgang náttúrunnar. Konan er 32 ára og vill ekki spilla atvinnumöguleik- um sínum. Hún og eiginmað- ur hennar vilja hins vegar ekki bíða með að frjóvga egg konunnar, vegna þess hve hættan á því að barnið fæðist t.d. með Downs-heilkenni eykst með aldri móðurinnar. Vekur siðferðislegar spurningar Fullyrt er í blaðinu að ósk hjónanna um að egg verði frjóvgað og fóstrið fryst, standist Iagalega en veki engu að síður fjölmargar siðferðilegar spurningar. Þess eru dæmi að fósturvís- ar hafi verið frystir til að seinka meðgöngu vegna veikinda móður en þetta er hins vegar í fyrsta sinn sem hjón leggja slíka ósk fram byggða á lífsstíl sínum og framavonum. A meðal þeirra röksemda sem tíndar hafa verið til gegn ósk hjónanna er hvað eigi að taka til bragðs ef hjónaband þeirra fari út um þúfur? Þá þykir mörgum læknuin einfaldlega of langt gengið. „Þessi tækni var fundin upp til að aðstoða hjón sem geta ekki átt börn en þessi kona leikur sér að mannslífi á óforsvaranlegan hátt,“ segir Peter Brinsden, yílrlæknir Bourn Hall lækna- miðstöðvarinnar. Kvenréttinda- samtök fagna Fulltrúar kvenréttinda- samtaka hafa hins vegar fagnað ósk hjónanna. Segir Melissa Lane, sérfræðingur í stjórnmálaheimspeki og sið- fræði við háskólann í Cambridge, að aðferðin kunni að hafa jafnmikil áhrif á líf kvenna og tilkoma getn- aðarvarnapillunnar á sínum tíma. Nú þurfi barneignir ekki lengur að standa í vegi framavona kvenna. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort orðið verður við ósk hjónanna en þau eru sögð reiðubúin að greiða þúsundir punda, sem svarar til hundraða þúsunda ísl. kr., fyrir aðgerðina. Danir deila um EMU- atkvæðagreiðslu HART er nú deilt í Danmörku um hvort og þá hvenær ganga skuli til þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild landsins að Efnahags- og mynt- bandalagi Evrópu, EMU. Sam- kvæmt frétt Jyllands-Posten telur meirihluti þingmanna á danska þinginu að ekki beri að ganga til slíkrar atkvæðagreiðslu fyrr en evr- óið hefur verið tekið í notkun í að- ildarlöndum EMU, en Anders Fogh Rasmussen, formaður Venstre, lýsti því yfir í síðustu viku að Danir yrðu að hafa greitt atkvæði um aðild ekki síðar en um mitt ár 2001. Jakob Buksti, talsmaður danskra jafnaðarmanna, segir óhugsandi að ***** EVROPA^ ganga til atkvæðagi-eiðslu fyrr en EMU sé orðið að veruleika. Mynt- bandalagið gengur í gildi um næstu áramót en evróið, hinn sameiginlegi Evrópugjaldmiðill, á að fara í um- ferð í öllum aðildarlöndunum árið 2002. Radikale Venstre, sem sitja í stjórn með jafnaðarmönnum em einnig andvígir þjóðaratkvæði um EMU svo snemma. Segir Elisabeth Arnold, þingmaður þeirra, slíkt ekki koma til greina, nema „að minnsta kosti 20.000 manns standi fyrir framan þinghúsið og krefjist þess. Hins vegar em íhaldsmenn sam- mála Venstre um nauðsyn þess að Danir verði sem fyrst aðilar að EMU. Lene Espersen, talsmaður Ihaldsflokksins í Evrópumálum, varar hins vegar við því að farið verði of geyst í að ákveða tímasetn- ingu og segir mikilvægast að tryggt sé að meirihluti þjóðarinnar sé fylgjandi aðild, áður en gengið verði til atkvæða. 1 NÝR SENDIBÍLL Bónda-Brie • Gráðaostur Feta með tómötum og ólífum Gouda 11% • Dala-Brie Óðalsostur • Gouda 17% Maribo Gouda 26% Stóri Dímon • Feta í kryddolíu Lúxusyrja • Dala-yrja Camembert Hvítlauksbrie Kitlaðu bragðlaukana! Ferskt, nýsprottið salat með grænmeti og osti er endurnærandi sumarmáltíð sem þú setur saman á augabragði. Taktu lífinu létt í sumar - og njóttu þess í botn! Ostnr í allt sumar Nykaup ÍSLENSKIR OSTAR I AlLT SUMAR 1958-1998 www.ostur.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.