Morgunblaðið - 19.08.1998, Síða 46
46 MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Á SUNNUDEGINUM var farið í siglingu og spilað og sungið úr fær-
eysku söngbókinni.
•^UM 40 manns lögðu leið sfna til Ólafsvíkur frá
Færeyingafélaginu í Reykjavík og sýndu dans.
ANNA Sofia Garbo og Katrín Richardsdóttir, sem er í bol
sérstaklega prentuðum í tilefni af færeyskum dögum.
Morgunblaðið/Sigga
Önnu Sofiu Garbo.
SÝND var hausun og flökun við höfnina.
Morgunblaðið/Ástgeir Finnsson
SKERPIKJÖT, þurrkað hvalkjöt og spik var gefið í
skemmu við höfnina.
BARNAKÓR söng færeysk lög undir stjórn
.2
Fjölmennt á Klifí
GEYSIMIKIÐ líf og fjör var á
færeyskum dögum í Ólafsvík um
helgina. Þrátt fyrir fremur óhag-
stætt veður í byrjun helgarinnar
hálffylltist bærinn af fólki sem
kom víða að. Veðrið varð siðan
mjög gott og fjölmennt var á há-
tfðahöldunum.
Undirbúningstími var skamm-
ur því hugmyndin kom seint
fram. Flest atriði hátíðarinnar
voru byggð þannig upp að það
var undir fólkinu sjálfu komið
hvort þau heppnuðust og það
tókst svo sannarlega. Gerðu allir,
heimamenn og gestir, góðan róm
að.^
Á dagskránni var m.a. margs-
konar fræðsla um Færeyjar og
færeyska menningu. Má þar
nefna að félagar úr Þjóðdansafé-
lagi Færeyinga í Reykjavík stigu
færeyskan dans og sungu ásamt
viðstöddum og margs konar fær-
eyskur matur var á boðstólum.
Þá var margvíslegt annað á
dagskrá svo sem bryggjuball,
flugeldasýning, dorgkeppni,
íþróttir og götuball við Stekkjar-
holt í blíðunni á laugardagskvöld-
ið, en síðan var stórdansleikur á
Klifi þar sem færeyska hljóm-
sveitin „Twilight" lék fyrir dans-
inum. Hartnær 400 manns voru á
þessum dansleik sem var sá næst-
fjölmennasti sem haldinn hefur
verið á Klifi. Aðeins hátíðarsam-
koman afmælisárið 1987 var
fjölmennari.
_ Engan þarf að undra þótt
Ólsarar hugi að tengslum við
Færeyjar því í kringum sjö-
unda áratuginn var hér ævin-
lega fjöldi Færeyinga í vinnu á
sjó og iandi, margt heima-
manna á ættartengsl við
Færeyinga og allmargir búa
hér.
Öll þessi samskipti við
Færeyingana voru með þeim
hætti að aldrei bar skugga á.
Hefir hér ávallt ríkt hlýhugur
til þeirra.
KRAKKARNIR undirbúnir áður en þeir fara upp á pallinn að syngja.
Þeir voru bæði í íslenskum og færeyskum þjóðbúningum.
FAGURT vífaval í þjóðbúningum.
ÞAÐ var bjart yfir öllu í Ólafsvík á fyrstu færeysku dögunum.