Morgunblaðið - 19.08.1998, Qupperneq 52
Drögum næst
.........:TTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
MORGUNBLAÐW, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
4.500 sex ára börn
hefja skólagöngu
Gluggað í
fréttir að
heiman
FERÐAFÓLK hefur sett
skemmtilegan svip á bæjarlífið á
Akureyri í sumar, þótt íslenskir
ferðalangar hafi ekki verið eins
fyrirferðarmiklir og undanfarin
ár og þá aðallega vegna tíðar-
farsins. Erlendu ferðamennirnir
hafa hins vegar haldið sínu striki
og þessir þýsku ferðamenn voru
að glugga í þýsk blöð við blaða-
grindina framan við Bókval í gær
og lesa fréttir að heiman.
UM það bil 4.500 sex ára börn setj-
ast í fyi’sta sinn á skólabekk 1. sept-
ember, samkvæmt upplýsingum frá
Hagstofu íslands. Gert er ráð fyrir
því að u.þ.b. 3.900 nemendur hefji
nám í framhaldsskólum landsins, en
árlega hefja milli 85% og 90% þeirra
sem ljúka grunnskólaprófi fram-
haldsnám.
Tæplega tvö þúsund nýnemar eru
nú skráðir til náms í Háskóla ís-
lands, en alls eru skráðir tæplega
5.900 í skólann. Að sögn Þórðar
Kristinssonar framkvæmdastjóra
kennslusviðs Háskóla ísiands er
fjöldi nýnema mjög svipaður og á
sama tíma í fyrra. Hann benti þó á
að ekki væri búið að afgreiða allar
umsóknir svo umræddar tölur væru
ekki endanlegur fjöldi þeirra sem
stunda myndu nám við Háskóla Is-
lands í vetur, auk þess sem einhverj-
ir myndu hætta við í upphafi skóla-
árs. Alls eru aðeins fleiri skráðir í
háskólann nú en á sama tíma í fyrra
að sögn Þórðar.
■ Námsfólk/4
Hæfilega kalt
á Islandi
SUMARIÐ hjá Til-
man Bartsch hefur
verið með öðrum
hætti en hann á að
venjast. Hann hefur
getað leikið sér úti
eins og önnur börn,
spilað fótbolta,
rennt fyrir fisk af
bi-yggjunni og farið
í sund.
Tilman er 11 ára
og haidinn sjald-
gæfum sjúkdómi
sem gerir vart við
sig þegar hiti fer
yfir 20 stig á Celsi-
us. Sjúkdómsein-
kennin eru m.a.
öndunarerfiðleikar, hiti og út-
brot. Á sumrin hefur hann því
þurft að dvelja inni þegar hann
er heima í Þýskalandi, og þykir
rniður, þar sem hann er ki’aft-
mikill strákur sem ólmur vili
leika sér. I vor sendi móðir
hans ákall til Islendinga, sem
birtist í Morgunblaðinu. Þar
óskuðu mæðginin eftir dvalar-
stað hérlendis í sumar, þar sem
veðurfarið í heimalandi þeirra
að sumarlagi er of hlýtt fyrir
Tilman. Landsmenn voru ekki
lengi að taka við sér og
mæðginunum bárust íjölmörg
boð um dvalarstaði í sumar.
Vill koma aftur næsta ár
Petra Bartsch, móðir Til-
mans segir hann hafa átt ein-
staklega gott sumar og hann
vilji ólmur koma hingað aftur
næsta sumar. Hann hafi eignast
vini á sínum aldri, lært þó
nokkuð í íslensku og spili fót-
bolta við krakkana á Patreks-
firði, þar sem þau hafa dvalið
seinni hluta sumars.
Mæðginin komu til landsins
um miðjan maí-
mánuð og dvöldu
til að byrja með í
líthvei’fi Reykjavík-
ur. Petra segir að
þótt þeim hafi liðið
afskaplega vel hjá
fjölskyldunni sem
þau bjuggu hjá hafi
draumur Tilmans
verið að komast út
á land. Eftir um
mánaðardvöl í
Reykjavík héldu
þau til Patreks-
fjarðar, þar sem
þau eru enn.
„Einu sinni í
mánuði höfum við
farið til Reykjavíkur þar sem
Tilman fær sprautu. Læknarnir
þar voru ótrúlega góðir við
hann og allt gekk vel. Við mun-
um samt prófa að fá sprautuna
hér fyrir vestan núna,“ segir
Petra.
Hún þakkar fyrir að hafa
verið héi’lendis í sumar þar
sem miklar hitabylgjur hafa
vei’ið í Evrópu. „Við erum svo
fegin að vera hér. Það hefur
verið mjög heitt heima og það
hefði verið mjög hættulegt fyr-
ir Tilman ef hann hefði verið
þar,“ segir Petra. Þau reikna
ekki með að geta farið heim
fyrr en í kringum 20. septem-
ber og segist Petra ætla að
kanna hvort Tilman geti verið í
skólanum á Patreksfirði fyrstu
vikurnar þar sem þau geti ekki
farið heim fyrr.
Þau mæðgin hafa prófað ým-
islegt í sumar, farið í hestaferð
og ferðast töluvert. Þau hafa
einnig fengið heimsóknir og
hefur eiginmaður Petru og fað-
ir Tilmans heimsótt þau, auk
systur hennar.
MÆÐGININ Petra
og Tilman Bartsch.
26 punda
hængur
úr Laxá
EINAR Sörensson frá Húsa-
vík veiddi 26 punda hæng við
Hrúthólma í Laxá í Aðaldal í
gærmorgun. Laxinn er annar
tveggja stærstu laxa sem
veiðst hafa hér á landi í sum-
ar, en fyrir nokkrum dögum
veiddist annar jafnstór í Vit-
aðsgjafa í Laxá og sami veiði-
maður veiddi annan 25 punda í
Oddahyl.
Veiðimenn eru sammála um
að óvenjumikið sé um mjög
stóra laxa í ánum í sumar og
fjölmargir 20 til 24 punda hafa
veiðst, aðallega norðan- og
norðaustanlands, auk þess
sem einn til viðbótar, 25
punda, veiddist í Eystri-
Rangá í síðasta mánuði. Atli
Vigfússon á Laxamýri hafði
eftir veiðimönnum við Laxá í
Aðaldal að a.m.k. tveir laxar
sem áætlaðir væru um eða yfir
30 pund hefðu sést reglulega á
sveimi í ánni en þeir hefðu
ekki fengist til að taka agn
enn sem komið væri.
■ „Eru þeir að fá ‘ann?“/39
Verðbólga á íslandi ein sú lægsta í Evrópu um þessar mundir
Innfluttar neysluvörur
hafa lækkað um 4-5% í ár
Breytingar á ýmsum flokkum
vísitölu neysluverðs
frá janúar til ágúst 1998
Búvörur án grænmetis
Grænmeti
Aðrar innlendar mat- og drykkjarvörur
Aðrar innlendar vörur
Innfluttar mat- og drykkjarvörur
Nýr bíll og varahlutir
Bensín
Innfluttar vörur aðrar
Áfengi og tóbak
Húsnæði
Opinber þjónusta
-0,2%
+5,8%
-0,5%
+1,8%
-4,0%
-0,7%
-2,5%
-5,0%
+0,8%
+4,2%
-0,3%
+2,9%
Vísitala neysluverðs Pn +0,2%
Vísitala neysluverðs án húsnæðis ■ -0,4%
Launavísitala, breyt. til júní 1998 m +1,2%
INNFLUTTAR mat- og drykkjar-
vörur hafa lækkað um 4% það sem af
er þessu ári og aðrar innfluttar vör-
ur hafa lækkað um 5% á sama tíma-
bili samkvæmt mælingum vísitölu
neysluverðs sem Hagstofa Islands
reiknar út. Vísitalan hefur mælt
verðhjöðnun síðustu tvo mánuði og
verðbólga á Islandi er nú ein sú
lægsta sem mælist á Evrópska efna-
hagssvæðinu á samræmda neyslu-
verðsvísitölu eða 0,7% síðustu tólf
mánuði, en verðbólgan í Austurríki
mældist 0,8% frá júní í fyrra til jafn-
lengdar í ár. Verðbólgan að meðaltali
í Evrópusambandsríkjunum og á
Evrópska efnahagssvæðinu var á
þessum tíma 1,6%.
Rósmundur Guðnason, deildar-
stjóri vísitöludeildar Hagstofu ís-
lands, segir að stóraukin samkeppni
á markaði hér á landi sé helsta skýr-
ingin á litlum verðhækkunum og í
mörgum tilfellum verðlækkunum
undanfai’na mánuði, auk þess sem
gengi krónunnar hafi styrkst á þessu
tímabili. Hann segir jafnframt að
engin merki séu um annað en að
verðbólga hér á landi ætti að geta
verið áfram mjög lág næstu mánuð-
ina, þrátt fyrir miklar launahækkan-
ir síðustu misseri.
0,2% hækkun frá áramótum
Frá áramótum hefur vísitalan
hækkað um 0,2% og ef litið er íram-
hjá hækkunum á húsnæðislið vísitöl-
unnai’ mælii’ hún 0,4% lækkun frá því
í ársbyrjun. Einstakir liðir vísitöl-
unnar hafa hins vegar breyst með
mjög mismunandi hætti. Búvörur
hafa lækkað um 0,2% það sem af er
árinu og aðrar innlendar matvörur
hafa lækkað um 0,5%, ef undan er
skilið grænmeti, sem hefur hækkað
um 5,8%. Aðrar innlendar vörur hafa
hins vegar hækkað um 1,8% frá ára-
mótum og áfengi og tóbak hefur
hækkað um 0,8%.
Bílar og varahlutir hafa lækkað um
0,7% það sem af er árinu og bensín
hefur lækkað um 2,5%. Opinber þjón-
usta hefur lækkað um 0,3% á tímabil-
inu, en önnur þjónusta hefur hækkað
um 2,9%. Þá hefur húsnæðisliður vísi-
tölunnar hækkað einna mest það sem
af er árinu, ef undan er skilin hækk-
un grænmetis, eða um 4,2%.
Ef innlendar vörur eru teknar
saman hafa þær hækkað um 0,7%, en
þær vega samtals tæpan fimmtung í
visitölu neysluverðs. Á sama tíma
hafa innfluttar vörur að meðtöldu
bensíni, bílum og varahlutum lækkað
um 3,1%, en innfluttar vörur vega
samtals rúman þriðjung.