Morgunblaðið - 05.09.1998, Page 6

Morgunblaðið - 05.09.1998, Page 6
6 LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Árni Sæberg ÞORVARÐUR Elíasson aflienti dr. Guðfinnu Bjarnadóttur lykil að skólanum. FINNUR Geirsson, formaður háskólaráðs, sagði að miklar væntingar væru gerðar til skólans. Guðfínna Bjarnadóttir setur Viðskiptaháskóla fslands í fyrsta sinn Skólinn verði í fararbroddi á sviði viðskiptamenntunar Miklar væntingar eru bundnar við Við- skiptaháskóla Islands, sem var settur í gær í fyrsta sinn. 300 nemendur stunda nám við skólann og hefur aðsókn verið mikil. Aldarfiórðungur er síðan sú hug- mynd var fyrst sett fram að koma á fót við- skiptaháskóla. Það gerði Haraldur Sveins- son, fyrrverandi formaður Verslunarráðs, fyrstur manna á ráðstefnu sem haldin var á Þingvöllum. GUÐFINNA Bjarnadóttir, rektor Viðskiptaháskóla íslands, sagði við setningu skólans í gær að markmið hans væri að vera í fararbroddi á sviði viðskipta- og tölvufræði- menntunar. Markmiðið væri jafn- framt að auka samkeppnishæfni ís- lensks atvinnulífs. Björn Bjarnason menntamála- ráðherra gaf í gær út starfsleyfi í'yiir skólann, en hann starfar í samræmi við ný heildarlög um há- skóla. Ráðherra afhenti dr. Guð- finnu starfsleyfið við skólasetning- una. Við það tækifæri sagði hann að stofnun þessa skóla einkenndist af sönnum stórhug og einlægum vilja til að leggja mikið af mörkum í þágu góðrar menntunar. Hinn mikli áhugi nemenda á því að innrita sig í skólann sýndi að hann hitti í mark. Áhrifa skólans mun gæta í öðrum skólum „Skólinn eykur enn fjölbreytni í háskólanámi. Hann fer inn á nýjar brautir. Áhrifa þeirrar stefnu, sem stjórnendur hans móta, mun gæta í öðrum menntastofnunum Iandsins. Háskólar starfa í harðnandi inn- byrðis og alþjóðlegri samkeppni. Þeir verða að laga sig að hertum kröfum nemenda og atvinnulífs," sagði Björn. Finnur Geirsson, fonnaður há- skólaráðs hins nýja háskóla, sagði við skólasetninguna að til skólans væru gerðar miklar væntingar eins og mikil aðsókn að skólanum sýndi vel. Tæplega 800 nemendur sóttu um skólavist, en skólinn gat aðeins tekið á móti 200. Auk þess stunda 100 nemendur nám á öðru ári, sem verið hafa í Tölvuháskólanum, en hann sameinast nú Viðskiptahá- skólanum. „Segja má að tengslin og nálægð- in við atvinnulífið leggi grunninn að starfsemi Viðskiptaháskólans. Það verður lögð mikil áhersla á fag- HARALDUR Sveinsson (þriðji frá hægri), fyrrverandi formaður Versl- unarráðs, og Agnes Jóhannsdóttir, eiginkona hans, voru viðstödd setn- inguna. Þar kom fram að Haraldur hefði fyrstur sett fram hugmynd- ina um að stofna viðskiptaháskóla hér á landi. VIÐSKIPTAHÁSKÓLINN er glæsileg bygging, hönnuð af Ormari Þór Guðmundssyni og Örnólfi Hall. menntun, verklega þekkingu og raunhæf viðfangsefni í kennslunni. Okkur er jafnframt ljóst að þetta eitt dugir ekki til að uppfylla óskir atvinnulífsins. Skólinn mun því jafnframt leggja áherslu á rann- sóknir og fræðimennsku, sem ætlað er m.a. að þroska hugmyndaauðgi og dýpka skilning nemenda á við- fangsefninu,“ sagði Finnur. Beini nýjum straumum í atvinnulífíð Viðskiptaháskólinn starfar á veg- um Verslunarráðs Islands líkt og Verslunarskóli Islands hefur alla tíð gert. Kolbeinn Kristinsson, for- maður Verslunarráðs, sagði að leit- ast hefði verið við að laða að skólan- um vel menntaða kennara sem væru í fremstu röð á sínu sviði. Við skólann starfa 27 kennarar sem koma víða að úr atvinnulífinu. Kol- beinn sagði að þess væri vænst að skólinn beindi nýjum straumum inn í íslenskt atvinnulíf, ekki síst með þeirri símenntun sem fyrirhugað væri að skólinn sinnti fyrir fólk sem nú starfar í íslensku atvinnulífi. Þoi-varður Elíasson, skólastjóri Verslunarskólans, sem öðrum mönnum fremur hafði í upphafi for- ystu um uppbyggingu Viðskiptahá- skólans, sagði að fyrstur til að setja fram þá hugmynd að stofna við- skiptaháskóla hefði verið Haraldur Sveinsson, fyrrverandi formaður Verslunarráðs Islands, fyrir meira en 26 árum. Með stofnun Tölvuhá- skóla árið 1988 hefði fyrsta skref að stofnun sérstaks háskóla á við- skiptasviði verið stigið. Margir hefðu unnið að því að hrinda mark- miðinu um stofnun viðskiptahá- skóla í framkvæmd og afla honum fjár, en kostnaður við byggingu skólans er um 1.500 milljónir. Kostnaður á fermetra að frátöldum vöxtum er 99.000 krónur. Þorvarður sagði að núverandi bygging gæti hýst 500 nemendur og það sem kennslu þeirra fylgdi. Þeim nemendafjölda yrði náð í lok ársins 2000 og væri brýnt að þróun háskólans stöðvaðist þá ekki. Nemendur númer eitt Þorvarður afhenti dr. Guðfínnu Bjarnadóttur rektor lykil að skóla- húsnæðinu. I setningarræðu sinni sagði hún að í skólanum yrðu nem- endur númer eitt. Markmiðið væri að búa þá undir lífið með öflugri menntun. „Það er ætlun þessa háskóla að vera í fararbroddi í landinu í við- skipta- og tölvufræðimenntun. Jafnframt ætlum við okkur að auka samkeppnishæfni íslensks atvinnu- lífs. Við vonumst til að okkur takist að ná þessum markmiðum bæði með því að þjóna nemendum í hefð- bundnu námi og einnig með því að þjóna atvinnulífinu með símennt- un,“ sagði Guðfinna. Guðfinna sagði að námið ætti að vera samþætt og stuðla að víðsýni nemenda. Námið ætti að vera hag- nýtt og það ætti að vera í stöðugri þróun. I upphafí færi námið fram í tveimur deildum, tölvufræðideild og viðskiptadeild. FJÖLMENNI var við setningu Viðskiptaháskólans. Meðal gesta var menntamálaráðherra sem flutti ávarp, HJALTI Geir Kristjánsson afhjúpaði brjóstmynd af Þorvarði Elíassyni skólameistara.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.