Morgunblaðið - 05.09.1998, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 05.09.1998, Qupperneq 8
8 LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Mun styttri vertíð en mun meiri laxveiði ' ^, v&í: GUÐLAUGUR Bergmann með 18 pundara úr Kvörninni í Haffjarðará í vikunni. Laxinn tók svarta Frances túpufiugu. NOKKUÐ á áttunda hundrað laxa hefur veiðst í Haffjarðará það sem af er sumri, en veiði lýkur þar 8. september. Þetta er þegar orðin miklu betri veiði heldur en allt síð- asta veiðitímabil og hafa skilyrði þó fjarri því alltaf verið heppileg, t.a.m. var áin afar vatnslítil, nánast vatnslaus, allan júlímánuð, er göngur eru að jafnaði hvað sterkastar. Síðasta sumar veiddust 560 lax- ar í ánni. Þó hefur vertíðin að ýmsu leyti verið mjög frábrugðin og er þá ekki átt við slakan vatns- búskap framan af sumri. „Við veiddum áður til 20. september, en styttum vertíðina um 12 daga. Þá byrjuðum við tíu dögum seinna. Við erum því með vertíð sem er 22 dögum styttri. Reynslan hefur sýnt að iðulega eru menn að lenda í alla vega skilyrðum í september, oftar slæmum en góðum og þá freistar það manna að hætta bara og fara heim. Eftir sitjum við með rekstur í veiðihúsi. Það hafði sitt að segja í þessari breytingu og eins að það er ugglaust mjög gott fyrir ána að laxinn fái frið á haustin,“ sagði Einar Sigfússon, annar eigenda Haffjarðarár, í sam- tali við blaðið. Einar sagði það áberandi hversu þyngdarskipting- in væri víð, hollin væru hvert af öðru að fá lax sem væri á bilinu 5 pund og upp í 18 pund. Stór og smár fiskur væri ævinlega bland- aður saman og það væri alls ekki víða sem slíkt fyrirfyndist. „Sá stærsti í sumar var annars 22 punda,“ bætti Einar við. Talan batnar í Hítará Hítará var lengi í gang og kenndu menn um vatnsleysi. I gær voru þó komnir alls 276 laxar á land, 251 af aðalsvæðinu, 17 af Hít- ará 2 og 8 af Hítará 3. Þá hafa veiðst 440 sjóbleikjur, mest á aðal- svæðinu. Þrátt fyrir tregveiði fram eftir öllu sumri er veiðin 1 ánni orð- in mun meiri en í fyrra, en þá veiddust alls 217 laxar. Enn eru nokkur holl eftir í ánni. Betri tala í Stóru-Laxá Heildartalan í Stóru-Laxá er mun betri í dag, eftir veiðihrotuna í upphafí vikunnar, heldur en fyrir síðustu helgi. Nú eru komnir 174 laxar á land. Þrátt fyrir veiðina á neðsta svæðinu á dögunum, er heildarveiðin þar aðeins 68 laxar. Efsta svæðið hefur gefið 78 laxa og miðsvæðið 28 laxa. í fyrra veidd- ust 359 laxar í ánni og er vandséð að áin fari fram úr því í sumar. Að vísu er veitt út september og getur því svo sem allt gengið eftir. Breskur sérfræðingur sótti ráðstefnu á fslandi um riðu Kynbætur til varn- ar riðu á Bretlandi MICHAEL Dawson starfar við til- raunastöðina í dýralækningum í Weybridge á Bretlandi og hefur stundað rannsóknir á riðu í sauðfé á Bretlandi. Hann vinnur meðal annars að því að útrýma riðu á Bretlandi og segir samstarf við bændur gott enda vilji þeir ekki missa af lestinni. „Við vitum ekki nákvæmlega hversu algeng riða er á Bretlandi, en það hefur verið tillkynninga- skylda um sjúkdóminn innan Evr- ópusambandsins frá árinu 1993, þannig að bændur ættu að greina frá tilfellum þegar grunur vaknar hjá þeim,“ sagði Dawson. „Meðal- talið hjá okkur hefur verið um 400 tilfelli á ári. Nýlega var hins veg- ar samþykkt áætlun um að bæta bændum upp tjón vegna einstakra tilfella og vonandi fær það fleiri bændur til að greina frá tilfell- um.“ Brenna hræið og greiða bændum bætur Samkvæmt núgildandi reglum á Bretlandi er dýralæknir kallaður til þegar grunur leikur á riðu. Telji læknirinn að um riðu sé að ræða er dýrinu slátrað, yfirvöld brenna hræið og bóndinn fær bætur fyrir kindina. Dawson, sem nýlega var staddur hér á landi vegna alþjóðlegrar ráð- stefnu á vegum Tilraunastöðvar- innar á Keldum um príon- og lenti- vírussjúkdóma, kvaðst vita til þess að á Islandi væri allri hjörðinni eytt á þeim bæjum þar sem greindist riða. Hann sagði að slíkt hefði aldrei komið til greina á Bretlandi. Þar með vildi hann þó ekki segja að gengið væri of langt á Islandi. „Það er erfitt að segja til um það,“ sagði hann. „Greinin er ís- lendingum mikilvæg og sjúkdóm- urinn er talinn mikið vandamál í sauðfjárrækt á Islandi. Riða er vandamál á Bretlandi, en sjúkdóm- urinn hefur verið til staðar frá upp- hafi átjándu aldar og bændur hafa þurft að venjast því.“ Riða í sauðfé telst til príon-sjúk- dóma, sem eru einstakir fyrir það að orsökin er afbrigðilegt form prí- on-próteinsins. Aðrir príon-sjúk- dómar eru riða í nautgripum og Creutzfeldt-Jakob-sjúkdómurinn í mönnum. Góðar undirtektir breskra bænda Dawson hefur greint hvert sauð- fjárkyn í fimm flokka, sem hafa mis- munandi áhættustig, sem byggjast á arfgerðum príon-próteinsins í þeim. Hann sagði að undanfarin tvö til fjögur ár hefði verið unnið að því að rækta út þau afbrigði sauðfjár, sem væru veik fyrir riðu. Aðferðim- ar snerust um erfðaval og leit að breytileika í príon-geninu. „Nokkur ræktunarfélög hafa boðist til að reyna þetta og mér sýnist að sú leið verði farin, fyrst um sinn að minnsta kosti,“ sagði hann. Að sögn Dawsons hafa bændur á Bretlandi brugðist mjög vel við þessum tilraunum. „Það sem gerist er að eitt rækt- unarfélag hefur tilraunir og annað fylgir í kjölfarið því að enginn vill missa af lestinni," sagði hann. „En menn sjá einnig að þetta er leiðin fram á við og besta tækið, sem við höfum til að ná árangri." 163. árgangur Almanaks Hl kominn út Sókn í alman- aksupplýsingar hefur aukist ALMANAK Háskóla íslands fyrir árið 1999, öðru nafni ís- landsalmanakið, er komið út í 163. sinn. Ritstjóri þess er dr. Þorsteinn Sæ- mundsson, stjömufræðing- ur hjá Raunvísindastofnun Háskóla íslands, sem séð hefur um útreikninga og búið almanakið til prentun- ar síðastliðin 36 ár. Lögum samkvæmt hef- ur Háskóh Islands einka- rétt til þess að gefa út og selja eða afhenda með öðr- um hætti almanök og dagatöl á Islandi. Alman- akið kom fyrst út hjá Kaupmannahafnarháskóla árið 1837 og er því mun eldra en Almanak Þjóð- vinafélagsins sem kom fyrst út árið 1875. „Margir rugla þessum almanökum saman, sem vonlegt er, því að Þjóðvinafé- lagið fékk í öndverðu heimild til þess að taka Almanak Háskólans upp í sitt almanak. Hefur sú hefð haldist síðan, nema 1914-1918 þegar ritin vora algerlega aðskil- in,“ segir Þorsteinn Sæmundsson. Árið 1999 er þriðja ár eftir hlaupár og fjórða ár eftir sumar- auka og þess má geta að Almanak Háskólans er eina almanakið hér- lendis sem birtir stjömufræðilegar upplýsingar fyrir almenning og margvíslegan annan fróðleik. Sem dæmi um umfjöllunarefni í fyrri almanökum má nefna hlutfall birtu og myrkurs á jörðinni, brandajól, stærð hænufetsins, heimskauts- bauginn, tíðni sól- og tungl- myrkva, tímareikning á Islandi og sólmyrkva á Islandi fram til ársins 2200. Nánari upplýsingar um alm- anakið fást á heimasíðu eftir slóð- inni www.raunvis.hi.is/~halo/alm- anak.html - Hvernig er samvinna Há- skóla Islands við aðra útgefendur? „Háskólinn hefur ekki nýtt einkarétt sinn til þess að hindra aðra útgefendur í því að gefa út almanök, síður en svo. Sífellt flem hafa áhuga á því að gefa út dag- bækur og síðasta samantekt um árlegan fjölda prentaðra dagatala leiddi í ljós 630 þúsund eintök. Era þá ótalin innflutt dagatöl. Aðrir útgefendur hafa verið að- stoðaðir með því að fá leyfi til þess að taka upplýsingar úr Is- landsalmanakinu enda er mikil- vægt að upplýsingar í almanökum séu sem réttastar. Aður fyrr bar nokkuð á misræmi enda ýmsir að fást við þessa útgáfu og stundum varð mjög meinlegur raglingur." - Hvað getur slíkur ruglingur leitt af sér? „Eitt árið bar komu þorra upp á röngum tíma í íjölda dagatala, sem til dæmis hafði áhrif á undirbúning þeirra sem framreiða þoiramat. Hjá sjónvarpinu rugl- uðust menn líka af sama tilefhi og gátu ekki breytt dagskránni þótt hið sanna kæmi I þós á síðustu stundu. Stefnan hefur því verið að láta upplýsingar í té eftir því sem mögulegt er. Raunai- hefur sókn í hvers kyns almanaksupplýsingar fram og aftur í tímann aukist til muna, sérstaklega símleiðis, og er það farið að taka fullmikið af mín- um tíma. Það verður að játast." - Hvernig hefur almanakið breyst íáranna rás? „A þeim tíma sem ég hef unnið að almanakinu hefur það fjórfald- ast að blaðsíðutali og geymir miklu meiri fróðleik en áður. Slíkt er ekki óeðlilegt enda var útreikn- Dr. Þorsteinn Sæmundsson ► Þorsteinn Sæmundsson fæddist í Reykjavík árið 1935. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólan- um í Reykjavík árið 1954 og BSc. Hons. prófi frá háskólanum í St. Andrew’s í Skotlandi árið 1958 með stjörnufræði sem aðalgrein. Að því búnu stundaði hann rann- sóknir við stjörnutum Lundúna- háskóla og lauk doktorsprófi það- an árið 1962. Umfjöllunarefni doktorsritgerðar Þorsteins var áhrif sólar á jörð, einkum orsök raðbundinna segulstorma. Hóf hann störf við Eðlisfræðistofnun Háskóla íslands, nú Raunvísinda- stofnun, árið 1963 og hefur starf- að þar síðan. Eiginkona Þorsteins er Guðný Sigrún Hjaltadóttir, sérhæfður starfsmaður á leik- skóla. Þau eiga þrjú börn. ingurinn óskapleg handavinna og tímafrekur áður en tölvumar komu til sögunnar. En þótt vinnu- brögðin hafi breyst er vinnan við það að reikna almanakið og setja ekkert áhlaupaverk. Maður þarf að vera með finguma í þessu á öll- um stigum til þess að tryggja að ekkert fari úrskeiðis. Þetta er mjög mikil nákvæmnisvinna. Þó að tölvur séu fyrir hendi þýðir það ekki að villur geti ekki komið upp. Þær geta meira að segja orðið miklu verri og afdrifaríkari ef ekki er að gætt. Einn rangur innsláttur getui- skekkt fjölda atiáða.“ - Ferðu oftyfir útreikningana? ,Áður en tölvur komu til sög- unnar unnu alltaf tvefr menn við útreikning almanaksins, reiknuðu allar tölur hvor í sínu lagi og báru saman. Samstarfsmaður minn við þetta til margra ára var Trausti heitinn Einarsson prófessor. Þessi aðferð er ekki viðhöfð lengur held- m- gripið til þess að prófa tölur hér og þar til þess að útiloka kerf- isbundnar villur. Það má nokkuð treysta því að séu gögnin í lagi og þau mötuð inn á réttan hátt verði _______ útkomurnar réttar. En setning í prentsmiðju getur líka farið úr- skeiðis þótt tölvur séu notaðar og þess vegna “”~ er alltaf þörf á ná- kvæmum prófarkalestri.“ - Ertu aldrei á nálum yfii- því að hafa gert einhver mistök ein- hvers staðar? „Jú, það er stöðugt áhyggjuefni en maður vandar sig eins og kost- ur er. Einhvern tímann taldi ég mér trú um að hægt væri að koma út almanaki þar sem hvergi væri snurða eða misfella. En ég er hættur að trúa því að slíkt sé mögulegt og prentvinnslan hefur oft síðasta orðið. Sem betur fer hafa hins vegar aldrei orðið nein meiriháttar skakkaföll.“ 630 þúsund dagatöl prent- uð árlega
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.