Morgunblaðið - 05.09.1998, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 05.09.1998, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Biskup Islands um samning um fjárhagsleg samskipti ríkis og kirkju Færir kirkjunni sjálfstæði í fjármálum Morgunblaðið/RAX ÞORSTEINN Pálsson kirkjumálaráðherra, Karl Sigurbjörnsson biskup og Geir Haarde íjármálaráðherra undirrituðu samninginn um íjármálasamskipti ríkis og kirkju í gær. BISKUP íslands, kirkjumálaráð- herra og fjármálaráðherra undimt- uðu í gær samning um fjárhagsleg samskipti ríkisins og þjóðkirkjunn- ar. Greiðir ríkið fast árlegt framlag til kirkjunnar samkvæmt ákveðnum forsendum en hún tekur við fjár- hagslegu forræði á málefnum kirkj- unnar. Framlag ríkisins til kirkj- unnar verður á næsta ári sam- kvæmt frumvarpi til fjárlaga 691,7 milljónir króna. Samningurinn felur í sér að fram- lag ríkisins er óháð því hvort öll prestsembætti eru setin eða ekki, þjóðkirkjan getur fjölgað eða fækk- að starfsmönnum eða ráðist í ný verkefni með því að færa til fé frá einum kostnaðai-lið til annars svo dæmi séu nefnd. Auki kirkjan út- gjöld umfram árlegt framlag ríkis- ins verður að mæta því með öðrum tekjustofnum eða með breytingum á starfsemi hennar. Tímamótasamningur HeiTa Karl Sigurbjömsson bisk- up sagði við undirritunina að samn- ingurinn markaði tímamót og væri niðurstaða á löngum ferli viðræðna og samninga, á tiðum deilna, um kirkjueignir og réttarstöðu kirkj- unnar, viðræðna sem átt hefðu sér stað um áratuga skeið. Hann sagði ný lög um stöðu, stjóm og starfs- hætti kirkjunnar, sem tóku gildi um síðustu áramót, ásamt samningi um kirkjueignir færa kirkjunni umtals- vert sjálfstæði og ábyrgð á fjármál- um. Sagði hann samninginn nánari útfærslu og nauðsynlega skilgrein- ingu á stöðu þjóðkirkjunnar og bisk- upsembættisins gagnvart ríkinu. Biskup þakkaði þeim fjölmörgu sem komu við sögu en starfshóp skipuðu þau Sigríður Dögg Geirs- dóttir, fjármálastjóri biskupsstofu, Ásdís Sigurjónsdóttir frá fjármála- ráðuneyti og Sólmundur Már Jóns- son frá kirkjumálaráðuneyti. Þau hafí jafnframt notið liðveislu séra Þoi'valdar Karls Helgasonar bisk- upsritara og Ragnhildar Benedikts- dóttur, ski-ifstofustjóra biskups- stofu. Þá þakkaði hann þeim Þor- steini Pálssyni kirkjumálaráðhema og Geir Haarde fjármálaráðherra, en þeir undimtuðu samninginn ásamt biskupi. Kirkjan ábyrg fyrir innri málefnum Þorsteinn Pálsson sagði að með samningnum væri ríkið skuldbundið til að láta kirkjunni í té ákveðna fjárhæð árlega en kirkjan væri hins vegar ábyrg fyrir stjórn innri mál- efna. „Hér er verið að koma þeirri skipan á að kirkjan hafi mun meira sjálfræði og sjálfstæði um það hvemig fjármunum er varið.“ Ríkissjóður greiðir árlega fram- lag vegna launa og launatengdra gjalda biskups íslands, vígslubisk- upa og 138 presta og prófasta og að auki verður gert ráð fyrir fjárfram- lagi sem nemur 70 mánaða launum vegna námsleyfa, fæðingarorlofs, veikinda og annarra launaútgjalda. Þá greiðir ríkið einnig laun 18 starfsmanna biskupsembættisins. Gert er ráð fyrir því að fjölgi með- limum þjóðkirkjunnar um 5.000 verði greidd ein prestslaun til við- bótar og einum launum færra ef þeim fækkar sambærilega. Verði prestar orðnir tíu í viðbót fást laun eins viðbótarstarfsmanns á Bisk- upsstofu greidd. Auk þessa greiðist árlega úr nTds- sjóði 89,5 milljóna króna framlag til rekstrarkostnaðar prestsembætta og prófasta og annars kostnaðar en launa, 30 milljónir ki'óna vegna ann- ars kostnaðar biskupsstofu, vígslu- biskupa og biskups íslands og árlegt framlag til kristnisjóðs skal svara til fimmtán fastra árslauna presta í fá- mennustu prestaköllunum. Er það á næsta ári ráðgert 36,4 milljónir króna. Þá segir í samningnum að ríkissjóður greiði samkvæmt fjárlög- um ár hvert sérframlög til þjóðkirkj- unnar, sem samið sé um sérstaklega, lög kveði á um eða Alþingi ákveði. I sameiginlegri frétt ráðuneyt- anna og biskupsstofu segir að þess sé vænst að með samkomulaginu sé tryggt að þjóðkirkjan geti í framtíð- inni sinnt sínu mikilvæga hlutverki á öruggum fjárhagslegum grunni. Þá er í samningi ríkisins og þjóð- kirkjunnar ákveðið að á þessu ári fái kirkjan rúmlega 75 milljóna ki'óna aukafjárveitingu og skulu 5,2 millj- ónir renna til kristnisjóðs. Eru rúm- ar 27 milljónir vegna uppsafnaðs halla fyrri ára. Fjórir dráttartrukkar og vagnar til reiðu fyrir flutning Keikós Morgunblaðið/Arni Sæberg TRUKKAR, tengivagnar, sendiferðabflar og fatnaður flutningamanna, allt í stfl. FJÓRIR dráttartrukkar og þrír sendiferðabflar hafa verið sér- stakiega sprautaðir í litum flutn- ingafyrirtækisins United Parcel Service (UPS) til að flylja Keikó og ýmislegt sem honum fylgir þegar liann kemur til landsins. Trukkana með vögnunum þarf til að flytja hann úr flugvélinni, annaðhvort frá Keflavík til Þor- Iákshafnar um borð í Herjólf eða frá flugvellinum í Vestmanna- eyjum að prammanum. Æfíng á varaáætlun, þ.e. ef lenda þarf í Keflavík, fór fram í gærmorgun. Þrír trukkar og tengivagnar voru fluttir til landsins fyrir þetta verkefni, vagnarnir fara aftur út en dráttarbflarnir verða hér áfram. Einn dráttarbflanna Farartæk- in máluð og merkt var til hér og sömuleiðis einn tengivagn. Allt hefur þetta verið sprautað hér og merkt með lit- um og einkennismerki fyrirtæk- isins og er verið að sprauta síð- asta trukkinn í dag. Það verða því tveir trukkar og tveir vagnar sem bíða Keikós bæði á Keflavíkurflugvelli og í Vestmannaeyjum. Annar trukk- anna sem eru í Keflavík er með krana og sérstakur trukkur er til að hífa búr Keikós í Vest- mannaeyjum en hann var fluttur þangað í æfingarflugi C-17A flutningavélarinnar á miðviku- dag. UPS hefur áður séð um flutn- ing á Keikó, m.a. frá Mexíkó til Oregon. Fyrirtækið er eitt stærsta hraðsendingafyrirtæki heims og hefur haft afhending- arþjónustu hér en sendiferðabfl- arnir eru vísir að meiri þjónustu fyrirtækisins hér á landi að sögn Arna Péturs Jónssonar hjá TVG Zimsen, sem hefur umboð fyrir UPS hérlendis og hefur séð um að láta sprauta farartækin og merkja. Grunnskólar Garðabæjar einsetnir í haust ALLIR grunnskólar Garðabæjar era frá og með þessu hausti einsetn- ir, flmm áram fyrr en lög gera ráð fyrir. I Garðabæ eru þrír grunnskól- ar. Alls eru 1.346 nemendur í 61 deild við nám í gi’unnskólum bæjar- ins. Nemendum í 1.-6. bekk er skipt eftur búsetu á milli Flataskóla og Hofsstaðaskóla en allir nemendur í 7.-10. bekk sækja Garðaskóla. Auk Garðbæinga eru nemendur úr Bessastaðahreppi í 8.-10. bekk í Garðaskóla. A fundi bæjarstjórnar Garðabæj- ar 3. nóvember 1994 var samþykkt að fela skólanefnd grunnskóla að gera tillögur um tilhögun og tíma- setningu nauðsynlegra fram- kvæmda vegna einsetningar gi'unn- skóla Garðabæjar. í framhaldi af samþykkt bæjarstjórnar ákvað skólanefnd Garðabæjar að láta kanna ýmsa þætti er varða einsetn- ingu og var Almennu verkfræðistof- unni hf. falið að gera athugun á upp- byggingarkostnaði einsetins skóla. Þeir þættir sem Almenna verkfræði- stofan kannaði m.a. voru húsnæðis- þörf skólanna, valkostir í bygginga- málum og stofnkostnaður vegna byggingarframkvæmda. Við mat á framtíðarhúsnæðisþörf skólanna var stuðst við spár um íbúafjölda í Garðabæ til ársins 2015 sem byggð- ust á mismunandi uppbyggingar- hraða bæjarins, annars vegar 50 nýjum íbúðum á ári og hins vegar 65 nýjum íbúðum á ári. I kjölfar skýrslu Almennu verk- fræðistofunnar og eftir ítarlega um- ræðu í skólanefnd og bæjarstjórn Garðabæjar var samþykkt að gi'unnskólar Garðabæjar skyldu ein- setnir haustið 1998 eða fimm áram fyrr en hin nýju grunnskólalög mæla fyrir um eins og áður segir. Við Flataskóla voru nú við skóla- byrjun teknar í notkun fjórar nýjar kennslustofur og sérkennslustofa. Einnig hafa breytingar og endur- bætur verið gerðai- á eldra húsnæði. Við Hofsstaðaskóla var nýr áfangi tekinn í notkun með átta nýjum kennslustofum með fylgirýmum, þar af er ein tölvustofa tengd bókasafni. Lætur nærri að samanlagður fram- kvæmdakostnaður 1996, 1997 og 1998 vegna einsetningar og endur- bóta Flata- og Hofsstaðaskóla sé um 250 milljónir króna. Ráðgert er að byggja þriðja áfanga Hofsstaða- skóla, fjórar stofur, árið 1999 en þá fjölgar deildum í skólanum. Kennsla aukin umfram lögbundnar stundir Samfara einsetningu grannskól- anna hafa bæjaryfn-völd Garðabæj- ar aukið kennslu verulega umfram lögbundnar stundir. Samtals er við- bótarkennsla 546 stundir sem jafn- gildir 19,5 stöðugildum. I Flata- og Hofsstaðaskóla er gert ráð fyrir að kennari mæti 20 mínútum fyrir kennslubyrjun og að kennari eigi sérstaka næðis- og nestisstund með nemendum en áður hefur nestis ver- ið neytt í kennslustund. ,Ávinningur af þessu fyrirkomu- lagi er m.a. aukið kennslumagn, for- eldrum gefst tækifæri á að hitta kennara fyrir skólabyrjun, meiri ró og friður í byrjun skóladags og sú krafa kennara að umsjón með bekk sé fullt starf næst fram. Hér er því um tímamót í skólastarfi að ræða,“ segir í frétt frá fræðslufulltrúa Garðabæjar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.