Morgunblaðið - 05.09.1998, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1998 13
FRÉTTIR
Kornuppskera hafin
undir Eyjafjöllum
KORNUPPSKERA hófst á
miðvikudaginn hjá bændunum
Ásgeiri Árnasyni og Kristjáni
Mikkelsen, sem búa félagsbúi í
Stóru-Mörk. Notuð er ný vél
sem búnaðarfélög Vestur- og
Austur-Eyfellinga keyptu með
stuðningi Byggðastofnunar.
Umsjónarmaður vélarinnar og
aðalsláttumaður er Einar Viðar
Víðarsson, Ásólfsskála.
Bændur voru spurðir um
uppskeruhorfur og sögðu þeir
að vel liti út með uppskeru og
kornakrar á sandrækt kæmu
fyrr til uppskeru. Um 27 bænd-
ur stunda kornrækt á tæpum
200 hekturum undir Eyjafjöll-
um og hefur mikil aukning
orðið síðustu ár, samfara betri
uppskeru árlega og öryggi í úr-
vinnslu. Þeir sögðust sjálfír
súrsa og valsa kornið og með
öllum kostnaði ef frá væri talin
eigin vinna kostaði hvert kíló
tæpar 5 kr. sem væri góð
hvatning til að afla kornsins
heima en þá væri ekki meðtal-
inn ávinningurinn við endur-
vinnslu túna. í þessu sambandi
skipti þó máli hvort markaður
væri fyrir hálminn en með auk-
inni kornrækt bænda er sýnt að
vinna þarf að þeirri markaðs-
setningu.
Morgunblaðið/Halldór Gunnarsson
Nýja vélin sem notuð er við kornuppskeruna.
Öryrkjabanda-
lagið mótmælir
Undirbúa
lögsókn á
hendur
ráðherra
FORSVARSMENN Öryrkja-
bandalags íslands segja að
skerðing tekjutryggingar til ör-
yrkja vegna tekna maka eigi
sér ekki heimild í lögurn og
hafa því falið Ragnari Aðal-
steinssyni lögmanni að undir-
búa lögsókn á hendur Ingi-
björgu Pálmadóttur heilbrigð-
is- og tryggingaráðherra.
Benda þeir á að fari mánaðar-
tekjur maka yfir 40.225 krónur
á mánuði byrji tekjutryggingin
að skerðast.
Garðar Sverrisson varafor-
maður Öryrkjabandalagsins
segir að hvorki Trygginga-
stofnun ríkisins, heilbrigðis-
ráðuneytinu, né Umboðsmanni
Alþingis hafi tekist að benda á
lagaheimild fyrir slíkri tekju-
tengingu enda sé hún ekki fyrir
hendi. Auk þess telur hann
þessa tekjutengingu vera brot
á jafnræðisreglu stjórnsýslu-
laga, stjórnarskránni, alþjóða-
samningum og mannréttinda-
sáttmálum.
Leitað til innlendra eða
erlendra dómstóla
„Við höfum verið að bíða eft-
ir því að heilbrigðisráðherra
félli frá þessari tengingu við
tekjur maka, en hún hefur enn
ekki gert það, þótt hún hafi
vitað af þessu máli í langan
tíma. Við eigum því engan ann-
an kost en að leita réttar okkar
til innlendra dómstóla og er-
lendra ef með þarf,“ segir
Garðar.
Öryrkjabandalag Islands
mótmælir ennfremur því að
hækkun frítekjumarks skuli
hafa dregist aftur úr
launaþróun á undanförnum ár-
um og segir Garðar að auki að
með því að hækka frítekjumark
um aðeins 4% á einu ári sé enn
verið að draga úr möguleikum
öryrkja til atvinnuþátttöku og
fjölskyldulífs. Vilji þeir reyna
að bæta sér upp hina lágu
tekjutryggingu megi mánaðar-
tekjur þeii’ra að hámarki nema
kr. 20.112 krónur. „Mikil um-
ræða hefur verið í þjóðfélaginu
um jaðarskatta og hefur verið
talað um að stefna að því að
minnka þá og efla fjölskylduna
sem grunneiningu og hornstein
þjóðfélagsins. Það að frítekju-
markið skuli ekki hafa hækkað
nema 11% á síðustu fimm árum
gengur í þveröfuga átt við
þetta og minnkar möguleika ör-
yi-kja á að bæta sér upp lágar
bætur og ennfremur möguleika
þeirra til hjónabands og fjöl-
skyldulífs,“ segir Garðar.
100.000kr. vssrðla
í:
Samband ungra sjálfstæðismanna boðartil ritgerðar-
samkeppni um ísland tækifæranna fyrir alla á aldrinum
16-35 ára. Markmið keppninnar er að fá ungt fólk til að
velta fyrir sér hvernig land það vill byggja og hvaða
væntingar það hefur til framtíðar. Meginþema keppninnar
er ísland tækifæranna en efnistök eru að öðru leyti frjáls.
Skilafrestur rennur út mánudaginn 26. október.
Umsjón: Áslaug Hulda Jónsdóttir
Upplýsingar á www.xd.is/sus/ísland
SAMBAND UNCRA
SJÁLFSTÆÐISMANNA
H5 am j
. ■ -»■ - v Skilafrestur rennur út mánudaginn 26. október.
‘ Umsjón: Áslaug Hulda Jónsdóttir
JbJjJL. Upplýsingar á www.xd.is/sus/island
\Wr. í'cisw Æ5 Jm S
í/
tækiíæranna
Fjölmargt er á döfinni hjá SUS. Þar á
meðal má nefna ráðstefnu um
markaðslausnir í umhverfismálum sem
haldin verður 25. september nk. Auk
þess verður haldinn glæsilegur Frelsis-
kvöldverður þann 26. september þar
sem EYC, Evrópusamtök ungra hægri-
manna, heiðra Davíð Oddsson
forsætisráðherra fyrir störf hans í þágu
frelsis.
Máleínaíundir
Umsjón:
Sigmundur Sigurgeirsson og Auður
Finnbogadóttir.
Fáðu nánari upplýsingar á heimasíðu SUS
www.xd.is/sus/
Eftirtalin fyrirtæki taka þátt í að styrkja verkefnið
island tækifæranna:
SIÓVÁ-AIMENNAR
Fundirnir eru liður í undirbúningi málefnaþings SUS í Garðabæ
helgina 3.-4. október . Fundirnir verða í Valhöll, Háaleitisbraut 1
og eru áhugasamir hvattir til að taka virkan þátt.
Menntun og framtíðarsýn
Umsjón: Jónas Þór Guðmundsson og Svanhildur
Hólm Valsdóttir
1. fundur þriðjudaginn 15. septemþer kl. 17:30
2. fundur fimmtudaginn 17. september kl. 17:30
Frelsi einstaklingsins
Umsjón: Sigurður Kári Kristjánsson og Hafsteinn
Þór Hauksson
1. fundur fimmtudaginn 10. september kl. 17:30
2. fundur miðvikudaginn 16. september kl. 17:30
Atvinnulífíð og þróun þess
Umsjón: Arnar Þór Ragnarsson og Heiðrún
Hauksdóttir
1. fundur þriðjudaginn 8. september kl. 17:30
2. fundur fimmtudaginn 17. september kl. 17:30
Fjölskyldan í nútímaumhverfí
Umsjón: Ásdís Halla Bragadóttir og Jens Garðar
Helgason
1. fundur þriðjudaginn 8. september kl. 17:30
2. fundur þriöjudaginn 15 september kl. 17:30
Mutverk hins opinhera
Umsjón: Haraldur Johannessen og Einar örn
Arnarsson
1. fundur mánudaginn 7. september kl. 17:30
2. fundur mánudaginn 14. september kl. 17:30
VÍÓ
VSÓ RÁÐGJÖF EHF.
Wkögun
®TOYOTA
Takn um gæöi
Sjávarútvegsmál
Umsjón: Ingvi Hrafn Óskarsson
1. fundur miðvikudaginn 9. september kl. 17:30
2. fundur miðvikudaginn 16. septemberkl. 17:30
Heilbrigðismál
Umsjón: Bjarni Þór Eyvindsson
1. fundur mánudaginn 7. september kl. 17:30
2. fundur mánudaginn 14. september kl. 17:30