Morgunblaðið - 05.09.1998, Síða 27

Morgunblaðið - 05.09.1998, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1998 27 Israel Efnt til kosninga? Jerúsalem. Reuters. BENJAM|N Netanyahu, forsætis- ráðherra Israels, gaf það í skyn í gær að hann myndi rjúfa þing og boða til kosninga ef stjórnarliðar standi ekki að baki honum í friðar- samningum við Palestínumenn. Netanyahu lét ummæli þessa efnis falla í viðtali við tyrkneska dagblaðið Turkish Daily News en von er á Dennis Ross; erindreka Bandaríkja- stjórnar, til Israel að miðla málum á milli ísraelsstjómar og sjálfsstjóm- ar Palestínumanna. Yasser Arafat sagði í gær að enn bæri mikið í milli Palestínu og Isra- els í afstöðu til tillagna Bandaríkja- stjórnar um „land fyrir öryggi“. For- sætisráðherra Israels segir hins veg- ar deilendur vera að nálgast sam- komulag, aðeins skorti pólitískan vilja Palestínumanna. Hann sagðist einnig ekki mundu líða andstöðu stjórnarliða við samkomulag sem hann teldi uppfylla skilyrði Israels- stjornar um öryggi. Krabbameins- rannsóknir Misvís- andi nið- urstöður Washington. Reuters. BANDARÍSKIR vísindamenn greindu frá því í vikunni að þeir hefðu bæði góðar og slæmar fréttir að færa varðandi með- ferð á ristilkrabbameini, og að jafnvel væri hægt að koma í veg fyrir það. Visindamennimir sögðu að lyf, sem talið hefur verið að gætu jafnvel komið í veg fyrir ristilkrabbamein, hefðu greini- lega áhrif á æxlisþróun, en vís- bendingar hefðu bæði fundist um að lyfið stöðvaði þróunina og að það ýtti undir hana. Lyfið sem um er að ræða heitir troglitazone og hefur ver- ið selt undir vömheitinu Rezul- in. Þetta er nýtt sykursýkilyf og virkar vel sem slíkt. Hins vegar hefur komið í ljós að það getur valdið lifrarskemmdum. Niður- stöður tveggja bandarískra rannsókna á áhrifum lyfsins á krabbamein í ristli stangast á. Vekur fleiri spurningar Niðurstöðurnar em birtar í vísindaritinu Nature Medicine, og í leiðara segir að rannsókn- irnar veki jafnmargar spurning- ar og þær svari. Um hálf milljón manna lést úr ristilkrabbameini í heiminum í fyrra. Þetta er ein banvænasta tegund krabba- meins og er talið að fituríkt fæði auki hættuna á þvi, en ávextir og grænmeti dragi úr henni. Fylgstu með nýjustu fréttum á fréttavef Morgunblaðsins www.mbl.is Fyrir frægðina London. The Daily Telegraph. BRESKA sjónvarpsstöðin Channel 4 hefur hætt við að senda út þátt um feður og dæt- ur því í ljós kom að eitt parið í þættinum var ekki feðgin held- ur kærustupar. Stúlkan, Victoria Greetham, 19 ára, hefur viðurkennt að hafa blekkt framleiðendur þáttarins „Pabbastelpa" vegna þess að hún vonaði að það myndi auðvelda sér að ná frama í fyrirsætustarfi ef hún kæmi fram í sjónvarpi. Þátturinn átti að fjalla um þrjá feður og dætur þeirra, þ.á m. Victoriu og meintan föð- ur hennar, Marcus. Voru þau valin til að koma fram í þættin- um vegna þess að samband þeirra þótti „óvenju náið“. En í ljós kom að Marcus hét reynd- ar Stuart Smith, 29 ára, og er unnusti Victoriu. Raunveruleg- ur faðir hennar, Geoff Greet- ham, sagði sjónvarpsstöðinni frá því hvernig í pottinn var búið. Stuart, sem hefur hlotið dóm fyrir Qársvik, og Victoria gáfust ekki upp þótt þau væru afhjúpuð og reyndu enn að villa um fyrir blaðamanni Daily Telegraph fyrr í þessari viku. Faðir Victoriu segir hana hafa orðið sér til minnkunar með framferðinu. „Ég skil ekki hvernig stúlku, sem hlotið hef- ur gott uppeldi og alltaf gengið vel í skóla, dettur í hug að gera þetta,“ sagði Geoff Greetham. Hann bætti þó við að Victoria hefði alla tíð verið svarti sauð- urinn í fjölskyldunni. Channel 4 grófst fyrir um málið og aflýsti útsendingu þáttarins skömmu síðar. „Við höfum ekki orðið fyrir svona stórfelldri og úthugsaðri blekk- ingu fyrr,“ sagði talsmaður stöðvarinnar. Victoria sagði að sjónvarps- stöðin hefði náð sambandi við sig í gegnum fyrirsætuskrif- stofu sem hún ynni hjá. Faðir sinn hefði í fyrstu samþykkt að koma fram í þættinum en svo hætt við og þá hafí unnustinn fallist á að hlaupa í skarðið. „Það vilja allir vera í sjón- varpinu og ég vildi ekki missa af tækifærinu," sagði Victoria. „Við héldum að við myndum bara þurfa að þykjast einu sinni en sjónvarpsliðið kom til okkar sjö eða átta sinnum." Hún kveðst óánægð yfír því að útsendingunni skuli hafa verið aflýst. „Eg var viss um að þetta yrði mjög gott fyrir fyrirsætu- framann." í tilefni 50 ára afmælis Land Rover kynnum við einstaklega vel búna afmælisútgáfu Rover Defender 90. Afmælisjeppinn er á 32" dekkjum og álfelgum, með stuðaragrind og kösturum. Athugaðu, aðeins nokkrir bflar! af Land

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.