Morgunblaðið - 05.09.1998, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 05.09.1998, Qupperneq 30
30 LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1998 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/RAX ÞESSUM færeysku ungmennum glýjaði fyrir augu af birtunni og ennþá er það sólin en ekki svarta gullið, sem skín skærast yfir eyjunum. Oþreyjufull bið Færey- inga eftir olíiuevintýri FÆREYINGAR hafa átt í erfíðri deilu við Breta um nokkurt skeið og ekki um neina smámuni, heldur hugsanlega um þúsundir milljarða íslenskra kr. Þá er átt við olíuna, sem líklega er að finna undir land- grunninu, en engin sátt er um hvemig því skuli skipta. Breskir embættismenn og dansk-færeysk viðræðunefnd hafa rætt þetta mál fram og aftur árum saman og nú er komið að því að hrökkva eða stökkva. Annaðhvort leysist deilan í viðræðum æðstu ráðamanna eða henni verður vísað til Alþjóðadóm- stólsins í Haag. Anfinn Kallsberg, nýr lögmaður Færeyja, hefur lýst yfir, að olíu- málið og deilan við Breta verði for- gangsmál sitt og stjórnarinnar og hann segist hafa sett sig svo vel inn í málið, að hann viti nú hvernig það skuli leysa. Enn sem komið er hef- ur hann þó ekki skýrt öðrum frá því og segist ætla að kynna það fyrst íyrir utanríkismálanefnd lög- þingsins. Borunarleyfi boðin út Færeyingar leggja mikla áherslu á, að deilan um land- grunnsskiptinguna verði leyst með viðræðum þar sem það gæti tekið Aiþjóðadómstólinn þrjú til fimm ár að komast að niðurstöðu. Snýst ágreiningurinn aðallega um land- grunnið milli Hjaltlandseyja og Færeyja en innan bresku efna- hagslögsögunnar þar hefur fundist mikil olía og meðal annars aðeinsJ nokkurra mílna fjarlægð frá fær- eysku lögsögunni. í Færeyjum er undirbúningur undir hugsanlega olíuvinnslu kominn það langt, að líklega verða fyrstu borunarleyfin boðin út fyrir áramót. Formaður dönsk-færeysku við- ræðunefndarinnar er Færeyingur- inn Árni Ólafsson og hefur hann fengið frí hjá danska utanríkis- ráðuneytinu til að vinna að þessu máli. Telur hann, að það skipti Færeyinga meiru en Breta að fá botn í það sem fyrst. Þar sem engin lausn hefur fund- Færeyingar hafa gengið í gegnum miklar þrengingar á síðustu árum en nú vonast þeir til, að olían muni gera þá ríka að því er segir í grein eftir Randi Mohr, frétta- ritara Morgunblaðsins í Þórshöfn. Fyrst þarf þó að semja við Breta um skiptingu landgrunnsins. ist enn hafa Færeyingar og Bretai' ákveðið sín eigin landgrunnsmörk til bráðabirgða og liggja þau ná- lægt miðlínunni milli landanna. Er svæðið á milli þein-a allstórt þegar á heildina er litið, um 40.000 ferkm, eða álíka stórt og Danmörk. Verða viðræður um þetta svæði, hvíta svæðið eins og það er kallað, geymdar til betri tíma og einnig um Rockall-svæðið en Arni segir, að þar hafi einnig írar og íslend- ingar uppi kröfur. Arni telur, að vel hafi miðað í viðræðunum við Breta að sumu leyti enda hafi þeir slegið verulega af upphaflegum kröfum sínum. Þrátt fyrir það sé ekki útilokað, að deilan fari fyrir Alþjóðadómstóhnn í Haag. Miðlínan ráði Er Poul Nyrup Rasmussen, for- sætisráðherra Danmerkur, kom til Færeyja í janúar sl. kvaðst hann fús til að ræða þessi máli við bresk- an starfsbróður sinn, Tony Blair, ef Færeyingar óskuðu eftir og Ed- mund Joensen, þáverandi lögmað- ur, bað hann um það að bragði. Þegar Anfinn Kallsberg tók við lögmannsembættinu vildi hann hins vegar setja sig fyrst vel inn í málið til að hann gæti ákveðið hvernig Nyrup ætti að halda á því við Blair. Krafa Færeyinga er, að miðlínan milli landanna ráði skiptingu land- grunnsins og raunar lögðu Bretar sjálfir til fyrir 20 árum, að efna- hagslögsagan yrði sniðin að henni. I upphafi viðræðnanna nú vildu Bretar hins vegar, að land- grunnslínan lægi miklu nær Færeyjum en miðlínan og rök- studdu það með lengd skosku strandlengjunnar, sem veit að Færeyjum. Segir Árni ekki koma til greina að verða við því svo löngu eftir að sátt náðist um skiptingu efnahagslögsögunnar og hann hall- ast raunar æ meira að því, að nauð- synlegt sé, að Alþjóðadómstóllinn skeri úr um málið. Segist hann ekki óttast niðurstöðu hans. Það, sem vefst fyrir Færeying- um, er aftur á móti, að málarekst- urinn í Haag gæti staðið í ein fimm ár og með öllu er óvíst, að boranir gætu hafist að ráði fyrr en að hon- um loknum. Ótímabærar leyfísveit- ingar gætu haft slæm áhrif á við- ræðurnar við Breta og því eru Færeyingar tilbúnir til að bíða með þær í von um að lausn finnist á næstu vikum eða mánuðum. Mikill olíufundur Á þeim tíma, sem liðinn er síðan viðræðurnar um landgrunnsskipt- inguna hófust, hafa Bretar fundið mikla olíu innan sinnar lögsögu við Hjaltlandseyjar. 1993 fundu þeir Foinavin-svæðið og hófu þar fram- leiðslu 1997 og skömmu síðar fundu þeir Schiehallian-svæðið, sem er stærra, og þar er fram- leiðsla um það bil að byrja. Suil- ven-svæðið fannst fannst 1996 og bíður þess að vera nytjað og auk þess hafa Bretar fundið svæði, sem þeir kalla Eclair og er talið vera mjög olíuauðugt. Síðasti olíufund- urinn átti sér stað fyrir aðeins tveimur eða þremur vikum, við mörk færeysku efnahagslögsög- unnar og á hvíta svæðinu svokall- aða. Talið er, að þar sé að finna 400 milljónir tunna af olíu. Öll olíu- svæðin, sem fundist hafa innan bresku efnahagslögsögunnar við Hjaltlandseyjar, eru rétt við fær- eysku landhelgismörkin. Þessir olíufundir hafa að sjálf- sögðu aukið áhuga stóru olíufélag- anna á að bora í færeyska land- grunninu enda er það jarðfræði- lega það sama og grunnið fyrir vestan Hjaltland. Þess vegna er talið meira en líklegt, að þar sé einnig að finna olíu. Um 20 olíufélög tilbúin til leitar Færeyski jarðfræðingurinn Martin Heinesen, sem unnið hefur að ýmsum rannsóknum á land- grunninu, segir, að nú séu um 20 alþjóðleg ohufyi-irtæki að búa sig undir ohuleit og olíuvinnslu við Færeyjar. Er lögþingið að vinna að nauðsynlegri löggjöf varðandi þessa starfsemi og atvinnulífið á eyjunum ætlar að taka sinn þátt í ævintýrinu. Hefur verið stofnað fyrirtækið Atlantic Petroleum og eingöngu fjármagnað af færeysk- um einkaaðilum. Þótt ekki hilli enn undir lausn í deilu Færeyinga og Breta er þó ekki loku fyrir það skotið, að bor- anir hefjist á næsta ári. Olíufélögin hafa nefnilega áhuga á ýmsum svæðum, sem óumdeilanlega eru á færeyska landgrunninu. Færeyingar bíða sem sagt óþreyjufullir eftir olíuævintýrinu sínu og ef af því verður munu þeir hætta að þiggja 10 milljarða ísl. kr. árlega af Dönum. Hefur um það verið samið og einnig, að olíutekj- urnar væntanlegu verði notaðar meðal annars til að greiða tugmillj- arða skuld Færeyinga við danska ríkissjóðinn. Bdist við Bondevik eftir 2 vikur TALIÐ er líklegt að Kjell Magne Bondevik, forsætisráðheira Nor- egs, snúi aftur til stai-fa eftir um tvær vikur en hann tók sér viku veikindaleyfi í byrjun vikunnar. Norska blaðið Aítenposten greindi frá því í gær að nánustu samstarfs- menn forsætisráðheiTans hefðu hvatt hann til að taka lengra leyfi til að hann gæti náð sér að fullu. Til stóð að Bondevik færi til Mið-Aust- urlanda í næstu viku en þeirri ferð hefur verið aflýst. Blaðið hefui’ einnig efth’ heimild- ai-mönnum að forsætisráðherrann þjáist ekki af þunglyndi. Hins vegar hafi hann upp á síðkastið haft á til- finningunni að vandamál, sem hann hefði ekki áhrif á, hefðu hrannast upp. Káre Willoch, fyiTverandi for- sætisráðherra, hefur lýst þeirri skoðun sinni að hann telji að Bondevik hafí tekið vaxtahækkanir og gengissig síðustu vikna inn á sig persónulega. Það hafi ekki síst verið vegna þess að fyrir liggi nú að hinar efnahagslegu aðstæður muni knýja ríkisstjórnina til að leggja fram fjár- lagafrumvarp sem ekki uppíýllir væntingar forsætisráðherrans. Haft er eftir nánustu aðstand- endum Bondeviks að hann hafi virst vera að brenna út en tekist hafi að sannfæra hann um að taka sér leyfi áður en ástandið yrði alvarlegra. Veikindaleyfið hafi því, að sögn þessara heimildarmanna, átt að fyr- irbyggja veikindi fremur en að lækna þau. --------------- Þvingaður til játningar? MOHAMED Sadeek Odeh, annar mannanna tveggja, sem handteknir hafa verið grunaðir um aðild að sprengjutilræðinu við sendiráð Bandaríkjanna í Kenýa í fyrri mán- uði, sakar pakistönsk yfirvöld um illa meðferð og segist hafa verið þvingaður til játningar. Lögfræðingur Odeh greindi frá því að skjólstæðingi sínum hefði verið neitað um mat, drykk og svefn í þrjá daga áður en hann var þvingaður til þess að játa á sig upp- lognar sakir, að því er fram kemur í Washington Post. Einnig hafi yfir- völd í Pakistan haldið þungaðri eig- inkonu Sadeek Odeh og hótað að fangelsa hana ef hann játaði ekki á sig aðild að sprengingunni í Nairóbí sem varð 253 mönnum að fjörtjóni. Mohamed Sadeek Odeh, sem var fluttur til Bandaríkjanna í síðustu viku, hefur ekki játað aðild að sprengingunni fyrir saksóknara þar en rétta á í máli hans innan skamms. --------------- Stúdentar mótmæla í Búrma Rangoon. Reuters. ÓEIRÐALÖGREGLA í Búrma umkringdi háskólalóð í gær eftir að stúdentar höfðu gripið til mótmæla vegna fyrirhugaðs flutnings Tækniháskólans í Rangoon. Stúdentarnir, sem voru .5-900 talsins, höfðu efnt til setuverkfalls á skólalóðinni vegna óánægju með flutning skólans. í gær reyndu erlendir stjórnarerindrekar í Rangoon að fá staðfestingu á því hvort óeirðalögreglan hefði tekið 100 stúdenta höndum. Mótmælin eru þau mestu sem námsmenn í Búrma hafa haft í frammi í um tvö ár.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.