Morgunblaðið - 05.09.1998, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1998 31
NEYTENDUR
Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna
Það er til leið
úr greiðsluvanda
►Núna em orsakir fjárhags-
erfiðleika m.a. lántaka um-
fram greiðslugetu, tekju-
lækkun, atvinnuleysi,
óráðsía í fjármálum,
veikindi eða gylliboð á
lánamarkaði.“
UM 1.400 fjölskyldur
hafa leitað aðstoðar hjá
Ráðgjafarstofu um
fjármál heimilanna
frá því hún hóf störf
fyrir um tveimur árum.
Fjárhagsstaða þessara
íslensku heimila
hefur oft verið skelfi- in “
leg, segir forstöðumað- Hjáipum fóiki tn sjáifshjáipar
BSRB, Reykjavíkurborg, Húsnæðis-
stofnun ríkisins, lífeyrissjóðir,
Bændasamtökin, Stofnlánadeild
landbúnaðarins, Samband íslenskra
sveitarfélaga og Neytendasamtök-
ur stofnunarinnar.
ÞAÐ eru mánaðamót og tekjur hjá
fjögurra manna fjölskyldu duga ekki
einu sinni fyrir skuldum hvað þá
heldur nauðsynjum til heimilisins.
Það er búið að loka fyrir yfirdráttinn
á debetkortinu og aðvaranir frá
greiðslukortafyrirtækinu eru meðal
gluggaumslaga. Lán era komin í
vanskil, óopnuð umslögin liggja í
hrúgu og útlitið er dökkt.
En Elín Sigrún Jónsdóttir, for-
stöðukona Ráðgjafarstofu um fjár-
mál heimilanna, segir að fólk sem
þekki sig í þessu dæmi megi ekki
leggja árar í bát, það sé leið úr öllum
vanda og bendir á að það sé einmitt
markmið Ráðgjafarstofunnar - að
gera tillögur um lausn á greiðslu-
vanda fólks.
„Yfu’leitt felst vandi þeirra sem til
okkar leita í því að tekjur þeirra og
umsamdar afborganir lána er nánast
sama fjárhæðin. Sá kostnaður sem
þarf til framfærslu fjölskyldunnar
hleðst upp sem vanskil með tilheyr-
andi kostnaði og dráttarvöxtum
mánaðarlega og nokkurra mánaða
vanskil verða á fáum mánuðum að
einni milljón króna.“
- Hvei'su slæm þarf staðan að vera
svo fólk eigi rétt á þjónustu Ráð-
gjafastofunnar?
„Aðgangur er opinn öllum þeim
sem ekki hafa önnur úrræði s.s. að
leita ráðgjafar hjá sínum viðskipta-
banka, Húsnæðisstofnun ríkisins eða
öðrum sem standa að Ráðgjafarstof-
unni og veita ráðgjöf. Að Ráðgjafar-
stofunni standa ýmsar stofnanir og
félagasamtök, bankarnir, félags-
málaráðuneytið, þjóðkirkjan, ASI,
„Við veitum fólki endurgjaldslausa
aðstoð við að fá yfirsýn yfir stöðu
mála, hjálp við að gera greiðsluáætl-
anir og velja úrræði svo og semja við
iánardrottna."
Elín segir að starf ráðgjafanna
miðist við að hjálpa fólki til sjálfs-
hjálpar. „Þess vegna höfum við valið
þá leið að beina öllum upplýsingum
og tillögum til umsækjandans sjálfs
en ekki lánastofnana. Þegar ráðgjaf-
inn hefur unnið að tillögum fyrir um-
sækjanda era honum kjmntar tillög-
ur til lausnar og honum gerð grein
fyrir stöðu mála. Bréfinu fylgja fjár-
hagsyfirlit um stöðuna og hvernig
hún getur breyst ef tillögur Ráð-
gjafarstofunnar ná fram að ^
ganga. Við leggjum
áherslu á að setja allar
upplýsingar fram á auð-
skiljanlegan hátt svo
skjólstæðingar okkar skilji
og geti gert sínum lánar-
drottnum grein fyrir tillögum
til lausnar á vandanum.“
- Hvernig er staða þeirra sem til
ykkar ieita?
„Hún er í mörgum tilfellum
skelfileg og fólk er yfirleitt löngu
hætt að hafa yfirsýn yfir fjárhags-
stöðuna. Það kvíðir framtíðinni og
oft fylgja ýmis önnur vandamál
þegar fjármálin hafa farið úr bönd-
unum. Þess vegna höfum við náið
samstarf við kirkjuna sem aðstoðar
okkur og við beinum fólki til Fjöl-
skylduþjónustu kirkjunnar og annað
líka ef því er að skipta.“
Elín segir að meirihluti þeirra sem
leiti til Ráðgjafai'stofunnar séu hjón
eða fólk í sambúð.
„Að meðaltali skulda hjón og sam-
búðarfólk sem til okkar leitar um 7
milljónir króna, þar af nema vanskil
►Að meðaltali skulda hjón og
sambúðarfólk sem til okkar
leitar um 7 milljónir króna, þar
af nema vanskil 1,5 milljónum
króna. Algengasti aldurshóp-
urinn sem til okkar leitar er
fæddur á árunum 1950-1959.
ELIN Sigrún Jónsdóttir, forstöðumaður Ráðgjafarstofu
um fjármál heimilanna.
1,5 milljónum króna. Algengasti ald-
urshópurinn sem til okkar leitar er
fæddur á árunum 1950-1959.“
Elín segir athyglisvert að aðeins
35% umsækjenda á íbúðir á almenn-
um markaði og eru eigendur félags-
legra eigna um 23%. „Þetta þýðir að
42% umsækjenda eiga ekki eigið
húsnæði en bera samt sem áður
ábyrgð á 22% af heildarskuldbind-
ingum umsækjenda.“
Astæður fyrir miklum skuldum
þessa eignalausa hóps segir Elín að
megi fyrst og fremst rekja til með-
lagsskulda, eigin atvinnurekstrar
eða að viðkomandi hafi misst eign
sína á nauðungarsölu.
- Hver er vandi umsækjenda?
„Greiðsluerfiðleikar íslenskra
heimila hafa
stöðugt farið
vaxandi.
Rætur vandans fólust í skorti á láns-
fé til lengri tíma sem leiddi til þess
að fólk réðst í húsnæðiskaup með
mikið af skammtímalánum. Núna
eru orsakhnai' m.a. lántaka umfram
greiðslugetu, tekjulækkun, atvinnu-
leysi, óráðsía í fjármálum, veikindi
eða gylliboð á lánamarkaði."
Lánamarkaðurinn hefur breyst
mikið og Elín bendir á að framboð sé
orðið meira en eftirspurn. „Heimili
eru umvafin tilboðum um að eignast
skuldir með einföldum hætti. Fyrir
jólin var neytendum sagt að hafa
ekki fjárhagsáhyggjur yfir jólin
heldur skipta greiðslum á Visa á
næsta eina og hálfa árið. Fólki býðst
að kaupa á raðgreiðslum fatnað, hús-
búnað, sólarlandaferðir og hvað
eina.“
Eignalaust fólk fær
100% lán fyrir bfl
„Þá spyrjast tilboðsgjafar ekld
alltaf fyrh' um greiðslugetu lántaka
heldur biðja um ábyrgðir. Bílalán
eru glöggt dæmi um slík vinnubrögð.
Dæmi eru um að eignalaust fólk fái
100% lán fyrir bíl. Lánið er veitt
gegn tryggingu í bílnum og ábyrgð
tveggja fasteignareigenda. Við erum
með dæmi um eignalaust fólk sem á
skömmum tíma hefur eignast stórar
skuldh gegn ábyrgðum foreldra,
vina og ættingja. Það má því rekja
stóran hluta vandans til þeirrar út-
lánastefnu sem tíðkast hérlendis,
að fólk taki lán gegn ábyrgð þriðja
manns án tillits til greiðslugetu.“
Elín segir að lánum sé skuld-
breytt aftur og aftur og vandinn
hleðst upp eins og snjóbolti. „Lán-
takendur skuldbreyta lánum sem
er oft óraunhæf leið til að fría
ábyrgðarmann um stundarsakir."
- Hvað er til ráða til að sporna við
þessum fjárhagserfiðleikum ís-
lenskra fjölskyldna?
„Það þai'f fyrst og fremst að
breyta viðhorfi til lántöku og taka
upp ný vinnubrögð við lánveitingar.
Mat á greiðslugetu þarf að vera í
öndvegi við ákvörðun lánveitinga og
ábyrgðir eiga að vera undantekn-
ing.“
Þá segir Elín að neytendafræðsla
um fjármál heimilanna sé í lágmarki
og hún segir nauðsynlegt að koma á
slíkri fræðslu í skólum. „Það þarf að
kenna nemendum að reikna út veð-
skuldabréf, taka gylliboð með fyrir-
vara og síðast en ekki sist þá þarf að
kenna þeim sparnað og fyrh'hyggju."
Þarf hvata til sparnaðar
„Stjórnvöld þurfa Iíka að gera
átak í að efla sparnað á heimilum.
„Við erum enn að súpa seyðið af
verðbólguárunum en sparnaður er
snar þáttur 1 að fyrirbyggja
greiðsluvanda. Skyldusparnaður
ungmenna sem nú er aflagður
gegndi mikilvægu hlutverki við
kaup á fyrstu íbúð og sérstökum
hússnæðissparnaðarreikningi í inn-
lánsstofnunum hefur einnig verið
lokað. Reglur laga um tekju- og
eignarskatt um lækkun á tekju-
skattstofni vegna hlutabréfakaupa
hafa reynst hvati til sparnaðar en
nú er stefnt að því að fella endur-
greiðslurnar niður. Ailur hvati til
sprnaðar hefur verið felldur niður
um leið og neytendur hafa lært að
tileinka sér reglurnar. Það er geysi-
lega mikilvægt að nýr farvegur sé
fundinn fyrir hvata til sparnaðar.
Leggi fólk fyrir 10.000-15.000
krónur á mánuði er það komið með í
hendumar að minnsta kosti hálfa
milljón eftir nokkur ár og sú upphæð
dugar til viðhalds á bíl eða húsnæði í
stað þess að taka lán. Auk þess ættu
allir að leggja til hliðar í lífeyris-
sparnað.“
- Hvers vegna heldur þú að fólk
spari ekki?
„Fyrir utan það að fólk er alls ekki
hvatt til spamaðar þá treysta marg-
ar fjölskyldur sér ekki til að sjá af
þessum peningum. Stór hópur fólks
telur engu að síður að sig muni ekki
um að semja um raðgreiðslusamn-
inga og við sjáum ótrúlegan fjölda
raðgreiðslusamninga hjá heimilum
hér á Ráðgjafarstofu."
Hárkremið sem olli slysi
Öll efni í hár-
kreminu leyfileg
SÍÐASTLIÐNA verslunarmanna-
helgi varð ungur maður fyrir því
óhappi að fá hárkrem af gerðinni
Crew í augun. Eftir að maðurinn
hafði borið kremið í hárið lenti
hann í mikilli rigningu svo að krem-
ið rann niður í augun. Samkvæmt
upplýsingum frá lækni fann maður-
inn strax fyrir sviða í augum. Þrátt
fyrir það liðu u.þ.b. tólf tímar þai' til
hann leitaði til læknis. Þá var orðið
of seint að koma í veg fyrir efna-
brana með skolun með vatni. I
fréttatilkynningu frá Hollustu-
vernd ríkisins kemur fram að hár-
kremið er samsett úr 18 efnum sem
öll eru leyfð í snyrtivörur skv.
reglugerð nr. 690/1994 um snyrti-
vörur. Efnin era m.a. vatn, yfir-
borðsvirk mýkingar- og afrafmögn-
unarefni, virk efni unnin úr jurtum,
leysiefni og rotvarnarefni.
„Einu innihaldsefnin sem bundin
eru ákveðnum skilyrðum eru rot-
vai-narefnin, en þau eru aðeins
leyfð í takmörkuðum styrk. Upp-
lýsingar frá framleiðanda vörunnar
sýna að magn allra rotvarnarefna í
vörunni er innan leyfilegra marka.
Á vöru sem þessari er ekki kraf-
ist vamaðarorða eða áletrana á ís-
lensku. Þó má geta þess að í 6. jgr.
reglugerðarinnar segir m.a.: „Ilát
og umbúðir snyrtivörar skulu
merktar með óafmáanlegu, auðlæsi-
legu og greinilegu letri.“ Það getur
talist álitamál hvort áletranir á um-
búðum Crew-hárkremsins uppfylli
þessi skilyrði vegna þess hve letur á
umbúðum er smátt. Ekki verður þó
séð að það hafi skipt máli í sam-
bandi við framangreint slys, en á
umbúðunum var þó varað við að
kremið bærist í augu.“
Sykurlaus háls-
brjóstsykur
HEILDVERSLUNIN Norco sf.
hefur sett á markað hálsbrjóstsyk-
urinn Em-Eukal. Brjóstsykurinn á
að mýkja og kæla hálsinn og fæst
með mentolbragði og síðan með
sérstaklega sterku mentolbragði.
Báðar gerðir eru fáanlegar syk-
m-lausar og er í staðinn notað
sætuefnið Isomalt. Innihaldslýs-
ingar eru á ensku og umbúðir eru
merktar með „Best fyrir" dagsetn-
ingu. Em-Eukal fæst í apótekum
og víðar.
www.mbl l.is
Nýtt
Föndur- og
gjafavöru-
verslun
í DAG, laugardag, verður opnuð ný
verslun við Langholtsveg 111 sem
heitir Föndra. Þar verður hægt að
kaupa ýmsar föndurvörar og lögð
sérstök áhersla á akrýlliti, stensla
og ýmsar trévörur. Nýjung hjá
versluninni eru litirnir Perm enem-
el en þá er hægt að nota til að mála
beint á ýmsar vörar eins og leirtau.
Ekki þarf að brenna litina á og þeir
þola uppþvottavél. Boðið er upp á
námskeið í meðferð lita og stensla á
trévörur og tau. Þá verðui' einnig á
GUÐBJÖRG Ingólfsdóttir, eig-
andi Föndru, ásamt Ingveldi
Eyjólfsdóttur.
boðstólum gjafavara frá Bandaríkj-
unum.
Eigandi er Guðbjörg Ingólfsdóttir.
Verslunin er opin alla virka daga frá
10-18 og á laugardögum frá 10-16.
VEISLUR - TEITI - SAUMAKLÚBBAR -
ÓVÆNTIR GESTIR - BARA MEÐ FJÖLSKYLDUNNI
LAUSNIN ER HJÁ OKKUR
LA BAGUETTE
franskar vörur - tilbúnir réttir,
Glæsibær, sími 588 2759,
Verslun og kaffihús í Tryggvagötu 14, sími 562 7364.