Morgunblaðið - 05.09.1998, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 05.09.1998, Blaðsíða 35
Bolognaise Sælkerinn LLIR þeir sem in- hvern tímann á ævinni hafa borðað spagettí hafa eflaust snætt eitthvert afbrigði af þekktustu pastasósu allra tíma, bologna- ise-sósunni. Nafnið er dregið af borginni Bologna og merki í raun „að hætti“ Bologna-búa. Eins og um marga aðra þekkta rétti er það hins vegar því mið- ur svo að margt af því sem kall- að er bolognaise á lítið sameig- inlegt með hinni upprunalegu sósu. Léleg ítölsk veitingahús og mötuneyti um allan heim bjóða útvatnaða útgáfu af þess- ari sósu sem er í raun lítið ann- að en tómatmauk og kjöthakk. Segja má að bolognaise í sinni réttu mynd, sé blanda af fernu: kjöti, grænmeti, kjúklingalifur og hvítvmi. Auð- vitað er ekki til nein ein „rétt“ uppskrift og hægt er að aðlaga hana á margvíslega vegu eftir smekk hvers og eins. Séu þessir fjórir þættir hins vegar ekki til staðar verður niðurstaðan aldrei fullkomin. Ekki síst gegna hvítvín og kjúklingalifur lykilhlutverki. Hvítvínið verður að vera þurrt og kjúklingalifur er nú orðið hægt að kaupa frosna í öllum betri stórmörk- uðum. Hvað kjötið varðar er auðvitað hægt að nota nauta- hakk eingöngu. Vilji menn hins vegar taka skrefið til fulls er best að nota nautakjöt og svína- kjöt til helminga og að sjálf- sögðu fæst langbesti árangur- inn ef keyptir eru þokkalegir, fitulitlir kjötbitar og þeir hakk- aðir heima. Ég verð nú samt að viðurkenna að ég er álíka latur við það og að búa til mitt eigið pasta þrátt fyrir yfirburðagæði hins síðarnefnda. Hér er uppskrift sem reynst hefur mér mjög vel og ætti að duga fyrir 4-6 eftir því hvað menn taka ríflega til matar: 400 g kjöthakk 150 g kjúklingalifur 100 g beikon Ein stór gulrót Einn meðalstór laukur 2 sellerístönglar Ein lítil dós tómatakraftur Ein dós tómatar, maukaðir 1,5 dl hvítvín 3 dl kjúklingasoð 3 hvítlauksgeirar óregano, ferskt eða þurrk- að, eftir smekk. múskat salt og pipar ólívuolía Líklega er spagettí bolognaise þekktasti pasta- réttur sem til er. Stein- grímur Sigurgeirsson seg- ir kjúklingalifur lykilinn að vel heppnaðri máltíð. Aðferð: Skerið beikonið niður í örlitlar sneiðar. Saxið kjúklingalifur. Flysjið gulrót og lauk og saxið mjög smátt ásamt sellerí- stönglunum. Hitið olíu á stórri pönnu og steikið beikonið í smá stund. Bætið grænmetinu út á pönn- una og steikið í 2-3 mínútur. Bætið kjúklingalifur og kjöt- hakki saman við. Passið upp á að kjötið myndi ekki köggla á pönnunni. Hrærið í með sleif og gætið þess að allt kjötið steikist. Bætið tómatamauki saman við ásamt pressuðum hvítlauks- geirunum, óreganó og múskatkryddi. Piprið eftir smekk. Hellið hvítvíni, kjúklingasoði og loks tómötun- um sem helst er búið að mauka. Ef keyptir eru heilir tómatar í dós er gott að setja þá í mat- vinnsluvél í örfáar sekúndur. Einnig eru til tilbúnir maukaðir tómatar frá Hunts undir nafn- inu „Tomato Sauce“, sem eru ágætir. Þá er auðvitað hægt að hella tómötunum beint út á og gæta þess vel að þeir maukist saman við annað hráefni. Látið suðu koma upp og leyf- ið pastasósunni síðan að malla í um 45 mínútur á vægum hita eða þar til að hún er orðin þykk og fín. Gætið þess að hitinn sé ekki of mikill því að þá gufar vökvinn of hratt upp. Hægt er að bæta við soði ef þarf. Bragðið á sósunni og saltið ef þarf. Nú er hún tilbúin og hægt að bera hana fram með nýsoðnu spagettíi. Agætt úrval er af ítölsku spagettí í verslunum en gæta verður þess vel að fylgja suðutíma nákvæmlega og sjóða pastað í miklu, léttsöltuðu vatni. Nú er einungis eitt af því mikilvægasta eftir. Parmesan- osturinn. Hann fæst yfirleitt ferskur í kæliborðum verslana. Rífíð niður vænan skammt á rifjárni og berið fram í sérskál samhliða pastasósunni og spa- gettíinu. Italh- furða sig stund- um á því hvað „útlendingar" snæða mikið af parmesan með pasta. Sjálfum finnst mér hins vegar fátt mikilvægara með bolognaise en rifni osturinn. Rauðvín á best með þessum rétt. Sum ítölsku Chianti-vínin sem hér fást eru tilvalin: Brolio, Villa Antinori, Castello di Nipozzano og Ruffino Riserva Ducale. Montepulciano d’Abi-uzzo er jafnframt ódýr og vænlegur kostur. LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1998 35 mSON TGP980 PHILIPS Onis P H I LiI P S iA l o r i s 900 Mhz. Þyngd símtóls 170 g. 1 Dregur allt að 100 metra innanhúss. Dregur allt að 300 metra utanhúss. ’ (slenskur leiðarvísir. DBTelNe IWWNVIVIAGIC • Stafrænn sími. • Þyngd talfæris 158 g. • 20 númera nafnvalsminni • Ending rafhl. meira en 40 klst. í biðstöðu, í notkun 4 klst. • Dregur 50-100 metra innanhúss. • Dregur 300 metra utanhúss. • íslenskur leiðarvísir._________ ^greft: Í • Aukasímtól: 7.90u,- Heimilistæki hf SÆTÚNI 8 SÍMI 5691500 www.ht.is Umboðsmenn um land allt 900 Staðgreitt: • 900 Mhz. • Þyngd talfæris 240 g. • Ending rafhlöðu í biðstöðu 60 klst., í notkun 12 klst. • Dregur 600 metra utanhúss. • Hægt að bæta við 3 aukasímtólum. • íslenskur leiðarvísir • Stafrænn sími. • Þyngd símtóls 159 g. • 40 númera nafnvalsminni. • Ending rafhlöðu allt að 8 dagar í biðstöðu, í notkun allt að 14 klst. • Dregur 100 metra innanhúss. • Dregur 300 metra utanhúss. • Ekkert suð, kristaltær hljómur. • íslenskur leiðarvísir. 16.900, y) » Onis Memo: 22.900, Onis með stafrænum símsvara og hátalara í símtóli. PHILIPS - hvergi ódýrara
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.