Morgunblaðið - 05.09.1998, Page 37

Morgunblaðið - 05.09.1998, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1998 37 iftir farangrinum. Sóknarmaðurinn Zinedine Zidane og sóknarmaður- nokkra fyigdarmenn sína. ZINEDINE Zidane, hetja Frakka í úrslitaleik heimsmeistarakeppninar, gefur áhugamanni eina af mörgum eiginhandarráritunum sem hann hef- ur gefíð um ævina. Morgunblaðið/Golli og fréttamanna kom til Iandsins með heimsmeisturunum. Hér ræðir Frank Leboeuf við útvarpsfréttamenn. íieistarar Frakka komu til landsins í gær með sér vistir, vín franskan kokk FRANSKIR blaðamenn náðu að króa fyrirliðann Didier Deschamps af þar sem hann hafði dregið sig úr íjöldanum á Leifsstöð, og spurðu hann spjörunum úr. „AUÐVITAÐ stend ég mig eins vel og ég get,“ sagði miðjumaðurinn Youri Djorkaeff þar sem hann gekk inn landganginn á Leifsstöð. „Við þurfum að vara okkur á íslendingum, því það getur allt gerst.“ inn. Hann sagði að hann hefði fengið stutt frí eftir heimsmeist- arakeppnina en síðan hefði hann verið að byggja sig upp. Hann sagðist ekki vita mikið um ís- lenska landsliðið, en hann vissi að leikurinn yrði erfiður, þeir væru það allir. Sérstakur kokkur með í för „Frönsku heimsmeistararnir hafa góða matarlyst, þeir hreyfa sig mikið og borða þar af leiðandi mjög mikið,“ sagði André Bisson matreiðslumeistari franska lands- liðsins. Bisson hefur eldað fyrir liðið sl. tíu ár, hvar sem það er statt í heiminum. „Hvort sem það er í Frakklandi, á íslandi eða Jap- an, þá elda ég alltaf fyrir þá. Ég hef eldað í stjórnartíð þriggja þjálfara, og fyrir margar kynslóð- ir leikmanna," sagði Bisson og kvað matinn vera hefðbundna franska og ítalska matargerð. Hver máltíð samanstendur af nokkrum forréttum og nokkrum aðalréttum þannig að leikmenn- irnir geta valið um hvað þeir borða. „Þeir eru alls ekki erfíðir í fæði, þeir borða allt,“ sagði Bis- son. Hann sagði hins vegar að að mörgu væri að huga þegar knatt- spyraulið Frakka væri á ferðinni. Þeir flytja til dæmis ávallt með sér birgðir af vatni, ýmist Evian eða Vittel, en liðið er með samn- ing við það fyrirtæki. Einnig flytja þeir eins og sönnum Frökkum sæmir með sér rauðvín, og eitt- hvað af matnum. Roger Lemerre þjálfari franska liðsins sagði að liðið væri komið aftur í gott form eftir sumarið. Hann sagðist þó hafa áhyggjur af því að þeir Ieikmenn sem væru í félagsliðum sem hefðu byijað að æfa snemma hefðu ekki fengið næga hvfld eftir heimsmeistara- keppnina. Liðið hefur spilað einn leik siðan heimsmeistarakeppn- inni lauk, og var það vináttuleikur við Austurríki, sem lyktaði með jafntefli. Sagði Lemerre að liðið yrði í jafngóðu formi og í heims- meistarakeppninni í leiknum í dag. Hann sagðist ekki vera búinn að gera upp við sig hvort hann myndi tefla fram sóknar- eða varnarliði, en lykiilinn væri að sjálfsögðu að velja rétta blöndu af liði, og leikskipulag sem hentaði. Lemerre sagðist hafa kynnt sér vel islenska Iiðið, og minntist í því sambandi sérstaklega á styrk Eyj- ólfs Sverrissonar og Þórðar Guð- jónssonar. „Við verðum að spila varlega. Fyrri úrslit sýna að leik- . urinn getur farið á hvaða veg sem er. Jafntefli á Islandi eru ágætis úrslit. Ég hef kynnt mér leik- skipulag íslenska liðsins vel og leikmennirnir þekkja liðið líka. Við vanmetum liðið ekki og vitum hveiju við eigum von á,“ sagði Lemerre á blaðamannafundinum í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.