Morgunblaðið - 05.09.1998, Page 43

Morgunblaðið - 05.09.1998, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1998 43?- + Sólveig Guð- björg Márus- dóttir fæddist 1.12. 1923 í Fyrirbarði í Fljótum. Hún lést í Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar 29. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Sigur- björg Jónasdóttir, f. 26.5. 1888, d. 6.9. 1958 og Márus Ari Símonarson, f. 3.8. 1879, d. 14.4. 1968. Systkini Sólveigar: Símon, f. 3.10. 1902, d. 22.10. 1985, Guðbergur Jónas, f. 11.1. 1909, d. 24.1. 1982, Frið- rik Guðlaugur, f. 8.8. 1910, d. 2.1. 1997, HallgiTmur Elías, f. 6.11. 1913, d. 24.6. 1998, Björg- I dag kveðjum við okkar ástkæru frænku, Sollu. Það var ekki í hennar anda að láta skrifa lofræðu um sig, en við getum ekki annað. Solla, þú varst höfðingi heim að sækja. Avallt tókstu á móti okkur opnum önnum og með bros á vör og borðin svign- uðu undan kræsingum, en aldrei fannst þér það nóg. Þú vildir alltaf vera að gauka einhverju að okkur. Allir nutu þessarar góðvildar, svo sem á réttardaginn þegar húsið fylltist af fólki í mat og kaffí, en aldrei vantaði neitt, hversu þreytt sem þú varst. Solla var skaprík, glaðsinna en sanngjörn og mátti aldrei neitt aumt sjá. Barngóð var hún með eindæm- um. Hún var forkur til vinnu, gekk í öll verk, hvort sem var inni eða úti- við. Hún var mikil hannyrðakona og var iðin með prjónana. Liðtæk var hún við spilaborðið og naut hún sín þar vel. Síðast hittumst við 15. ágúst á okkar árlega systkinamóti í Haga- nesi við söng og glens og allir skemmtu sér konunglega. Daginn eftir hringdir þú til að tilkynna okk- ur að Brynja hefði eignast dreng þá um morguninn á afmælisdegi Tóta en engan grunaði að við mundum ekki hitta þig framar. Hún átti við vanheilsu að stríða síðustu árin en aldrei kvartaði hún, spurði bara um líðan annarra. Hún veiktist á föstudegi, á laugárdags- morgni var hún öll. Að leiðarlokum þökkum við samfylgdina. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin strið. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Elsku Tóti, Elsa, Ari, Ómar, Egill, Brynja og fjölskyldur. Guð gefi ykk- ur styrk í sorg ykkar. Elísabet, Stefanía, Björk, Gyða og Erla Sjöfn. Laugardaginn 27. ágúst kvaddi Sólveig Márusdóttir þennan heim og lagði upp í sína hinstu för til æðri heimkynna. Með fátæklegum orðum langar mig að kveðja þig, elsku frænka. Við systkinin litum á þig sem aðra móð- ur, svo góð varstu við okkur öll. Solla frænka byrjaði búskap sinn í litlu húsi sem Grund heitir. Þangað flutti hún með Ómar en fyrir átti hún Elsu og Ara sem ólust upp hjá pabba og mömmu í Haganesi í Fljót- um. Eiginmanni sínum Þórarni Guð- varðarsyni kynntist frænka síðan og flutti með honum að Minni-Reykjum þar sem þau bjuggu ávallt síðan. Með Þórarni átti Solla frænka tvö börn, þau Egil og Brynju. Heimilið að Minni-Reykjum stóð ávallt opið fyrir mér og mínum vin Abel, f. 5.11. 1916, d. 13.11. 1993, Zoph- onfas Magnús, f. 23.12. 1919, Þuríður Guðlaug, f. 5.11. 1926. Sólveig giftist 26.12. 1962 Þórarni Guðvarðssyni. For- eldrar lians voru Guðvarður Péturs- son, f. 2.8. 1895 og María Asgrímsdóttir, f. 23.10. 1896. Börn Sólveigar eru: 1) Elsa H. Jónsdóttir, f. 9.10. 1944, maki Björn Einarsson, börn þeirra: Guðbjörg Særún, f. 11.7. 1965, maki Jón Jóhannes- son, börn þeirra: Inga Dögg, f. 14.2. 1981, Gréta Dröfn, f. 9.9. 1985, Daníel Freyr, f. 26.7. 1991. börnum. Sú tilfinning sem hríslaðist um mig þegar ég heimsótti hana í hinsta sinn ásamt konu minni og börnum um miðjan ágústmánuð sl. minnti mig á bernskuárin mín í Fljótunum þegar ég átti ávallt at- hvarf hjá frænku. Faðmur hennar var ávallt opinn fyrir lítinn sveita- strák sem afrekaði það endrum og eins að vinna prakkarastrik enda engin furða þar sem heimurinn á meðal fimm systra var ekki alltaf dans á rósum. Við Ari fórum ófáar ferðir að Minni-Reykjum á skíðum í kulda og snjókomu og yljaði Solla okkur þá með heitu súkkulaði og kökum. Solla frænka mín. Þú varst at- hafnakona, sast sjaldan prjónalaus þegar tækifæri gafst frá búskapn- um. Ég vil þakka þér fyrir sam- fylgdina og bið góðan guð að varð- veita þig. Eiginmanni þínum, Þór- arni, börnum, tengdabörnum, barnabörnum og barnabarnabörn- um votta ég mína dýpstu samúð og vona að minningin um góða konu ylji ykkur í sárustu sorginni. Kári Kort Jónsson. Með þessum örfáu orðum viljum við minnast elskulegrar frænku okk- ar, hennar Sollu á Minni-Reykjum. Sveitin er ekki hin sama eftir andlát hennar. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Hlýja þín, hlátur þinn og tilheyr- andi látbragð sem fylgdi honum munu lifa með okkur um ókomna tíð. Megi Guð blessa þig. Um leið viljum við votta nánustu aðstandendum innilega samúð. Anna Sigríður, Erla Hjördís og Lilja Katrín Gunnarsdætur. Mig langar með nokkrum orðum að minnast konu sem átti engan sinn líka og var mikill áhrifavaldur í lífi mínu. Ég var í sveit á Minni-Reykj- um öll sumur frá því ég var sex ára og þangað til ég varð unglingur. Um leið og tók að vora var ég farin að iða í skinninu að komast í sveitina og fór ekki aftur fyrr en skólinn var að byrja að hausti. Alltaf beið Solla eft- ir mér með opinn faðminn og þar leið mér eins og heima. Ein af mínu fyrstu minningum um Sollu var þeg- ar hún labbaði með mér út að sund- lauginni, sem í minningunni er risa- stór, íklædd plasti, og var rétt við bæinn. Ég var voða spennt að sjálf- sögðu þótt ég væri ósynd og vatns- hrædd. Ég ætlaði að smeygja mér varlega ofan í en Solla hélt nú ekki, hún tók mig upp og fleygði mér út í miðja laug og þar barðist ég fyrir lífi Bára f. 22.8. 1966, maki Frits Hendrik Berndssen, börn þeirra: Sigurður Ernst, f. 28.8. 1993, Aníta Birna f. 31.5. 1998. Einar Guðmundur f. 20.3. 1969, maki Guðfinna Sigurðardóttir. Sævar, f. 29.5. 1972, dóttir hans Sigríður Margrét, f. 24.6. 1995. 2) Ari Már Þorkelsson, f. 16.1. 1948, synir hans, Eiður Már f. 8.1. 1974, Ari Már, f. 20.4. 1981. 3) Ómar Ólafsson, f. 24.5. 1951, maki Rannveig Pét- ursdóttir, synir þeirra, Pétur Már, f. 29.5. 1976, Atli Þór, f. 1.8. 1979. 4) Egill Þórarinsson, f. 26.1. 1960, maki, Mona Fjeld, dóttir þeirra Marie, f. 5.2. 1998. 5) Brynja Þórarinsdóttir, f. 4.9. 1962, maki Gunnar Gunnarsson, synir þeirra: Dag- ur Már Ingimarsson, f. 3.7. 1991, Friðrik Örn, f. 25.8. 1996, Þórarinn Sigurvin, f. 16.8. 1998. títfór Sólveigar fer fram frá Barðskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. mínu, að mér fannst, en hafði það af að krafla mig að bakkanum. Hún sagði mér að svona hefði hún lært að synda og þetta væri besta leiðin, því að svona lærði maður það strax. Ég var aldrei vatnshrædd eftir þetta og ég var orðin flugsynd áður en vikan var liðin. Þetta var ekki það eina sem ég lærði hjá Sollu og Tóta og væri of langt mál að tíunda það allt hér, en minningarnar streyma fram svo ótal margar og verðmætar. Þeg- ar Solla var að baka pönnukökur og ég, Egill og Bi-ynja reyndum að hafa við henni og borða þær allar jafnóð- um, en við áttum ekkert í æfðar hendur við pönnukökupönnuna þótt við værum þrjú. Sögurnar sem hún sagði okkur frá því þegar hún bjó í Fyrirbarði og hvað þau systkinin tóku sér fyrir hendur. Ferðirnar ógleymanlegu niður í Vík þar sem maður átti alltaf von á einhverju góðgæti og alltaf vildi Solla koma við hjá henni Stínu gömlu sem bjó ein í ótrúlega gömlu húsi niðri í Vík. Þegar við höfðum verið sérstaklega dugleg og á tyliidögum fór Solla í búrið og sótti flöskur af appelsíni og kremkex frá Frón. Það kemur ekki fyrir að ég minnist ekki þessa þegar ég sé kremkexið úti í búð. Allar stundirnar sem við sátum og spiluð- um, ortum ljóð, fórum í berjamó, steiktum kleinur eða gengum á fjöll, alltaf var eitthvað um að vera og aldrei lognmolla í kringum Sollu. Alltaf var mikill gestagangur á Minni-Reykjum og svignaði hlað- borðið af kökum, tertum og brauði í hvert sinn sem gesti bar að garði, hvort sem þeir komu óvænt, sem oftast var, eða gerðu boð á undan sér. Solla og Tóti tóku á móti öllum með ognum örmum og einstakri hlýju. A haustin, þegar ég kvaddi með trega, laumaði Solla alltaf að mér vænum seðli „fyrir vinnuna" og að auki lagði hún inn á bankabók peninga sem ég fékk fyrir lömbin hennar Kötlu (sem var kindin mín). Ég hef aldrei verið eins lík. Ég geri mér grein fyiTr því núna þvílík for- réttindi þetta voru fyrir mig að vera á Minni-Reykjum, mér leið alltaf eins og ég væri ein af heimilisfólkinu og mér leið alltaf vel. Hin síðari ár hafa ferðirnar norður í Fljót verið fáar. Það er ótrálegt hvernig maður lætur tímann hlaupa frá sér og gef- ur sér svo miklu minni tíma í það sem raunverulega skiptir máli. Alltaf hringdi Solla í mig með reglu- legu millibili til að athuga hvernig ég hefði það, hvort sem það var til Reykjavíkur, Noregs eða til Eyja. AUtaf var hún jafn kát og alltaf lét hún jafn vel af sér. Hún var að prjóna og var orðin mikil bissness- kona með viðskiptavini í mörgum löndum. Ein af mínum dýrmætustu minn- ingum um þig Solla var þegar þú varst að bjóða okkur góða nótt á kvöldin. Fyrst fannst mér það hálf- skrýtið, svo var ég farin að bíða eftir því 1 stiganum ef það var eki komið áður en ég fór upp: „Guð gefi ykkur góða nótt.“ Þetta sagðir þú við okkur á hverju kvöldi og Solla, þetta segi ég við syni mína á hverju kvöldi áður en þeir fara að sofa. Elsku Solla, þú gafst mér svo ótrálega mikið vega- nesti út í lífið og þú varst mér svo ótrálega dýrmæt þótt ég segði þér það aldrei berum orðum. Ég veit að þú hefur það gott þar sem þú ert núna og að þú lítur eftir þínum nán- ustu sem eftir eru. Ég veit líka að við eigum eftir að hittast aftur, hafðu það bara gott þangað til. Elsku Tóti, Elsa, Ari, Ómar, Egill og Brynja, ég votta ykkur innilega samúð mína og megi guð gefa ykkur styrk í sorginni. Eva S. Káradóttir. Um svipað leyti og fyrstu haustlit- irnir sáust á íslenskum gróðri þetta árið kvaddi hún frænka mín þessa jarðvist. Kona sem hefur verið svo ríkur þáttur í lífí mínu alla tíð. Mínar fyrstu minningar henni tengdar eni þegar við krakkamir sá- um gi-áa Haganesjeppann keyra upp Barðsveginn og út stigu þær systur Solla og Lauga, löbbuðu yfir flóann og fyiT en varði voru þær komnar í hlað, hressilegar konur sem gaman var að fá í heimsókn. Þannig var einmitt hún Solla frænka, kona sem gaman var að spjalla við. Manni fannst hún mikil heimskona sem saltaði sfld á sumrin og margar skemmtilega sögur man ég sem hún sagði mér frá þessum tíma. Solla hafði líka lært að sauma hjá bróður sínum og kunni þar af leiðandi þá list að sauma flíkur sem fóru vel og var boðin og búin til aðstoðar ef með þurfti. Hún gaf sér alltaf tíma til að sinna litlum frændsystkinum. Þótt hún hefði örugglega yfrið nógan starfa fannst manni að hún hefði alltaf tíma, hvort heldur sem var til að taka á móti gestum eða skreppa eitthvað í bíltúr. Fyrsta skólaárið mitt var hún matráðskona í skólanum og mér er minnisstætt hve gott var að koma í eldhúsið til frænku. Hún leið heldur ekki að neinn væri hafður útundan í því mötuneyti og stjórnaði þar af mikilli röggsemi. Einelti var ábyggi- lega athæfi sem ekki þreifst nálægt henni. Hún vildi einnig að maturinn væri sem ódýrastur og lagði þar af leiðandi net undir ís í Miklavatn, þar sem silungsveiði var næg. Annan hvern dag, næstum í hvaða veðri sem var, gekk hún frá Sólgörðum til að vitja um netin. Má nærri geta að stundum hefur hún verið þreytt, en það skynjaði maður ekki. Hún kom oft við á heimleiðinni í Fyrir-Barði og var oftast tilbúin að giTpa í tafl eða spil eða bara spjalla. Þá var stutt á milli okkar, en þegar Solla flutti í Minni-Reyki og hóf þar búskap með Tóta lengdist bæjarleiðin nokkuð, það kom ekki að sök. Það var ein- faldlega ekki hægt að koma í Fljótin án þess að fara í heimsókn í Minni- Reyki. Alltaf var tekið á móti manni eins og maður væri eini gesturinn það árið, og ekki var hægt að komast hjá því að finna hve hjartanlega vel- kominn maður var hjá þeim hjónum. Þegar þau fluttu úr gamla húsinu í nýtt var sjálfsagt að fá að gista í því gamla tíma og tíma yftr sumarið. „Hafðu þetta bara eins og þú vilt og veriði eins og heima hjá ykkur," var frænka vön að segja. Oft var mann- margt við matarborðið en það virtist ekki skipta nokkru máli hvort disk- amir voru fimm eða tíu. „Uss, hvað haldiði að ég hafi fyrir ykkur, þið bjargið ykkur bara sjálf,“ var hennar vanalega svar ef manni fannst hún hafa of mikið á sinni könnu. A fallegum sumarkvöldum var gaman að fara með Sollu í bfltúr um sveitina, sem hún lifði og starfaði í mestan hluta ævinnar, Þá sagði hún manni frá örnefnum og ýmsum at- burðum sem gerst höfðu en ekki verið skráðir. Hún var óþreytandi að miðla manni af fróðleik sínum. Frásagnir hennar voru í senn lifandi og skemmtilegar og hún kunni þá list að hrífa hlustandann með sér og svo hló hún þessum dillandi hlátri sem smitaði iðulega út frá sér. Hún elskaði sveitina sína og sitt fólk. Ef hún kom til Reykjavíkur var hún ákveðin í að heimsækja sem allra flesta og þótt hún ætti í seinni tíð oft erfitt með að fara á milli staða lét hún það ekki aftra sér. Ég hygg að ekki séu margir sem voru betur að sér um frændfólkið en hún, enda var Solla stálminnug og hafði þann eiginleika að vera áhugasöm um um- hverfi sitt og hafði gaman af að fylgjast með atburðum á líðandi stund. Mér er einnig minnisstætt hve mikinn áhuga hún hafði á því að taka sér alltaf eitthvað nýtt fyrir hendur eins og til dæmis að reyna að koma upp æðarvarpi í landar- eigninni, byggja sundlaug til að nýta heita vatnið, og þannig mætti lengi telja. Margar þessar hugmyndir komust aldrei í framkvæmd, en þær sýna glöggt hve vakandi hug hún hafði fyrir ýmsum möguleikum. Hún var líka ósérhlífin ef þurfti að taka til hendinni og vílaði ekki hlutina fyrir sér meðan ki-aftarnir leyfðu. Fyrir rúmri viku áttum við okkar síðasta samtal. Þá barst talið að því hvort ég ætlaði ekkert að koma í ber, en það hefur verið árviss viðburður*. nokkuð lengi að tína sér aðalbláber norður í Fljótum og gista hjá Sollu og Tóta. Okkur kom saman um að berin væru sennilega lítil og við mundum sleppa því þetta árið. Þegar svo Tóti hringdi og tilkynnti mér lát frænku minnar varð mér hugsað til þessa samtals. Ég fer að sjálfsögðu norður, en berin verða lítiL Það verður áreið- anlega tómlegt að koma í Fljótin. Hún Solla frænka elskaði vorið og sumarið, en hafði lítið dálæti á snjónum. Það er því gott til þess að vita að hún fékk að lifa sumarið og kveðja um það leyti er grösin sölna og laufin falla. Um leið og ég kveð hana frænku mína með kærri þökk fyrir allt vil ég fyrir hönd fjölskyldu minnar votta aðstandendum hennar mína dýpstu samúð. Sigurjóna Björgvinsdóttir. Hver minning dýrmæt perla á liðnum lífsins degi. Hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf sem gleymist eigi. Og gæfa var það öllum sem fengu að kynnast þér. (Ingibj. Sig.) Þessar ljóðlínur eftir Ingibjörgu Sigurðardóttur komu upp í huga minn þegar mér var sagt lát einnar uppáhalds frænku minnar, Sólveig- ar Márusdóttur. Um stund setti mig hljóða og hugurinn leið á vit minn- inganna. Myndir bernskuáranna birtust mér hver á fætur annarri þar sem Solla frænka, eins og ég kallaði hana, var glæsileg ung stúlka, gef- andi og hláturmild. Myndir æskunn- ar Ijómuðu þar sem unga stúlkan ég gat sagt henni frænku minni frá áhyggjum mínum, gleði og sorgum og fengið góð ráð. Síðast en ekki síst runnu fyrir hugskotssjónum myndir af Sollu frænku á Minni-Reykjum, ~ ásamt Tóta eiginmanni hennar, en á heimili þeirra hefur fjölskylda mín fundið sig velkomna á sumarferðum norður í Fljót. Hjá þeim hjónum svignuðu borð undan krásum er gesti bar að garði og ekki skorti húsmóðurina hjartahlýju. Já, hún Solla frænka var snilldar kokkur og hafði gaman af að veita öðrum. Ég veit að margir minnast hlaðinna matarborða á réttai'degi á Minni-Reykjum. En henni var fleira til lista lagt en að búa til góðan mat. I hennar högu höndum lék flest og þær eru margar flíkurnar eftir hana sem hafa prýtt eigendur sína og veitt þeim skjól hériendis sem erlendis. Solla frænka hafði gaman af að > • ferðast og hún var félagsvera. Hún var léttlynd og gat hlegið dillandi hlátri jafnvel af litlu tilefni. Hún hef- ur án efa þurft á sinni léttu lund að halda því lífsleiðin var ekki alltaf bein og breið. Hin síðari ár hefur hún ekki gengið heil til skógar. Hún gerði sér fulla grein fyrir vanheilsu sinni, enda skynsöm kona, en gerði jafnan lítið úr sínum veikindum og vanmætti - hún kvartaði aldrei þessi kona heldur bar harm sinn í hljóði og var alltaf tilbúin til að hughreysta aðra ef með þurfti. Með þessum fá- tæklegu orðum kveð ég kæra frænku, sem ég á svo miklu fleira að þakka en orð fá lýst. Elsku Tóti, Elsa, Ari, Ómar, Egill, Brynja og ykkar fjölskyldur. Við Haukur og börnin okkar vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Guð blessi minningu Sólveigar Márusdóttur. ^ Sigurbjörg Björgvinsdóttir. SÓLVEIG GUÐBJÖRG MÁR USDÓTTIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.