Morgunblaðið - 05.09.1998, Qupperneq 50

Morgunblaðið - 05.09.1998, Qupperneq 50
-tf50 LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1998 MORGUNB L AÐIÐ LISTIR Myndaflokkur um þrjá merka Islendinga Hagstj órnarhugmynda- saga Islands í öðru ljósi AÐ BYGGJA land er nýr íslenskur myndaflokkur í þrem þáttum eftir Þorvald Gylfason og Jón Egil Berg- þórsson sem írumsýndur verður í Ríkissjónvarpinu í vetur. Myndirnar fjalla um hagstjómai'hugmyndasögu Islendinga á síðustu öld og þessari í ->• gegn um samfellda frásögn af þrem mönnum, Jóni Sigurðssyni, Einari Benediktssyni og Halldóri Laxness. Þorvaldur Gylfason prófessor í hagfræði er kunnur af skrifum sín- um um þjóðfélagsmál en Að byggja land er fyrsti myndaflokkurinn sem hann gerir fyrir sjónvarp. Tildrögin eru þau að Hrafn Gunnlaugsson kvikmyndaleikstjóri hvatti Þorvald til að láta að sér kveða á þessum vettvangi og ákvað hann að slá til. Þorvaldur er í senn höfundur texta- handrits, framleiðandi og þulur myndaflokksins. Að sögn Þorvaldar er Að byggja land tilraun til að bregða öðruvísi birtu á hagstjórnarhugmyndasögu Islands með því að reyna að leiðrétta '*r þá slagsíðu sem verið hefur á hug- myndum fólks um mennina þrjá sem glímt er við í myndinni. Fyrsti þátturinn ber heitið Braut- ryðjandinn. Þar er Jóni Sigurðssyni forseta lýst sem einörðum málsvara frjálsra viðskipta og erlendrar fjár- festingar á Islandi, sem hagfrelsis- hetju og fyrsta hagfræðingi Islands. „Þjóðfrelsishetjuna Jón Sigurðs- son þekkja allir,“ segir Þorvaldur, „en um hagfrelsishetjuna vita menn minna enda hafa menn löngum haft hljótt um þá hlið á Jóni og jafnvel óvart sagt ósatt um hann í leiðinni. Sannleikurinn er nefnilega sá að Jón var hlynntur skilyrðislausu við- skiptafrelsi og þ.m.t. erlendri fjár- festingu. Menn vildu hins vegar yfir- leitt ekki lúta forystu hans í öðru en þjóðfrelsismálum og átti hann því undir högg að sækja í innanlands- málum, svo að hugmyndum hans var hafnað í hverju málinu á eftir öðru. Síðar kom aftur á móti í ljós að Jón hafði rétt fyrir sér. Hann skildi sam- hengið milli viðskiptafrelsis, mennt- unar og menningar, að viðskipti eru menntun!“ Jafnaðarmaðurinn Einar Annar þáttur heitir Ofurhuginn og fjallar um Einar Benediktsson skáld. Hann kynnti hugmyndir sínar um fjárhags- og framfaramál þjóðarinn- ar í beinu framhaldi af frelsisbaráttu Jóns forseta en viðhorf hans urðu undii' í oirahríð stjórnmálanna á fyrri hluta þessarar aldar. ísland tók þá aðra stefnu en Jón og Einar höfðu markað. „Margir hafa lýst Einari sem óprúttnum auðvaldssegg,“ segir Þor- valdur. „Sannleikurinn er aftur á móti sá að hann var jafnaðarmaður - knúinn áfram af óvenju ríkri réttlæt- iskennd. Kom það best fram í bar- áttu hans fyrir réttindum fátækra. Þessari hlið á skáldinu hefur að minni hyggju ekki verið haldið nægi- lega vel til haga. Einar birtist mér ekki sem draumhuga óraunsæismað- ur heldur sem djarfur og raunsær umbótamaður. Hann var minnihluta- maður um sína daga, líkt og Jón, enda voru þeir báðir á undan sinni samtíð.“ Leiftrandi af innsæi Þriðja þátt nefnir Þorvaldur Gagnrýnandann. Þar er því lýst hvernig Halldór Laxness rithöfund- ur brást við haftastefnu stjórnvalda á fimmta áratug aldarinnai'. Rökum hans fyrir frjálsum viðskiptum, skynsamlegi'i landbúnaðarstefnu og öðrum efnahagsumbótum er lýst til að kasta ljósi á efnahags- og þjóðlífið á Islandi allt fram á okkar daga. „Ritgerðasöfn Halldórs eru 20 en MYND sem Vignir Jóhannsson, sem býr til leikmynd þáttanna, gerði í tilefni af forsýningu fyrir aðstandendur á skáldverkin 14. Hin síðari ár fundust honum sjálfum ritgerðirnar síst veigaminni en skáldsögurnar. Rit- gerðirnar leiftra af innsæi - einnig þær sem fjalla um efnahagsmál, þótt engar heimildfr séu fyrir því að Hall- dór hafi lesið hagfræði. Og skáldinu skjöplast hvergi í hagrænni rök- semdafærslu, ekki frekar en Einari Benediktssyni áður. Það er eins og hið skáldlega innsæi þessara manna hafi dugað þeim til að komast að réttri niðurstöðu. Það er einstakur hæfileiki!" Enginn þessara þriggja manna hafði á sínum tíma erindi sem ei'fíði á sviði efnahagsmála. „Hagstjórnar- hugmyndir þeirra voru einfaldlega of langt á undan sinni samtíð. Nú þegar ný öld nálgast standa þeir aftur á móti með pálmann í höndunum. Heimsbyggðin hefur gert hugmynd- ir þeirra að sínu sjónarmiði.“ Inn í frásögnina er fléttað ýmsu efnahags- og menningarsögulegu efni sem varðar þessa þrjá menn og hagstjórnarhugmyndir þeirra. Pálmi Gestsson fer með hlutverk þremenninganna. Vignfr Jóhannsson býr til leikmynd. Karl R. Lilliendahl kvikmyndaði og Jón Egill Bergþórs- son stjómaði gerð myndarinnar. Guðríðar saga Þorbjarnardóttur RAGNHILDUR Rúriksdóttir í hlutverki formóður sinnar, Guðríðar Þorbj arnardóttur. LEIKLIST Vinnustofiir ieikara í Skemmtihúsinu FERÐIR GUÐRÍÐAR Höfundur og leikstjdri: Brynja Bene- diktsddttir. Hljóðmynd: Margrét Örn- ólfsdóttir. Lcikmynd og grímur: Rebekka Rán Samper. Búningar: Fil- ippia Elísdóttir. Leikari: Ragnhildur Rúriksdóttir. Fimmtudagur 3. sept- ember. SAGAN um fund Vínlands og landnám frá sjónarhomi Guðríðar Þorbjamardóttur lítur hér dagsins j ljós á íslensku. Áður hefur Tristan Gribbin flutt þennan einleik á ensku og fjallaði undirritaður um þá sýn- ingu og er óþarfi að endurtaka það sem kom fram þá. íslenska útgáfan hlýtur eðli máls- ins samkvæmt að vera tengdari frumtextanum þar sem hægt er að miklu leyti að notast við orðfæri hans, þó að sjálfsögðu með nútíma framburði. Siglt er milli skers og báru hvað málsnið varðar; nútíma- stíllinn verður aldrei of áberandi og textinn sjaldan svo fyrndur að hann verði illskiljanlegur. Þetta hentar leikkonunni, Ragn- hildi Rúriksdóttur, vel - hún hefur skýra framsögn og þá reisn til að bera sem sæmir hátíðlegu orðbragð- inu og er oft unun að hlýða á kjamyrt tungutak hennar þó að hún hnyti nokkram sinnum um textann. Aftur á móti hefði mátt ganga lengra við að laga verkið að hinni íslensku leikkonu. Framuppfærslan var unnin í samvinnu við hina enskumælandi Tristan Gribbin og bar mjög svip af einstökum hæfileika hennar til að tjá frásögnina með líkamanum. Þessar áherslur í leikstjórninni draga ekki fram sterkustu hliðar Ragnhildar sem leikkonu. Afleiðingin er sú að hin ýmsu atriði verða of samlit og hinar fjöldamörgu persónur of keimlíkar. í túlkun Ragnhildar er textinn í fyi'ir- rúmi og frásögnina ber hærra í minn- ingunni um sýninguna en leikinn. Efnistök Brynju sem höfundar era meira áberandi í þessari sýningu; hvort sem ræður að verið er að skoða verkið í annað sinn eða að textinn ryð- ur sér til rúms. Það er athyglisvert að sjá hvemig hin kristnu og kvenlegu gildi era spunnin saman í kringum persónu Guðríðar og þráðurinn í verk- inu verður barátta hennar fyrir sínum siðalögmálum sem fara með sigur af hólmi og hún innrætfr kvenkyns niðj- um sínum. Ragnhildur Rúriksdótth' er eftirminnilegust sem teinrétt og tíguleg nunnan sem er heil og óskipt í trú sinni eftir viðburðaríka ævi. Sveinn Haraldsson AUG L V S 1 IM G A ■WMk M . M . . KENNSLA STÝRIMANNASKÓLINN REYKJAVÍK Viltu verða skipstjóri? Viltu ná þér í réttindi? Ertu sportsiglari? Stýrimannaskólinn í Beykjavík heldur 30 rúml. réttindanámskeið sem hefst mánudaginn 7. september kl. 18.00. Innritun í síma 551 3194. Fax 562 2750. Skólameistari. Ýr — söngstúdíó Söngkennsla og raddþjálfun fyrir byrjendur og lengra komna. Einkatímar — hóptímar. Öll tegund tónlistar. Sveigjanlegt tímafyrirkomulag. »!ngveldur Ýr, símar 561 1021/898 0108. Hljómborðskennsla Á haustönn er hægt að bæta við nokkrum nem- endum í hljómborðsleik. Innritun ferfram í síma 567 8150 kl. 13—18 lau., sun. og mán. Námskeið haustannar stendur í 12 vikur. Hljómborðsnemendum býðst tónfræðikennsla, samleiksæfingar auk tölvuvinnslu tónlistar. í skólanum er unnið þróunarstarf í hljómborðs- kennslu og á vegum hans er gefin út kennslu- bókin Hljómborðsleikur. TÓNSKÓLI GUÐMUNDAR, Guðmundur Haukur, Hagaseli 15, 109 Reykjavík, sími 567 8150. Söngskólinn í Reykjavík Skólasetning ^ Söngskólinn í Reykjavík verður settur sunnudaginn 6. sept. kl. 16.00 í tónleikasal skólans - SMÁRA - Veghúsastíg 7. Kennsla hefst mánudaginn 7. sept. Kennsla á kvöldnámskeiðum hefst 15. sept. Innritun stendur yfir. Upplýsingar á skrifstofu skólans, Hverfisgötu 45, daglega frá kl. 10.00-17.00. Sími 552 7366. Skólastjóri. Þýskunámskeið Germaniu Námskeiðin hefjast 14. september og verður kennt í húsakynnum Háskóla íslands. Boðið er upp á byrjendahóp, þrjá framhaldshópa og þrjá talhópa. Innritað verður á kynningar- fundum í Lögbergi, Háskóla íslands, stofu 102, miðvikudaginn 9. september og fimmtudaginn 10. september kl. 20.30. Upplýsingar eru einnig veittar í síma 551 0705 kl. 17 — 19.30 á virkum dögum. Geymið auglýsinguna. Stjórn Germaniu. FÉLAGSSTARF Fundarboð Aðalfundur kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Vestfjarðakjördæmi verður haldinn á Cafferis, Hólmavik, laugardaginn 19. september 1998 og hefst kl. 13.00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Framboðsmál. Gestir fundarins verða Geir H. Haarde fjármálaráðherra, Einar Kristinn Guðfinnsson alþingismaður og Einar Oddur Kristjáns- son alþingismaður. Stjórnin.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.