Morgunblaðið - 05.09.1998, Qupperneq 63

Morgunblaðið - 05.09.1998, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1998 63 - FÓLK í FRÉTTUM Svanasöngur um stjörnu MIKIÐ fótboltastapp var í sjón- vörpum landsmanna um síðustu helgi, enda talið öruggt að sinna sérþörfum á þeim tíma þegar fólk leggur í ferðalög og útilegur og fæstir eru bundnir við sjón- vörp nema fatlaðir og lamaðir, ellihrumir og sjóndaprir og heyrnarlitlir. Ríkissjónvarpið gerði mikið að því á sínum tíma að koma á móts við heymarlausa og höfðu það lík- lega eftir Svíum. Enn eymir eftir af hjálp við heyrnar- daufa skömmu fyr- ir klukkan sex á kvöldin. Sjón- varpið hefur því eiginlega gefist upp á sænsku sósíalhjálpinni, en í stað uppgjafar ættu þeir hjá sjónvarpinu að leita fyi'ii' sér með úiræði fyrir bágstadda. Það er náttúrlega erfitt fyrir sjón- varp að eiga ráð við sjóndepru, en fótbolti á þremur rásum í einu um helgar styttir ekki farlama fólki stundirnar. Jafnvel börnum er gert hærra undir höfði en þeim gamlingjum, sem geta lítið haft fyrir stafni annað en sjón- varp eða útvarp ef þar er þá ein- hver dagskrá fyrir utan popp eða endalaus fyiinnæli um hvaða grænmetistegund eigi að éta. Undir lok síðustu viku sýndi Sýn kvikmyndina Lengstur dag- ur, sem gerð var um innrásina í Normandí. Hún var upphafið að endalokum nazistaríkisins og spor í átt til þeirrar heimsmynd- ar, sem við búum við í dag, eins og Evrópusambandsins og vaxt- ar og viðgangs Bandaríkjanna sem félaga meðal jafningja hvað lýðræði snertir. Nú tautar eng- inn á Islandi lengur „ísland úr Nato - herinn burt“ nema í skúmaskotum og mega ekki af herstöðinni sjá af ótta við tekju- missi. Lengstur dagur sýnir hvað Ameríkumenn, Bretar og Frakkar lögðu í sölurnar á strönd Normandí einn júnídag gott sem afrekað hefur verið. Nú má ekkert um fortíðina tala fyrir fólki af nýjum kynslóðum, sem tapaði sínum rétttrúnaði við óvænt hrun mikils herveldis. í staðinn skal söngla meiningar- lausa slagara, eins og fólk hafi orðið fyrir heilaskemmdum, því gefst ekki einu sinni ástæða til að hugsa fyrir hermdarverkum hvað þá að koma sér upp nýjum Carlosi eða öðrum álíka alþýðu- hetjum. Sýnd var heimildarmynd um Marilyn Monroe á Stöð 2, sem fletti upp mörgum hliðum á þessu náttúrubarni kvikmynd- anna. Marilyn var sögð af dönsk- um ættum í móðurætt og má vera að fríðleikinn hafi verið það- an, en þá mega Danir vel við una. Um föður Normu Jean, Marilyn, var lítið vitað, en þeim tókst að hafa upp á honum vegna mynd- arinnar og má segja að Norma Jean hafi verið líkari honum en móður sinni. Faðir Normu Jean hafði aldrei neitt af henni að segja og móðirin dó frá henni ungri. Hún varð því snemma munaðarlaus. Engu að síður upp- lifði Norma Jean það að verða eins konar kærasta alls hins vestræna heims, þökk sé kvik- myndunum, strax á þrítugsaldri. Hún giftist þrisvar, m.a. Arthur Miller skáldi. Móðir Nonnu Je- an, sem nú hét Marilyn Monroe, hafði verið biluð á geði, en líf Marilyn bauð nú ekki endilega upp á mikið jafnvægi. Hún end- aði líf sitt með of stórum skammti af svefnlyfjum. Þetta er í stuttu máli æviferill Marilyn. Hún hafði gifst fót- boltahetju, Joe DeMaggio, en þau skildu. Frá því að Marilyn andaðist og á meðan hann mátti, lagði hann blóm á leiði hennar á hverjum degi. Það var fallegur svanasöngur um mikla stjörnu. Eins og gefur að skilja fór mikið orð af Marilyn á meðan hún var á dögum. Fræg mynd var tekin af henni í New York er kjóllinn fauk upp um hana á gangstétt, þegar vindsveipur kom upp um loftgrind á stéttinni, þar sem hún stóð. Hún átti marga elskendur og margt óvildarfólk um sína daga. Joan Crawford staðhæfði að hún gengi í svo gegnsæum nærbuxum að allt sæist hvenær sem fyki upp um hana og John F. Kennedy Bandai-íkjaforseti er sagður hafa átt sína Monicu í henni. Indriði G. Þorsteinsson fyrir rúmum fimmtíu árum við að færa sér og öðrum sigur gegn illu valdi. Mynd þessi heyrh- til fortíð- inni, eins og svo margt annað SJÓNVARPA LAUGARDEGI tStemmningin rauð og bar- inn líka Morgunblaðið/Halldór HINIR „myndarlegu“ barþjónar Rauða barsins: Arnar, Magnús, Páll og Sissd. NÝR staður var opnaður á veit- ingastaðnum Einari Ben. síðastlið- ið föstudagskvöld og nefnist hann Rauði barinn. „Eigandinn á annan stað á Pasta basta sem nefnist Blái barinn,“ segir Magnús Ríkharðs- son aðspurður um nafngiftina. „Svo er barinn rauður og stemmningin líka.“ Hann segir að stefnt sé að því að fá fólk inn á staðinn sem sé 26 ára og eldra. „Svo er matargestum vitaskuld velkomið að nýta sér þá þjónustu sem þarna er í boði.“ En hvað var í boði um helgina? „Við vorum með opnunarteiti og buðum vinum og ættingjum og þeim sem okkur þykir voðalega vænt um,“ segir Magnús og hlær. Hann segir að staðurinn verði opinn fimmtudaga, fóstudaga, laug- ardaga og sunnudaga. Einnig verði hann notaður í einkaveislur, fyrir- tækjaveislur og annan gleðskap. En verða engar hljómsveitir? „Við þurfum þess ekkert,“ svarar Magnús kokhraustur. „Við emm með svo fallega barþjóna. Við vilj- um meina að þarna séu fallegustu og yndislegustu barþjónar í bæn- um.“ BIRGIR Sigfússon og Sigurður Helgason. HLÍN Einarsdóttir og Helena María Jónsdóttir. Ný útgáfa af lagi Bjarkar ► FJALLAÐ er um nýja og endurhljóðblandaða útgáfu af lagi Bjarkar „All Is Full Of Love“, með þýska dúettinum Funkstorung í New Musical Ex- press. Þar segir að þessi „lát- lausa vögguvísa" verði samsafn af hljóðum sem aðeins „fengi fólk út á dansgólfið á dansstaðn- um Disobey" sem sé genginn sér til húðar. „Samt, það er hug- myndin sem gildir; það hvemig Evrópa á nýrri ísöld er töfmð fram ... plata sem kallar fram velgju í maganum hlýtur að hafa eitthvað jákvætt við sig.“ Lnkatónleikar ársins TIW6GI ■/2\ .TjF IS í flllHjll h i -1-1 1 FFr.T» i n 11 » i m í i ii» i-1 1 • i **1. j ir<l. rí.íL-'t^^SRí'iiiiiM Frábær danstónlist frá kl. 23.30 með hljómsveitinni Saga Klass og söngvurunum Sigrúnu Evu Ármannsdóttur og Reyni Guðmundssyni. Birgir og Baldur með lauflétta stemningu og líflega tónlist á MÍMISBAR -þín saga! www.mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.