Morgunblaðið - 08.09.1998, Blaðsíða 1
202. TBL. 86. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Zjúganov leggur að Jeltsín að skipa nýjan mann í starf forsætisráðherra
Tsjernomyrd-
ín hafnað í
annað sinn
Moskvu. Reuters.
DÚMAN hafnaði Viktor
Tsjernomyrdín, forsætisráðherra-
efni Borís Jeltsíns, forseta Rúss-
lands, í annað sinn í gær. Atkvæði
féllu þannig að 138 þingmenn voru
fylgjandi embættisskipaninni en
273 voru á móti henni.
„Neyðarástand í efnahagsmálum
nálgast á ógnvekjandi hraða,“ sagði
Tsjernomyrdín í ræðu í neðri deild-
inni áður en gengið var til atkvæða.
„Við stöndum á barmi hengiflugs og
höfum ekki tíma til þess að þræta.
Við þurfum að grípa til aðgerða."
En ekki hafa þau orð hrifið á meiri-
hluta þingmanna dúmunnar.
Tsjernomyi'dín brást illa við höfn-
uninni, sakaði þingmenn um hrossa-
kaup og að láta sem efnahagskrepp-
an kæmi þeim ekki við.
Gennadí Zjúganov, leiðtogi
kommúnista, sagði Tsjernomyrdín
nú gjalda mistaka sinna sem for-
sætisráðherra Rússlands í meira en
fímm ár. Zjúganov sagði frétta-
mönnum að Jeltsín hefði gefið í
skyn fyrir atkvæðagreiðsluna að
hann myndi íhuga aðra kosti í stöð-
unni, þ.e. áður en dúman fjallar um
skipan forsætisráðherra í þriðja
sinn. Nú hefði dúman gefíð forset-
anum „umhugsunarfrest". Sumir
þingmenn sögðu Jeltsín verða að
fínna nýjan mann embættið til að
forðast höfnun dúmunnar í þriðja
og síðasta sinn.
Rúblan hríðfellur
Tvær vikur eru liðnar síðan Bor-
ís Jeltsín rak Sergej Kíríjenkó úr
embætti forsætisráðherra og setti
Viktor Tsjernomyrdín í embættið.
A þeim tíma hefur efnahagskrepp-
an í Rússlandi aukist ískyggilega.
Fyrir tveimur vikum kostaði einn
bandaríkjadalur sex rúblur en í
gærmorgun náði rúblan sögulegu
lágmarki þegar láta varð 20 rúblur
fyrir dollarann. Seðlabanki Rúss-
lands stöðvaði gjaldeyrisviðskipti
banka aftur í gær þegar ljóst varð
að viðskiptavinir vildu aðeins
kaupa dollara en ekki selja, en
gjaldeyrisviðskipti fóru samt sem
áður fram á götum Moskvuborgar.
Búist var við því að gengið myndi
lækka enn frekar og dollarinn
kosta 30 rúblur í dag, þriðjudag.
Seðlabankastjórinn
hættur
Sergej Dúbínin, seðlabankastjóri
Rússlands, sagði af sér í gær eftir
að hafa gegnt stöðunni í þrjú ár.
Haft var eftir honum að hann hefði
áður boðist til þess að láta af störf-
um vegna efnahagsvandans en
Jeltsín ekki viljað það. Talsmaður
forsetans sagði hins vegar að
Dúbínin hefði átt að láta af störfum
fyrr.
Að sögn Itar-Tass fréttastofunn-
ar sakar Dúbínin dúmuna um að
hafa brugðist skyldu sinni með því
að samþykkja ekki lög, sem tryggt
hefðu sparifé almennings í bönkum
og gjaldeyrisforða ríkisins. Borís
Jeltsín þarf að tilnefna forsætis-
ráðherra og leggja tillögu þess efn-
is fyrir dúmuna innan viku.
Reuters
Salernispappír dýrari
en styrjuhrogn
ALDRAÐUR Moskvubúi rýnir í
verð matvæla í gegnum glugga
kjötkaupmanns í gær. Auðar
hillur í verslunum eru nú æ al-
gengari sjón í Moskvu en þær
hafa verið sjaldséðar á undan-
förnum árum. Innfluttur salern-
ispappír er nú dýrari en styrju-
hrogn, en mjög gengur á birgðir
ýmissa nauðþurfta, svo sem
hveitis, matarolíu og smjörs í
verslunum.
Lýðveldið Kongó
Friðar-
samkomu-
lag náðist
Victoríufossum. Reuters.
SAMKOMULAG um vopnahlé og
kyrrsetningu hersveita í Lýðveldinu
Kongó náðist á fundi leiðtoga í
sunnanverðri Afríku í gær. Freder-
ick Chiluba, forseti Zambíu, sagði
fréttamönnum að samkomulagið
yrði undirritað í dag. „Allir fundar-
menn voru sammála um nauðsyn-
legar aðgerðir í Kongó,“ sagði
Chiluba, sem veitti ekki frekari
upplýsingar um efni samkomulags-
ins, en embættismaður greindi frá
því að vopnahlé gengi strax í gildi
og frekari viðræður deilenda væru
fyrirhugaðar.
--------------
Innrásarhætt-
an liðin hjá?
Dubai. Reuters.
STJÓRNMÁLASKÝRENDUR
virtust í gær á einu máli um að
hættan á að Iranir réðust inn í
Afganistan væri nú að mestu liðin
hjá, eftir að Ayatollah Ali Khameini,
leiðtogi Irans, neitaði þvi á sunnu-
dag að innrás væri í undirbúningi.
Enn ríkir þó mikil spenna i sam-
skiptum ríkjanna, enda eru um 70
þúsund íranskir hermenn við æfing-
ar nálægt landamærunum.
Varnarmálasérfræðingur við
International Institute for Strategic
Studies í London sagði í gær að út-
lit væri fyrir að íranir treystu sér
ekki til að gera innrás í Afganistan.
Aðrir stjórnmálaskýrendur segja
óvíst að Iranir séu reiðubúnir að
leggja i meiriháttar hernaðarátök,
minnugir hörmunga átta ára stríðs
við Irak, sem lauk árið 1988.
Björgunarmenn nema hljóð frá hljóðrita Swissair-þotunnar
Engar vísbendingar að
fínna í flugritanum
Halifax. Reuters.
FLUGRITI MD-11 þotu sviss-
neska flugfélagsins Swissair, sem
fórst við strendur Nova Scotia í
Kanada aðfaranótt sl. fímmtudags
með 229 manns innanborðs, hefur
ékki að geyma neinar upplýsingar
um síðustu sex mínútur hins ör-
lagaríka flugs. I gær tókst að nema
hljóðmerki frá hljóðrita vélarinnar.
Vonast er til að hann náist upp
fljótlega en flugriti þotunnar náðist
upp af hafsbotni á sunnudag.
Hljóðritinn varðveitir, hafi hann
ekki skemmzt, samtöl flugmanna
þotunnar og er talið að hann geti
varpað ljósi á hvað leiddi til þess að
þotan fórst, hálfri annarri stundu
eftir flugtak frá Kennedy-flugvelli í
New York, en hún var á leið til
Genfar í Sviss.
Skrokkstykki og
fleiri lík fundin
Fundizt hafa þrjú stór stykki úr
skrokk þotunnar skammt þar frá
Reuters
FLUGRITI Swissair þotunnar
fannst eftir þriggja daga leit
undan ströndum Kauada.
sem hljóðritinn er talinn vera og í
gær bjuggu kafarar kanadíska
flotans sig undir að kafa niður að
þeim og bjarga á land. Á vettvang
var væntanlegt sérstakt björgun-
arskip bandaríska flotans, USS
Grapple, sem notað var í hitteð-
fyrra við björgun braks úr Boeing
747-þotu bandaríska flugfélagsins
TWÁ, sem splundraðist yfir sjó
skömmu eftir flugtak í New York.
Um það bil fjórðungur braks
þotunnar var í gær kominn á land
en langflestir þeirra 229 sem fór-
ust liggja í votri gröf undan sjáv-
arþorpinu Peggy’s Cove, sem er
um 40 km sunnan Halifax, þar sem
til stóð að reyna að nauðlenda vél-
inni.
Með hjálp sérstakra nema telja
björgunarmenn sig vera búna að
fínna tvær þyrpingar líka á botnin-
um, um 5 km undan Peggy’s Cove.
Freista átti þess í gær að ná þeim
upp.
Gaurar eru
gungur
Lundúnum. Daily Telcgraph.
SVOKOLLUÐ „drengjamenn-
ing“ er ekki öll sem hún sýnist ef
marka má umfjöllun breskra vís-
indamanna um fyrirbærið. Bjór-
drykkja, fótbolti og kynlíf eru
leiðarljós gauranna sem lifa lífi
sínu í menningarkima kenndum
við drengi. Bretarnir Paul
Gascoigne, knattspyrnumaður,
og Liam Gallagher í hljómsveit-
inni Oasis eru átrúnaðargoðin.
Aðal þeirra hefur til skamms
tíma þótt vera ísmeygileg kald-
hæðni, ekki síst í eigin garð og
efni tímarita á borð við Loaded
er sniðið að hinum hrokafulla
töffara, sem lætur sér fátt fyrir
brjósti brenna og þarfnast
einskis nema félaga sinna.
Nýjar rannsóknir breskra fé-
lagsfræðinga hafa kippt grunnin-
um undan ímyndarsmíð drengja-
menningarinnar. Þeim er lýst
sem viðkvæmum „karl-börnum“
sem þrái bai-a eina konu í lífínu,
móður sína. Þeir séu ófærir um
að mynda félagstengsl og gangi
því illa að finna sér stað í þjóðfé-
laginu. „Svo virðist sem gaurinn
sé hálfgerð gunga, sem sé engan
veginn í stakk búinn til þess að
takast á við hinar hröðu samfé-
lagsbreytingar sem nú ganga yf-
ir,“ segir Angus Bancroft við há-
skólann í Cardiff. „Drengjamenn-
ingin er í raun veruleikaflótti en
ekki kaldhæðin árás á bók-
stafstrúaðan femínisma.“
Gazza og Gallagher eru full-
komin dæmi um gaura, sem axla
aldrei ábyrgð gjörða sinna, að
sögn Bancrofts. Hér áður íýrr
hafi flestir karlmenn vaxið upp úr
slíku ábyrgðarleysi en nú virðist
sem æ fleiri gangi drengjamenn-
ingunni á hönd. Hverju er um að
kenna? Bancroft segir vaxandi
völd kvenna og það sem hann
kallar lýðskrum tilfinninganna,
sem Tony Blair forsætisráðherra
Bretlands ástundi m.a., valdi því
að körlum þyki sér ógnað og
hverfi á vit drengjamenningar-
innar í stað þess að takast á við
lífið eins og flestar fullorðnar
manneskjur geri.