Morgunblaðið - 08.09.1998, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1998 29
LISTIR
FRUMSÝNINGIN: SHARON Sweet og Kristján Jóhannsson syngja á frumsýningunni hlutverk Turandot og
Calafs. í keisarahásætinu er Aldo Bottion, sem fór með hlutverk Altoums.
Sterk innlifim
og mikil tilþrif
ZUBIN Mehta sveiflar tónsprotanum á æfingu.
Sýningin á Turandot í
Borginni forboðnu var í
öllu tilliti glæsileg og
tilkomumikil og er
meðal minnisverðari
listrænna viðburða sem
Sigurður A. Magnús-
son hefur orðið vitni að.
FYRSTA óperusýning sem um
getur í „Borginni forboðnu" í Pek-
ing var ílutt laugardaginn 5. sept-
ember sl., en Borgin forboðna var
um aldaraðir aðsetur kínverskra
keisara og óheimil öðram en ætt-
mennum þeirra og vildarmönnum.
Það var óperan Turandot eftir Gi-
acomo Puccini, sem frumsýnd var.
Turandot var samin árið 1924 og
var síðasta verk meistarans. I
hlutverki prinsessunnar Turandot
var bandaríska sópransöngkonan
Sharon Sweet og í öðru aðalhlut-
verki, Calaf prins, var Kristján Jó-
hannsson. Sýningin fór fram undir
berum himni og voru áhorfendur á
fimmta þúsund.
I öðrum helstu hlutverkum voru
Aldo Bottino (Altoum), Carlo
Colombara (Timur), Barbara
Hendricks (Líú), Jose Fardilha
(Ping), Carlo Allemano (Pong),
Francesco Piccoli (Pang), Vittorio
Vetilli (mandaríninn) og Sergio
Spina (persneskur prins).
Kór og hljómsveit voru frá óper-
unni í Flórens, en aðrir aðstand-
endur sýningarinnar voru kín-
verskir, þeirra á meðal heil her-
deild úr kínversku lögreglunni.
Hljómsveitarstjóri var Zubin
Mehta. Alls voru á sviðinu kring-
um 1.100 manns þegar mest var.
Hugmyndina að sýningunni í
Peking átti þýskur fjármálajöfur
og tónlistai'unnandi, Michael
Ecker, sem rekur alþjóðlegt fyrir-
tæki undir heitinu Opera on Orig-
inal Site (OSO), sem áður stóð að
uppfærslum á Aidu eftir Verdi í
Egyptalandi og Toscu eftir Puccini
í Róm.
Óperan Turandot er með kín-
verskum söguþræði og gerist í
Borginni forboðnu fyrr á tímum,
því var umgjörð sýningarinnar
eins rauhæf og verða mátti; bak-
grunnurinn er ein af keisarahöll-
unum og fyrir framan hana tvær
litlar færanlegar hallir í nákvæm-
lega sama stíl sem öðru hverju
opnuðust fyrir áhorfendum og
sýndu þeim inn í draumkynjaða
veröld.
Meginefni óperunnar _er
grimmdin, dauðinn og ástin. Ast
Calafs prins á Turandot prinsessu
fer um síðir með sigur af hólmi, en
undanfari þeirrar stundar er með
köflum hörmulegur, ekki síst örlög
Timurs fyrrum konungs og amb-
áttarinnar Líú.
Á sýningunni á laugardagskvöld
áttu þau Kristján Jóhannsson og
Sharon Sweet greinilega hylli
áheyrenda og var innilega fagnað.
Kristján söng hina kunnu aríu í
þriðja þætti, Nessun dorma, af
sterkri innlifun og með miklum til-
þrifum, enda var bæði klappað og
hrópað í lok hennar.
Glerblástur
fyrir ryðfrítt stál
> SANDAFL EHF.
, Skútahrauni 4, Hafnarfirði, >
| símar 555 1888, 555 1800
Bandalag íslenskra listamanna
og menntamálaráðuneytið
Samstarfs-
samningur til
þriggja ára
SJÖTÍU ára afmælis Bandalags
íslenskra listamanna var minnst
með athöfn á Lækjartorgi á
sunnudag og síðar var skrifað
undir samstarfssamning milli
BIL og menntamálaráðuneytis-
ins til þriggja ára þar sem kveðið
er á um gagnkvæm samskipti
þessara tveggja aðila. Samning-
inn undirrituðu Björn Bjarnason
menntamálaráðhen-a fyrir hönd
menntamálaráðuneytisins og
Hjálmar H. Ragnarsson forseti
Bandalags íslenskra listamanna
og tekur hann formlega gildi um
næstu áramót. „Með þessum
samstarfssamningi er í raun ver-
ið að styrkja og skýra þau sam-
skipti sem verið hafa í gangi und-
anfarin ár milli Bandalagsins og
menntamálaráðuneytisins," segir
Hjálmar H. Ragnarsson.
„Þetta samstarf hefur aukist
mjög á síðustu áram og því tíma-
bært að koma þeim í formlegan
samning. Stjórn Bandalagsins
mun samkvæmt samningnum
veita ráðgjöf og umsagnir um
hver þau listræn málefni sem
ráðuneytið kýs að vísa til okkar.
Þetta á ekki hvað síst við um
samskipti við erlenda aðila á
listasviðinu en þau hafa færst
mjög í vöxt og fara enn vaxandi.
Einnig mun Bandalagið hafa
frumkvæði að því að vísa málum
til ráðuneytisins og taka þannig
þátt í mótun íslenskrar menning-
arstefnu. Mikilvægt atriði þessa
samnings er að í honum er skýrt
kveðið á um sjálfstæði Banda-
lags íslenskra listamanna gagn-
vart stjórnvöldum. Án þess gæti
Bandalagið heldur ekki sinnt
þeirri skyldu að veita sjálfstæða
og óháða ráðgjöf," segir Hjálm-
ar.
Samkvæmt samningnum veitir
menntamálaráðuneytið Banda-
lagi íslenskra listamanna 1.2
milljónir króna næstu þrjú árin
og er það ríflega tvöföldun á ár-
legu framlagi ríkisins til Banda-
lagsins. „Þessi hækkun gerir
okkur kleift að reka skrifstofu
Bandalagsins með lágmarks til-
kostnaði. Við munum nú endur-
skipuleggja reksturinn svo við
getum sinnt þeim skyldum sem
samstarfssamningurinn leggur
okkur á herðar," sagði Hjálmar
H. Ragnarsson forseti Bandalags
íslenskra listamanna.
EP
7stk.
Mitsubishi Carisma GLX
Hlaðbakur - Árgerð 1998
Sjálfskipting, rafmagnsrúður, samlæsing,
airbag, útvarp og kassettutæki, slökkvitæki.
Ný negld vetrardekk fylgja hverjum bíl!
FRÁBÆRT VERÐ KR. 1.550.000.
Útborgun aðeins kr. 350.000 og bílalán
til allt að 6 ára, meðalafborgun ca kr. 21.000
BILASALAN SKEIFAN
BÍLDSHÖFÐA 10, 112 REYKJAVÍK
SÍMI 587 1000, FAX 587 1007
0 U ÓaP
Kaldasel ehf.
SJÓVÁ - ALMENNRA *