Morgunblaðið - 08.09.1998, Side 25

Morgunblaðið - 08.09.1998, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1998 25 Auðkýfingurinn Rupert Murdoch vill kaupa Manchester United / London. Reuters, The Daily Telegraph. Ahangendur afar ósáttir væntingarfullt. Þykii’ þróun málsins sanna þá gömlu kenningu að það sé ekki sjálfur „glæpurinn" sem komi forsetum í vanda heldur tilraunir til að hylma yfir hann. Er nú mikið rætt um það í Washington hvort að Clinton hafi misnotað embætti sitt og ríkisfé með því að nota stjórnar- skrifstofur og embættismenn til að koma ósannindum á framfæri. Er Trent Lott, leiðtogi repúblikana í öldungadeildinni, þeirrar skoðunar að svo kunni að vera. Auk þess að reyna að sýna fram á að Clinton hafí framið meinsæri og misnotað forsetaembættið er jafn- framt talið að í skýrslu Starrs verði reynt að sýna fram á að forsetinn hafi hindrað framgang réttvísinnar meðal annars með því afturkalla gjafir er hann afhenti Lewinsky og reyna að útvega henni starf á veg- um hins opinbera. Sönnunargögn eru hins vegar talin á reiki hvað þetta varðar þar sem að vitnisburð- ur lykilvitna stangist á. Hver fær skýrsluna? Ekki hefur enn verið ákveðið hverjir muni fá aðgang að skýrsl- unni. Repúblikaninn Henry J. Hyde, formaður dómsmálanefndar þingsins, hyggst reyna að tryggja að einungis nefndarmenn fái að- gang að henni og segist ekki vilja að hans verði minnst sem „Larry Flynt þingsögunnar", en Flynt er útgefandi klámblaðsins Hustler. Aðrir þingmenn hafa látið þá skoðun í ljós að skýrslan sé það mikilvæg að henni beri að dreifa víðar og jafnvel gefa hana út opin- berlega um leið og hún liggur fyrir. Einnig er talið hugsanlegt að Starr skipti skýrslunni í þrennt, sam- kvæmt Los Angeles Times. Sam- antekt, sem dreift yi’ði opinber- lega, sjálfri skýrslunni er einungis þingmenn hefðu aðgang að og loks viðaukum með ítarlegri sönnunar- gögnum, sem mjög fáir hefðu að- gang að. Þessu til viðbótar er fastlega búist við að Hvíta húsið muni senda frá sér svarskýrslu til að koma sínum sjónarmiðum á fram- færi. Er lögmaðurinn David Kendall sagður hafa unnið að und- irbúningi hennar upp á síðkastið. Hann stendur hins vegar frammi fyrir þeim vanda að vita ekki hvaða fullyrðingar munu koma fram í skýrslu Starrs og þegar liggur fyr- ir að forsetaembættinu verður ekki afhent eintak af skýrslunni áður en hún verður send til þingsins. Nær engar líkur eru á því að þingið muni taka skýrsluna til um- fjöllunar þegar í stað. Flestir þing- menn eru þeirrar skoðunar að hyggilegra sé að bíða fram yfir þingkosningar og hefja umfjöllun um skýrsluna og þingyfirheyrslur þegar þær eru yfirstaðnar. Þá hafi þeir jafnframt svigrúm til að fylgj- ast með viðbrögðum almennings við innihaldi skýrslunnar. GENGI hlutabréfa í breska knatt- spyrnufélaginu Manchester United hækkaði umtalsvert í gær eftir að staðfest hafði verið af fulltrúum gervihnattasjónvarpsstöðvarinnar BskyB, sem er í eigu auðkýfingsins Ruperts Murdochs, að kauptilboð yrði gert í félagið í þessari viku. Greindu dagblöðin The Sun og The Times, sem bæði eru í eigu Mur- dochs, frá því í gær að tilboð hans myndi hljóða upp á 565 til 575 milljónir punda, sem samsvarar tæplega 70 milljörðum ísl. kr. Viðræður um kaup BskyB á Man. Utd. hafa staðið yfír í fimm mánuði en það var bandaríski fjár- festingarbankinn Goldman Sachs sem sá um undirbúninginn fyrir hönd Murdochs. Talið er að BskyB hyggist greiða eigendum hluta- bréfa í Man. Utd. allt að 225 pens fyrir hlutabréfið en verð hlutabréfs var við lokun á föstudag 159 pens. Fagna hluthafar því mjög enda mega þeir eiga von á góðum gróða verði af sölu félagsins. Aukinn áhugi á hlutabréfum í Man. Utd. olli því að gengi hlutabréfa í öðrum knattspyrnufélögum á Bret- landseyjum hækkaði einnig, ekki síst Tottenham, sem talið er líklegt að skipti um eigendur á næstunni. Aukinn áhugi fjármálamanna kemur einnig til af því að orðróm- ur er á kreiki um að gagntilboð berist í Man. Utd. The Financial Times greindi frá því í gær að En- ie-samsteypan, sem er eigandi Vicenza á Italíu og AEK Aþenu í Grikklandi auk þess sem hún á 25% í skoska félaginu Glasgow Rangers, hugleiddi nú að bjóða í Man. Utd. Fréttaskýrendur telja auk þess lfklegt að fjölmiðlasam- steypur eins og Granada og Carlton hugleiði tilboð í félagið, eða önnur sem standa í fremstu röð. Áhyggjur vegna áhrifa Murdoch-veldisins Manchester United er frægasta og ríkasta knattspyrnufélag á Bretlandseyjum með 27,6 milljónir punda, rúmlega þrjátíu milljarða ísl. kr., í tekjur á síðasta fjár- hagsári. Martin Edwards, sljórnar- formaður félagsins, er stærstur hluthafa, á um 14% í félaginu og er talið að hann fengi um 80 milljónir punda fyrir hlut sinn, tæplega 10 milljarða ísl. króna. Mikill uppgangur liefur verið hjá félaginu undanfarin tíu ár. Ekki er langt síðan Edwards fékk tilboð upp á 20 milljónir punda, rúmlega tuttugu milljarða ísl. kr., en síðan þá hefur félaginu bæði gengið afar vel á vellinum og jafnframt tekist að auka verulega tekjur sínar af sölu ýmiss konar varnings tengd- um félaginu. Tilkynnti félagið í vikunni að það hygðist bæta við áhorfendastæðum á velli sínum Old Trafford þannig að rúmlega 67.000 manns rúmist þar. Rupert Murdoch uppgötvaði fyr- ir margt löngu að græða má af því að eiga íþróttafélög, ekki síst þar sem sjónvarpsútsendingar frá íþróttakappleikjum hafa gerst æ vinsælli, og þar með uppspretta mikils gróða. Hann á þegar íþróttafélög í Bandarikjunun, hafnaboltafélagið Los Angeles Dodgers, íshokkíliðið New York Rangers og körfuknattleiksfélögin Los Angeles Lakers og New York Knicks. Umsvif Murdochs á Bret- landi hafa hingað til að mestu snúist í kringum fjöhniðlaveldi hans og hefur Sky-sjónvarpsstöðin haft einkarétt á sjónvai’psútsend- ingum frá bresku úrvalsdeildinni síðan 1992 og fyrir tveimur árum endurnýjaði Sky samninginn til 2001. BskyB hefur jafnframt einkarétt á beinum útsendingum frá rugby og krikket í Bretlandi. Fréttirnar af sölu Man. Utd. hafa hins vegar síður en svo vakið hrifn- ingu alls staðar. Með kaupunum á Man. Utd. kæmi upp alveg ný staða og að sögn The Daily Telegraph myndi BskyB í raun hafa neitunar- vald um framtíð úrvalsdeildarinnar bresku og jafnframt lykilstöðu í viðræðum um evrópska úrvals- deild, sem mjög hefur verið rædd meðal stærstu klúbba í Evrópu undanfarin misseri. Leiðarahöfundar The Guardian vekja einnig athygli á að sem eig- andi Man. Utd. myndi BskyB t.d. þurfa að standa í viðræðum, ásamt öðrum meðlimum ensku úrvals- deildarinnar, við sjálft sig vegna sjónvarpsréttarins. Blaðið spyr hvort íþróttafréttamenn The Sun muni í framtíðinni beita silkihönsk- unum í umfjöllun um Man. Utd. og Háþrýstidælur Diesel, bensín og rafdrifnar. „'-''X'lilboðsverð frá ©DæluwaO ehf Ármúla 34, 108 Reykjavík Sími: 533 4747 Fax: 533 4740 hvort þeir sem lýsa leikjum Man. Utd. á Sky muni halla máli sínu. Segir blaðið erfítt að sætta sig við að sami aðili siLji beggja megin borðsins og mælir gegn sölu United til Murdochs. Gífurlegar afleiðingar Margir aðrir hafa látið í ljósi áhyggjur og sagðist Tony Banks, ráðherra íþróttamála á Bretlandi, enga trú hafa á því að sala Man. Utd. til Murdochs verði leyfð nema að fyrst liafi farið fram nákvæm rannsókn á innihaldi kaupsamning- anna. „Þetta er ekki eitthvað sem rennur auðveldlega í gegn eins og um hverja aðra yfirtöku væri að ræða, vegna þess að afleiðingarnar verða svo gífurlegar, ekki aðeins fyrir íþróttina heldur einnig fyrir samkeppni fjölmiðlanna. fþróttir, og þá sérstaklega knattspyrna, gegna lykilhlutverki við sölu auglýsinga og rekstur sjónvarps- stöðva." Peter Mandelson, ráðherra viðskipta og iðnaðarmála, tók í sama streng og sagði öruggt að fylgst yrði vel með framgangi mála, tryggja yrði að öllum lögum yrði hlýtt. Áhangendur Man. Utd. hafa brugðist ókvæða við fregnum af sölu félagsins til Murdochs og sagði Andy Walsh, talsmaður félags stuðningsmanna United, að stuðningsmenn yrðu afar ósáttir ef Edwards tæki tilboði Murdochs. Mótmælaaðgerðir voru í gær skipulagðar fyrir framan leikvang félagsins og var andrúmsloft í Manchester heldur fjandsamlegt Murdoch. Virðast áhangendur Man. Utd. óttast að liðið muni fjar- lægjast rætur sinar við söluna og verða að „fyrirtæki" líkt og raunin hefur orðið með mörg lið t.d. á Italíu og í Þýskalandi og þar með tapa sálu sinni. „Rupert Murdoch er alveg sama um Man. Utd.,“ sagði einn aðdáandi félagsins. „Hann sér bara gróðavon með þessum kaupum." Stuðningsmenn Man. Utd. óttast einnig að sala félagsins leiði til hærra miðaverðs og þess að félagic segi sig úr bresku knattspyrnu- deildinni, til að taka þátt í væntan- legri Evrópudeild, en sú hugmynd hefur ekki enn unnið hug og hjörtu breskra knattspyrnuáhugamanna þótt eigendur félaganna telji sig þar eygja enn frekari gróðavon. Það er auðvitað vísbending um að viðskiptahagsmunir hafi í seinni tíð skipt æ meira máli við rekstur knattspyrnufélaganna en mörgum finnst að við kaup BskyB á Man. Utd. sé endanlega gert út af við þá stöðu sem bresk knattspyrna hefur haft í menningarlífínu sem íþrótt almúgans. I staðinn yrði enski bolt- inn kominn í hendur fjármála- mannsins Murdochs sem stendur nákvæmlega á sama um þjóð- aríþrótt Breta og sögu hennar en lætur sig einungis varða um gróða og afkomutölur. ©iöí?s0(B§ Magnadir bílar á mögnuðu verði

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.